Morgunblaðið - 19.03.1997, Qupperneq 1
72 SÍÐUR B/C/D/E
65. TBL. 85. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
FJÖLMENNT ísraelskt herlið gætti þess að Palestínumenn fengju ekki truflað jarðýturnar
þegar byijað var á hverfi fyrir gyðinga í Austur-Jerúsalem.
ísraelsstjórn lét viðvaranir sem vind um eyru þjóta
Byrjað á hverfi gyð-
inga í A-Jerúsalem
Jerúsalem, London. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Ísrael hófust handa við að byggja nýtt hverfí fyrir gyð-
inga í Austur-Jerúsalem í gær og sinntu engu viðvörunum um, að með
því væru þau að grafa undan friðnum í Miðausturlöndum. Á blaðamanna-
fundi, sem Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra ísraels, efndi til í
gær, sagði hann framkvæmdirnar engu breyta um friðarferlið. Sakaði
hann PLO, Frelsissamtök Palestínu, um að styðja „hryðjuverkastarfsemi“.
Gengi
FMLN
fagnað
Panamaborg. Reuter.
BANDARÍSKUR embættis-
maður fagnaði í gær fréttum
um góðan árangur fyrrver-
andi skæruliða í E1 Salvador
í kosningunum um síðustu
helgi. Sagði hann þetta sýna
hveiju lýðræðið gæti fengið
áorkað.
Farabundo Marti-frelsis-
fylkingin, FMLN, sem barðist
gegn stjórninni í E1 Salvador
í blóðugustu borgarastyijöld
í Rómönsku Ameríku, lagði
niður vopn 1992 og hefur síð-
an tekið þátt í almennum
kosningum. Niðurstaða þing-
kosninganna var sú, að AR-
ENA, stjórnarflokkur Arm-
ando Calderons forseta, fékk
35,4% atkvæða en FMLN
34,2%.
Jeffrey Davidow, aðstoðar-
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna í málefnum Ameríku-
ríkja, sagði í gær, að úrslitin
væru ánægjuleg fyrir það, að
þau sýndu, að lýðræðið væri
beittara í baráttunni fyrir
betri heimi en byssan.
ísraelskir hermenn, gráir fyrir
járnum, gættu jarðýtnanna þegar
þær hófu að grafa fyrir nýja hverf-
inu en búist var við, að til átaka
gæti komið við Palestínumenn.
Urðu líka nokkrar ryskingar milli
ísraelskra lögreglumanna og palest-
ínskra ungmenna en þó án þess,
að meiðsl hlytust af. Margir óttast,
að upp úr geti soðið á næstu dögum.
„Svartur dagur“
„Þetta er svartur dagur fyrir frið-
inn,“ sagði Saeb Erekat, einn helsti
samningamaður Palestínumanna, á
Gaza í gær en Yasser Arafat, leið-
togi Palestínumanna, hefur boðað
til skyndifundar vegna byggingar-
framkvæmdanna.
Hamas-samtökin hvöttu í gær til
allsheijaruppreisnar meðal Palest-
Kisangani, Brazzaville. Reuter.
SERBNESKU málaliðarnir í stjórn-
arhernum í Zaire vöktu skelfíngu
hvar sem þeir fóru og pyntuðu fólk
og myrtu áður en þeir flýðu undan
skæruliðum. Var það haft eftir íbú-
um í borginni Kisangani, sem upp-
reisnarmenn ráða nú.
Sagt er, að málaliðarnir hafi
handtekið og pyntað tugi ungra
manna, sem grunaðir voru um sam-
starf við skæruliða, og skotið fólk
fyrir það eitt að vera ekki með rétta
pappíra. Er foringi þeirra, sem kall-
aði sjálfan sig Dominic Yugo, sagð-
ínumanna vegna framkvæmdanna
en þau hafa einnig verið andvíg
Óslóarsamkomulaginu.
Netanyahu hafnaði því á blaða-
mannafundi í gær, að byggingar-
framkvæmdirnar myndu eyðileggja
friðarferlið og varaði PLÖ við að
styðja hryðjuverkamenn. Kvaðst
hann hafa undir höndum leyniþjón-
ustuheimildir, sem bentu til, að PLO
hefði gefið grænt ljós á aðgerðir
hermdarverkasamtaka.
Malcolm Rifkind, utanríkisráð-
herra Bretlands, sagði í gær, að
byggingarframkvæmdirnar gætu
ekki gert neitt annað en að spilla
fyrir enda væru þær ólöglegar.
Herve de Charette, utanríkisráð-
herra Frakklands, sagði, að með
aðgerðum sínum hefðu ísraelar lagt
stein í götu friðarins og bandarísk-
ir embættismenn segja, að Net-
anyahu hafí í engu sinnt áskorunum
Bills Clintons, forseta Bandaríkj-
anna, og Madeleine Albright, utan-
ríkisráðherra stjórnar hans, í síð-
ustu viku. Samþykkt allsheijar-
þings SÞ hafði heldur engin áhrif.
ur hafa verið grimmastur og er
hann sagður hafa skotið tvo presta
þótt þeir bæðu sér griða með Bibl-
íuna í hendi.
Hafði fólk það eftir málaliðunum
sjálfum, að Mobutu Sese Seko, for-
seti landsins, hefði heitið þeim
stórfé fyrir hvern felldan skæruliða.
Talsmaður Rauða krossins í Kongó
sagði í gær, að ýmsir úr fjölskyldu
Mobutus hefðu leitað hælis í land-
inu.
■ Kabila fagnað/20
Grimmir málaliðar
Flóttafólkið streymir frá Albaníu
Matarskortur
yfirvofandi
Tirana, Genf. Reuter.
SENDINEFND frá Evrópusam-
bandinu, ESB, hélt áfram viðræð-
um sínum við stjórnvöld í Albaníu
í gær og snerust þær um leiðir til
að koma á lögum og reglu í land-
inu. Talsmaður Flóttamannastofn-
unar Sameinuðu þjóðanna sagði í
gær, að um 12.000 albanskir
flóttamenn væru komnir til Grikk-
lands og Ítalíu. Mikill matarskort-
ur blasir við í Albaníu en búið er
að ræna þar öllum birgðum og
flutningar um landið og viðskipti
hafa lagst niður.
Kyrrt er nú orðið í höfuðborg-
inni, Tirana, en útgöngubann er
enn í gildi á nóttinni. Bashkim
Fino, forsætisráðherra þjóðstjórn-
arinnar, átti í gær fund með rit-
stjórum dagblaða og hét að gera
allt til að greiða fýrir útkomu blað-
anna á ný. Fino er að búa sig
undir að fara til viðræðna við upp-
reisnarmenn í suðurhluta landsins.
Nefndinni var „brugðið“
ESB-nefndin ræddi við Sali
Berisha, forseta Albaníu, í fyrra-
dag og skoraði hann á Evrópurík-
in að senda matvæli og lyf til
landsins. Arben Malaj, fjármála-
ráðherra Albaníu, ítrekaði þessa
beiðni á fundi með ESB-nefndinni
í gær en þegar fréttamenn spurðu
um hve mikið hann hefði beðið
vildi hann ekki svara því. Sagði
hann aðeins, að nefndinni hefði
verið „brugðið“. Malaj sagði einn-
ig, að Evrópuríkin ætluðu að
styðja Albaníu fjárhagslega að
uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
Að gætt yrði aðhalds í ríkisfjár-
málum; að allt varðandi píramíta-
fyrirtækin yrði upplýst og aftur
komið á sambandi við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn.
Vaxandi flótti
Talið er, að um 12.000 manns
hafi flúið frá Albaníu að undan-
förnu, aðallega til Grikklands og
Ítalíu. Sögðu ítalskir embættis-
menn, að albanskur glæpalýður
hefði notfært sér þetta ástand og
hjálpaði fólki að flýja gegn
greiðslu.
Leiðtogafundur
FUNDUR þeirra Bills Clintons
Bandaríkjaforseta og Borís Jelts-
íns, forseta Rússlands, hefst í
Helsinki í Finnlandi á morgun og
stendur í tvo daga. Verður þar
efst á baugi fyrirhuguð aðild ríkja
í Mið- og Áustur-Evrópu að Atl-
antshafsbandalaginu, NATO. Er
fundurinn óspart notaður í aug-
iýsingum af ýmsu tagi og þar á
meðal í þessari, sem er í flugstöð-
inni í borginni. Eru myndirnar
af leiðtogunum frá síðasta fundi
þeirra í Washington.
■ Erfiðar viðræður/19