Morgunblaðið - 19.03.1997, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.03.1997, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997 39 BRÉF TIL BLAÐSINS Tóbaksvarnir - Þorvarðar þáttur Ornólfssonar Frá Ásgeiri R. Helgasyni: ÞEGAR Þorvarður Örnólfsson lög- fræðingur hóf störf hjá Krabba- meinsfélaginu reykti ríflega helm- ingur unglinga sem brautskráðust úr grunnskóla og ekki var óal- gengt að tólf ára börn væru byrjuð að reykja. í nokkur ár þrammaði Þorvarður einn síns liðs um landið dragandi á eftir sér níðþunga kvik- myndavél og hafði með í farteskinu eftirminnilegar myndir um lungna- uppskurði sem fljótlega urðu lands- frægar og lifa enn í minningu margra. Með tímanum byggði hann upp tóbaksvarnadeild Krabbameinsfélagsins sem á síðari árum hefur heimsótt flesta nem- endur í efstu bekkjum grunnskóla árlega með tveggja tíma fræðslu- dagskrá og hefur að auki útbúið margskonar fræðsluefni um tóbak- svarnir fyrir unga sem aldna. En eftir að afstaðan til reykinga tók stakkaskiptum hafa líka áherslur fræðslunnar breyst. Upp- skurðarmyndunum hefur fækkað og aukin áhersla verið lögð á að upplýsa unglinga um þær snörur sem tóbaksiðnaðurinn og aðrir sem hagnast á tóbakssölu leggja til að fanga nýjar sálir í fjötra fíknarinn- ar. Starfið hefur verið árangursríkt því í dag er hlutfall þeirra sem útskrifast púandi úr grunnskólum komið niður í tvo af hveijum tíu og reykingar eru nánast alveg horfnar úr yngstu aldurshópunum. Þótt alltaf megi um það deila hveijum beri að þakka þegar fleiri leggja hönd á plóginn, er það mitt persónulega mat að Þorvarður eigi langstærstan hlut J þeim árangri sem náðst hefur. Ég leyfi mér að telja þetta til mestu afreka fyrir- byggjandi heilsuvemdar á síðari árum á íslandi. Auk tóbaksvarna- starfs í grunnskólum hefur Þor- varður unnið ötullega að tóbaks- vörnum á öðrum sviðum bæði á vegum Krabbameinssamtakanna og Tóbaksvarnarnefndar þar sem hann hefur átt sæti í fjölda ára. Áralöng seta hans þar hefur veitt starfi nefndarinnar þá sögulega kjölfestu sem er forsenda þess að þróunin þokist fram á við og menn séu ekki alltaf að endurtaka sömu mistökin. Ég átti því láni að fagna að starfa með Þorvarði að tóbaks- vörnum um tíu ára skeið á vegum Krabbameinsfélagsins og veit af eigin raun hve mikilvægt það er að hafa aðgang að þeim hafsjó þekkingar sem hann býr yfir. Þeg- ar til þess er litið að u.þ.b. helming- ur þeirra sem byijar að reykja og hættir því ekki, deyr um aldur fram vegna reykinga og hinir „heppnu“ sem lifa hljóta flestir ýmiskonar örkuml fyrr eða síðar sem rekja má til reykinganna, er ljóst að þeir eru býsna margir sem þakkað geta Þorvarði beint eða óbeint fyr- ir líf sitt og heilsu. Megi hann þökk hafa og von- andi njótum við starfskrafta hans áfram um ókomin ár. ÁSGEIR R. HELGASON, sálfræðingur, Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. PÁSKAR Á HÓTEL ÖRK Fjölbreyttar uppákomur alla hátíðardagana Ratleikir fyrir bömin • Bingó • Snjósleðaferðir • Hestaferðir • Barnabíó • Kúrekadansar • Kennsla í línudansi • Dagbjartur Pálsson sýnir eitt stærsta pennasafn á landinu. • Jóhann B. Jóhannsson Islandsmeistari unglinga. í snóker leiðbeinir og margt fleira. Lifandi tónlist • Hörður Olafsson skemmtir öll kvöld. Gisting, morgunverður Verð frá af hlaðborði, 3 rétta veislukvöldverður Upplýsingar og pantanir í síma 483 4700. AÐEINS kr. 3.900 á sólarhring. Frítt fyrir börn að 12 ára aldri í herbergi LYKIL með foreldrum. HÖTEL Lykillinn að íslenskri gestrisni. Hveragerði - sími 483 4700, bréfsími 483 4775. R A FUMOIR/ MANNFAGNADUR Fundarhoð + Aukaadalfundur Aukaaðalfundur Rauða kross íslands verður haldinn að Borgartúni 6 í Reykjavík laugardaginn 19. apríl næst komandi. Fundurinn hefst kl. 9.00. + Stjórn Rauða kross íslands RAUÐI KROSS ISLANDS TILBOÐ/UTBOÐ UTEMI »> Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Háskólans á Akureyri, óskar eftir tilboöum í að breyta og innrétta húsnæði fyrir bókasafn Háskólans að Sólborg á Akureyri. Breyta og endurnýja þarf lagnakerfi hússins, klæða niður loft, mála, endurnýja gólfefni, byggja nýja veggi, smíða og setja upp innihurðir og inn- réttingar ásamt nokkrum gluggum og útihurð- um. Væntanlegum bjóðendum er boðið að kynna sér aðstæður á verkstað mánudaginn 24. mars ki. 13.00 í fylgd fulltrúa verkkaupa. Verkinu skal lokið eigi síðar en 5. ágúst 1997. Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 6.225,- frá kl. 13.00 þann 19. mars 1997 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7, 105 Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað þann 9. apríl kl. 11.00. \|Sí RÍKISKAUP Úfboð iki/a á r a n g r i I BORGARTÚNI 7, 105 R E Y KJ AV í K SÍMI 552-6844, B ré fa s ím i 562-6739-Netfang: rikiskaup@rikiskaup.is AUGLÝSINGA * LISTMUNAUPPBOÐ H TILKYNNINGAR Málverkauppboð Málverkauppboð verður haldið fimmtudaginn 10. apríl nk. í Súlnasal Hótels Sögu kl. 20.30. Þeir, sem óska eftir að koma málverkum og öðrum listmunum á uppboðið, hafi samband sem fyrst í síma 565 4360 og ekki síðar en 3. apríl nk. Verkin verða til sýnis í Aðalstræti 9, 2. hæð, dagana 4.-9. apríl kl. 14—18 daglega og á uppboðsstað á uppboðsdegi kl. 16—20. LISTHÚS AÐALSTRÆTI 9 SÍMI 565 4360 Uppboðshaldarar: BárðurG. Halldórsson — Haraldur Blöndal. Frá Orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavík Skráning stendur yfir í orlofsferðirnar. Farið verðurtil Mallorka í apríl, Protoroz í maí og Skotlands í júní. Hótel Örk og Akureyri í maí og Stykkishólmur í júní. Upplýsingar í síma 551 2617 milli kl. 17—19. Orlofsnefnd húsmæðra. ÝMISLEGT FELAG TAMNINGAMANNA Stórsýning Félags tamningamanna Málverk Höfum kaupendur að góðum verkum gömlu meistaranna. Leitum sérstaklega að verkum eftir Kjarval, Kristínu Jónsdóttur og Jón Stef- ánsson. Höfum hafið móttöku á verkum fyrir næsta málverkauppboð. Vinsamlegast hafið samband sem fyrst. Aðalstræti 6, sími 552 4211. Opiðfrá kl. 12-18 virka daga. LEIÐSÖGUSKÓLINN ICELAND TOURIST GUIDE SCHOOL Leiðsögukennarar, leiðsögumenn Námskeið um samskipti (Communication Seminar) Rosalind Hutchinson, MBE, heldur námskeið í Leiðsöguskóla íslands, Menntaskólanum i Kópavogi (gengið inn frá Hávegi). Fyrir leidsögukennara fimmtudaginn 20. mars nk. kl. 20.00-22.00. Fyrir leiðsögumenn laugardaginn 22. mars nk. kl. 9.00-16.00. Hádegisverður er innifalinn. Ofangreindum aðilum er bent á þetta einstæða tækifæri til að hlusta á þennan þekkta leiðsögu- kennara. Leiðsöguskóli íslands. BORGt Reiðhöllinni í Víðidal 21.—23. mars Kraftur - fegurð - fagmennska Kvöldsýningarföstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld kl. 20.30. Forsala aðgöngumiða hefst í Reiðhöllinni fimmtudaginn 20. mars kl. 13.00. Sími 567 3850. Stúkumiðar kr. 2.000. Önnur sæti kr. 1.500. Númeraðir stólar í allri höllinni. Nýjar innréttingar og stórbætt aðstaða. Glæsileg sýningaratriði: Úrvals stóðhestar, glæstar hryssur, gæðingar, vekringar, stóðhestarnir Galsi, Hlekkur, Geysir, Hjörvaro.fl. Heimsmeistaraefni, landsmóts- stjörnur, listrænarfimiæfingar, Hólaskóli, leik- ur og grín. Undraveröld íslenska hestsins kynnt af Sigurði Sæmundssyni landsliðseinvaldi og Hafliða Halldórssyni sýningarstjóra. Stórhátíð á Hótel íslandi. Bjarni Arason og Milljónamæringarnir. Öllum miðum á sýningu FTfylgir boðsmiði á Hótel ísland laugardagskvöldið 22. mars að lokinni sýningu. Þeir, sem kaupa miða á sunnudagssýningu fyrir laugardagskvöld, fá einnig boðsmiða á Hótel Island. Borgarfjörður — ættarmót Bjóðum upp á góða aðstöðu fyrir ættarmót, nemendamót og önnur mannamót. Gott tjald- stæði í skógivöxnu landi, einnig innigisting. Þjónustumiðstöð er á staðnum ásamt veiði og hestaleigu. Mjög fallegt útivistarsvæði. Pantanir og nánari uppl. í síma 437 2345.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.