Morgunblaðið - 19.03.1997, Side 27
26 MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997 27
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthias Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
AFTURA
BRAUT UMBÓTA
UPPSTOKKUN Borísar Jeltsíns forseta Rússlands
á ríkisstjórn landsins bendir til þess að hann hygg-
ist halda áfram á braut róttækra efnahagsumbóta, sem
hann hóf á fyrra kjörtímabili sínu. Flest bendir til að
brottrekstur umbótasinna úr ríkisstjórninni í fyrra
hafi fyrst og fremst verið pólitískt bragð Jeltsíns,
ætlað til að slá vopnin úr höndum kommúnista og
tryggja honum sigur í forsetakosningunum.
Umbótasinnar ráða miklu í hinni nýju ríkisstjórn.
Það vekur sérstaklega athygli að þótt nokkrir af
íhaldssamari ráðherrunum sitji áfram, eru flest ráðu-
neyti, sem fara með efnahagsmál, komin í hendur
umbótasinna. Þetta bendir vonandi til þess að Jeltsín
vilji nú gera gangskör að því að einkavæða ríkisfyrir-
tæki og losa um hömlur í efnahagslífinu.
Sama má segja um skipan nýs fyrsta aðstoðarforsæt-
isráðherra, Borísar Jantsov. Hann er ekki eingöngu
frægur fyrir að hafa svarað í sömu mynt er þjóðernis-
öfgamaðurinn Vladímír Zhírínovskíj skvetti yfir hann
ávaxtasafa í beinni sjónvarpsútsendingu, heldur hefur
hann beitt sér fyrir róttækum markaðsumbótum í bíla-
framleiðsluborginni Nísní Novgorod og nærliggjandi
héraði. Meðal annars hafa smáfyrirtæki verið seld á
uppboði og vörubílastöðvar verið seldar bílstjórunum.
Jantsov var jafnframt fyrsti héraðsstjórinn í Rúss-
landi, sem beitti sér fyrir einkavæðingu samyrkjubús.
Efnahagsbatinn í héraði Jantsovs hefur verið talinn
til marks um hvaða árangri mætti ná í Rússlandi öllu
ef tækist að brjóta á bak aftur andstöðu hins gamla
sovétkerfis við efnahagsumbæturnar.
Stóra spurningin, sem hinir ungu umbótasinnar i
nýrri ríkisstjórn Rússlands hljóta að glíma við, er hins
vegar hvort það sé að verða um seinan að ná raunveru-
legum árangri. Reynslan frá öðrum fyrrverandi komm-
únistaríkjum sýnir, að þar sem stjórnvöld réðust strax
í róttækar umbætur, hefur jafnframt náðst beztur
árangur og tekizt hefur að tryggja stuðning almenn-
ings við breytingarnar vegna þess að árangurinn kom
fljótlega í ljós.
í Rússlandi er almenningur, ekki sízt í hinum dreifðu
byggðum, orðinn þreyttur á langvarandi kreppu og
áhugalaus um stjórnmál eða þá hallur undir þá, sem
boða afturhvarf til áætlanabúskapar. Hins vegar sýna
hagtölur tveggja undanfarinna mánaða að rússneskt
efnahagslíf er að byija að rétta úr kútnum á ný, þótt
hægt fari. Finni almenningur fyrir efnahagsbatanum
í eigin pyngju má búast við að róður umbótasinna verði
léttari.
AÐHALD SAMKEPPNIS-
YFIRVALDA
ÞAÐ AÐHALD, sem samkeppnisyfirvöld hafa sýnt
íslenzkum fyrirtækjum, stórum sem smáum og
einkareknum jafnt og ríkisreknum, er lofsvert. Það
sama má segja um staðfestingu úrskurðarnefndar sam-
keppnismála á ákvörðun Samkeppnisráðs, um að
stjórnar- og starfsmönnum Olíufélagsins og dótturfé-
laga þess sé óheimilt að sitja í stjórn Olíuverzlunar
íslands. Olíufélagið keypti stóran hlut í Olís fyrir nokkr-
um misserum og er ákvörðun samkeppnisyfirvalda til
þess ætluð að stuðla að samkeppni á milli fyrirtækj-
anna á markaði, sem einkenndist sannast sagna ekki
af harðri samkeppni fyrir.
Hins vegar er ábending Geirs Magnússonar, for-
stjóra Olíufélagsins, í Morgunblaðinu í gær umhugsun-
arverð. Hann spyr hvort ekki séu víða álíka eigna-
tengsl og í tilviki Olíufélagsins og Olís, og hvort víst
sé að jafnræðisreglan sé alls staðar virt. Það er full
ástæða til þess fyrir samkeppnisyfirvöld að kanna
hvernig þessum málum er háttað í öðrum geirum at-
vinnulífsins og gera sömu kröfur, þar sem við á og lög
heimila.
+
Samkeppnisstofnun beinir varnaðarorðum og leiðbeiningum til Flug-
leiða vegna eignarhalds á fyrirtækjum í ferðaþjónustu
Skapar hættu á misnotkun
á markaðsráðandi stöðu
Samkeppnisstofnun hefur unnið skýrslu um
flugrekstrarmarkaðinn hér á landi þar sem
settar eru fram leiðbeiningar og vamaðarorð
um tilvik sem kunna að stríða gegn samkeppn-
isreglum. Meðal þess sem fram kemur í skýrsl-
unni er að samkeppnisyfírvöld telja nauðsyn-
legt að skilja að flugrekstur Flugleiða og starf-
semi fyrirtækja í eigu Flugleiða á tengdum
mörkuðum í ferðaþjónustu þar sem eignar-
hald Flugleiða á umræddum fyrirtækjum skapi
hættu á misnotkun á markaðsráðandi stöðu.
SAMKEPPNISSTOFNUN hóf
að skoða markaðsaðstæður á
fákeppnismörkuðum í ís-
lensku viðskiptalífi síðastlið-
ið vor, en í desember 1994 gaf sam-
keppnisráð út skýrslu um stjómunar-
og eignatengsl í íslensku atvinnulífi.
Þar kom fram að fákeppni væri al-
geng hér á iandi og ákváðu samkeppn-
isyfirvöld að ráðast í frekari athugun
á fákeppnismörkuðum. í skýrslu Sam-
keppnisstofnunar um flugrekstrar-
markaðinn kemur fram að fljótlega
hafi verið ákveðið að byija á þeim
markaði þar sem hann einkennist af
mikilli samþjöppun, jafnframt því sem
náin tengsl séu á milli ráðandi fýrir-
tækis á flugrekstrarmarkaðnum
[Flugleiða] og sterkra fyrirtækja á
öðrum mörkuðum í ferðaþjónustu og
flutningum.
Samkeppnisstofnun sneri sér til
ýmissa aðila sem hlut eiga að máli og
leitaði álits þeirra, og var þar um að
ræða opinbera aðila, fyrirtæki og ein-
staklinga, en m.a. var höfð hliðsjón
af óformlegum ábendingum og kvört-
unum sem stofnuninni hafa borist.
Tekið er fram í skýrslunni að ýmsar
upplýsingar, ábendingar og athuga-
semdir hafí komið fram hjá þeim aðil-
um sem leitað var til, en markmið
þessarar athugunar sé hins vegar ekki
að kanna til hlítar og úrskurða um
brotlega hegðun heldur að setja fram
leiðbeiningar um hvað séu eðlilegir
samkeppnishættir á þessum mörkuð-
um fýrirtækjum til eftirbreytni.
Yfirburðir í skjóli einkaleyfa
og opinbers stuðnings
í skýrslu Samkeppnisstofnunar
segir að þeirri yfírburðastöðu sem
Flugleiðir hafa í flugrekstri hér á landi
og sterkri stöðu á tengdum mörkuðum
í ferðaþjónustu hafi fyrirtækið meðal
annars náð í skjóli opinberra einka-
leyfa og opinbers stuðnings sem enn
sé til staðar á ýmsan hátt. Bent er á
að sterk staða Flugleiða leggi félaginu
ríkar skyldur á herðar um að misnota
ekki aðstöðu sína þannig að skaði
samkeppni og hindri nýja keppinauta
í að hasla sér völl á markaðnum.
Fram kemur að keppinautar Flug-
leiða telji að viðbrögð fyrirtækisins
við ferðatilboðum þeirra hljóti að vekja
spumingar um hvort markmið fyrir-
tækisins sé ekki að drepa af sér alla
samkeppni, en Flugleiðum standi ekki
sú ógn af smáum keppinautum sem
hafí óveruleg áhrif á markaðnum að
fyrirtækið þurfi að bijóta jafnharðan
niður alla viðleitni þeirra til að keppa.
Samkeppnisstofnun tekur í skýrslunni
ekki afstöðu til þess hvort Flugleiðir
hafí breytt á þennan hátt, en áréttar
að ef tilgangurinn sé að nota yfir-
burðastöðu til að losa sig við keppi-
nauta og skaða með því samkeppni á
markaðnum stríði það gegn sam-
keppnislögum.
„Sambærilegt því að misnota mark-
aðsráðandi stöðu í flugi til þess að
drepa niður verðsamkeppni gæti t.d.
verið ef Flugleiðir reyndu að koma í
veg fyrir að nýr keppinautur kæmist
inn á markaðinn með því að laga
brottfarartíma sina að brottfarartím-
um hins nýja keppinautar. Á sama
hátt myndi það stríða gegn samkeppn-
islögum ef Flugleiðir neituðu keppi-
naut, án gildra raka, um gagnkvæm
skipti á farmiðum," segir í skýrslunni.
Þar kemur fram að Flugleiðir hafí
verið gagnrýndar fyrir að gæta ekki
hlutleysis í kynningarstarfsemi hér á
landi og erlendis. Ferðamálaráð og
Flugleiðir hafí gert samning um að
Flugleiðir annist íslandskynningu er-
lendis og samkvæmt þeim samningi
sé Flugleiðum óheimilt að mismuna
innlendum ferðaþjónustufyrirtækjum
í kynningarstarfínu.
Samkeppnisstofnun lítur svo á að
þrátt fyrir að samningar af
þessu tagi væru ekki til
staðar beri Flugleiðum
krafti yfírburðastöðu sinnar
og í skjóli opinberrar vernd-
ar að gæta þess að hags-
munir keppinauta Flug-
leiðafyrirtækja séu ekki fyr-
ir borð bomir, og sama gildi þegar
Flugleiðir noti aðstöðu sína um borð
í flugvélum félagsins til þess að kynna
eigin fyrirtæki. Þama sé átt við ein-
hliða kynningu á hótelum og bílaleigu
Flugleiða, en slík hegðun hjá markaðs-
ráðandi fyrirtæki sem hafí notið og
njóti opinberrar vemdar samræmist
ekki samkeppnisreglum.
Auk flugstarfsemi reka Flugleiðir
umfangsmikla starfsemi á tengdum
mörkuðum í ferðaþjónustu, þ.e. ferða-
skrifstofur, hótel, bílaleigu o.fl., og
bendir Samkeppnisstofnun á að yfir-
burðastaða í fluginu hafi átt verulegan
þátt í því hve staða fyrirtækjanna er
sterk á þessum mörkuðum. Ný stefnu-
mörkun Flugleiða í þá veru að styrkja
stöðu fyrirtækisins enn frekar á þess-
um mörkuðum sé ekki í samræmi við
þróunina erlendis þar sem áætlunar-
flugfélög séu fremur að draga sig út
úr þátttöku á tengdum mörkuðum í
ferðaþjónustu. Tekið er fram að styrk-
ing fyrirtækisins á stöðu sinni á þess-
um mörkuðum þurfi ekki að stríða
gegn samkeppnisiögum, en líkt og í
fluginu sé Flugleiðum óheimilt að
misnota markaðsyfirráð sín í flugi til
framdráttar eigin fyrirtækjum á
tengdum mörkuðum.
„Þannig samrýmist það ekki sam-
keppnisreglum að sterk staða Flug-
leiða í flugi sé notuð til að greiða nið-
ur, ívilna með öðrum hætti eða draga
taum eigin fyrirtækja og skaða með
því samkeppni á þessum mörkuðum.
Nauðsynlegt er því að gera þessa
markaði gegnsærri og skilja rekstur
fyrirtækjanna algjörlega frá rekstri
Flugleiða til að tryggja að ekki sé um
óeðlilegar millifærslur að ræða,“ segir
í skýrslunni.
Vísað er til þess að keppinautar
Flugleiða hafí gagnrýnt verðlagningu
fyrirtækisins á alferðum, og sú gagn-
rýni feli m.a. í sér að verð á alferðum
Flugleiða sé í sumum tilvikum svipað
og það verð sem Flugleiðir
bjóði ferðaskrifstofum að
selja flugfargjaldið eitt á.
Athugasemdir af þessu tagi
kalli enn frekar á fjárhags-
legan aðskilnað og aukið
gegnsæi markaðarins. Til
skýringar á því hve brýnt
sé að aðskilja rekstur fyrirtækjanna
er nefnt að í alferðum sé flug undan-
þegið virðisaukaskatti, en 14% skattur
sé á gistingu og 24,5% skattur á bíla-
leigu. Þetta sýni hve mikilvægt sé að
hver þáttur sé verðlagður í samræmi
við tilkostnað, en ef ekki sé rétt að
verðlagningunni staðið geti sam-
keppni á markaðnum skaðast.
Þá segir í skýrslunni að aukin um-
svif Flugleiða á ferðaskrifstofumark-
aðnum, þar sem félagið hafí skipt
markaðnum í dýrari og ódýrari hluta
og spanni með því allt sviðið, hafi
vakið upp spurningar hjá keppinaut-
um um mismunandi kjör sem ferða-
skrifstofur njóti hjá Flugleiðum. Er
áréttað í þessu sambandi að Flugleið-
um beri að gæta þess að mismuna
ekki fyrirtækjum á tengdum mörkuð-
um.
Víxlstuðningur tii þess fallinn
að skaða samkeppnisstöðu
Sérstakur kafli í skýrslu Sam-
keppnisstofnunar fjallar um vildar-
kort, en aðaltilgangur kortanna sé
söfnun ferðapunkta sem nota megi til
kaupa á flugfarseðlum og tilgang-
urinn sá að hvetja viðskiptavini til
þess að halda sig við sama flugfélag.
Með því sé athygli viðskiptavinarins
beint að tilteknum fríðindum og verð-
skyn hans sljóvgað.
Bent er á að hvatning í söfnun
punkta sé talin hafa mest áhrif í þeim
tilvikum þar sem farmiði er greiddur
af öðrum en flugfarþega, t.d. vinnu-
veitanda, en viðkomandi einstaklingur
fái að ráðstafa punktunum. Þetta fyr-
irkomulag í sjálfu sér sé samkeppnis-
hamlandi en ekki sé einfalt fyrir sam-
keppnisyfirvöld að taka á því. Vildar-
kortin séu almennt til staðar í alþjóð-
legu flugi og einhliða bann á þeim
af hálfu íslenskra samkeppnisyfir-
valda væri einungis til þess fallið að
skaða samkeppnisstöðu Flugleiða
gagnvart erlendum keppinautum.
Samkeppnisyfírvöld telja sig hins
vegar ekki geta litið framhjá þeim
áhrifum vildarkortanna sem einvörð-
ungu koma fram á íslenska markaðn-
um, en yfírburðastaða í flugi sé notuð
til að auka markaðshlutdeild Flug-
leiðafyrirtækja á tengdum mörkuðum
í ferðaþjónustu þegar einnig megi
nýta áunna punkta í flugi hjá Flugleið-
um til þess að kaupa gistingu á Flug-
leiðahóteli innanlands og leigja bíla
hjá bílaleigu Flugleiða. Þetta kerfí
virki einnig í hina áttina þar sem við-
skiptavinir Flugleiðahótela og bíla-
leigu Flugleiða fái punkta til notkunar
í flugi, og einnig nái þetta fyrirkomu-
lag til kaupa á vamingi um borð í
flugvélum Flugleiða.
„Það fyrirkomulag sem hér hefur
verið lýst felur í sér víxlstuðning á
milli skyldra fyrirtækja á innlendum
mörkuðum og er til þess fallið að
skaða samkeppnisstöðu keppinauta
Flugleiðafyrirtækja á íslenskum
markaði. Þessu til viðbótar er vakin
athygli á að sá kaupbætir sem í punkt-
unum felst hafa verið skattfijáls
hlunnindi sem skekkir myndina enn
frekar," segir í skýrslunni.
Einkaleyf i á innritun og
flugafgreiðslu gagnrýnt
Flugleiðir annast einar innritun far-
þega og afgreiðslu flugvéla á Kefla-
víkurflugvelli samkvæmt opinberu
einkaleyfi og telur Samkeppnisstofn-
un þetta fyrirkomulag til þess fallið
að skaða samkeppnisstöðu keppinauta
Flugleiða. Því væri æskilegt að fleirum
yrði gert fært að sinna innritun og
flugafgreiðslu, en sé það talið útilokað
miðað við núverandi aðstæður sé
markvissara til að tryggja hlutleysi
og hafa samkeppnissjónarmið í heiðri
að óháður aðili, eins og t.d. Flugmála-
stjórn, annist þessa þjónustu.
„Margvísleg gagnrýni hefur komið
fram á rekstur flugafgreiðslunnar og
í meginatriðum er hún á þá lund að
Flugleiðir notfæri sér aðstöðuna til
að láta eigin starfsemi njóta for-
gangs, en fyrirtækið meðhöndli aðra
sem annars flokks viðskiptavini. Eigi
þessi gagnrýni við rök að styðjast
stríðir hegðun Flugleiða á þessum
markaði gegn samkeppnislögum. Fyr-
irtæki sem hefur markaðsráðandi
stöðu á flugmarkaðnum og hefur jafn-
framt einkaleyfi á innritun farþega
og flugafgreiðslu verður að gæta þess
sérstaklega vel að engar hindranir séu
i vegi fyrir því að keppi-
nautar, gamlir sem nýir, fái
jafnan aðgang að nauðsyn-
legri þjónustu á þessu sviði.
Til þess að tryggja sem
best sjálfstæðan og óháðan
rekstur flugafgreiðslunnar,
á meðan Flugleiðir annast
hana, er nauðsynlegt að hún sé alger-
lega skilin frá öðrum rekstri Flug-
leiða, bæði fjárhagslega og stjómun-
arlega."
Kynnisferðir hf. gæti hlutleysis
Fram kemur í skýrslunni að keppi-
nautar Flugleiða á hótel- og bílaleigu-
markaðnum telji að rekstur flugrút-
unnar milli Reykjavíkur og Keflavík-
urflugvallar veiti Flugleiðafyrirtækj-
um forskot í samkeppni við þá, en
Kynnisferðir hf., sem hefur sérleyfi
á þessari leið, er að stærstum hluta
í eigu Flugleiða og er aðsetur fyrir-
tækisins á Hótel Loftleiðum. Fram
kemur að sérstaklega hafi verið nefnt
að aðstaðan þar hafi verið notuð til
þess að ná viðskiptavinum til Flug-
leiðafyrirtækja á kostnað keppinaut-
anna.
Samkeppnisstofnun tekur ekki af-
stöðu til þess hvort einkaleyfið á
rekstri flugrútunnar sé notað með
þeim hætti sem keppinautar telja, en
segir að hitt liggi ljóst fyrir að með
því að hafa aðsetur Kynnisferða á
Hótel Loftleiðum sé komið á tengslum
sem unnt sé að nota fyrirtækjum
Flugleiða til framdráttar. Væri óháð-
um aðila falinn rekstur flugrútunnar
myndi hann væntanlega hafa aðsetur
á Bifreiðastöð fslands sem drægi úr
vanköntum núverandi fyrirkomulags,
en á meðan svo sé ekki beinir Sam-
keppnisstofnun því til Kynnisferða
að hlutleysis sé gætt þegar viðskipta-
vinum eru kynnt fyrirtæki í ferða-
þjónustu og fyrirspurnum svarað.
Bókunar- og upplýsingakerfi
veitir milulvæga aðstöðu
Evrópska bókunar- og upplýsinga-
kerfíð Ámadeus er ráðandi á íslenska
markaðnum og er það rekið af um-
boðsfyrirtækinu Amadeus íslandi hf.,
sem er að mestu í eigu Flugleiða.
Þetta telur Samkeppnisstofnun veita
Flugleiðum mikilvæga aðstöðu, en
með því að annast alla innritun á
Keflavíkurflugvelli hafí Flugleiðir til
viðbótar aðgang að upplýsingum í
innritunarkerfí sem þeir hafa fengið
frá Aer Lingus. Fram kemur í skýrslu
stofnunarinnar að keppinautar Flug-
leiða hafí gagnrýnt þá aðstöðu sem
fyrirtækið hafi með rekstri þessara
tölvuvæddu kerfa. Þarna sé um enn
einn markaðinn nátengdan flugrekstri
sem Flugleiðir ráði yfír og á þessu
sviði verði einnig að gera kröfur til
fyrirtækisins um að það gæti jafnræð-
is og misnoti ekki þá einstöku aðstöðu
sem það hefur.
„Gera þarf markaðinn gegnsærri
með því m.a. að birta gjaldskrá kerf-
anna, þ.m.t. afsláttarreglur, og gera
þær þannig úr garði að þeim sem
nýta sér þjónustuna sé á engan hátt
mismunað. Þá þarf að gæta þess vand-
lega að upplýsingar eins aðila séu
ekki nýttar af keppinautum," segir í
skýrslunni.
Trúnaður þarf að ríkja
í skýrslu Samkeppnisstofnunar er
vikið að því að Eimskipafélag íslands
sé stærsti eigandi Flugleiða með ríf-
lega þriðjung hlutafjár og fjóra af níu
stjórnarmönnum, þar á meðal form-
ann stjómar. Eimskip sé markaðsráð-
andi í sjóflutningum til og frá land-
inu, og fyrirtækin séu því sameigin-
lega ráðandi í flutningum milli íslands
og annarra landa. Þessi sterka staða
og hin nánu tengsl fyrirtækjanna séu
til þess fallin að takmarka sam-
keppni, og brýna nauðsyn beri því til
að tryggja að viðskiptahagsmunir sem
af þessum tengslum leiða skaði ekki
hagsmuni neytenda.
„Eignarhald Flugleiða á fyrirtækj-
um á tengdum mörkuðum í ferðaþjón-
ustu skapar hættu á misnotkun á
markaðsráðandi stöðu. Stjómarseta
starfsmanna Flugleiða í þessum fyrir-
tækjum orkar tvímælis þar sem trún-
aður þarf að ríkja milli markaðsráð-
andi flugfélags og fyrirtækja á tengd-
um mörkuðum í ferðaiðnaði," segir í
skýrslunni.
Innsýn í hvað samrýmist góðum
samkeppnisháttum
í lokaorðum skýrslu Samkeppnis-
stofnunar segir að flugrekstur hafí til
skamms tíma verið háður verðlagseft-
irliti, en samfara auknu
frelsi í flugmálum hafi verð-
lagsákvæði vikið og sam-
keppnisreglur komið í stað-
inn. Flugrekstur á íslandi,
eins og viðast annars stað-
ar, einkennist af markaðsy-
fírráðum eins fyrirtækis. í
ljósi þess hafí í skýrslunni verið tekið
mið af þeim ramma sem samkeppnis-
reglur setji við markaðsráðandi að-
stæður og settar fram leiðbeiningar
og vamaðarorð um hegðun á mörkuð-
um í ferðaþjónustu.
Tekið er fram að leiðsögnin sé ekki
tæmandi en eigi að gefa stjórnvöldum,
flugrekendum og öðrum hlutaðeigandi
aðilum innsýn í hvað samrýmist góð-
um samkeppnisháttum á þessum
mörkuðum.
Stefnumörk-
un ekki í sam-
ræmi við þró-
un erlendis
Keppinautar
fáí aðgang að
nauðsynlegri
þjónustu
*
Kaup Landsbankans á 50% í VIS
Eiga að flýta
fyrir einkavæð-
ingu bankans
FRIÐRIK Sophusson fjár-
málaráðherra segir að fyr-
irhuguð kaup Landsbank-
ans á Vátryggingafélagi
íslands eigi að ýta undir og flýta
einkavæðingu bankans og hann
útilokar ekki að áform ríkisstjórnar-
innar muni færast í þessa átt með-
an frumvarp um hlutafélagavæð-
ingu ríkisbankanna er í meðförum
Alþingis. Þingmenn stjómarand-
stöðu og stjórnarflokkanna sem um
málið ræddu í utandagskrárum-
ræðu á Alþingi í gær tóku undir að
í ljósi þessara atburða yrði að end-
urskoða frumvarpið.
Friðrik sagði að einstakir ráð-
herrar hafi vitað af fyrirhuguðum
kaupum Landsbankans á VÍS
skömmu áður en gefín var út yfir-
lýsing um þau, en ekki hafi sérstak-
lega verið leitað eftir áliti þeirra.
„Eg sagði formanni bankaráðs
Landsbankans að ég gerði ekki at-
hugasemd við þessi áform, ef þetta
væru aðgerðir til að styrkja bank-
ann, og að þær byggðust á eðlileg-
um viðskiptagrundvelli, enda brytu
þær hvorki í bága við lög né alþjóða-
samþykktir sem Island er skuld-
bundið að fylgja.“
Ráðherrann sagði að málið hefði
verið kynnt bankaeftirliti Seðla-
bankans ítarlega. Einnig hefði Vá-
tryggingaeftirlitinu og Samkeppn-
isstofnun verið gert grein fyrir
málinu, en engar athugasemdir
hefðu borist.
Fákeppni á
fjármálamarkaði
Ágúst Einarsson, þingflokki
jafnaðarmanna, sem var upphafs-
maður umræðunnar, fagnaði því
að bankar væru loksins að hasla
sér völl á tryggingamarkaðnum
eins og lengi hefði tíðkast erlendis.
Hann varaði hins vegar við því að
fákeppni á fjármálamarkaðnum
væri að aukast.
Ágúst undraðist að Landsbank-
inn sem fyrir skömmu hefði verið
svo máttvana að hann hefði þurfti
aðstoð skattborgaranna til að laga
eiginfjárstöðu sína gæti nú staðið
í slíkum stórfjárfestingum. Hann
sagði að í ljósi þess að ekki væri
ætlunin að einkavæða Landsbank-
ann næstu fjögur árin væri ríkis-
stjórn Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks nú að stíga stærri
skref til ríkisrekstrar í fjármála-
heiminum en gert hefði verið um
áratuga skeið. Fyrir hefði hlutur
ríkisins á fjármálamarkaði verið sá
stærsti í Vestur-Evrópu, en nú hefði
hann enn stækkað.
Ágúst spurði einnig hvernig eig-
endur Brunabótafélagsins ættu að
nálgast eignarhlut sinn í Vátrygg-
ingafélaginu. „Það gera þeir varla
nema þeir ætli að kaupa 35% hlut
í Landsbankanum og ráða þannig
bæði bankanum og VÍS. Nú er ef
til vill komin skýring á því, að ekki
er í lagatexta með bankafrumvarp-
inu ákvæði um að dreifa eignar-
aðild að þeim 35% í bankanum sem
ætlunin er að selja. Er búið að
eymamerkja það til vinveittra fyrir-
tækja stjórnarflokkanna?“ spurði
þingmaðurinn.
Ríkisendurskoðun
kanni kaupin
Einar K. Guðfinnsson, Sjálf-
stæðiflokki, lýsti miklum efasemd-
um um kaupin, því þau væru skref
í þá átt að auka ríkisrekstur á fjár-
málamarkaðnum. Hann sagði nauð-
synlegt að bæði Ríkisendurskoðun
og Bankaeftirlitið færu vel yfir þau.
Árni M. Mathiesen, flokksbróðir ^
hans, sagðist ekki efast um þau orð
forsvarsmanna bankans að kaupin
væru honum til hagsbóta til lengri
tíma en sagði nauðsynlegt að nán-
ari upplýsingar fengjust um kaup-
samninginn. Alþingi bæri að hafa
afskipti af ríkisbönkunum ef eigin-
fjárstaða þeirra væri ekki í sam-
ræmi við reglur og misvísandi upp-
lýsingar um það hefðu komið fram
frá talsmönnum bankans í fjölmiðl-
um.
Árni, og fleiri þingmenn, spáðu
því að fleiri bankar myndu fylgja í
fótspor Landsbankans og kaupa
tryggingafyrirtæki. Árni sagði að
vegna þessa yrði að hraða einka- **
væðingu ríkisbankanna.
Ósvífnar og vitlausar
breytingar á
lífeyrissjóðakerfinu
Stjórnarnandstæðingar vöktu at-
hygli á tengslum kaupa Landsbank-
ans á VÍS og fyrirhugaðra breyt-
inga á lífeyrissjóðakerfínu. Sjálf-
stæðisflokkurinn kæmi að báðum
málum því stjórnarformaður Lands-
bankans væri jafnframt fram-
kvæmdastjóri flokksins. ♦
Steingrímur J. Sigfússon, Al-
þýðubandalagi, sagði áform ríkis-
stjórnarinnar í lífeyristrygginga-
málum bæði ósvífin og vitlaus.
Hann gagnrýndi að ríkisstjórnin
hefði farið með þessi mál á bak við
tjöldin meðan gerð kjarasamninga
stæði yfír.
„Það er ótrúlega vitlaust, ef
hæstvirt ríkisstjórn ætlar með
þessu að hefja hér breytingar í líf-
eyrissjóðsmálum sem byija að grafa
undan því uppsöfnunarkerfí sam-
tryggingarsjóða, sem við íslending-
ar erum þó á góðri leið með að
byggja upp með fullnægjandi hætti.
Þetta uppsöfnunarkerfí samtrygg- .
ingarsjóða skín eins og ljós í myrkri
þegar vestrænar þjóðir horfa til
þeirra viðfangsefna sem framundan
eru, varðandi það að tryggja sí-
stækkandi hlutfalli aldraðra lífeyri
á komandi áratugum."
Aldrei áformað
að rústa sjóðina
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra sagði engin áform uppi hjá
ríkisstjórninni um að eyðileggja
samhjálpartryggingu lífeyrisþeg-
anna. „Það stendur ekki til og það
verður ekki gert. Ríkisstjórnin hef-
ur aldrei áformað né rætt, hvað þá
ákveðið, að rústa lífeyrissjóðina., 4
Það liggur fyrir að þeir munu halda ”
sínum tíu prósentum."
Ögmundur Jónasson, Alþýðu-
bandalagi, sagði ósamræmi í yfir-
lýsingum fjármálaráðherra og fé-
lagsmálaráðherra. „Ég vil vekja
athygli á því að einstaklingsbundn-
ir lífeyrisreikningar sem eru á
kostnað samtryggingar eru jafn-
framt á kostnað örorkubóta, barna-
bóta og makabóta."
Breytingar hugsanlegar ef
opinberir starfsmenn vilja
Stjórnarandstöðuþingmenn
spurðu einnig fjármálaráðherra
hvort ætlunin væri að breyta lífeyr-
issjóðakerfí opinberra starfsmanna.
Ráðherrann svaraði því til að það
kerfí væri bundið í lögum, en að
vel kæmi til greina að breyta því
einnig ef opinberir starfsmenn
sýndu því áhuga.