Morgunblaðið - 19.03.1997, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Hagnaður af rekstri Samherja hf. var um 670 milljónir króna í fyrra
Söluverð nýs
hlutafjár rúm-
ur milljarður
Sölugengið í hlutafjárútboðinu sem
hefst á föstudag er 9,0
SAMHERJI hf.
Úr reikningum 1996
milillfl SiMSTíflA 1 Samstæða án Hrannar
Rekstrarreikningur 1996 1995 1996 1995
Rekstrartekjur, milljónir kr. 5.772 4.913 5.136 4.333
Rekstrarqjöld 4.474 3.692 4.027 3.234
Hagnaður t. afskriftir 1.298 1.221 1.109 1.099
Afskriftlr 620 549 507 430
Fjármagnskostnaður 232 95 112 87
Hagn. af reglul. starfsemi 446 577 490 582
Aðrar tekjur (gjöld) 349 28 349 28
Reiknaðir tekiu- oq eiqnarsk. (163) (55) (170) (52)
Haqnaður ársins 632 550 669 558
Veltufé irá rekstri 952 842 865 814
Efnahagsreikningur 31/12'96 31/12 '95 31/12 '96 31/12 '95
1 Eianir: 1 2.174 1.967 1.974 1.845
Veltufjármunir, milljónir kr.
Fastafjármunir 6.813 5.449 5.284 3.836
Eignir samtals 8.987 7.416 7.258 5.681
1 Skuidir aa eiaið fé: 1 Skammtímaskuldir 2.423 2.008 2.143 1.743
Langtímaskuldir 4.329 3.852 3.360 2.835
Eigið fé 2.235 1.556 1.755 1.103
Skuldir og eigið fé samtals 8.987 7.416 7.258 5.681
Kennitölur 1996 1995 1996 1995
Eiginfjárhlutfall 24,9% 21,0% 24,2% 19,4%
Veltufjárhlutfall 0,90 0,98 0,92 1,06
Nettóskuldírveltufé frá rekstri 4,81 4,62 4,08 3,36
Veitufé frá rekstri/rekstrart. 16% 17% 17% 19%
HAGNAÐUR af rekstri Samheija
hf. var 669 milljónir króna á liðnu
ári, en þar er um að ræða Sam-
hetja og dótturfélög án Hrannar hf.
á Isafirði en félögin tvö voru samein-
uð í lok síðasta árs. Þetta er betri
afkoma en var árið á undan þegar
hagnaður af rekstri fyrirtækisins
var 558 milljónir króna.
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samheija, segist þakklátur
fyrir fjárhagslega gott ár, enda
hafi menn lagt sig fram um að
gera vel og þetta sé niðurstaðan.
„Við höfum í gegnum árin reynt
að aðlaga okkar fiskveiðiflota þeim
veiðiheimildum sem við höfum og
þetta gekk upp.“
Aðalfundur Samheija var haldinn
í gær en þar var afkoman kynnt.
Rekstrartekjur Samheija voru á
liðnu ári 5.136 milljónir króna og
rekstrargjöld voru 4.027 milljónir
króna, en þær tölur eru einnig mið-
aðar við samstæðuna án Hrannar,
en helstu kennitölur úr rekstrinum
eru birtar í meðfylgjandi töflu.
Aðspurður um framtíðina segir
Þorsteinn Már að hún sé alltaf
spumingamerki. „Það er þó ljóst
að við erum að hluta til að róa á
ný mið, Samheiji er að stækka og
eigendahópurinn að breytast. Verk-
efnið felst i því að við ráðum við
að stjórna því fyrirtæki sem Sam-
heiji er orðið í dag. Reksturinn
fyrstu mánuði þessa árs hefur geng-
ið vel og m.a. hafa loðnuveiðar og
vinnsla, bæði fiysting og bræðsla
gengið vel, þannig að árið fer vel af
stað.“
Hlutafé aukið um
115 milljónir króna
Einnig var væntanlegt hlutafjár-
útboð félagsins kynnt en stefnt er
að því að auka hlutafé um 115
milljónir króna með sölu nýrra
hluta. Þrír stærstu hluthafarnir í
félaginu ákváðu að nýta forkaups-
rétt sinn að nafnvirði 70 milljónir
króna í jDeim tilgangi að framselja
hann. Utboðið hefst á föstudag,
21. mars og verða þá boðnar til
sölu 45 milljónir króna á almennum
markaði á genginu 9,0 sem er það
sama og til forkaupsréttarhafa.
Landsbréf á Norðurlandi annast
þetta fyrsta útboð á hlutafé í Sam-
heija og munu útboðsgögn liggja
frammi hjá Landsbréfum og í
útibúum Landsbanka íslands á
föstudagsmorgun.
Þorsteinn Már sagðist hafa fund-
ið fyrir miklum áhuga fyrir hluta-
fjárútboði fyrirtækisins. „Ég vona
að vel takist til og að þetta muni
styrkja fyrirtækið og breikka hlut-
hafahópinn."
Hámarkshlutur 100 þúsund
að nafnverði
Fyrirkomulag útboðsins verður
þannig að þeir sem óska eftir að
kaupa hlutafé skrá sig fyrir hlut,
en hver og einn getur að hámarki
skráð sig fyrir 100 þúsund króna
hlut að nafnvirði, að sögn Sigurðar
Sigurgeirssonar, forstöðumanns
Landsbréfa á Norðurlandi. Eftir-
spum mun ráða hvað hver fær
mikið. Verði nægt hlutafé fá allir
sem skrá sig hlutafé fyrir allt að
30 þúsund krónur að nafnvirði, en
verði eftirspurn meiri en framboð
lækkar upphæðin sem hver og einn
fær. Útboðið stendur frá næsta
föstudegi og fram til miðvikudags-
ins fyrir páska, 26. mars. „Við-
brögðin hafa verið mjög mikil. Það
hefur mikið verið hringt og spurst
fyrir allt frá því að fyrst var farið
að ræða þetta síðasta haust,“ sagði
Sigurður.
Eftir fyrirhugaða sölu á nýju
hlutafé og þegar lokið verður sam-
runaferli Hrannar hf. við félagið
sem og hlutabréfaskiptum við hlut-
hafa Fiskimjöls og Iýsis hf. þar sem
Samheiji eignast 98% hlut, verður
heildarhlutafé Samheija 1.374
milljónir króna.
Fjárfest í
Bandaríkjunum
Áformað er að nýta nýtt hlutafé
til lækkunar skulda sem og til nýrra
fjárfestinga. Er fyrirhugað að nýta
300 milljónir króna hins nýja hlut-
afjár til fjárfestinga innanlands og
300 milljónir til verkefna í útlönd-
um.
Samheiji hefur aukið umsvif sín
umtalsvert í útlöndum og nú síðast
var gengið frá kaupum á hlut í
tveimur útgerðarfyrirtækjum og
einu vinnslufyrirtæki á austur-
strönd Bandaríkjanna. Þessi fyrir-
tæki gera út fjögur skip sem eink-
um stunda veiðar á síld, makríl og
smokkfiski. Tvö skipanna frysta
aflann um borð.
Framhaldsaðalfundur
innan tveggja mánaða
Á fundinum var ákveðið að boða
til framhaldsaðalfundar innan
tveggja mánaða en þá verður sam-
runaferli Hrannar og Samheija
væntanlega lokið. Þorsteinn Már
segir að tíminn fram að framhalds-
aðalfundinum verði notaður til að
upplýsa hluthafa m.a. um kaupin
í Bandaríkjunum og hann vildi því
ekki tjá sig frekar um það mál á
þessari stundu.
Jazzklúbbur
Akureyrar
hefur starf
að nýju
JAZZKLÚBBUR Akureyrar hefur
hafið starfsemi að nýju eftir nokk-
urra ára hlé. Klúbburinn var form-
lega stofnaður 13. mars 1983 og
starfaði af krafti í nokkur ár. Hann
stóð m.a. fyrir mörgum tónleikum
víðþekktra djassleikara og hljóm-
sveita á Akureyri.
Undirbúningsnefnd sem valin var
á djasstónleikum í nóvember 1995
hefur valið bráðabirgðastjórn.
Stjómina skipa; Jón Rafnsson, for-
maður, Jón Hlöðver Áskelsson, rit-
ari, Ólafur Héðinsson, gjaldkeri og
Erla Stefánsdóttir og Sverrir Páll
Erlendsson, meðstjórnendur. Fram-
undan eru nokkrir tónleikar sem
klúbburinn mun standa að eða halda
í samstarfí við aðra.
Á morgun, fimmtudag mun ný-
stofnuð djasshljómsveit „Na Nú Na“
leika á Café Olsen við Ráðhústorg
kl. 21.30 og er aðgangur ókeypis.
Sveitina skipa; Karl Petersen á
trommur, Stefán Ingólfsson á raf-
bassa, Heimir Freyr Hlöðversson á
pínaó, Róbert Sturla Reynisson á
rafgítar og Wolfgang Frost Sahr á
saxófón. Þann 14. apríl munu Bjöm
Thoroddsen, Egill Ólafsson, Ole Ras-
mundsen og P-A Toolbom leika á
Hótel KEA og 7. maí mun Kvartett
Péturs Östlund leika á sama stað.
Forsvarsmenn Jazzklúbbs Akur-
eyrar hafa sett sig í samband við
hinn nýja djassklúbb í Reykjavík,
Múlann og em uppi áform um að
gefa út sameiginlegt fréttabréf með
Múlanum. Jafnframt verður leitað
eftir því að félagar í Jazzklúbbi Akur-
eyrar fái afslátt af plötum sem Jazz-
ís gefur út, sem og að RÚREK og
fleiri uppákomum.
Skráðir félagar í Jazzklúbbi Akur-
eyrar eru nú um 60 og að mati for-
svarsmanna hans er nauðsynlegt að
fjölga þeim svo klúbburinn geti orðið
djasslífi á Akureyri verulegur stuðn-
ingur og til að tryggja djassáhuga-
mönnum reglulegt framboð af góðum
og fjölbreyttum djasstónleikum í
bænum.
Áhugasamir geta skráð sig í
klúbbinn á tónleikum „Na Nú Na“ á
Café Olsen annað kvöld eða símleið-
is hjá Jóni Rafnssyni, Jóni Hlöðver
Áskelssyni, Ólafi Héðinssyni, Erlu
Stefánsdóttur eða Sverri Páli Er-
lendssyni.
Aðalfundur
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga verður haldinn í
Alþýðuhúsinu á Akureyri laugardaginn 5. apríl nk. og hefst
kl. 10.00.
Dagskrá
1. Fundarsetning.
2. Rannsókn kjörbréfa og kosning starfsmanna
fundarins.
3. Skýrsla stjórnar.
4. Skýrsla kaupfélagsstjóra.
Reikningar félagsins.
Umsögn endurskoðenda.
Tillögur félagsstjórnar um ráðstöfun eftirstöðva o.fl.
5. Afgreiðsla reikninga og tillaga félagsstjórnar.
6. Skýrsla stjórnar Menningarsjóðs KEA.
7. Erindi deilda.
8. Þóknun stjórnar og endurskoðenda.
9. Samþykktabreytingar:
Lögð verður fram tillagna um hækkun heimildar til
útgáfu B-deildar hlutabréfa. Einnig verða lagðar fram
tillögur um breytingar er varða inngangseyri, fjölda
aðalfundarfulltrúa og fjölda stjórnarmanna.
10. Kosningar.
11. Önnur mál, sem heyra undir aðalfund skv.
félagssamþykktum.
Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga.
Svæðisbundið sjónvarp á Akureyri
Útsending hefst í lok maí
FYRIRTÆKIÐ Aksjón ehf. hefur
sett stefnuna á að hefja sjónvarps-
útsendingar á Akureyri þann 31.
maí nk. I júni verður svo fastur
útsendingartími á laugardögum og
í júlí bætist við útsending á sunnu-
dögum. Á næstu tveimur mán-
uðunum þar á eftir er ætlunin að
Qölga útsendingardögunum í sex
á viku og jafnframt að fjölga
starfsmönnum úr tveimur í sex til
átta.
Aksjón sendir út efni í opinni
dagskrá, einn klukkutíma í senn
og mun fjármagna reksturinn með
auglýsingum og þjónustutekjum.
Til að byrja með mun útsendingin
aðeins nást á Akureyri. Stefnt er
að stækkun sendisvæðisins til Dal-
víkur, Grenivíkur, Svalbarðseyrar,
Ólafsfjarðar og Eyjafjarðarsveitar
og ná þá til um 20.000 íbúa í
Eyjafirði.
Óvíst með samstarf
við Sýn
Forsvarsmenn Aksjónar, þeir
Gísli Gunnlaugsson og Páll Sólnes,
segja að efnið sem sent verði út,
sé svæðisbundið og byggt á frétt-
um, viðtölum, efni úr menningar-
og félagslífi og ýmsu öðru. Fyrir-
hugað er að senda út beint frá
fundi bæjarstjórnar og fylgjast
með öðru í stjórnsýslu bæjarins,
t.d. störfum nefnda og ráða.
Viðræður hafa farið fram milli
forsvarsmanna Aksjónar og Sýnar
um hugsanleg afnot Sýnar af sjón-
varpsrás Aksjónar. í febrúar var
gefin út viljayfirlýsing félaganna
um samstarf. Eftir kaup Islenska
útvarpsfélagsins á Stöð 3 hafa
frekari viðræður hins vegar legið
niðri og er alls óvíst með framhald
málsins.
Samstarf við Háskólann
Félaginu var úthlutað þremur
sendirásum á örbylgjutíðnisviði á
síðasta ári. Í kjölfar mælinga sem
Fjarskiptaeftirlit ríkisins fram-
kvæmdi í samstarfi við Póst og
síma í febrúar sl. var félaginu út-
hlutað sjónvarpsrás númer 9 á
VHF tíðnisviði, með staðsetningu
sendis í landi Geldingsár í Sval-
barðsstrandarhreppi. Einnig hefur
félaginu verið úthlutað tíðni fyrir
fjarskiptatengingu milli myndvers
og sendistaðar við Geldingsá.
Jafnframt hefur verið gerður
samningur við eigendur jarðarinn-
ar Halllands í Svalbarðsstrandar-
hreppi um land undir 12 fermetra
hús fyrir örbylgjusendingar. Stefnt
er að samstarfi við Háskólann á
Akureyri um fjarkennslu í sjón-
varpi á örbylgjutíðnisviði, auk
framleiðslu fræðslu- og kennslu-
efnis fyrir almenning.
Góð reynsla af
slíkum stöðvum
Gísli og Páll segja ekki fordæmi
fyrir starfsemi af þessu tagi utan
höfuðborgarsvæðisins en víða er-
lendis hafi slíkar stöðvar verið
starfræktar með góðum árangri.
Aðgangur að sjónvarpi hefur að
miklu leyti einskorðast við höfuð-
borgarsvæðið en svæðisbundin
sjónvarpsstöð geti höfðað sérstak-
lega til íbúa byggðarlagsins, fjallað
ítarlega um málefni sem eru á
döfinni og stuðlað að eflingu menn-
ingarstarfsemi og byggðar.
Þeir benda á að Akureyri, sem
stærsti byggðarkjarninn utan höf-
uðborgarsvæðisins hafi mikilvægu
hlutverki að gegna sem miðstöð
atvinnu, þjónustu og menntunar.
Akureyrskt sjónvarp muni því auka
verulega fjölbreytileika þeirrar
þjónustu sem svo stórt byggðarlag
þarf að geta boðið íbúum sínum.