Morgunblaðið - 19.03.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997 19
Leiðtogafundurinn í Helsinki
Búa sig iindir
erfiðar viðræður
Helsinki, Moskvu, Washington. Reuter.
BANDARÍKJAMENN og Rússar
undirbjuggu í gær leiðtogafund,
sem búist er við að verði sá erfið-
asti frá því að kalda stríðinu lauk.
Fundurinn hefst í Helsinki á
fimmtudag og eru þær vonir
bundnar við hann að hægt verði
að höggva á þann hnút, sem kom-
inn er á samskipti austurs og vest-
urs vegna fyrirhugaðrar stækkunar
Atlantshafsbandalagsins.
Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
hafði hægt um sig í gær eftir yfir-
lýsingar mánudagsins. Eina málið
á dagskrá var fundur með Jevgení
Prímakov utanríkisráðherra, sem
hugðist greina honum frá viðræð-
um í þriggja daga heimsókn sinni
til Bandaríkjanna.
Jeltsín sagði á mánudag að áætl-
unum um að fjölga aðildarríkjum
NATO mætti líkja við umsátur og
krafðist þess að Rússar yrðu með-
höndlaðir sem jafningjar ætti að
koma í veg fyrir að nýtt kalt stríð
brytist út.
Rússneska fréttastofan Interfax
hafði í gær eftir Dmítrí Rjúríkov,
ráðgjafa Jeltsíns í utanríkismálum,
að í Kreml vonuðu menn enn að
innan NATO yrði athugað hvort
hverfa mætti frá stækkunaráform-
um, ef ekki af pólitískum ástæðum,
þá vegna hins mikla kostnaðar, sem
þessum fyrirætlunum fylgdi.
Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í
gær að bandalagið vildi ganga til
raunverulegs samstarfs við Rússa,
en því yrði ekki komið til leiðar að
NATO sviki loforð, sem hinum nýju
lýðræðisríkjum A-Evrópu hefðu
verið veitt.
Þetta verður 11. fundur Clintons
og Jeltsíns. Sagt er að samskipti
milli þeirra séu góð og þeir nái vel
saman. Fundurinn er sá fyrsti frá
endurkjöri þeirra beggja á liðnu ári.
Uppstokkun rússnesku stjórnarinnar
Tsjúbaís boðar
hraðari umbætur
Moskvu. Reuter.
ANATOLÍ Tsjúbaís, fyrsti aðstoð- varlegasta vandamál stjórnarinnar,
arforsætisráðherra Rússlands, vangoldnar skuldir, bæði hins opin-
sagði í gær að hin nýja stjórn lands- bera og einkaaðilja, svaraði hann:
ins væri reiðubúin til að heija næsta „Til að leysa það vandamál þarf
þátt umbóta. Einkavæðingu yrði fyrst að tryggja eignarréttinn, við
hraðað, ný skattalög sett og eigna- þurfum að koma á verðbréfamark-
rétturinn tryggður. aði og hraða einkavæðingu og það
Tsjúbaís, sem var skipaður til að er nokkuð, sem er á stefnuskrá
stjóma efnahagsmálum Rússlands stjórnarinnar."
fyrir tíu dögum, sagði að næðist til- Tsjúbaís stjórnaði einkavæðing-
ætlaður árangur með umbótunum aráætluninni, sem var sett af stað
mundi það koma í veg fyrir að í eftir hrun Sovétríkjanna, og sagði
Rússlandi brytist út sá glundroði og að þeir, sem nú hefði verið treyst
ringulreið, sem réði ríkjum í Albaníu fyrir því að stjórna umbótunum,
og öðrum Austur-Evrópuríkjum. hefðu lært af fyrri mistökum. Sú
Þegar Tsjúbaís var spurður reynsla gerði þeim meira að segja
hvernig hann hygðist leysa eitt al- kleift að stíga næsta skref.
Skýrsla leyniþjónustu danska hersins
Varað við
stækkun NATO
Tölvan er óumdeilanlega stoð og stytta
þeirra sem ætla sér stóra hluti í
framtíðinni og því skiptir val á slíkum
búnaði miklu máli.
í>r% Za,ilbod^öi
»7.700
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
SKYRSLA leyniþjónustu danska
hersins spáir því að stækkun Atl-
antshafsbandalagsins dragi úr stöð-
ugleika og öryggi í Danmörku og
nágrenni. Þar sem Eystrasaltslöndin
komist ekki með muni Rússland taka
það sem staðfestingu á að þau séu
á yfirráðasvæði þess og það geri
aðstæður þar viðsjárverðari. Hans
Hækkerup varnarmálaráðherra, sem
er ákafur talsmaður stækkunar
Nato, hafnar sjónarmiðum skýrsl-
unnar. Þau hljóta hins vegar hljóm-
grunn á vinstri vængnum, sem hefur
varað ákaft við stækkuninni.
Það var Jyllands-Posten sem birti
útdrátt úr skýrslunni og er þetta í
fyrsta skipti, sem skýrslu af þessu
tagi er lekið í fjölmiðla. í skýrslunni
er gengið út frá því að reiði Rússa
yfir stækkun Nato sé ekki orðin tóm,
heldur hafi áhrif á afstöðu og að-
gerðir þeirra, þótt Rússland sé engin
ógnun við heimsfriðinn þessi árin.
Meðal annars er því spáð að Rússar
muni auka kjarnorkuviðbúnað við
Kalingrad, sem sé innan við 300
kílómetra frá Borgundarhólmi, og
bent á að kjarnorkustyrkur Rússa
sé sá hluti hernaðarstyrks þeirra,
sem sé í bestu ásigkomulagi.
í skýrslunni er því spáð að við
stækkun Nato muni Rússar draga
verulega úr samvinnu við Bandaríkin
og Nato og hugsanlega hætta þátt-
töku í friðarsamstarfi Nato. Hætt
sé við að þeir muni heldur ekki
standa við sinn hlut í Start Il-samn-
ingunum um kjarnorkuafvopnun og
að Rússar gætu hugsanlega tekið
höndum saman við andstæðinga
Bandaríkjamanna á alþjóða vett-
vangi, til dæmis í Öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna. Til að öðlast aukið
vægi gegn Nato muni Rússland
væntanlega leggja aukna áherslu á
samstarf við fyrrum Sovétlýðveldin
og gæti til dæmis þrýst á um að her
Hvíta-Rússlands yrði lagður undir
rússneska yfirstjórn.
Viðvörun skýrslunnar um áhrif
stækkunarinnar á Eystrasaltslöndin
gengur þvert á stefnu dönsku stjórn-
arinnar. Hún heldur fram hlut Eyst-
rasaltslandanna í stækkun Nato, en
að öðrum kosti að þar verði náin
samvinna á milli og eins að það
væri löndunum styrkur á öryggis-
sviðinu að gerast aðilar að Evrópu-
sambandinu. Skýrslan varar hins
vegar við að stækkun, sem varla
taki til landanna þriggja, muni verða
Rússlandi staðfesting á að löndin
þijú liggi innan síns áhrifasvæðis.
£ew}mgarfilb°í> /
LASER Expression Pentium 133MHz • 16MB minni • 1.6 GB harður diskur • Geisladrif
• Hljóðkort • Hátalarar • 15" lággeisla litaskjár • Skjákort með 2MB skjáminni • Windows
95 stýrikerfi • HP DeskJet 400 bleksprautuprentari
139.900 kr. stgr.
IMLASER Æ)
computer
Heimilistæki hf
TÆKNI-OG TÖLVUDEILD
SÆTÚNI 8 • SÍMI 569 1500 • http://www.ht.is