Morgunblaðið - 19.03.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.03.1997, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Formaður sj á varútvegsnefndar undrandi á bátakaupum Þróunarsjóðs Athugandi að heimila sjóðn- um sölu á bátum innanlands STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for- maður sjávarútvegsnefndar Alþing- is, segir vel koma til greina að taka út eða endurskoða ákvæði laga um að Þróunarsjóður megi ekki selja íslenskum aðilum þá báta sem sjóð- urinn hefur keypt til úreldingar, í þeim tilvikum þar sem bátur er aflagður í staðinn. „Eg er tilbúinn til að skoða þetta mál, ef það er svo að sjóðurinn á betri skip en þau sem eru í notkun eða menn úreldi af einhveijum ástæðum þau skip sem eru fýrir. Sjóðurinn þyrfti þá að vera tilbúinn að taka slíkt hlutverk að sér,“ seg- ir hann. Styður ekki úreldingu Smábátaeigandi í Vestmannaeyj- um varð fyrir því óhappi fyrir skömmu að bátur hans eyðilagðist Starfsaðferðir fíkniefnalögreglu Ráðherra ákveður rannsókn DÓMSMÁLARÁÐHERRA hefur falið ríkissaksóknara að kanna hver kunni að hafa verið tengsl fíkniefna- lögreglunnar við meintan fíkniefna- sala. Gagnrýni hefur komið fram á starfsaðferðir fíkniefnalögreglunn- ar, m.a. við umræður á Alþingi í fyrradag. Hjalti Zóphóníasson ráðuneytis- stjóri upplýsti Morgunblaðið í gær- kvöld um að reynt yrði að hraða rannsókninni en Ijóst væri að hún yrði tímafrek. Erfitt gæti reynst að finna aðila sem ekki tengdist málinu eða þeim sem yfirheyra þyrfti. Væri því ljóst að leita yrði til fyrrverandi lögreglumanna eða dómara til að taka málið að sér en eiginleg rann- sóknarnefnd yrði ekki skipuð. Upp- lýst hefur verið að lögreglunni hefur í stöku tilvikum verið heimilað að kaupa upplýsingar frá afbrotamönn- um en með rannsókninni á að kanna hvort um óeðiileg tengsl milli þess- ara aðila sé hugsanlega að ræða. og hefur áhuga á að kaupa einn þeirra fjölmörgu báta sem sjóðurinn hefur keypt undanfarna mánuði, auk þess að vera því fyigjandi að smábátasjómenn eigi kost á að end- urnýja gamla báta með því að kaupa nýja af sjóðnum. Steingrímur segir að stefna um úreldingu hafí upphaf- lega verið tengd því að annaðhvort yrði að selja bátana úr landi eða farga þeim. „Ég tek fram að ég hef ekki endilega verið stuðningsmaður þessara reglna, og þvert á móti fremur verið í hópi þeirra sem lagt hafa til breytingar. Margir helstu postular úreldingar voru mjög stífir á þessu ákvæði, þó svo að ég og margir fleiri teldu óþarfa sóun að brenna þessa báta eða saga þá í sundur. Ýmsir höfðu hug á að eiga þá sem skemmtibáta eða eiga þá ELDUR kom upp í gær í húsi við Hnífsdalsveg á Isafirði er unnið var við rafsuðu í hluta án veiðileyfis í öðru skyni, en var bannað það þar til fyrir um tveimur árum. Þar fyrir utan fékk Þróunarsjóð- ur sjálfstæða heimild til að endur- kaupa eitthvað af þessum bátum og ráðstafa þeim í þróunarverkefni erlendis. En það hefur aldrei verið gert ráð fyrir að sjóðurinn keypti báta til að endurselja þá innan- lands og slíkur möguleiki hefur ekki verið ræddur," segir Stein- grímur. Hann kveðst undrandi yfír því að sjóðurinn hafi seinustu mánuði keypt marga báta sem bíði nú frek- ari ráðstöfunar. „Ég held að það hafi aldrei verið ætlunin að sjóðurinn yrði eigandi báta í umtalsverðum mæli, heldur fyrst og fremst að veita úreldingar- styrki meðan verið væri að minnka hússins sem nota á sem lager. Nokkrar skemmdir urðu í þeim hluta hússins og reykur barst flotann, auk þess að geta verið þátttakandi í þróunarverkefnum í sjávarútvegi erlendis og lagt báta í þau. Ég hafði aldrei reiknað með öðru en að bátaeign hans yrði til- tölulega takmörkuð og það kemur mér satt að segja á óvart að hann eigi nokkra tugi báta, eins og raun- in virðist vera,“ segir hann. Fylgjandi endurskoðun Steingrímur segir að tekjur sjóðs- ins séu tryggar næsta áratug. „Að mínu mati er öll þessi úreldingar- regluvitleysa á brauðfótum og hefði þurft að taka til heildarendurskoð- unar, með það í huga að bakka út úr þessu kerfí. Að vísu er það svo, að meðan einhver hluti er á sóknar- marki að einhveiju leyti verður að halda utan um stærð þess flota,“ segir hann. yfir í verkstæði í húsinu og upp í íbúð á efri hæð. Slökkviliðið á Isafirði réð skjótlega við eldinn. Atvinnuleyfi > til útlendinga Pólverjar eru fjöl- , mennastir i VEITT voru 1016 tímabundin og 154 óbundin atvinnuleyfi til útlend- inga á árinu 1996. Fjölmennastir í báðum hópunum voru Pólveijar. I flokki þeirra sem fengu ótímabundið atvinnuleyfí voru 395 manns frá Póllandi, eða nærri fjórfalt fleiri en frá því landi sem næst kom. Þetta | kemur fram í svari félagsmálaráð- herra við fyrirspurn Kristínar Ást- I geirsdóttur alþingismanns. } Næstfjölmennastir þeirra sem at- vinnuleyfí fengu, á eftir Pólveijum, voru Filippseyingar, þá komu Bandaríkjamenn og í fjórða sæti voru Tælendingar. Samkvæmt upplýsingum Útlend- ingaeftirlitsins eru samtals innan við 1500 útlendingar frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins við | störf hér á landi. Ríkisborgarar frá EES-ríkjum þurfa ekki atvinnuleyfí » til að starfa á íslandi. } Óbundin atvinnuleyfí var fyrst byijað að veita í ársbyijun 1995 og voru á því ári veitt 401 leyfi af því tagi og hefur þeim því fækkað, enda var við því búist að flest yrðu veitt í upphafi. Tímabundnum atvinnu- leyfum hefur fjölgað töluvert, en þau voru 738 árið 1995. Konur eru fjölmennari en karlar L 5 báðum hópum. Árið 1986 fengu 128 konur óbundið atvinnuleyfí á | móti 26 körlum og tímabundið leyfi | fengu 665 konur á móti 351 karli. -----» ♦----- Bensíni fyrir 180 þús. stolið | BENSÍNKORT virðast í auknum mæli freista þeirra sem bijótast inn í bifreiðar samkvæmt upplýsingum frá lögreglu og eru nokkur dæmi um að óprúttnum aðilum hafi tekist að misnota slík kort. í nýlegu til- viki tókst handhafa stolins bensín- korts að taka út bensín fyrir 180 þúsund krónur á kortið, áður en | þjófnaðurinn uppgötvaðist. Lögreglan bendir fólki á að » geyma ekki slík kort í bifreiðum p og sé öruggara að bera þau í veskj- um eða á öðrum stöðum sem erfið- ara er fyrir óheiðarlega einstaklinga að nálgast. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Eldur laus í verkstæði spýtur eða í samstarfi við erlendar w skipasmíðastöðvar. Knýjandi þörf á öflugu skipi Skýrsla og tillögur í ríkisstjórn um endurnýjun skipakosts Landhelgisgæslunnar Hagkvæmast að smíða nýtt varðskip ÞORSTEINN Pálsson, dóms- og kirkjumalaráðherra, lagði til við ríkisstjórnina í gær að hafinn yrði undirbúningur að því að hanna og bjóða út smíði nýs varðskips fyrir Landhelgisgæsluna. Nefnd sem ráðherrann skipaði haustið 1994 til þess að gera heildarúttekt á skiparekstri Landhelgisgæslunnar og gera tillögur um endurnýjun skipakosts hennar hefur nú lokið störfum og skilað af sér skýrslu til ráðherra, sem kynnti hana ríkis- stjórninni í gær. Nefndin telur raunhæfast og að endingu einnig hagkvæmast að láta smíða nýtt varðskip, sem verði sérstaklega hannað og útbúið með aðstæður og þarfir Islands fyrir augum. Það skip myndi koma í stað varðskipsins Óðins, sem er orðið nærri 40 ára gamalt og þarfnast umfangsmikilla og kostn- aðarsamra endurbóta. Eftir vandlega athugun á alþjóð- legum markaði komst nefndin að þeirri niðurstöðu að ekki væri í boði fýsilegt notað skip sem þjónað gæti hlutverki varðskips hjá Land- helgisgæslunni. Þá útilokaði nefndin einnig þann möguleika að kaupa notað herskip, m.a. vegna þess að herskip eru ekki hönnuð til siglinga í ís né til björgunar- starfa, auk þess sem útgerð slíkra skipa útheimtir að öllu jöfnu mjög fjölmenna áhöfn og háan rekstrar- kostnað, t.d. hvað varðar elds- neytiseyðslu. Áætlaður rekstrarkostnaður um 176,6 milljónir króna á ári Lagt er til að smíðað verði allt að 3.000 brúttótonna fjölnota skip, sem hafí um 20 sjómílna ganghraða og mikinn togkraft. Skipið sé jafn- framt sérstaklega styrkt til siglinga í ís og útbúið þannig að þyrlur Gæslunnar geti lent á því, auk þess sem hægt verði að nota skipið til mengunarvarna og vísindastarfa. Gert er ráð fyrir að skipið verði yfír 100 metra langt, 15 metra breitt og hafí allt að sex metra djúp- ristu. I skýrslunni kemur fram að ætla megi að gerðar verði kröfur um að nýju varðskipi verði haldið lengur úti til öryggis- og gæslustarfa á ári hveiju en núverandi varðskipum, eða allt upp í ellefu mánuði á ári. Miðað við þær forsendur hefur Landhelgisgæslan áætlað að rekstr- arkostnaður nýs skips yrði um 176,6 milljónir króna á ári. Nefndin leggur til að sem fyrst verði hafíst handa við að setja niður forsendur fyrir hönnun nýs varð- skips. Síðan verði efnt til sam- keppni um hönnunina og byggt á ítarlegri smíðalýsingu hönnunar- innar, en hvort tveggja sé nauðsyn- legt til undirbúnings útboði. Smíði nýja skipsins verði síðan boðin út á alþjóðlegum skipasmíðamarkaði en jafnframt verði sérstaklega hug- að að möguleikum innlendra skipa- smíðastöðva til að bjóða í og hljóta slíkt verkefni, annað hvort á eigin Þorsteinn Pálsson lagði til við ríkisstjómina í gær að farið yrði að niðurstöðum skýrslunnar og haf- inn undirbúningur að því að hanna og bjóða út skip af því tagi sem þar er lýst. „Það hefur sýnt sig við björgunar- og gæslustörf að að- stæður hafa breyst svo mikið að það er orðin knýjandi þörf á því að I fá hingað öflug skip. Þar eru bæði ^ í húfí björgunarhagsmunir og hags- w munir okkar af því að veija land- helgina." Ríkisstjórnin mun fyalla um málið á næstunni og kveðst Þorsteinn vænta þess að hún muni taka ákvörðun um framhald þess áður en langt um líður. „Þetta er vita- skuld gríðarlega mikil fjárfesting L þannig að umíjöllun í ríkisstjórn vj mun taka einhvern tíma en ég vona } þó að það verði ekki mjög langur ^ dráttur á því að niðurstaða fáist," • segir Þorsteinn. .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.