Morgunblaðið - 19.02.1997, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 19.02.1997, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Grunnform Eyborg Guðmundsdóttir (1924-1977). MYNPUST Önnur hæð FLATARMÁL Eyborg Guðmundsdóttir. Opið miðvikudaga frá 14-18. Eirrnig eftir samkomulagi. Febrúar - marz. Aðgangur ókeypis. STRANGFLATAUSTIN í mál- verki, sem lifði blómaskeið sitt á sjötta áratugnum átti sér allnokkra áhangendur hér á landi, en fáa sem gengu að verki af slíku meinlæti sem Eyborg Guðmundsdóttir. Hún kom að vísu nokkuð seint á vettvang eða á tímum sem önnur gildi voru að þrengja sér í sviðsljósið, svo sem ýmsar tegundir óformlegrar með- höndlunar efnisins á milli handanna og úthverfs innsæis í óheftri sér- tækri mótun, „art informel“ og „ab- strakt expressjónismi", sem voru leiðandi stefnur fram að umskiptun- um miklu um miðjan sjöunda áratug- inn er popplistin varð allsráðandi fram að tímum hugmyndafræðilegu listarinnar, sem ruddi flestu öðru burt um stund. En þess ber að gæta að svið flat- armálverksins var afar breitt og fæstir frumkvöðlar þess tóku þátt í þessum heljarstökkum milli stíl- brigða, ræktuðu áfram sinn garð, og þeir sem eru ofar moldu eru enn að og sumir með mjög fersk og lif- andi verk. Það var bæði eðlilegt og raun- hæft að list grunnformanna þætti forvitnileg og traustvekjandi hér á landi, því þessi hlið myndlistar hafði aldrei verið ræktuð í hreinleika sín- um frekar en annað meinlæti á myndfleti, sem og hin sígildu grunn- mál akademismans. Það var helst að Jón Stefánsson byggði myndir sínar upp á þessum ströngu lögmál- um og þótti fyrir vikið full þungur og rökfræðilegur á mælikvarða ann- arra málara. Það sem strangflatamálaramir voru að gera var að þrengja sér al- veg inn í kjarna myndflatarins og lögmála hans, hafna hinu hlutvakta en velta þeim meira fyrir sér grunn- formunum og myndbyggingunni. Hér skiptu litimir og þenslumáttur þeirra einnig miklu máli og allt þetta sjáum við í hinum hreinu frumlitum Auguste Herbin, þýðu millitónum Alberto Magnellis, stöku litum, svarthvítu heildum og sjónræna titr- ingi Victors Vasarelys og Jesus Rafaels Sotos. í mismunandi mæli og með sínu lagi ræktuðu svo allir einfaldleikann og naumhyggjuna í vinnubrögðum sínum. Afar eðlilegt, að mjög einfaldar myndheildir Eyborgar í anda Vas- arelys og Sotos veki tilfinningar í btjóstum áhanganda naumhyggju nútímans hér á landi. Hins vegar er langsótt að tala um gleymsku og endurreisn mun nærri lagi van- rækslu og framtaksleysi, auk þess sem menn voru og eru full bráðir við að trampa á og jarða fyrri gildi hér sem víða annars staðar. Forsmá hlut þeirra er ruddu brautina. Hvernig sem á það er litið telst það afar mikilsvert framtak að setja upp þetta litla sýnishorn verka hinn- ar gáfuðu listakonu, hvers hlutskipti var sem fleiri á þessum árum að geta ekki ræktað sinn garð sem skyldi er heim kom, gekk hvorki að námslánum né starfslaunum. List Eyborgar er afar gott dæmi um einangrað hópefli fyrri tíma í listinni, samkennd sem spratt í brjósti örfárra einstaklinga er í and- stöðu við skóla og ríkjandi hefðir börðust fyrir afmarkaðri tegund nýrra grunnmála. Innbyrðist örvuðu þeir og styrktu hver annann „admir- es - vous les uns les autres" eins og það heitir. Þá þurfti stórum meira hugrekki til að standa í eldlínunni en í dag er innihaldslaus tilbúinn frumleiki orðinn að námsgrein í lista- skólum og ranghverfa viðtekinna hugtaka snýr upp. Einangraða hóp- eflið orðið að vísindum og alþjóð- legri holskeflu. Sýningin er ein hin hrifmesta fyr- ir augað sem sett hefur verið upp á þessum stað, skilmerkilega að henni staðið og dtjúgur fengur að ritgerð Rúnu Gísladóttur. Bragi Ásgeirsson Morgunblaðið/Ásdís FLUTNINGURINN í heild var stórglæsilegur segir gagnrýnandi Morgunblaðsins, á myndinni taka flytjendur við þakklæti áhorfenda og eru þar fremstir einsöngvararnir Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Rannveig Fríða Bragadóttir, Garðar Cortes og Loftur Erlingsson. Lítil en stór hátíðarmessa Snædrifin orð TONIIST Langholtskirkja SÖNGMESSA Flutt var Petite messe solennelle eft- ir Rossini. Flytjendur: Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Rannveig Fríða Bragadóttir, Garðar Cortes, Loftur Erlingsson, Hrefna Unnur Eggertsdóttir, Gústaf Jóhannesson og Kór Langholtskirkju. Stjómandi: Jón Stefánsson. Mánudagurinn 17. febrúar, 1997. LITLA hátíðarmessan eftir Rossini er nú flutt í annað sinni, af sömu flytjendum en nú fyrir þjóðir, því um er að ræða beina sendingu í gegnum gervihnött á vegum Ríkisútvarpsins. Það þóttu mikil tíðindi er Leningrad-sinfón- íunni, eftir Shostakovitsj, var út- varpað samtímis um hinn vest- ræna heim og einnig hér á landi. Nú liggur þjóðbrautin um gervi- hnetti og samstarf útvarpsstöðva um beinar útsendingar er ekki lengur tæknilega flókið. Flutningurinn á Litlu hátíðar- messunni, sem er alls ekki lítil, er því ekki aðeins fyrir okkur hér heima, heldur heyrist hann í 20 útvarpsstöðvum og því er nokkuð í húfi að vel takist til. Litla mess- an er fallegt verk, er varð enn fallegra við endurflutninginn nú, enda var hún í heild mjög vel flutt. Upphafskórinn, Miskunnar- bænin (Kyrie eleison), var mjög vel sungin og þá ekki síður mið- þáttur hennar, Christe eleison, sem var sunginn án undirleiks. Annar þátturinn, Dýrðarsöngur- inn (Gloria), skiptist í sex þætti og var sá fyrsti mjög vel fluttur af kór og öllum einsöngvurunum. Annar þáttur Gloria, Gratias agimus tibi, er einsöngstríó, fyrir alt, tenór og bassa og var söngur Rannveigar Fríðu Bragadóttur, Garðars Cortes og Lofts Erlings- sonar mjög fallega mótaður. Dom- ine Deus (nr. þijú) er tenoraría og var söngur Garðars Cortes stórglæsilegur. Qui tollis er dúett, sem Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Rannveig Fríða Bragadóttir sungu vel og Quoniam tu solus sanctus var einssöngsaría, sem Loftur Erl- ingsson flutti af mikilli reisn. Nið- urlag Dýrðarsöngsins, Cum sancto spiritu, var fluttur af kómum og var flutningurinn sérlega áhrifa- mikill. Þriðji þáttur messunnar er trú- aijátningin (Credo in unum De- um), sem skiptist í fjóra þætti og var þessi þáttur að mestu fluttur í samsöng kórs og einsöngvara, nema Crusifixus, sem Rannveig Fríða söng sérlega fallega. Offert- orium (4. þátturinn) er píanóein- leikur, sem Hrefna Unnur Eg- gertsdóttir lék mjög vel, sem og reyndar allt verkið. Sanctus kaflinn (nr. 5) var eini kaflinn sem var í heild án undirleiks og var þessi fagri kafli sérlega vel sung- inn af kór og einsöngvurum. Sópr- anaríuna 0 salutaris Hostia (nr. 6) söng Ólöf Kolbrún Harðardóttir af glæsibrag og sjöundi og síðasti þátturinn, Friðarbænin (Agnus Dei), sem er sérlega áhrifamikil tónsmíð, var magnaður í samsöng Rannveigar Fríðu og kórsins. Flutningurinn í heild var stór- glæsilegur, bæði hjá einsöngvur- um og kór og þá ber einnig að minnast á yfirmáta góðan píanó- leik Hrefnu en með henni átti Gústaf Jóhannesson sinn hljóðláta leik á harmonium. Stjómandinn Jón Stefánsson stýrði sínu liði af öryggi og náði oft að magna upp sérlega áhrifamikla stemmningu í kórköflum verksins, eins t.d. í lokakaflanum Agnus Dei. Vonandi er að útsendingin hafi tekist vel, því samkvæmt frammistöðu flytj- enda, getum við verið stolt af okk- ar fólki. Jón Ásgeirsson BOKMENNTIR Lj óð VIÐ SÓLÞANIN SEGL eftir Eyjólf Óskar. Skákprent, 1996,82 síður. LJÓÐ Eyjólfs Óskars eru öguð. Hann leggur mikið upp úr flóknu myndmáli; ljóðagerð hans byggist að miklu leyti á því að steypa sam- an ólíkum myndsviðum í þeim til- gangi að skapa ný tengsl og tekst það oft og tíðum vel. Merkingin er oftar en ekki borin uppi af einni myndhverfingu líkt og í ljóðinu í Fossvogskirkjugarði: Ritvélin hallar gulnaðri brekku til suðurs en vindurinn situr í Fossvogi miðjum og hamrar á snjáða lykla Hamrar með löngum fíngrum norðangrönnum dimma líkaböng (43) Víða tekst honum prýðilega að draga upp ljóðrænar myndir: „Á ljósgeislanagla/reknum í tjald- ið/hékk iðandi mynd“ segir í ljóðinu Bíóferð (8), og í Vorsudda þeysir fjölþreifinn vindur „fram dal- inn/eins og mektugur bóndi/sem ríður drukkinn til kirkju“ (34). Annars staðar er eins og skáldið ætli sér of mikið, eins og í þessu síðasta erindi ljóðsins Doða: „Og sársaukans gadd- hvössu klær/hríslast um góm/þegar deyf- ingin dofnar“ (77). Að mínu viti tekst honum best upp þegar einfald- leikinn fær að ráða ríkjum, til að mynda í Ijóðunum Álfkonufar (24), Eitt kvöld (50), Septemberkjarr (41) og Næturljóð: „Ámiðinn rek- ur/með lauföldum/inn í tjaldið til mín/Ég smíða mér bát/úr viðn- um/og ræ gegnum rökkrið/til þín“ (72). Galli þessarar bókar er einkum sá að listbrögðin vilja bera hugsun- ina ofurliði, þótt víða sé nokkuð faglega kveðið er eins og ljóðin skorti persónulega dýpt, frumlega sýn á yrkisefnið. Hér er auðvitað um að ræða gömlu söguna um form og efni, misræmið milli þess sem sagt er og hvernig það er fært í orð. Líkt og allur skáldskapur eru ljóð Eyjólfs ort inn í ákveðið sam- hengi annarra skálda. Þannig minnir fyrnskan, til dæmis laun- helgur ylur „úr varðeldi horfinna nátta“ í ljóðinu Arakna (53), nokk- uð á skáldskap Þorsteins frá Hamri, samband manns við náttúru er einnig kunnuglegt, til að mynda minnir ljóðið Lauf og lækir (78) mjög á náttúrusýn Hannesar Pét- urssonar. Yrkisefnin eru ekki fjarri því sem finna má í bókum þessara skálda: land og saga, fornar rústir, endurnýjandi náttúra og svo beyg- urinn sem fylgir því að lifa í hald- litlum heimi. Sama má segja um formið sem er á mörkum þess frjálsa og háttbundna. Ekki ber að skilja orð mín svo að það sé ein- hver goðgá að sækja í smiðju fyrr- nefndra skálda, þvert á móti, en þó fer ekki hjá því að maður sakni persónulegri nálgunar, ekki síst í ljósi þess hversu góða spretti Eyj- ólfur á í þessari bók. Þótt ágætlega sé ort um tilvistarvandann {ljóðum eins og Ljós (5), Eyjar (6) og Vagn (16), einu besta ljóði bókarinnar, er eins og kenndirnar hafi tilhneig- ingu til að kafna í þörf skáldsins til að fínna þeim ljóðrænan búning sem oft og tíðum er nokkuð á skjön við yrkisefnið. Ljóðin krefjast athygli og nokkurrar yfirlegu en samt er eins og þau hætti að gefa fyrirheit um eitthvað annað og meira um leið og myndmálið hefur verið brotið til mergjar. Þótt Eyjólfur hafi meitlað ljóðmál sitt er ekki þar með sagt að hann fari varlega með orðin; síð- um sinnar eigin bókar líkir hann við flug- beittar grágrýtis flög- ur, blóðugar, harðar, mulnar úr hjarta fjalls (Bók, 45). Honum fer mun betur að yrkja um þá vinda sem forðum vöktu hans hjarta en „veita þér nábjargir nú“ (Spor, 68), um snædrifm orð sem kjaga milli kuldalegra vatna (Diskar og borð, 44). Við sólþanin segl geymir mörg ljóð og ég er ekki frá því að heildar- svipurinn hefði orðið sterkari ef höfundur hefði verið grimmari í niðurskurði. Magnið er jú ekki allt- af í réttu hlutfalli við gæðin og hugsanlega eru nægilega mörg ljóð í þessari bók til að bera uppi prýði- legt kver. Eiríkur Guðmundsson Eyjólfur Óskar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.