Morgunblaðið - 19.02.1997, Síða 37

Morgunblaðið - 19.02.1997, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 37^ SIGRIÐUR KRISTJÁNSÐÓTTIR ■4» Sigríður Kristín ' Kristjánsdóttír (Siddý) var fædd á Akranesi 7. janúar 1939. Hún lést á heimili sínu, Birki- hæð 2 í Garðabæ, 8. febrúar síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Dómkirkjunni 14. febrúar. Látin er Sigríður Kristjánsdóttir, rönt- gentæknir og húsmóð- ir. Andlát hennar bar brátt að og erfitt er að koma orðum að þeim hugsunum og minningum er gagntaka hugann þegar maður er svo snögglega minntur á hve lífs- þráðurinn er viðkvæmur. Leiðir okkar Sigríðar lágu saman í félagssskap sem við höfum báðar átt því láni að fagna að vera í um margra ára skeið, þ.e. í Oddfellow- reglunni á íslandi. Mér varð fljótt ljóst að Sigríður var mörgum kost- um gædd. Hún var einlæg í starfi sínu í reglunni og lagði ætíð áherslu á ræktun þeirra mannkosta sem hún hefur byggt á frá upphafi vega. Sigríði voru falin ýmis trúnaðar- störf fyrir Rbst. nr. 4 Sigríði, sem hún gekk í árið 1977. Öll störf vann hún af einstakri prýði og alúð, og sá kostur, sem ef til vill segir meira en mörg orð og ég minnist ekki sist, er að hún gerði aldrei mikið úr framlagi sinu, þótt ekki færi milli mála að hún hefði mikið fram að leggja — öll störf hennar ein- kenndust af látleysi, hlýju og festu. Sól fer nú ört hækkandi á lofti en þó bregður ský á himin. Þessa dagana er erfitt mörgum að sjá sólargeislana sem reyna að skjótast út á milli skýjanna og varpa fag- urri birtu á snjóinn, er svarar með kristalsbliki. Þetta samspil náttúr- unnar minnir okkur á þá kristalla sem blika í mannlegum samskiptum — samskiptum er byggjast á þeirri fegurð sálarinnar sem okkur er öll- um gefín. Stundum slær fölva á tært blik kristals sálarinnar þegar við horfumst í augu við þá stað- reynd að skjótt skipast veður í lofti. Við, stúkusystkin Sigríður, kveðjum hana með einlægri þökk og virðingu. Við þökkum henni mikilvæga gjöf, sem hún skilur eft- ir sig, en það er gjöfín um vináttu- bönd sem aldrei geta brostið, þrátt fyrir að klukkan stöðvist. Við færum eiginmanni Sigríðar, Jóni Otta Sigurðssyni, og íjölskyldu innilegar samúðarkveðjur og biðjum Guð að varðveita þau á þungbærum tímum. Og við lifðum og við horfðum allir fram á þroskaveginn, en, þú hvarfst okkur sjónum yfir landið hinum megin. (St. Sveinsson.) Unnur Arngrímsdóttir. Látin er langt um aldur fram Sigríður Kristín Kristjánsdóttir, jafnan kölluð Siddý af sínum nán- ustu. örvaði mig fyrir rúmu ári þegar ég var að kljást við ámóta sjúk- dóm og lagði hana að velli. Þá kom hún glæsileg og geislandi glöð að vanda. Nú hef- ur hún verið kölluð til æðri heima, þangað sem för okkar allra er heitið. Hún fór aðeins á undan okkur. Elskulegum eigin- manni, syni, tengda- dóttur og ungum son- arsonum, ásamt ást- vinum hennar öllum, votta ég innilega samúð mína og fjölskyldu minnar. Guðbjörg Eggertsdóttír. Minningamar hrannast upp við lát elskulegustu vinkonu sem hugs- ast getur. Þótt ótrúlegt sé þá væru 40 ár í sumar síðan við Siddý kynnt- umst, en það var á skátamóti í Windsor á Englandi. Móti sem hald- ið var í tilefni 100 ára afmælis Baden Powells, stofnanda skáta- hreyfíngarinnar. Við vorum báðar í skóla í London á þessum tíma og urðum því tvær eftir, þegar hinar stelpurnar fóru heim til Islands. Siddý leist svo vel á skólann sem ég var í, „Pitman’s College“, að hún skipti um skóla og flutti til mín. Við bjuggum síðan saman í heilt ár hjá íslenskum hjón- um í London. Þetta var svo sannar- lega skemmtilegur og ógleymanleg- ur tími. Siddý, þessi heilsteypta manneslq'a, alltaf svo falleg, ljúf og góð átti stærstan þátt í því að svo var. Þegar við svo komum til íslands héldum við áfram að búa saman, eða í mínum foreldrahúsum, þar til Siddý kynntist eftirlifandi eigin- manni sínum Jóni Otta. Þau voru svo sannarlega glæsilegt par, ást- fangin og svo hamingjusöm að allt ljómaði í kringum þau og hamingjan var ekki síðri er Sigurður einkason- ur þeirra fæddist. Arin liðu, en aldrei bar skugga á vináttu okkar, þó fjarlægð væri á milli okkar um tíma, vegna bú- setu. Þær eru því margar ánægju- og gleðistundirnar sem við áttum saman á heimilum okkar, í veislum, saumaklúbb, á ferðalögum o.fl. Ég vildi óska að ég ætti eins auðvelt með að tjá mig í rituðu máli og Siddý, jólakveðjur, heilla- óska- og huggunarorð voru svo yndisleg, að ég á eftir að geyma þau í hjarta mínu alla ævi. Það var mér þung raun að vita elsku Siddý svona alvarlega veika þessar síð- ustu vikur, því ég var orðin svo bjartýn á að allt færi vel. En það má með sanni segja, að vegir Guðs eru órannsakanlegir. Elsku Jón Otti, Sigurður, Guðný, Jón Otti og Pálmar, fyrir mína hönd og barna minna sendi ég ykkur innilegar samúðarkveðjur, megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Elsku Siddý mín, Guð varðveiti þig- Þín vinkona, Halla. • Fleiri minningargreinar um Sigriði Kristjánsdóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. + Faðir okkar, tengdafaðir og afi, GÍSLI GUNNARSSON, Fossvogsbletti 18, Reykjavik, verður jarðsunginn fró Fossvogskapellu föstudaginn 21. febrúar kl. 13.30. Jarðsett verður frá Setbergskirkju, Eyr- arsveit í Grundarfirði, laugardaginn 22. febrúar kl. 14.00. Sætaferð verður frá BSÍ laugardaginn 22. febrúar kl. 9.00. Guðmundur Gfslason, Sigriður Gfsladóttir, Magnús Jónsson og barnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, MARÍU HÖLLU JÓNSDÓTTUR, Ingvörum, Svarfaðardal. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lyflækningadeildar 1 ó Fjórðungssjúkra- húsi Akureyrarfyrirfrábæra umönnun. Árni Steingrfmsson, Edda Björk Valgeirsdóttir, Júlfus Valbjörn Sigurðsson, Jón Vfkingur Árnason, Ester Anna Eirfksdóttir, Saga Árnadóttir, Börkur Árnason, Birkir Arnason, Sigrún Árnadóttir og barnabörn. Mig langar að þakka Siddý fyrir yndisleg kynni frá þeim tíma sem ég og íjölskylda mín fluttum í Safa- mýrina, í næsta hús við þau góðu hjón, Siddý og Jón Otta og son þeirra Sigurð. Guðimir vora Siddý örlátir. Hún fékk í vöggugjöf fegurð, ljúf- mennsku og góðar gáfur. Hún ólst upp hjá kærleiksríkum foreldram. Hún eignaðist ástríkan eiginmann. Hún eignaðist son og bambörn sem hún elskaði og dáði. Að auki eignað- ist hún tengdadóttur sem var henni jafn kær og væri hún hennar eigin dóttir. Gestum var vel fagnað á vegleg- an hátt á fögru heimili þeirra hjóna. Glæsileiki einkenndi allt sem þau hjón komu nálægt. Mín kæra vinkona kom og upp- + Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug og samúð við and- lát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, VILHJÁLMS KRISTINS HALLGRÍMSSONAR, Lönguhlíð 3. Sérstakar þakkir tii starfsfólksins í Lönguhlíð 3. Ragnhildur Auður Vilhjálmsdóttir, Guðmundur Þór Pálsson, Árni Stefánsson Vilhjálmsson, Helga Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær dóttir okkar og systir, BRANDÍS KRISTBERGSDÓTTIR, Hjallavegi 23, lést 17. febrúar á barnadeild Hringsins. Kristberg Óskarsson, Ingiríður B. Þórhallsdóttir, Harpa Stefánsdóttir, Bergþóra Kristbergsdóttir. + Ástkær sambýliskona mín og systir okkar, ÁSDÍS SÓLVEIG MAGNÚSDÓTTIR, Austurströnd 8, Seltjarnarnesi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 21. febrúar kl. 15.00. Halldór Sveinbjarnarson, Nanna Rósa og Helga Magnúsdætur. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð og hlýju vegna andláts og útfarar BENEDIKTS SIGFÚSSONAR, Beinárgerði, Vallahreppi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss Egilsstaða og Landspítala, deild 14-E. Helga Bjarnadóttir, börn og aðrir aðstandendur. + Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður og tengdaföður, HALLDÓRS GUÐJÓNSSONAR, fyrrverandi skólastjóra íVestmannaeyjum. Sérstakar þakkir færum við félögum í Oddfellow-stúkunni Herjóifi nr. 4 í Vestmannaeyjum. Fyrir hönd aðstandenda, Elfn S. Jakobsdóttir, Halldóra M. Halldórsdóttir, Heiðar Þ. Hallgrfmsson, Sigurður G. Halldórsson. + Þökkum innilega samúð, vináttu og hiýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU MAGNEU SIGURÐARDÓTTUR, Meðalholti 14, Reykjavfk. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 3B á Landakotsspítala. Sigurlín E. Magnúsdóttir, Rósinkrans Kristjánsson, Þórir Magnússon, Marfa Jóhannsdóttir, Gunnar H. Magnússon, Sigrún Geirsdóttir, Grétar Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við fráfall föður okkar, afa, langafa og langalangafa, RAGNARSÁGÚSTS BJÖRNSSONAR, fyrrverandi hafnarstjóra, Skólavegi 2, 230 Keflavfk, sem lést á Sjúkrahúsi Suðurnesja 24. janúar. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Suðurnesja. Stefanía Ragnarsdóttir, Gunnar Albertsson, Kolbrún Ragnarsdóttir, Jón Sigurðsson, Ragnar Marinósson, Ólöf Leifsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.