Morgunblaðið - 19.03.1997, Side 22

Morgunblaðið - 19.03.1997, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Glæsilegnr fluliiingiir og góð tónlist TÓNLIST Listasafn íslands KAMMERTÓNLEIKAR Flutt voru verk eftir Copland, Torke, Adams, Árna Egilsson og Stravinsky. Flytjendur: Kanunersveit Reykjavík- ur. Konsertmeistari: Rut Ingólfsdótt- ir. Stjómandi: Bemhard Wilkinson. Mánudagurinn 17. mars, 1997. í VESTURHEIMI, var yfirskrift tónleikanna og er það að því leyti réttnefni, því öll verkin eru samin í Bandaríkunum. Tónleikamir hóf- ust á Þögul borg, eftir Aaron Cop- land. Copland ritaði margt um tón- list og var honum sérlega hugleik- ið viðfangsefnið bandarísk tónlist. Hann taldi það mikla einföldun, að nefna aðeins til jazz, því í bandarísku samfélagi mættust margvíslegir menningarstraumar, sem ættu sér samsvörun við þjóðir Evrópu en hefðu þróast með sér- stökum hætti. Þessa afstöðu mátti greina í verki Coplands, sem er samið fyrir strengjasveit, enskt horn og trompett. Verkið var að mörgu leyti vel flutt, þó nætur- stemmningin hefði mátt vera ögn mýkri og gædd dulúð myrkursins. Einleikarar voru Eiríkur Öm Páls- son á trompett og Daði Kolbeins- son á enskt hom. „Gulu síðurnar" (í símaskránni) nefnist annað verk tónleikanna, eftir Michael Torke, fæddur 1961, og er það samið fyrir klarinett, flautu, fiðlu, selló og píanó og með beinni tilvísan til Coplands, ber það sterk einkenni bandarískrar sveita- tónlistar. Verkið er mjög hryn- sterkt, byggt þrástefjum, sem eru í raun hrynstef og var samfléttun þeirra mjög skemmtilega smellin. Þeir sem léku vor Anna Guðný Guðmundsdóttir á páinó, Sigurður I. Snorrason á klarinett, Martial Nardeau á flautu, Bryndís Páls- dóttir á fiðlu og Herdís Jónsdóttir á lágfiðlu og léku þau þetta fjör- uga hrynverk mjög vel. Athyglis- verðasta verkið á tónleikunum var án efa Shaker Loops, sem þýða mætti sem „Hneslulykkju hristari" og er þetta skemmtilega verk eftir John Adams (1947). Tónskáldið vitnar til trúarathafna í Millennial (þúsund ára) kirkjunni en „Shak- ers“ er bandarískur trúflokkur, sem upphaflega kom fram í Eng- landi á 18 öld. Þeir sóttust eftir því að komast í annarlegt ástand, með því að hrista sig við trúarat- hafnir, er á rætur sínar að rekja til austurlenskra og afrískra trúar- dansa. Þessar trúarhristihátíðir gátu staðir yfir langtímum saman, svo að oft íá mönnum og konum við eins konar alsæluöngviti. Tón- efni verksins eru tremólur af ýms- um tegundum og margvísleg tón- Morgunblaðið/Árni Sæberg SAMAN fóru glæsilegur flutningur og góð tónlist, segir í umsögn um tónleika Kammersveitar Reykjavíkur, en myndin var tekin á æfingu fyrir tónleikana. blæbrigði. í efnisskrá stendur að verkið sé „í fjórum samliggjandi þáttum", sem á að merkja, að þættirnir sé leiknir án hlés. Þann fyrsta mætti nefna „Að hrista og titra“, annan Að syngja og snúa sér í hring og var þessi þáttur hægferðugur og minnti margt í honum á einn sumarþáttinn í Ars- tíðakvartett Vivaldis. Þriðja þátt- inn mætti kalla „Armkrækjur og sálmasöng" en þar brá fyrir smá sálmstefí (mi, fa, so, la og stundum upp á tí) en í síðasta þættinum, „Loka hristingur", varð leikurinn æstari og þá mátti heyra miklar hraðabreytingar, er um síðir hjöðn- uðu, þá alsæluástandi var náð. Þeir sem fluttu verkið voru kon- sertmeistari Kammersveitarinnar, Rut Ingólfsdóttir, Unnur María Ingólfsdóttir, Sigurlaug Eðvalds- dóttir, Sarah Buckley, Bryndís Halla Gylfadóttir, Inga Rós Ing- ólfsdóttir og Richard Korn og var flutningur þessa sérkennilega verks aldeilis frábær. Eftir Árna Egilsson var fluttur stuttur kvintettþáttur, fyrir strengjakvartett og kontrabassa, er hann nefnir „Is it?“, sem minnir á spurningu Beethovens „Muss es sein“ í síðasta kvartett hans. Þessi stutti kvartett Árna er mjög vel gerður og þar fer kunnáttumaður í meðferð strengja, en einmitt það var einum of augljóst, svo að Ieik- trikkin tóku um of athyglina frá tónlistinni og var eins og spurning- in lægi einmitt í verkinu sjálfu, „er það?“. Kvartett Kammersveitar- innar, ásamt Hávarði Tryggvasyni bassaleikara, flutti þetta leik- flækjuverk meistaralega vel. Hápunktur tónleikanna var flutningur Dumbarton Oaks kon- sertsins eftir Stravinsky og var þetta frábæra listaverk mjög vel flutt. Bernhard Wilkinson stjórnaði af röggsemi í Shakers Loops og var hreint frábær í Dumbarton konsertinum eftir Stravinsky, sem býr yfir margvíslegum hryngild- rum og músíktiltektum, sem stjómandinn þarf að kunna vel, til að halda flutningnum saman og gefa honum líf. í heild voru þetta frábærlega skemmtilegir tónleikar, þar sem saman fór glæsilegur flutningur og góð tónlist. Jón Ásgeirsson Kvikir litfletir „ Morgunblaðið/Árni Sæberg GIGJA Baldursdóttir: Togstreita. MYNPLIST Gallcrí Ilorniö, llafnarstræti MÁLVERK GÍGJA BALDURSDÓTTIR Opið kl. 14-18 alla daga til 26. mars; aðgangur ókeypis. ÞRÁTT fyrir ýmsar væntingar manna um hið gagnstæða í gegnum árin hefur málverkið lifað góðu lífi allt til þessa dags, og ungt listafólk óhikað tekið til við glímuna við flöt- inn í þeim margslungna leik að lit- um og formum sem þar fer stöðugt fram og aldrei verður lokið. Þannig heldur hringrás myndlistarinnar áfram, og í stað þess að sjá stöðugt hið sama eru listunnendur sífellt að kynnast nýjum tilbrigðum hjá þeim listamönnum sem láta sér annt um að þróa sitt myndmál. Flestir listamenn ganga í gegn- um afar persónulega þróun á þess- um vettvangi, og þurfa að fram- kvæma eigin athuganir á samsetn- ingu lita og forma í leit sinni að því myndmáli sem þeir kjósa að vinna með. Þetta ferli má gjarna greina í fyrstu sýningum hvers og eins, og svo er einnig um þá lista- konu sem hér er um að ræða. Gígja Baldursdóttir hefur haldið áfram að vinna með það myndmál sem kom svo sterkt fram á sýningu hennar í Portinu í Hafnarfirði 1993, en frá þeim tíma hefur hún sýnt tvívegis erlendis og einu sinni norð- an heiða. Á sýningunni hér eru ell- efu málverk sem hún hefur unnið á síðustu þremur árum. Sem fyrr segir byggir listakonan hér á svipuðum vinnubrögðum og áður, en þar ber hæst óhlutbundið en formfast myndmál í óræðu rými, þar sem einstakir litfletir eru skýrt aðskildir. í hveijum slíkum fleti er hins vegar að fínna mikla kviku, þar sem litbrigðin líkt og sindra í íjölbreytileik litaspjaldsins og skapa þannig virkt mótvægi við þá form- festu sem einkennir myndbygging- una. Mest er þessi kvika í bláu og gulu litunum, en er einnig að fínna í einhveiju mæli í flestum öðrum sem listakonan notar. Þetta samspil festu og fijálsræð- is skapar oft á tíðum góðar heildir, eins og sést t.d. í verkunum „Tog- streita" (nr. 3) og „Ósk“ (nr. 5). Þetta kemur einkum vel fram í stærri málverkunum, sem jafnframt eru hin elstu á sýningunni. Lista- konan grípur þó ekki til þess að nota skæra liti í þessum tilgangi, enda verða litbrigðin ef til vill ögn ríkulegri fyrir þá hófsemi sem þau byggja á, þar sem skiptast á heitir og svalir tónar í kvikum flötunum. í nýrri verkunum virðist Gígja vera að þróa formbygginguna örlít- ið á veg, þar sem í sumum tilvikum má greina aðlögun myndefnis að þrískiptingu flatarins. Þetta hentar þessum smærri flötum nokkuð vel, eins og sést t.d. í nýjustu myndinni (nr. 7). Hins vegar ná þeir tæpast sama leiftri og er að fínna í stærri verkunum, og fyrir vikið verða hér nokkur skil í myndmáli listakonunn- ar. Væntanlega á hún eftir að þróa þessar breytingar frekar í verkum sínum á næstunni, eins og eðlilegt hlýtur að teljast fyrir þá sem hrær- ast í listinni. Eiríkur Þorláksson LEIKENDUR á æfingu. „Dansað á haust- vöku“ sýnt á Reyðarfirði Reyðarfirði. Morgnnblaðið. LEIKFÉLAG Reyðarfjarðar frumsýndi föstudaginn 14. mars leikritið „Dansað á haustvöku" eftir Brian Friel í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Leikritið gerist árið 1936 á heimili Mundy-systra, rétt fyrir utan smábæinn Ballybeg í Don- elgal-héraði í írlandi. Leikritið fjallar um samskipti, þjóðfélags- leg gildi og hnignun þeirra, fjöl- skylduhefð og trúarlegar sið- venjur á heimili kaþólsku systr- anna. Leikritið hefur verið marg- verðlaunað bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum og fékk höfund- urinn t.d. öll helstu leikskálda- verðlaun í Englandi árið 1991. Leikarar eru átt, Rúnar Ólafsson, Guðmundur Már Hannesson Beck, Stefán M. Jónsson, Ingunn Indriðadóttir, Sigríður Svanhvít Halldórsdótt- ir, Hrafnhildur Grímsdóttir, Margrét B. Reynisdóttir og Gísl- unn Jóhannsdóttir. Sýninga- stjórar eru Ásta J. Einarsdóttir og Gerður Oddsdóttir. Leikfélag Reyðarfjarðar hef- ur eflst og styrkst á síðustu árum og mun þetta vera 24. verkefni félagsins. Næstu sýningar eru fyrirhug- aðar dagana 21., 26., 27., 29. og 31. mars og hefjast þær allar kl. 20.30. Allar sýningar verða í Félagslundi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.