Morgunblaðið - 19.03.1997, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Albanskar mæðgur bíða milla von-
ar og ótta í Neskaupstað
Feðgarnir inn-
lyksa í Albaníu
„ÉG ER að sjálfsögðu mjög
áhyggjufull og bið þess og vona
að eiginmaður minn og sonur
komist sem fyrst frá Albaníu og
hingað til íslands," segir Qeríme
Vokm', albönsk kona, sem býr á
Neskaupstað ásamt tveimur
dætrum sínum, en albanskur eig-
inmaður hennar og sextán ára
sonur áttu að leggja af stað til
íslands síðastliðinn föstudag frá
höfuðborginni Tirana í Albaníu,
en urðu frá að hverfa vegna þess
að fiugvellinum var lokað degin-
um áður sökum stjómleysis í
borginni.
Þeir feðgar Báshkím og En-
kelió eru búnir að fá dvalar- og
atvinnuleyfi hér á landi og hafði
Queríme safnað fyrir fargjaldi
þeirra með aðstoð vina í Neskaup-
stað. Það urðu því mikil von-
brigði þegar þeir komust ekki á
föstudag eins og til stóð. „Við
heyrðum síðast frá þeim á laugar-
dagsmorgun en þá ætluðu þeir
að reyna að komast úr landi eftir
öðrum leiðum, ef flugvöllurinn
yrði ekki opnaður í vikunni," seg-
ir Lazarela, önnur dætra Que-
ríme.
Queríme hefur búið á íslandi
undanfama fimm mánuði ásamt
dætranum Lazarelu 14 ára og
Marinelu 12 ára og vinnur nú hjá
Sfldarvinnslunni í Neskaupstað.
Mæðgumar komu upphaflega
hingað til lands fyrir tilstilli systur
Queríme, Lingita Óttarsson, sem
hefur búið hér í tæp íjögur ár
ásamt íslenskum eiginmanni sín-
um.
Misstu aleiguna í
píramítafyrirtækjunum
í Albaníu ráku Queríme og
eiginmaður hennar Báshkím sitt
eigið fyrirtæki í um tuttugu ár,
en seldu aleigu sína á síðasta
ári og lögðu peningana í hin svo-
kölluðu píramítafyrirtæki, sem
nú eru orðin gjaldþrota. „En það
var ekki síst þess vegna sem þau
ákváðu að flytjast af landi brott,“
segir Lingita. Hún segir enn-
fremur að þeir feðgar hafi sagt
upp húsnæði sínu og vinnu
skömmu áður en þeir hafi ætlað
að leggja af stað til íslands, en
kunningjar þeirra hafí þó skotið
yfir þá skjólshúsi síðustu daga.
Samkvæmt upplýsingum frá
utanríkisráðuneytinu er verið að
kanna með hvaða hætti hægt sé
að koma þeim feðgum til aðstoð-
ar þannig að þeir komist klakk-
laust til fjölskyldu sinnar á ís-
landi.
Morgunblaðið/RAX
BJARNI Pálsson, bóndi í Syðri-Gróf, við umflotnar engjar. Girðingarstaurar eru á kafi.
Mikið dregið úr flóðinu
MIKIÐ hafði dregið úr vatnselgnum
við bæi í Villingaholtshreppi í gær
en Þjórsá flóði yfir bakka sína þar í
fyrradag. Bjarni Pálsson, bóndi í
Syðri-Gróf, segir að mun meira
vatnsrennsli sé í Þjórsá en náttúran
geri ráð fyrir vegna virkjanafram-
kvæmda en ekkert hafi verið gert
til þess að breyta farvegi árinnar.
Vatnið fór yfir lönd Forsætis, Syðri-
Grófar og Mjósunds.
Bjami segir að vetrarrennsli Þjórs-
ár hafi aukist mjög mikið. „Það þarf
að hanna virkjanir með það fyrir
augum að vatnið komist alla leið til
sjávar. Tuttugu ár era síðan síðasta
flóð kom sem var mjög svipað að
umfangi og núna. í kjölfar þess voru
byggðir vamargarðar hjá Mjósundi,
næsta bæ fyrir neðan Syðri-Gróf, og
hann hefur bjargað mjög miklu
núna,“ sagði Bjarni.
Bjami segir að flóðið í fyrradag
sé þó í raun aðeins brot af öllu vatns-
magninu sem er í Þjórsá. Við verstu
hugsanlegu aðstæður gæti allt það
vatnsmagn farið yfír lönd bænda og
út í það þyrðu menn ekki að hugsa.
Bjarni sagði að hugsanlega gæti flóð-
ið nú valdið kalskemmdum á túnum
ef langvarandi frost fylgdu á eftir
og auk þess verða skemmdir á girð-
ingum.
Dæling
gengur vel
BYRJAÐ er að dæla svartolíu úr
Víkartindi sem strandaði í fjör-
unni við Þjórsárósa. Stefnt var að
því að dæla allri olíunni úr einum
af mörgum tönkum skipsins, um
40 tonnum, í gær. AIls eru um 340
tonn af svartoliu í skipinu. Einnig
ætluðu björgunarsveitarmenn frá
Hellu og Hvolsvelli að freista þess
að festa gáma á þilfari skipsins
með keðjum og stífum, en gáma-
stæðan þótti standa tæpt eftir að
stífur gáfu sig og brestur kom í
þilfarsplötur.
Pappírsrusl, brúsar og papp-
írsrúllur fjúka fyrir veðri og vind-
um í Þykkvabæjarfjöru, en við
skipsflakið hefur ónýtum gámum
verið safnað saman í haug. Búið
er að gera slóða að skipshlið fyr-
ir olíubíla frá Olíudreifingu ehf.
í gámi við skipshlið er gufuket-
ill sem dælir heitri gufu inn í einn-
ar tommu þykk rör í olíutönkum
skipsins og einnig er dælt 96
gráðu heitu vatni inn í rörin. Þau
hita upp þykka olíuna og fékkst
fyrsti farmurinn, um 27 tonn, á
land upp úr kl. 10 í gærmorgun.
Það tefur að rörin eru mjó og
ekki gerð til þess að leiða vatn
heldur gufu.
Starfsmenn Olíudreifingar
sögðu þó dælinguna ganga vel og
var ráðgert að hefjast handa á
ný snemma í dag.
Morgunblaðið/RAX
Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra um Víkartind
Hreinsun gengnr of hægt
GUÐMUNDUR Bjarnason um-
hverfisráðherra segir að hreinsun
á rusli á strandstað Víkartinds
gangi hægar fyrir sig en hann
hafi vonast eftir. Ljóst sé þó að
eigendur skipsflaksins hafi fullan
hug á að hreinsa flöruna og því
muni stjórnvöld ekki grípa inn í
hreinsunarstarfið að svo stöddu.
Viðræður hafa farið fram miili
umhverfisráðuneytisins, dóms-
málaráðuneytisins og sýslu-
mannsins í Rangárvallasýslu um
lagalega stöðu stjórnvalda til að
grípa inn í hreinsunarstarfið. Guð-
mundur segir ljóst að stjórnvöld
hafi heimild til að gera ráðstafan-
ir til að láta hreinsa fjöruna. Eig-
endur skipsins hafi hins vegar
gefið yfirlýsingar um að fjaran
verði hreinsuð og olía og eiturefni
verði fjarlægð úr skipinu. Um-
hverfisráðuneytið telji því ekki
ástæðu til aðgerða að svo stöddu,
en þeir sem stjórnuðu hreinsunar-
starfinu þyrftu að hraða vinnu
sinni.
Utgerðarmaður
sakfelldur fyrir
veiðar án leyfis
„Lagatæknilegt klúður“ orsökin
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur sakfellt útgerðarmann fyrir „sjó-
ræningjaveiðar", þ.e. að halda skipi
til veiða án veiðiieyfis en hefur jafn-
framt ákveðið að fresta ákvörðun
um refsingu mannsins þannig að
hún falli niður haldi hann skilorð í
2 ár.
Utgerðarmaðurinn er talinn eiga
sér máisbætur vegna þess að sú
aðferð sem notuð var við að úthluta
aflaheimildum á nafn báts manns-
ins hafi verið „lagatæknilegt klúð-
ur“ og til þess fallið að styrkja lög-
villu útgerðarmannsins sem hafi
hvorki haft þjálfun né sérmenntun
er auðveldaði honum túlkun þess
„ærið flókna og sumpart ósam-
stæða og mótsagnakennda vefs
laga, reglugerða og óskráðra starfs-
venja stjórnvalda, sem á reynir í
máli þessu,“ eins og segir i niður-
stöðum Más Péturssonar héraðs-
dómara.
Seldur án veiðileyfis
Bátinn sem um ræðir, Guðmund
Kristin SU, keypti Grandi hf. og
nýtti sér endurnýjunarrétt hans og
fleiri báta fyrir nýtt skip, Þerney.
Utgerðarmaðurinn, sem ekki
hafði gert út skip áður, keypti bát-
inn í ágúst 1994 af Granda eftir
að Fiskistofa hafði að ósk Granda
fellt niður veiðileyfi bátsins. Kaup-
verð var 4 milljónir króna. í afsali
stóð að skipið væri selt án veiði-
heimilda. Maðurinn taldi að við
kaupin hefði veiðileyfi átt að fylgja
en dómurinn segir að jafnvel þótt
sú túlkun hann stæðist og hann
ætti bótarétt skapaði það útgerð
hans engan rétt til veiðileyfis enda
hafí Grandi hf. ekki getað ráðstafað
veiðileyfi sem ekki var fyrir hendi.
Haffærnisskírteini
endurnýjað
Haffærniskírteini var útrannið við
kaup bátsins en útgerðarmaðurinn
fékk það endurnýjað. Skipið var
aldrei tekið af skipaskrá. Haustið
1994 úthlutaði jöfnunarsjóður sjáv-
arútvegsins aflaheimildum á bátinn
en þær vora síðan fluttar af bátnum
án þess að samband væri haft við
manninn og rökstuddi Fiskistofa þá
ákvörðun í bréfi til mannsins þar
sem stóð að honum hefði verið selt
skipið veiðiheimildalaust.
Dómarinn telur að það, að nota
hugtakið veiðiheimildarlaust í bréfí
til mannsins og það að blanda saman
Iöggemingi á sviði einkaréttar og
stjómarathöfn hafí beinlínis verið til
þess fallið að rugla útgerðarmanninn
í ríminu og skapa hjá honum lög-
villu, sem var sú að hann hefði keypt
skipið með veiðileyfi og þar með með
endumýjunarrétti á veiðileyfi.
Stöðvaður ílandhelgi
Báturinn fór tvær veiðiferðir á
línu utan við íslenska landhelgi en
í þriðju veiðiferðinni var skipinu,
þrátt fyrir samskipti útgerðar-
mannsins við Fiskistofu, haldið til
veiða innan iandhelgi, út á væntan:
legan kvóta frá fiskverkanda. í
þeirri veiðiferð hafði varðskip af-
skipti af bátnum og gerði upptæk
rúm 5 tonn af fiski sem veiðst
höfðu. í framhaldi af því var höfðað
sakamál á hendur útgerðarmannin-
um og skipstjóranum en sá síðar-
nefndi var sýknaður.