Morgunblaðið - 19.02.1997, Page 42
42 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
fHyAf>E/z 7 [ þetta ? J V ^ m\
("Zs vEire&a, } EN V£fXJ* ( ( l/AKJ&KJ/L". )
1 iSV
1 # Á * Swvle"'|nc. Aii rigtus ressrvea
þA£> Efzb/tiÖ60LE<ST
AÐSTÁ WÓR.BNÞ/NH
£K_H/IUSO<S HV&Æ;
£K HAL/
4
-* £
1-XO
Grettir
Ferdinand
VES MAAM, I PIDN T
THINK S'OU'D MIND IF
I BR0U6HT HIM TO
SCHOOL TODAY..
YES, MAAM,HE 5 A
VERV SMART D06..THAMK
YOU FOR SAYIN6 50..
Já, kennari, ég hélt að þér Já, kennari, hann er rryög Það er ekkert Nei, kennari, ég veit aldrei
væri sama þó að ég kæmi skýr hundur... þakka að marka fal- hvað hann er að hugsa...
með hann í skólann í dag ... þér fyrir að segja það ... leg orð
JHtjírgttttlMaíúí)
BREF
TEL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavik • Sími 5691100 • Simbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Nokkur orð um
Seljavallalaug og
ástand hennar
Frá Páli A. Andréssyni:
ÞAÐ var árið 1923 sem nokkrir
ungir menn í Austur-Eyjafjalla-
hreppi undir forystu Björns J.
Andréssonar hófust handa við að
byggja sundlaug í fögru umhverfi
inni í gilinu austan við Seljavelli.
Þar voru heitar lindir sem heima-
mönnum þótti sjálfsagt að reyna
að nýta í þessum tilgangi. Laug-
ina byggðu þeir á einu sumri og
allir sveitarmenn, sem vettlingi
gátu valdið, unnu að verkinu, en
sementinu, sem notað var til
steypunnar, var skipað upp við
Eyjafjallasand. Eigandi laugar-
innar varð síðan ungmennafélagið
Eyfellingur.
Þarna byggðu íbúar sveitarinn-
ar 25 metra langa sundlaug sem
um nokkurra ára skeið var lengsta
sundlaug landsins, eða allt þar til
Sundhöllin í Reykjavík var byggð.
Stígur að lauginni var svo lagður
í hlíðinni ofan árinnar sem þarna
rennur. Eyfellingar ásamt Vest-
mannaeyingum voru fyrstir til að
taka upp skyldusundnám árið
1927, en þessi laug var í notkun
fram yfir 1960 til kennslu fyrir
böm af stórum hluta Suðurlands
svo og allan almenning.
Lauginni var vel við haldið á
árum áður og var eins konar sam-
einingartákn sveitarinnar, allir
voru sem einn maður þegar kom
að viðhaldi hennar og umgengni.
En eftir að sundkennsla lagðist af
í lauginni tók að snúast til verri
vegar með viðhald hennar og árið
1995 var ástand hennar orðið n\jög
slæmt. Botninn var sprunginn og
hélt ekki vatni og byijað var að
grafast undan lauginni. Þá tóku
sig til nokkrir brottfluttir Eyfell-
ingar sem með góðri aðstoð heima-
manna hófu að lagfæra laugina;
botninn var þéttur og vatnslögn
til laugarinnar lagfærð. En þetta
voru einungis viðgerðir til bráða-
birgða.
Síðastliðið haust var haldinn
fundur til undirbúnings stofnunar
félags um varðveislu Seljavalla-
laugar og eru allir, sem áhuga
hafa á þessu málefni, velkomnir í
félagið. Næsta vor stendur til að
gera nokkurt átak til lagfæringar
á lauginni og er áformað að hitt-
ast inni við Seljavallalaug laugar-
daginn 3. maí næstkomandi og
nota helgina til vinnu. Þar stendur
einnig til að stofna formlega fyrr-
nefnt félag og skrá stofnfélaga
þess.
En svona framkvæmd er kostn-
aðarsöm og nú vantar fjárstuðn-
ing til að hrinda þessu verki í
framkvæmd. Þess vegna skora
ég, fyrir hönd undirbúningshóps,
sem fram til þessa hefur unnið
að þessu verkefni, að leggja nokk-
urt fé af mörkum til þess að forða
megi Seljavallalaug frá frekari
niðurlægingu sem enda mundi
með algerri eyðileggingu.
Eftirtaldir reikningar hafa af
þessu tilefni verið stofnaðir á
nafni Seljavallalaugar, kennitala
450297-2329: Landsbankinn í
Mjódd nr: 115-26-52030; Búnað-
arbankinn Hellu nr: 0308-26-403;
íslandsbanki í Mjódd nr: 0537-26-
450
Vonandi er að sem flestir geti
veitt stuðning við þetta verkefni
því þetta einstaka mannvirki, sem
Seljavallalaug er, má undir eng-
um kringumstæðum glatast.
Laugina þarf að varðveita í minn-
ingu þeirra stórhuga, ungu Ey-
fellinga sem byggðu hana á sínum
tíma.
PÁLL A. ANDRÉSSON,
brottfluttur Eyfellingur og áhugamað-
ur um varðveislu Seljavallalaugar.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavlk. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 669 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1829, fréttir 669 1181, íþróttir 669 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gialdkeri 669 1115. NETFANG:
MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.700 kr. á mánuði innaniands. 1 lausasölu 125 kr. eintakið.