Morgunblaðið - 19.03.1997, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Endurby ggingar nefnd Iðnó vill fjarlægja glerskálann
Kostnaður við fullnaðar-
frágang 66,5 milljónir
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
vísa erindi endurbyggingamefndar
Iðnó, sem lagt hefur verið fram í
borgarráði, til borgarstjómar. Þar
kemur fram að samkvæmt
kostnaðaráætlun byggingardeildar
er kostnaður við fullnaðarfrágang
hússins 130 milljónir króna en í
nýrri áætlun sem byggð er á nýt-
ingartillögum Páls V. Bjamasonar
arkitekts, er kostnaður áætlaður
66,5 milljónir króna. Meðal þess
sem nefndin leggur til er að gler-
skálinn verði tekinn niður. í fjár-
hagsáætlun borgarinnar fyrir árið
1997 er gert ráð fyrir 30 milljóna
króna íjárveitingu til verksins.
í greinargerð Hjörleifs Kvaran
borgarlögmanns sem lögð var fram
í borgarráði segir að endurbygg-
ingarnefnd telji brýnt að nýta fjár-
veitinguna sem gert er ráð fyrir í
fjárhagsáætlun til að koma húsinu
í nýtanlegt ástand á þessu ári, á
100 ára afmæli hússins. Nefndin
samþykkti að fjarlægja glerhúsið
en nýta sökkulinn við suðurhlið
hússins og koma þar fyrir verönd
í staðinn. Aðalinngangurinn verður
um vesturenda hússins en ekki
norðurhlið eða frá Vonarstræti eins
og ráðgert var og hætt er við að
endumýja gólfið í salnum en þess
í stað verður gamla parketið slípað
upp og lakkað.
Enginn lyftubúnaður
Að sögn Þórarins Magnússonar
formanns nefndarinnar, hefur ver-
ið ákveðið að halda stiganum milli
hæða innanhúss óbreyttum og falla
frá lyftum sem ráðgert var að
koma fyrir í sal og á sviði. Er þetta
gert í sparnaðarskyni. Að sögn
Þórarins miða allar breytingar við
að koma húsinu í sem upprunaleg-
ast form. Verið væri að endurskoða
kostnaðaráætlun vegna fram-
kvæmdanna en miðað við fyrri
hugmyndir væri gert ráð fyrir 130
millj. til að ljúka verkinu.
Sagði hann að þær breytingar,
sem ráðgerðar væru kæmu til með
að spara verulegar fjárhæðir. „Þótt
það kosti mikið að fjarlægja gler-
bygginguna kemur sparnaður á
móti,“ sagði hann. „Eins og til
dæmis allar lagnir og annar búnað-
ur sem áætlað var að setja þar
upp.“ í nýrri kostnaðaráætlun Páls
V. Bjamasonar arkitekts sem lögð
hefur verið fram í borgarráði er
gert ráð fyrir 66,5 milljónum til
að ljúka verkinu, þar af er kostnað-
ur vegna vatnsúðakerfis áætlaður
um 2,2 milljónir.
Á grundvelli breytinganna hefur
Páll verið ráðinn hönnuður að hús-
inu og sagði Þórarinn að það hafi
verið gert í fullu samráði við Ingi-
mund Sveinsson arkitekt sem taldi
eðlilegt að annar aðili tæki við en
Ingimundur hefur séð um hönnun-
ina til þessa. „Margt af því, sem
hann var búinn að hanna nýtist
áfram,“ sagði Þórarinn. „Það er
ekki verið að varpa því fyrir róða.
Hann er búinn að vinna mjög gott
verk í þessari hönnun og í raun
er verið að ræða um að annar að-
ili sjái um að halda utan um þær
breytingar, sem nú em gerðar og
útfærslu á þeim, en stór hluti sem
búið var að hanna eins og til dæm-
is útlit hússins verður nýttur
áfram. Það er búið að greiða fyrir
þessa hönnun og þess vegna viljum
við nýta hana eins og hægt er.“
Opinber heimsókn forsætis-
ráðherra til Færeyja
Samskipti
æskufólks aukin
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
segist hafa orðið var við það í opin-
berri heimsókn sinni í Færeyjum
að bjartsýni hafí aukist meðal
Færeyinga. Telur hann auðsýnt að
Færeyingar séu að vinna sig upp
úr efnahagslegum erfiðleikum síð-
ustu ára.
Forsætisráðherra og eiginkona
hans fóru víða á öðrum degi heim-
sóknar sinnar í Færeyjum í gær.
Meðal viðkomustaða voru lögþing-
ið, Fróðskaparsetrið og nokkur
færeysk fyrirtæki.
Forsætisráðherra átti viðræður
í gær við lögmann Færeyja, Ed-
mund Joensen. Davíð segir að rætt
hafí verið almennt um samskipti
þjóðanna og ágreiningsefni en eng-
ar ákvarðanir hafí verið teknar,
ekki fremur en siður væri í kurt-
eisisheimsóknum. „Við ræddum
m.a. um ágreining þjóðanna um
afmörkun á fískveiðilögsögu vegna
Hvalbaks. Það er í ákveðnum far-
vegi sem menn telja viðunandi í
bili,“ sagði Davíð í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Ráðamennimir urðu ennfremur
sammála um að auka beri sam-
skipti æskufólks í löndunum tveim-
ur og leggja fram fjármagn í því
skyni.
Dagskrá heimsóknarinnar var
þéttskipuð í gær. Farið var í heim-
sókn í Fróðskaparsetrið og á skrif-
stofu yfirstjórnar olíumála í Fær-
eyjum.
Sérstök dagskrá var síðdegis í
gær helguð Ástríði Thorarensen,
eiginkonu forsætisráðherra. Eigin-
kona lögmannsins, Edfríð Joensen,
var fylgdarmaður hennar í heim-
sókn til veflistakonunnar Titu
Winther og á bamaheimili í ná-
grannabæ Þórshafnar, Argjum.
í gærkvöldi sátu forsætisráð-
herrahjónin kvöldverðarboð lög-
mannsins á Hótel Færeyjum en þar
var boðið upp á færeyska menning-
ardagskrá.
Forsætisráðherrahjónin verða
gestir borgarstjórans í Þórshöfn í
fyrramálið, Leivi Hansen, í
morgunverðarboði. Að því loknu
er fyrirhugað að heimsækja Norð-
urlandahúsið og Listaskálann í
Þórshöfn.
Opinberri heimsókn forsætisráð-
herra lýkur síðdegis á morgun.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra og Edmund Joensen lögmað-
ur Færeyja ræddu ýmis mál á fundum sínum í gær. Opinberri
heimsókn forsætisráðherra lýkur á morgun.
Danskar land-
búnaðarafurðir
Hættulegar
íslendingum?
ÞRÍR þingmenn þingflokks jafnað-
armanna hafa beint skriflegri fyrir-
spurn til landbúnaðarráðherra um
hvort hann muni grípa til ráðstaf-
ana til að vemda íslenska ferða-
menn í Danmörku og íslendinga
sem þar eru búsettir gegn hættum
sem stafað geti af dönskum land-
búnaðarafurðum.
Að sögn þremenninganna segja
háttsettir starfsmenn í stjórnsýsl-
unni að innflutningur danskra land-
búnaðarafurða sé bannaður af heil-
brigðisástæðum. Þeir spyija hvort
bannið standist GATT-samninginn
sem banni viðskiptahindranir og
mismunun milli þeirra ríkja sem em
aðilar að honum.
Ef ráðherra er þeirra skoðunar
að svo sé, spyrja þingmennirnir
hvaða tilvik bendi til þess að dansk-
ar landbúnaðarafurðir séu hættu-
legar íslenskum landbúnaði, íslend-
ingum eða neytendum af öðru þjóð-
erni. Bendi svör ráðherra til að þær
séu hættulegar vilja fyrirspyijend-
urnir vita hvað ráðherrann ætli að
gera til að vernda íslendinga gegn
þessari hættu.
-----»-M------
Keypti stolna
tölvu
LÖGREGLUMENN heimsóttu for-
svarsmann fyrirtækis í borginni um
helgina og spurðust fyrir um tölvu,
sem hann hafði nýlega keypt. Um
þýfi reyndist vera að ræða og varð
maðurinn að skila tölvunni.
„Ákveðnir aðilar hafa stundað
innbrot og þjófnað á tölvum, ekki
til að vinna á þær eða hafa til
skrauts á heimilum sínum, heldur
til að selja þær. Meðan forstjórar
fyrirtækja eða aðrir hafa áhuga á
að kaupa slíka hluti er líklegt að
einhver reyni að nálgast þá ólög-
lega,“ segir Ómar Smári Ármanns-
son aðstoðaryfirlögregluþjónn.
Stolið eftir pöntun
Hann segir ljóst að í viðskiptum
með þýfi séu kaupendur „fyrirfram
ákveðnir", þ.e. kaupendur „panti“
tiltekna vöru hjá innbrotsþjófum.
„Sumir kaupa þýfí vitandi vits, aðr-
ir í einfeldni sinni. í hegningarlög-
unum er gert ráð fyrir að hægt sé
að refsa þeim sem í gáleysi kaupir
eða tekur við hlutum sem fengnir
hafa verið með auðgunarglæp, með
sektum eða varðhaldi. Ef brot er
ítrekað má beita fangelsi allt að sex
mánuðum. Ef um ásetning er að
ræða, getur brotið varðað fangelsi
allt að fjórum árum,“ segir hann.
Hann kveðst telja ástæðu til að
skoða nánar ákvæði hegningarlag-
anna varðandi þessi mál. Hann
bendir á að viðurlögin í Noregi við
að kaupa og höndla með þýfí séu
sektir eða fangelsi til þriggja ára.
í grófum tilvikum geti refsingin
numið sex mánuðum til sex árum.
Nð er rétti tíminn
til að huga að þvi sem
framundan er...
MEÐ blaðinu í dag fylgir
fjögurra síðna auglýsinga-
blað frá BYKO.
Morgunblaðið/Ásdls
** *' "V' fl
Menningar-
ferðí
Mjóddina
BÖRNIN á leikskólanum Fálka-
borg á Fálkabakka í Breiðholti
brugðu sér í eins konar menningar-
ferð í gær. Þau ákváðu að fara á
myndlistarsýningu barna í Mjódd-
inni og skoðuðu þau teikningamar
sem þar hanga á veggjum af mikl-
um áhuga. Sjálfsagt hafa þau ver-
ið enn iðnari við að föndra á leik-
skólanum eftir þessa menningar-
ferð. Eins og vera ber voru börnin
vel útbúin og íklædd endurskins-
vestum, enda nauðsynlegt þegar
litlar manneskjur eru á ferð.