Morgunblaðið - 19.02.1997, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 39
MIWWINGAR
HAUKUR
GUÐJÓNSSON
+ Haukur Guð-
* jónsson var
fæddur í Reykjavík
4. október 1923.
Hann lést á Land-
spítalanum 13. febr-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Ragnheiður Kristj-
ánsdóttir og Guðjón
Kr. Jónsson múrari.
Hann átti átta hálf-
systkin af föður og
fimm hálfsystkin af
móður.
Haukur kvæntist
Sigríði Guðjónsdótt-
ur frá Berjanesi í Landeyjum
20. janúar 1948. Þau eiga því
að baki 49 ár í hjónabandi. Þau
eignuðust fimm börn sem eru:
1) Guðjón Ómar fulltrúi, maki
hans er Guðný Jónsdóttir banka-
starfsmaður, búsett í Njarðvík.
2) Ragnheiður fulltrúi, maki
hennar er Brynjólfur Sigur-
björnsson rennismiður, búsett í
Reykjavík. 3)
Sveinn, sendibíl-
stjóri, maki hans er
Sigríður V. Magnús-
dóttir meðferðar-
fulltrúi geðfatlaðra,
búsett í Mosfellsbæ.
4) Guðríður Svand-
ís, sjúkraliðanemi,
maki hennar er
Ómar Einarsson bif-
vélavirkjameistari,
búsett í Hafnarfirði.
5) Hrafnhildur,
starfsmaður Skatt-
stjóraembættisins,
búsett í Reykjavík.
Fyrrverandi maki hennar var
Einar Kr. ísfeld, d. 1987. Þau
skildu. Búsett í Reykjavík.
Barnabörnin Hauks og Sigríð-
ar eru 15 á lífi, fjögur Iátin.
Barnabarnabörn eru tvö. Auk
þess áttu þau fósturbarnabörn.
Útför Hauks fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Þegar elsku pabbi er horfinn yfir
móðuna miklu þá byrja að streyma
fram minningar frá æsku. Minning-
ar um lítinn telpuhnokka sem
fannst það hástund dagsins þegar
hún fékk að standa við hliðina á
pabba sínum þegar hann var að
keyra strætó og kalla upp nöfnin á
næsta viðkomustað í hátalara.
Minning um það þegar við fórum
nokkur saman með honum á skauta,
en þá hafði hann ekki stigið á
skauta í áratugi og það var mikið
hlegið, þó ekki að stirðleika hans,
því hann var okkur ekkert síðri.
Það var oft mikið fjör og sjálf-
sagt mikill hávaði sem fylgdi okkur
systkinunum þegar við vorum
yngri, enda mörg, og okkur fannst
hann kannski ekki alltaf vera rétt-
látur gagnvart okkur og oft gat
hann verið mömmu erfiður, sem
reyndi með sínu stillta skapi að
hafa hemil á öllu. En þó mátti hann
eiga það að hann gat alltaf komið
og beðist fyrirgefningar ef hann
fann að hann hafði gert okkur rangt
til.
Oft um helgar á sumrin þegar
ég var barn var rennt eitthvað út
úr bænum og þá var veiðistöngin
iðulega með í för og sjálfsagt hef
ég fengið hjá honum mína fyrstu
tilsögn í veiðiskap.
Þegar ég var komin með mína
eigin fjölskyldu þá var farið í marg-
ar eftirminnilegar og skemmtilegar
veiðiferðir að Sveinhúsum og að
Laxá í Skefilstaðahreppi og þá
skiptust þeir iðulega á veiðisögum
hann og fyrrverandi tengdafaðir
minn.
Pabbi var alltaf vinnusamur og
þegar hann var kominn á efri ár
og búinn að starfa í nokkur ár sem
sendibílstjóri á eigin bíl, byrjaði
heilsan að gefa sig og hann varð
að hætta að vinna. Hann átti erfítt
með að sætta sig við það að vera
ekki lengur gjaldgengur á vinnu-
markaðinum og fannst að hann
hluti að geta unnið eitthvað en
sættist að lokum og þá var reynt
að stytta sér stundir við að spila
brids og fara í veiði upp að ein-
hveiju vatninu.
Það verður skrítið að koma í
heimsókn upp í Bláhamra og sjá
ha.rn ekki sitja í stólnum sínum,
eins og hann var vanur.
Elsku mamma, þó þetta hafi ver-
ið erfitt meðan á veikindum pabba
stóð, þá vitum við að honum líður
vel núna og að hann er búinn að
finna frið og að Guð vakir yfir hon-
um og okkur öllum.
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gieddu’ og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
(H. Andrésd.)
Hrafnhildur.
GUÐBJÖRG BEN-
ONÍA JÓNSDÓTTIR
+ Guðbjörg Benonía Jónsdótt-
ir fæddist í Vestmannaeyj-
um 21. júlí 1928. Hún lést á
heimili sínu 8. febrúar síðastlið-
inn og fór útför hennar fram
frá Landakirkju í Vestmanna-
eyjum 15. febrúar.
Það kemur stundum fyrir að þeg-
ar sumt fólk yfirgefur þennan tára-
dal okkar, og heldur á bjartari
strendur, að eftir verður eins og
sólarblettur, því þetta fólk leit alltaf
á hinar björtu hliðar lífsins. Ein af
þessum manneskjum var Guðbjörg
Benónía Jónsdóttir, kona mágs míns
Þórarins Eiríkssonar, eða hún Benna
hans Lalla, en þannig var hún þekkt
af öllum Vestmannaeyingum og öðr-
um fjölmörgum vinum og kunningj-
um.
Ég ætla mér ekki að rekja hér
ævihlaup Bennu, en aðeins með örfá-
um, fátæklegum orðum að færa
þakkir frá okkur hjónum fyrir að
hafa fengið tækifæri til að kynnast
henni, og kannski - vonandi - örlít-
ið getað lært af hinni sérstæðu lífs-
skoðun hennar.
Hjá Bennu var í rauninni ávallt
allt í lagi. Hún sá helst ekki nema
hinar björtu hliðar, og ef eitthvað
bjátaði á virtist hennar fyrsta hugs-
un ávalit vera: Það hefði getað verið
verra. - Þegar hún, fyrir nokkru,
vaknaði einn morgun og var þá svo
til alveg orðin blind allt í einu, þá
var það ekkert til að æðrast yfir,
sagði hún: „Ég sé jú dálítið með
öðru auganu, og svo fæ ég bara góð
gleraugu."
En þannig var þessi kona, aðeins
birta og gleði komust þar að. Það
var gott að heimsækja Bennu, þar
stóð allt til boða af miklum rausnar-
skap, og ekki dró bóndi hennar úr.
Þau áttu gott líf saman, eignuðust
þijár mannvænlegar dætur, og
barnabörnin eru orðin myndarlegur
hópur. Það verður því mikið tóma-
rúm eftir þegar mesti gleðigjafinn
hverfur á brott.
En nú er hún komin á annan og
mjög svo betri stað, og viljum við
biðja þann sem þar ræður að blessa
minningu okkar kæru vinkonu og
færa huggun ástvinum hennar.
Óskar Steindórsson.
Frakkar öruggir sigur-
vegarar í sveitakeppninni
BRIDS
Hótel Loftleiðir
BRIDSHÁTÍÐ -
ICELANDAIR OPEN
SVEITAKEPPNI
98 sveitir. 16.-17. febrúar
FRÖNSKU ólympíumeistaramir
sigruðu nokkuð örugglega í sveita-
keppninni á Bridshátíð, sem lauk í
fyrrakvöld. Þeir unnu alla sína leiki
þar til í síðustu umferðinni að þeir
mættu ofjörlum sínum, sveit Hjördís-
ar Eyþórsdóttur, sem með 20-10
sigri sínum náði þriðja sætinu í
mótinu. í sigursveitinni spiluðu
Henri Szwarc, Philippe Cronier, Ala-
in Levy og Christian Mari.
Nokkur dramatík var yfir keppn-
issalnum í síðustu umferðinni.
Frakkar höfðu nánast tryggt sér sig-
urinn en margar sveitir áttu mögu-
leika á verðlaunasæti. Þar stóð sveit
Roche best að vígi með 174 stig
eftir að hafa þjófstartað í mótinu
og verið langefsta sveitin framan
af. Staða efstu sveita fyrir siðustu
umferðina var þessi:
Frakkland 188
Roche 174
Málninghf. 172
Hjördís Eyþórsdóttir 166
Verðbréfamark. íslandsbanka 164
USA/8 - Tudor 162
Landsbréf 161
Eins og fyrr er getið sigraði Hjör-
dís Frakkana 20-10 í síðustu um-
ferðinni, Landsbréf vann Málningu
24-6, Samvinnuferðir unnu Færeyj-
ar/1 með 22-8, KÁ Selfossi vann
USA/8 með 18 gegn 12 og enn er
ógetið leiks Roche og VÍB sem skipti
miklu máli í röðun efstu sveita.
Seinni dagurinn hafði byijað af-
leitlega hjá sveit VÍB en hún tapaði
í öðrum leiknum fyrir Frökkum með
25 gegn 0 sem verður að teljast
nokkuð óvanalegt fyrir sveit VIB,
hvað þá í 10 spila leik. Roche hafði
hins vegar afgerandi forystu í mót-
inu eftir fyrri daginn eða 134 stig
en næstu sveitir höfðu 121 stig.
Leikur Roche og VíB þróaðist hin-
um síðarnefndu í hag og í 100. og
síðasta spili mótsins gerðist þetta:
Austur gefur, allir á hættu.
Norður
♦ KG53
¥ÁDG3
♦ Á7
♦ DG3
Vestur
♦ 102
¥ K762
♦ K
♦ ÁK9862
Suður
♦D106542
+1075
Við annað borðið opnaði Guðlaug-
ur R. Jóhannsson í sveit VÍB á 2
tíglum með austurspilin og sýndi
með því veik spil og langan hálit.
Örn Arnþórsson í vestur sagði 2
grönd og Guðlaugur sagði 3 spaða
sem sýndi lágmark með spaðalit. Það
var passað út og Guðlaugur fór 2
niður, 200 til NS, sem voru óræð
úrslit því við nokkur borð í öðrum
leikjum unnust 3 grönd í NS.
Við hitt borðið opnaði ísak Örn
Sigurðsson á 2 spöðum í austur og
Hrólfur Hjaltason í vestur hækkaði
í 3 spaða. Matthías Þorvaldsson í
norður sagði 3 grönd, og þegar kom
að Hrólfi aftur doblaði hann. Aðal-
steinn Jörgensen í suður flúði þá í
4 tígla sem ísak doblaði í bakhönd-
inni.
Hrólfur spilaði út laufaás en sá
ekki af afköstunum hvernig laufið
skiptist; ef austur átti einspil var
nauðsynlegt að taka kónginn en ef
hann átti tvíspil gat það verið hættu-
legt. Eftir nokkra umhugsun skipti
Hrólfur í spaðatíu og þar með var
spilið unnið: sagnhafi gat hent lauf-
unum heima í KG í spaða í borði,
tígulkóngur féll í ásinn og hægt var
að svína tígultíu og svína loks hjart-
anu tvisvar gegnum vestur.
Austur
♦ Á98764
¥105
♦ G983
♦ 4
Morgunblaðið/Amór
FRÖNSKU ólympíumeistaramir sigmðu ömgglega í sveitakeppn-
inni. Á myndinni eru þeir að gera upp einn af sigurleikjum sínum
í mótinu. Talið frá vinstri: Christian Mari, Henri Szwarc, Philippe
Cronier og Alain Levy.
ALÞJÓÐLEGUR dómstóll. Eitt mál þurfti að fara í dóm í sveita-
keppninni og var það allsérstakt því bæði pörin áfrýjuðu úrskurði
keppnisstjóra í sama spili. Settur var upp alþjóðlegur dómstóll
og er hann að störfum á meðfylgjandi mynd. Talið frá vinstri:
Alain Levy og Philippe Cronier frá Frakklandi, Bandaríkjamaður-
inn Curtis Cheek, en hann er eiginmaður Hjördísar Eyþórsdóttur,
þá Guðmundur Sv. Hermannsson og Órn Arnþórsson.
Þetta spil kostaði sveit Roche 5
vinningsstig og annað sætið í mótinu
sem VIB hreppti þrátt fyrir slysið í
8. umferðinni. Lokastaðan í mótinu
varð annars þessi:
Frakkland 198
VÍB 187
Hjördís Eyþórsdóttir 186
Landsbréf 185
Roche 181
Samvinnuferðir/Landsýn 179
MarkFeldman 179
Málning hf. 178
KÁSelfossi 178
Hjólbarðahöllin 178
Eurocard 178
Sveit Indónesíu náði sér aldrei á
strik og varð í 23. sæti með 163 stig.
Nokkur fjöldi eldri spilara frá
Bandaríkjunum var meðal þátttak-
enda og verður að segjast eins og
er að þeir passa ekki vel í þennan
hóp. Hins vegar voru 5 sveitir frá
frændum okkar Færeyingum sem
spiluðu ágætlega og er gaman að fá
í heimsókn. Þeir voru allir frá höfuð-
staðnum Þórshöfn.
Þá er nauðsynlegt að nefna okkar
frábæru keppnisstjóra, Jakob Krist-
insson, Svein Rúnar Eiríksson og
Stefán Jóhannsson sem komast allt-
af vel frá mótum.
í mótslok afhentu Kristján Krist-
jánsson forseti Bridssambandsins,
Elín Bjarnadóttir mótsstjóri og Björn
Theodórsson framkvæmdastjóri hjá
Flugleiðum verðlaunin.
Arnór Ragnarsson
Guðm. Sv. Hermannsson
□ Glitnir 5997021919 I 1 Frl.
Atkv.
□ Helgafell 5997021919 IV/V 2
Frl.
I.O.O.F. 7 = 17802198A =Mk.
I.O.O.F. 18 = 1772198 =— II.
BK.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Lofgjörð, bæn og Biblíulestur
kl. 20.00. Ræðumaður Svanur
Magnússon. Allir hjartanlega
velkomnir.
I.O.O.F. 9 = 1782198V2 =
SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Fjáröflunarsamkoma Kristni-
boðsfélags kvenna verður í kvöld
kl. 20.30. Kristniboðsþáttur frá
Eþíópíu. Happdrætti.
Helgi Hróbjartsson, kristniboði,
flytur hugleiðingu.
Kaffiveitingar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Samkoma í kvöld kl. 20.
Jódís Konráðsdóttir prédikar.
Beðið fyrir lausn á þfnum vanda-
málum.