Morgunblaðið - 19.03.1997, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 19.03.1997, Blaðsíða 52
Happaþremtu/yrír áfganginn 'HYUNDAI HÁTÆKNI TIL FRAMFARA ® Tæknival SKEIFUNNI 17 SlMI 550-4000 • FAX 550-4001 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SlMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBl<SCENTRUM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUÐAGUR 19. MARZ 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Yfir 500 þús. tonn í febrúar Samningar Dagsbrúnar/Framsóknar voru felldir á fundi í gærkvöldi Formaður Dagsbrúnar býst við langvinnum verkföllum STÓRA samninganefnd Dagsbrúnar og Framsóknar felldi nýgerðan kjarasamning félaganna á fundi í gærkvöldi með 70 atkvæðum gegn 28. Yfirstandandi verkföll félaganna halda því áfram. „Mér sýnist að það verði lítil hreyfing á okkar málum fyrr en eftir páska. Ég held að það verði mjög langt verkfall,“ sagði Halldór Björnsson, formaður Dags- brúnar, seint í gærkvöldi. Halldór sagðist ekki gera ráð fyrir að viðræður yrðu teknar upp við vinnuveitendur á næstunni og að búast mætti við víðtækum og hörðum verkfallsátökum, en boðað allsheijar- verkfall félaganna hefst 23. mars. Samningaviðræður vinnuveitenda við Samiðn, Landssamband verslun- VSÍ telur afgreiðsluna ólögmæta arfólks og Verkamannasambandið voru langt komnar hjá sáttasemjara í gærkvöldi og jafnvel var talið að tækist að ljúka gerð samninga í nótt. Þegar fregnir bárust hins vegar um að samningur Dagsbrúnar og Fram- sóknar hefði verið felldur kom upp mikil óvissa um stöðu mála og ákvað sáttasemjari að fresta frekari fund- arhöldum til kl. 15 í dag. Vinnuveitendur líta svo á að ólög- lega hafí verið staðið að afgreiðslu mála hjá Dagsbrún og Framsókn. „Við höfum óskað eftir því við sátta- semjara að hann láti kanna lögfræði- lega hvort afgreiðsla hinnar svo- nefndu samninganefndar hafi nokkra lögformlega þýðingu og eins þótt viðræðunefndin hafi skrifað undir með fyrirvara um samþykki þeirra. Sá fyrirvari hljóti að vera gildislaus þegar af þeirri ástæðu að hann bijóti í bága við lög,“ sagði Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ. „Við lítum svo á að í gildi sé bind- andi samningur milli okkar og Verkamannafélagsins Dagsbrúnar og að sá samningur standi nema hann verði felldur í leynilegri at- kvæðagreiðslu félagsmanna. Við telj- um með öðrum orðum að samningur hafi komist á og hann þurfi að kom- ast undir atkvæði félagsmanna til þess að niðurstaða fáist," sagði hann. Björn Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ, sagði að aðalkjarasamningur VMSÍ hefði verið mjög á svipuðum nótum og trúlega hefði honum verið lokið í gærkvöldi hefðu áðurnefnd félög ekki fellt hann. „Við vorum kannski að nálgast endapunkt í kvöld en þegar svona fer erum við búin að fá „tékk“ á hlutina,“ sagði Björn Grétar. „Þarna voru atriði sem ekki vöktu almenna kátínu og er ég þar að tala um almenna kauptaxt- ann. Krafa okkar um 70 þúsund króna laun á mjög mikinn stuðning og hún verður einfaldlega að koma á réttan stað inn í samninginn," sagði hann. ■ Mikil óvissa/10 Morgunblaðið/Ámi Sæberg Samherji fjárfestir í útgerð og vinnslu í Bandaríkjunum SAMHERJI hf. á Akureyri hefur fest kaup á hlut í tveimur útgerð- arfyrirtækjum og einu vinnslu- fyrirtæki á austurströnd Banda- ríkjanna, í Maine og Massachus- etts. Þessi fyrirtæki gera út fjög- ur skip sem einkum stunda veið- ar á síld, makríl og smokkfiski, tvö skipanna frysta aflann um borð. Aðalfundur Samheija var í gær, en þar var afkoma félagsins kynnt sem og hlutafjárútboð sem hefst á föstudag, en stefnt er að því að auka hlutafé um 115 milljónir króna. Gengi hlutabréf- anna verður 9,0. Hagnaður af rekstri Samheija nam 669 milljónum á síðasta ári sem er um 110 milljónum meiri hagnaður en árið á undan. Heild- arhlutafé Samheija verður 1.374 milljónir eftir sölu á nýju hlutafé og þegar lokið verður samruna- ferli við Hrönn hf. á ísafirði og hlutabréfaskiptum við hluthafa í Fiskimjöli og lýsi, en Samheiji mun eignast 98% hlut í félaginu. ■ Söluverð/14 Samkeppnisstofnun um eignarhald Flugleiða á fyrirtækjum í ferðaþjónustu Skilja þarf flugrekstur frá öðrum rekstri * Oánægja UM 100 manns í stóru samninga- nefnd Dagsbrúnar/Framsóknar felldu nýundirritaða kjarasamn- inga félaganna á fundi í gær- kvöldi. Mikil óánægja kom fram á fundinum með að ekki hefðu náðst fram kröfur um 70 þúsund króna lágmarkslaun. Rafiðnaðar- menná Suðurlandi semja SAMNINGAR hafa tekist milli Félags rafiðnaðarmanna á Suð- urlandi og atvinnurekenda. I ályktun fundar rafiðnaðar- manna í fyrrakvöld segir að áður en til atkvæðagreiðslu um samninginn kemur sé óskað eftir að ríkisstjórnin geri ná- kvæma grein fyrir því hvað hún ætlar að bjóða launþegum mikla skattalækkun og persónuafslátt og hvað hún hyggist fyrir í líf- eyrissjóðsmálum. „Ef þessi greinargerð berst ekki er hætta á að samningurinn verði felldur í almennri atkvæðagreiðslu," segir í ályktuninni. í SKÝRSLU sem Samkeppnisstofn- un hefur unnið um flugrekstrar- markaðinn hér á landi kemur fram að það samrýmist ekki samkeppnis- reglum að sterk staða Flugleiða í flugi sé notuð til að greiða niður, ívilna með öðrum hætti eða draga taum eigiri fyrirtækja á tengdum mörkuðum í ferðaþjónustu og skaða með því samkeppni á þeim mörkuð- um. Telja samkeppnisyfírvöld því nauðsynlegt að gera þessa markaði gegnsærri og skilja rekstur fyrir- tækjanna algjörlega frá rekstri Flugleiða til að tryggja að ekki sé um óeðlilegar millifærslur að ræða. í skýrslunni segir að þeirri yfir- burðastöðu sem Flugleiðir hafa í flugrekstri hér á landi og sterkri stöðu á tengdum mörkuðum i ferða- þjónustu hafi fyrirtækið meðal ann- ars náð f skjóli opinberra einkaleyfa og opinbers stuðnings sem enn sé til staðar á ýmsan hátt. Bent er á að sterk staða Flugleiða leggi félag- inu ríkar skyldur á herðar um að misnota ekki aðstöðu sína þannig að skaði samkeppni og hindri nýja keppinauta í að hasla sér völl á markaðnum. Leiðbeiningar og varnaðarorð í skýrslunni eru settar fram leið- beiningar og varnaðarorð eftir því sem fram komnar upplýsingar og sjónarmið hafa gefið tilefni til, og munu samkeppnisyfirvöld síðan fylgja því eftir sem sett er fram í skýrslunni þegar ástæða þykir til. Meðal þess sem fjallað er um í skýrslunni eru vildarkort Flugleiða þar sem yfirburðastaða í flugi sé notuð til að auka markaðshlutdeild Flugleiða á tengdum mörkuðum í ferðaþjónustu þegar nýta megi áunna punkta í flugi hjá Flugleiðum til þess að kaupa gistingu á Flug- leiðahóteli innanlands og leigja bíla hjá bílaleig-u Flugleiða. Þetta fyrir- komulag feli í sér víxlstuðning á milli skyldra fyrirtækja á innlendum mörkuðum og sé til þess fallið að skaða samkeppnisstöðu keppinauta Flugleiðafyrirtækja á íslenskum markaði. Þá er fjallað um innritun farþega og afgreiðslu flugvéla á Keflavíkur- flugvelli, sem Flugleiðir annast einir samkvæmt opinberu einkaleyfí, og telur Samkeppnisstofnun þetta fyrir- komulag til þess fallið að skaða sam- keppnisstöðu keppinauta Flugleiða. Því væri æskilegt að fleirum yrði gert fært að sinna innritun og flugaf- greiðslu, en sé það talið útilokað miðað við núverandi aðstæður sé markvissara til að tryggja hlutleysi og hafa samkeppnissjónarmið í heiðri FISKAFLI íslenskra skipa í febr- úar var samtals 503.721 tonn sem er tæpum 50 þúsund tonnum meiri afli en í febrúar í fyrra, samkvæmt aflatölum Fiskistofu. Munar þar mest um stóraukna loðnuveiði en alls báru íslensk skip um 457 þús- und tonn af loðnu á land í febrúar síðastliðnum, samanborið við rúm 408 þúsund tonn í febrúar í fyrra. Það sem af er fiskveiðiárinu er heildaraflinn því orðinn 980.344 tonn, sem er rúmum 66 þúsund tonnum meira en á sama tímabili síðasta fiskveiðiárs. Það sem af er almanaksárinu er fiskafli ís- lendinga orðinn um 607 þúsund tonn. ■ Fiskaflinn í febrúar/Cl að óháður aðili eins og t.d. Flugmála- stjórn annist þessa þjónustu. Meðal annarra atriða sem vikið er að í skýrslu Samkeppnisstofnunar er að Flugleiðir noti aðstöðu sína um borð í flugvélum félagsins til þess að kynna eigin fyrirtæki. Þarna sé átt við einhliða kynningu á hótelum og bílaleigu Flugleiða, en slík hegðun hjá markaðsráðandi fyrirtæki sem hafí notið og njóti opinberrar vernd- ar samræmist ekki samkeppnisregl- um. Þá er gerð að umtalsefni eignar- aðild Flugleiða að Kynnisferðum hf. sem reka flugrútuna milli Reykjavík- ur og Keflavíkurflugvallar, en r..eð því að hafa aðsetur Kynnisferða á Hótel Loftleiðum sé komið á tengsi- um sem unnt sé að nota fyrirtækjum Flugleiða til framdráttar. ■ Skapar hættu/26-27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.