Morgunblaðið - 19.03.1997, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.03.1997, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens 019977Hbune Media All righU reeerved. AE> HAFAjg'HfÓtA T&jkk a EFTiz óé/z! Grettir Ljóska Ferdinand Smáfólk Wön! I U)ON! i'm THE 4AMPION! I U)ON!! HEV, MOM! I WON'! ann! Ég er methaf- Mamma, ég vann! 3-/0 /mom! i think\ THAT D06 Vkicked MEU Mamma, ég held að þessi hundur hafi sparkað í mig! BREF TIL BLADSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang:lauga@mbl.is Fagna umræðu um skólamál Frá stjórn Foreldra- og kennarafé- lags Hvassaleitisskóla STJÓRN Foreldra- og kennarafé- lags Hvassaleitisskóla fagnar þeirri umræðu sem orðið hefur um skóla- mál á undanfömum vikum og mán- uðum. Svo virðist sem niðurstöður fjölþjóðlegrar rannsóknar á árangri nemenda í raungreinum (TIMSS) hafi vakið fjölda fólks til umhugsun- ar um stöðu íslenskra bama miðað við börn í öðram löndum. Margir drógu verulega í efa gæði skóla- starfs á Islandi án þess að það væri skilgreint nánar hvort um væri að ræða lélega kennara, slæm kennslugögn, óhentugt húsnæði eða eitthvað annað. Það frumkvæði skólastjóra Hvassaleitisskóla að afla kennslu- gagna í raungreinum frá Singapúr, þar sem nemendur stóðu sig einna best í könnuninni og samanburður þeirra við íslensk kennslugögn vakti verulega og verðskuldaða athygli. Hvaða skoðun svo sem menn hafa almennt á skólastarfi í Singapúr verður ekki fram hjá því litið að kennsluefni sem íslenskum grunn- skólanemendum er boðið upp á í raungreinum er til muna lakara en það sem notað er í Singapúr. Af þessu eigum við öll að læra, einnig menntamálaráðuneyti og Náms- gagnastofnun, fremur en að vera í einhverri varnarstöðu gagnvart þeim sem sýndu það framkvæði að afla gagnanna. Framtak og frum- kvæði skiptir veralegu máli, einnig í skólastarfi og ætti fremur að ýta undir það en hitt. Það virðist þó ekki alltaf gert og er það miður. Stjórn Foreldra- og kennarafé- lags Hvassaleitisskóla telur að framkvæði skólastjórans hafi beint umfjöllun um gæði kennslu og árangur nemenda í grunnskólum inn á markvissari brautir. Þó að við séum almennt hlynnt því að skóla- húsnæði verði stækkað til að ná fram markmiðum um einsetningu skóla má ekki gleyma því að skóla- húsnæði er ekki aðalatriði skóla- starfs, heldur það sem fram fer í skólastofunum. Kennslugögnin eru einnig mikilvæg og auðvelda kenn- urum og nemendum verulega að ná árangri í starfi. Þó að nú séu lagðir miklir fjármunir í skólahús- næði um allt land má það ekki verða til þess að dregið verði úr fjárveit- ingum til endurskoðunar námsefnis fjölgunar kennslustunda og beins kennslukostnaðar. F.h. stjórnar Foreldra- og kenn- arafélags Hvassaleitisskóla, ÞORGERÐUR ERLENDSDÓTTIR formaður. Upplýsmgar um alnetstengingu við Morgunblaðið Tenging við heimasíðu Morgunblaðsins Til þess að tengjast heimasíðu Morgunblaðsins, sláið inn slóðina http://www.centrum.is/mbl/ Hér liggja ýmsar almennar upp- lýsingar um blaðið, s.s netföng starfsmanna, upplýsingar um hvernig skila á greinum til blaðs- ins og helstu símanúmer. Morgunblaðið á alnetinu Hægt er að nálgast Morgun- blaðið á alnetinu á tvo vegu. Annars vegar með því að tengjast heimasiðu Strengs hf. beint með því að slá inn slóðina http://www.strengur.is eða með því að tengjast heimasíðu blaðsins og velja Morgunblaðið þaðan. Strengur hf. annast áskriftar- sölu Morgunblaðsins á alnetinu og kostar hún 1.000 krónur. Sending efnis Þeir sem óska eftir að senda efni til blaðsins um alnetið noti netfangið: mbl@centrum.is. Mikilvægt er að lesa vandlega upplýsingar um frágang sem má finna á heimasíðu blaðsins. Það tryggir öruggar sendingar og einnig að efnið rati rétta leið í blaðið. Senda má greinar, fréttir og myndir eins og fram kemur á heimasíðu blaðsins. Mismunandi tengingar við alnetið Þeir sem hafa Netscape/Mos- aic-tengingu eiga hægt um vik að tengjast blaðinu. Einungis þarf að slá inn þá slóð sem gefin er upp hér að framan. Þeir sem ekki hafa Netscape/ Mosaic-tengingu geta nálgast þessar upplýsingar með Gopher- forritinu. Slóðin er einfaldlega slegin inn eftir að forritið hefur verið ræst. Mótöld Heppilegast er að nota a.m.k. 14.400 baud-mótald fyrir Netscape/Mosaic tengingar. Hægt er að nota afkastaminni mótöld með Gopher-forritinu. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.