Morgunblaðið - 19.03.1997, Blaðsíða 10
{
10 MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997____________________________________________MORGUNBLAÐIÐ
_____________________________________FRÉTTIR_____________________________________
Nýundirritaðir kjarasamningar Dagsbrúnar/Framsóknar voru kolfelldir í gærkvöldi
Mikil óvissa er um
framhald viðræðna
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
FORYSTUMENN Dagsbrúnar, Framsóknar og samtaka atvinnurekenda takast í hendur að lokinni
undirritun kjarasamninga í húsnæði ríkissáttasemjara síðdegis í gær.
STÓRA samninganefnd Dagsbrúnar
og Framsóknar felldi nýgerðan
kjarasamning félaganna á fundi í
gærkvöldi með 70 atkvæðum gegn
28. Kom fram mikil óánægja með
samninginn sem undirritaður hafði
verið af samninganefndum félag-
anna og vinnuveitenda á fimmta tím-
anum í gærdag. í samtölum við
Dagsbrúnarmenn í gærkvöldi kom
m.a. fram óánægja með að lítið hefði
náðst fram umfram kjarasamning
sem Landssamband iðnverkafólks og
Iðju gerði í seinustu viku þrátt fyrir
verkföll undanfama níu daga en
samningamir em hliðstæðir í mörg-
um meginatriðum.
„Held að það verði
nyög langt verkfall"
„Mér sýnist að það verði lítil hreyf-
ing á okkar málum fyrr en eftir
páska. Ég held að það verði mjög
langt verkfall," sagði Halldór Bjöms-
son, formaður Dagsbrúnar, þegar
niðurstaða lá fyrir. Hann sagðist
ekki gera ráð fyrir að viðræður yrðu
teknar upp við vinnuveitendur á
næstunni og að búast mætti við víð-
tækum og hörðum verkfallsátökum,
en boðað allsheijarverkfall félaganna
hefst 23. mars.
Halldór sagðist telja að félags-
menn hefðu fyrst og fremst verið
óánægðir með að ekki náðist fram
krafan um 70 þúsund kr. lágmarks-
laun. „Ég hef greinilega ekki áttað
mig á því. Ég hélt að sérkjarasamn-
ingamir væru það mikils virði fyrir
þessa hópa, en það var ekki nóg,
menn vildu fá eitthvað meira," sagði
Halldór. Hann sagði að forysta fé-
lagsins tæki niðurstöðuna ekki sem
vantraust á sig þótt hún væri ekki
í þægilegri stöðu nú. „Félagið hefur
verið mjög heilsteypt á bak við okk-
ur en það má segja að við höfum
vanmetið þann styrk sem menn vilja
leggja í baráttuna. Hún þarf kannski
að þroskast meira til að menn átti
sig á hlutunum," sagði Halldór.
Óvissa í Karphúsinu
Mikil óvissa ríkti í húsnæði ríkis-
sáttasemjara í gærkvöldi þegar frétt-
ir bárust af því að samningar Dags-
brúnar og Framsóknar hefðu verið
felldir. Þar stóðu þá yfir viðræður
vinnuveitenda við Verkamannasam-
bandið, Samiðn og Landssamband
verslunarmanna og vom samninga-
viðræður við Samiðn og LÍV á loka-
stigi, skv. upplýsingum Morgun-
blaðsins. Einnig stóð til að undirrita
kjarasamning vegna virkjanafram-
kvæmda Landsvirkjunar. Undir mið-
nætti ákvað ríkissáttasemjari að
fresta frekari fundum til ki. 15 í dag
til að gefa mönnum færi á að átta
sig á þeirri nýju stöðu sem upp var
komin.
Fiskvinnslufólk óánægt
Aðalsteinn Baldursson, formaður
fískvinnsludeildar VMSÍ, sagði það
ekki hafa komið sér á óvart að stóra
samninganefnd Dagsbrúnar og
Framsóknar hafí fellt kjarasamning
félaganna við vinnuveitendur.
Kvaðst hann, í samtali við Morgun-
blaðið seint í gærkvöldi, hafa verið
mjög óánægðurmeð tilboð vinnuveit-
enda og hefði hann aldrei skrifað
undir það fyrir sitt fólk. Að mati
Aðalsteins bar mikið í milli i samn-
ingaviðræðum sambandsins og
vinnuveitenda. Sagði hann að samn-
ingamenn VMSÍ hafí gert athuga-
semdir við 8-9 atriði í tilboði vinnu-
veitenda sem öll væru óviðunandi.
Aðspurður sagði hann að fískverka-
fólk væri óánægt með reiknitölur í
tilboðinu en ennfremur væri tekist á
um ákvæði um fleytitíma og fyrir-
tækjasamninga.
Ríkisstjórn tilbúin
með yfirlýsingu
Þegar útlit var fyrir að kjara-
samningar á almenna vinnumark-
aðinum gætu náðst í gærdag hafði
forysta ASí samband við ráðherra
ríkisstjómarinnar og óskaði eftir
skriflegri yfírlýsingu um þær að-
gerðir sem ríkisstjórnin hygðist
beita sér fyrir í skattamálum og
fleiri málum. Var skrifieg yfirlýsing
ríkisstjórnarinnar tilbúin í gærkvöldi
en niðurstaða í atkvæðagreiðslu
Dagsbrúnar og Framsóknar varð til
þess að ákveðið var að bíða með
að kynna hana samningsaðilum.
Þegar samningarnir voru undirrit-
aðir í gærdag lá einnig fyrir sam-
komulag um sérkjarasamninga fjöl-
margra hópa innan Dagsbrúnar og
Framsóknar við viðsemjendur.
Samningafundir höfðu þá staðið
óslitið frá kl. 14 á mánudag. Samn-
ingurinn sem felldur var í gærkvöldi
átti að gilda til 15. október 1999.
Líkt og í samningi iðnverkafólks var
kveðið á um 4,2% almenna launa-
hækkun við undirritun, 4% hækkun
1. janúar 1998 og 3,5% 1. janúar
1999.
Fyrirtækjasamningar án
afskipta félaganna
Það sem skildi kjarasamninga
Dagsbrúnar/Framsóknar frá samn-
ingi iðnverkafólks var að í samningi
félaganna var kveðið á um heimild
starfsmanna og stjómenda fyrir-
tækja til að gera fyrirtækjasamninga
um tiltekin atriði beint og án af-
skipta stéttarfélaga eða samtaka
atvinnurekenda. Þá náðist sam-
komulag um að í stað þess að hafa
ákvæði um sveigjanlegan dagvinnu-
tíma, eða það sem kallað hefur verið
„fleytitími", í aðalkjarasamningi er
sett inn ákvæði í kafla um fyrir-
tækjasamninga um að heimilt verði
að semja í einstökum fyrirtækjum
um skipulag dagvinnu á tímabilinu
frá kl. 6 á morgnana til kl. 20 á
kvöldin.
Endurmat ef ófyrirséð atvik
raska kaupmáttarmarkmiðum
Forysta launþegahreyfíngarinnar
lagði mikla áherslu á að einhvers
konar tryggingar eða opnunar-
ákvæði yrðu í samningunum. Síðdeg-
is í gær náðist svo samkomulag milli
forystu launþega og vinnuveitenda
um orðalag um samningsmarkmið
sem sett var inn í samninga Dags-
brúnar/Framsóknar og var gengið
út frá að samskonar texti yrði í
væntanlegum kjarasamningum
þeirra landssambanda sem enn höfðu
ekki náð samningum hjá sáttasemj-
ara í gærdag.
Ákvæðið er svohljóðandi: „Samn-
ingsaðilar vænta þess að hagvöxtur
og framleiðniaukning muni á næstu
árum skapa forsendur fyrir því að
launabreytingar samkvæmt samn-
ingi þessum skili auknum kaup-
mætti. Út frá því er gengið að kaup-
máttaraukning ráðstöfunartekna
verði meiri en að meðaltali f við-
skiptalöndum okkar. Leiði ófyrirséð
atvik til þess að kaupmáttarauki
ráðstöfunartekna vaxi ekki með hlið-
stæðum hætti og i viðskiptalöndum
skulu fulltrúar heildarsamtaka
Ieggja mat á þróunina og gera tillög-
ur um viðbrögð."
Byggt á trausti samningsaðila
„Þetta ákvæði byggir á tilteknu
trausti á milli samningsaðila, lýsir
væntingum þeirra en án þess þó að
neglt sé niður með einhveijum hótun-
arblæ nákvæmlega hvað gerist ef
illa tekst til. Þetta er enn eitt skref-
ið á þeirri braut sem við höfum ver-
ið að feta okkur á undangengin ár,
að hverfa frá sjálfvirkum viðbrögð-
um og fyrirvörum á borð við ná-
kvæmar verðbólguspár eða rauð
strik, sem hafa raunar ekki verið í
samningum okkar undangengin ár,“
sagði Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ.
Skora á banka-
nicnn að fella
Sími 555-1500
Sumarbústaður
Til sölu góður ca 50 fm sumarbústaður
í landi Jarðlangsstaða í Borgarfirði.
Eignarland hálfur hektari. Verð: Tilboð.
Kópavogur
Foldasmári
Glæsilegt ca 140 fm nýlegt raðhús á
einni hæð. Áhv. ca 5,5 millj. Verð 12,9
millj.
Garðabær
Stórás
Gott ca 200 fm einbhús auk 30 fm
bilsk. Mögul. á tveimur Ib. Ekkert áhv.
Skipti möguleg á 3ja herb. (b.
Reykjavík
Skipholt
Góð ósamþ. einstaklíb. ca 48 fm í fjölb.
Verð 2,7 millj.
Hafnarfjörður
Gunnarssund
Til sölu er góð 3ja herb. Ib. á jarðh.
Breiðvangur
Mjög góð 5 herb. ca 112 fm Ib. á
2. hæð. Laus fljótl. Verð 8,4 millj.
Álfaskeið
Einbýlishús á tveimur hæðum með
hálfum kj., samtals 204 fm. Mikið
endurn. Ath. skipti á litllli (b.
Reykjavíkurvegur
Glæsileg 2ja herb. íb. á 3. hæð. Lftið
áhv. Verð 4,3 millj.
Vantar eignir á skrá
Fasteignasala,
Strandgötu 25, Hfj.
Árni Grétar Finnsson, hrl.
Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl.
FRIÐBERT Traustason, formaður
Sambands íslenskra bankamanna,
skoraði eindregið á félagsmenn sína
að fella sáttatillögu ríkissáttasemj-
ara á fjölmennum félagsfundi í
Reykjavík í gær. Hann sagði tillög-
una'mun verri en þau samningsdrög
sem legið hefðu fyrir þegar upp úr
viðræðum slitnaði í síðustu viku.
Friðbert sagði miklar breytingar
framundan á starfsumhverfi bank-
anna sem myndu hafa áhrif á allt
bankakerfið. Við þessar aðstæður
væri útilokað fyrir bankamenn að
semja til þriggja ára eins og sátta-
tillagan gerði ráð fyrir. Bankamenn
gætu heldur ekki sætt sig við að
ekki væri komið til móts við kröfu
þeirra um sérstaka hækkun til
þeirra sem eru á lægstu töxtunum.
Fulltrúar starfsmannafélaga
flestra stærri bankastofnana í land-
inu tóku til máls á fundinum og
kynntu ályktanir félaganna. í þeim
öllum var skorað á félagsmenn að
fella sáttatillöguna. Miðað við tón-
inn á fundinum verður að telja
mestar líkur á að svo verði.
Lög um kjarasamning starfs-
manna banka gera ráð fyrir að 50%
þeirra sem eru á kjörskrá verði að
taka þátt í atkvæðagreiðslu til að
fella sáttatillögu. Tillagan fellur ef
50% þeirra sem greiða atkvæði
segja nei. Þetta þýðir að verði þátt-
taka í atkvæðagreiðslunni 49% telst
tillagan samþykkt óháð niðurstöð-
unni.
20.000 kr. greiddar úr
vinnudeilusjóði
Stjórn vinnudeilusjóðs SÍB hefur
samþykkt að greiða 20.000 kr. á
viku til hvers félagsmanns í fullu
starfí komi til verkfalls. 3.000 kr.
til viðbótar verða greidd til félags-
manna sem eru með barn innan 20
ára aldurs á framfæri. Ekki verður
greitt úr sjóðnum nema verkfallið
standi í a.m.k. 5 sólarhringa. Áætl-
að er að kostnaður sjóðsins verði
10 milljónir á dag ef allir félags-
menn fá greitt úr honum, en í hon-
um eru aðeins 30 milljónir í dag.
SÍB á hins vegar kost á að fá allt
að einum milljarði kr. frá norrænum
bankamönnum, sem þýðir að þeir
geta verið í verkfalli í 3 mánuði,
að sögn Vilhelms G. Kristinssonar,
framkvæmdastjóra SÍB. Hann
sagði á fundinum að bankamenn
yrðu á komandi árum að efla vinnu-
deilusjóð sinn. Þeir gætu ekki byggt
samstarf við norræna bankamenn
á því að fá fjármuni frá þeim í verk-
föllum.
Ríki og rafiðnaðar-
menn reyna áfram
Verkfall í kvöld ef ekki næst saman
VIÐRÆÐUM fulltrúa rafíðnaðar-
manna og ríkisins var haldið áfram
klukkan 21 í gærkvöldi en síðdegis
tóku samningamenn hlé. „Það
slitnaði næstum því en hangir á
þunnum þræði,“ sagði Guðmundur
Gunnarsson, formaður Rafíðnaðar-
sambands Islands, og sagði að
menn væru sammála um að reyna
til þrautar. Helgi Gunnarsson í
samninganefndinni sagði nokkru
fyrir miðnætti að óvíst væri um
framhald, brugðið gæti til beggja
vona.
Náist ekki saman kemur til verk-
falls um 140 rafiðnaðarmanna í
störfum hjá ríkinu á miðnætti í
kvöld. Helgi Gunnarsson sagði í
gærkvöldi að vinnan væri komin
mjög langt. Taldi hann ekki hafa
áhrif að samningar Dagsbrúnar og
Framsóknar voru felldir í gær-
kvöldi. Guðmundur Gunnarsson
kvaðst í gærdag ekki mjög bjart-
sýnn á að saman gengi í gærkvöldi
en sagði samningsaðila áfjáða í að
reyna til þrautar og því ákveðið
að halda fundi áfram klukkan 21
í gærkvöldi. Sagði hann hugsanlegt
að þoka málum svo í gærkvöldi að
takast myndi að ljúka þeim í dag.
„Ásteytingarsteinninn er kaup-
hækkunin þótt hún sé síðan útfærð
á mismunandi vegu. Á tölvuöld vit-
um við nákvæmlega um launa-
kostnaðarauka fyrirtækjanna og
það er sama hvaða ákvæði kjara-
samnings við erum að glíma við,
öll snúast þau um kauphækkanir,"
sagði Guðmundur.
Rafíðnaðarmenn hafa verið að
kynna samningana á ýmsum vinnu-
stöðum og voru þeir t.d. samþykkt-
ir hjá Stöð 2 í gær. Atkvæða-
greiðsla um samningana við Rarik
stendur fram yfir páska.
Margvísleg röskun
Komi til verkfalls rafiðnaðar-
manna í þjónustu ríkisins verða
landsmenn einkum varir við að
útsendingar útvarps og sjónvarps
hætta og að ekki verður unnt að
efna til leiksýninga í Þjóðleikhús-
inu. Þá verður truflun hjá Haf-
rannsóknastofnun og Flugmála-
stjórn. Verkfallið nær einnig til
tæknimanna á Landspítala en
Guðmundur Gunnarsson sagði að
ekki kæmi til truflana á læknisað-
gerðum af hálfu rafiðnaðarmanna,
einungis vinna við uppsetningu á
nýjum tækjum eða slíku yrði felld
niður.