Morgunblaðið - 19.03.1997, Síða 32

Morgunblaðið - 19.03.1997, Síða 32
. T.: 32 MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdafööur og afa, OLGEIRS ÞÓRÐARSONAR, Kleppsvegi 36. Jóhanna Bjarnadóttir, María Olgeirsdóttir, Hreiðar Albertsson, Jóhanna Olga Hreiðarsdóttir. + Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug, samúö og vináttu við andlát og útför bróður okkar og mágs, GARÐARS SIGMUNDAR JÓNSSONAR, Höfðagrund 4, Akranesi. Kristín H. Jónsdóttir, Hörður Sumarliðason, Ólafur Ingi Jónsson, Helga Guðmundsdóttir. * t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur vináttu, hlýhug og samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTJÖNU JAKOBSDÓTTUR, Aðalgötu 5, Keflavík. Jóna Kristín Einarsdóttir, Stefán Einarsson, Inga Helen Pratt, Ingvi Þór Guðjónsson, Birgir Guðjónsson, barnabörn og Helgi Valur Grímsson, Robert Pratt, Sigríður Baldursdóttir, Heiður A. Vigfúsdóttir, barnabarnaböm. + Bróðir okkar og frændi, JÓN KRISTJÁNSSON sjómaður, Hrafnistu Reykjavík, áðurtil heimilis á Meistaravöllum 13, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Neskirkju á morgun, fimmtudaginn 20. mars, kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Slysavarnafélag íslands. Fyrir hönd aðstandenda, Albert Ágústsson. + Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN ÓLAFSSON, Fannborg 9, Kópavogi, lést á Landspítalanum 14. mars. Jarðsungið verðurfrá Kópavogskirkju föstudaginn 21. mars kl. 13.30. Börn, fósturbörn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, INGVAR EINARSSON, lést 17. mars síðastliðinn. Fyrir hönd aðstandenda, Anna V. Gissurardóttir. OSKARSVAVAR G UÐJÓNSSON + Óskar Svavar Guðjónsson var fæddur að Fells- axlarkoti, Skil- mannahreppi, 1. október 1937. For- eldrar hans eru Ár- sæl Gróa Gunnars- dóttir, f. 31.12. 1915, og Guðjón Valdimarsson. Ósk- ar flutti með móður sinni til Akraness er hann var 3ja ára er hún réð sig sem ráðskonu til Guð- jóns Teits Arnason- ar og voru þau þar til Óskar var 10 ára, leið honum þar vel og var alla tíð hlýtt til Guð- jóns. Móðir Óskars giftist Árna Runólfssyni er hann var 10 ára og á hann tvær hálfsystur, Þór- unni og Þórdísi Erlu, sem báðar eru búsettar á Akranesi. Óskar giftist 19.9.1964 Önnu Þorsteinsdóttur, ljósmóður frá Seyðisfirði, f. 30.10. 1933. For- eldar hennar voru Kristrún Jó- hannesdóttir, f. 22.9. 1898, og Þorsteinn Guðjónsson, f. 23.5. 1903. Böm þeirra em 1) Gunn- ar, rekstrarfræðingur, starfs- maður i fjárhaldsbókhaldi Flug- leiða, f. 25.5. 1967, í sambúð með Lindu Sveinsdóttur, þau eiga eina dóttur, Arndisi Söra, sem er tæpra tveggja ára. 2) Kristrún Gróa, f. 21.8 1969, í sambúð með Níels Atla Hjálm- arssyni, þau búa í Neskaupstað, Kristrún Gróa á einn son, ðskar Halldór Guðmundsson, 9 ára. Óskar og Anna hófu búskap í Reykjavík en fluttu til Hafnar- fjarðar 1978 og hafa búið þar síðan. Hversu snöggt, hversu sárt, hversu óraunverulegt getur þetta líf verið. Er Anna Þorsteinsdóttir, eiginkona Óskars, hrir.gdi sunnu- dagsmorguninn 9. mars og til- kynnti okkur að Óskar hefði látist þá um morguninn er Dísarfellið fórst, var okkur vissulega mikið brugðið og fannst hlutirnir gerast snöggt, vera sárir og í reynd óraun- verulegir, en svona gerast hlutim- ar því miður stundum og eftir stöndum við aðeins með minningar um kæran vin. Það hafa leitað á hugann margar minningar um kynni okkar og samverustundir í gegnum árin, allt frá ámnum upp úr 1960 er Óskar og Anna byijuðu að vera saman, en Anna og Sigur- borg eru frænkur og æskuvinkonur frá Seyðisfirði. Málin æxluðust þannig að við vorum að skemmta okkur þann dag er Anna og Óskar byijuðu að vera saman, síðan hefur sá vin- skapur haldist við þau hjónin, sem þróaðist enn nánar er þau fluttust í Hafnarfjörðinn - í næsta ná- grenni við okkur. Allt frá þeim tíma er Anna og Óskar giftu sig og hófu búskap á Réttarholtsveginum, síðan Steina- gerði og loks Hafnarfirði, reyndar að Laugarvatni í millitíðinni, hefur verið góður samgangur okkar á milli og margar yndislegar stundir, þar sem rætt var um lífið og tilver- una, pólitík, músik, uppeldi barna, gamla daga frá Ákranesi og Seyðisfirði og margt, margt annað. Óskar var mjög fær matreiðslu- maður, mikið snyrtimenni og mjög samviskusamur starfsmaður, sem gerði hann eftirsóttan. Óskar hefði sjálfsagt getað starfað meira í Iandi ef áhugi hans hefði meira beinst á þær brautir, en sjó- mennskan heillaði hann þegar á unga aldri og varð þess valdandi að mikill hluti starfsævi hans varð til sjós. Heimili Óskars bar mjög merki hans snyrtimennsku og samheldni þeirra hjóna. Heimilið er einstak- Óskar var í ungl- ingaskóla á Akra- nesi en hóf fljótlega störf til sjós og lands, meðal annars í verslun og eina vertíð var hann til sjós sem matsveinn á báti frá Akranesi. Óskar réðst til Sam- bandsins 17 ára sem smyijari til að byija með í nokkra mán- uði og síðan í eld- hús, var matsveinn og bryti á sam- bandsskipunum til 1966 eftir að hafa farið á mat- sveinanámskeið. _ 1966 lá leið Óskars í Mat- reiðslu- og veitingaskólann og útskrifaðist hann sem mat- reiðslumeistari frá Hótel Loft- leiðum 1969. Fljótlega eftir nám réð Óskar sig sem bryti hjá sameiginlegu mötuneyti skólanna á Laugarvatni, þ.e.a.s Héraðsskólans, Iþróttakenn- araskólans og Menntaskólans á Laugarvatni og starfaði þar til 1973. Þá réðst hann til Sam- bandsins í nokkra mánuði sem matreiðslumaður en hóf störf á Hótel Loftleiðum sem mat- reiðslumaður, síðar forstöðu- maður kaffiteríu hótelsins og síðustu 4 árin sem yfirmat- reiðslumeistari Hótels Loft- leiða og vann þar til 1986. Árið 1988 réð Óskar sig til Skipa- deildar SIS sem matreiðslu- maður og var þar starfandi þar til þann lést. Utför Óskars verður gerð frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. lega fallegt og ávallt var öllu mjög vel við haldið. Reyndar féll Óskari aldrei verk úr hendi, ef hann stans- aði eitthvað í landi var hann ávallt eitthvað að lagfæra og betrum- bæta, annaðhvort á Smyrlahraun- inu eða í sumarbústaðnum að Hraunborgum. Sumarbústaðinn nefndi Óskar Berg, sem sýnir þann hlýhug er hann bar til æskuheimil- is síns á Akranesi, að nefna sælu- reitinn í Grímsnesi eftir þeim stað er honum hlotnaðist svo gott_ at- læti sem raun varð á í æsku. Ósk- ar gekk í Oddfellowregluna fyrir um 15 árum og sótti hann fundi þar eftir fremsta megni er atvinna hans leyfði. Innan Oddfellowregl- unnar átti hann margar mjög góð- ar stundir við þroskandi og mann- bætandi störf og bjó ábyggilega með honum draumur um að sækja enn betur fundi þar er hann kæmi í land, sem hann vissulega var farinn að huga að og jafnvel mögu- leiki að þetta væri hans síðasta ferð til sjós. Minningarnar eru óskaplega margar eftir um 35 ára viðkynningu og sárt að rifja upp liðna tíma en upp úr stendur minn- ingin um góðan mann, mann sem var hvers manns hugljúfi og vildi öllum vel, var eins og sagt er, drengur góður í orðsins fyllstu merkingu. Með þessum fátæklegu minningarbrotum kveðjum við Óskar með miklum söknuði og þökkum fyrir allt sem hann gaf okkur með sinni hlýju og hrein- lyndu framkomu til orðs og æðis. Elsku Anna, Gunni, Gróa og fjöl- skyldur, við Bogga sendum ykkur öllum innilegar samúðarkveðjur á þessari sorgarstundu. Megi minn- ingar um elskulegan eiginmann, föður og afa sefa sárustu sorgina. Guð blessi minningu Óskars Svav- ars Guðjónssonar. Jón Kr. Óskarsson, Sigurborg H. Magnúsdóttir. Ég kynntist Óskari fyrst er ég hóf störf á Helgafelli fyrir rúmum tveimur árum og sá strax að þar fór maður sem vildi hafa reglu á hlutunum og ala sína menn, jafn- vel af svo mikilli samviskusemi að sumum þótti_ stundum nóg um. Æviferil Óskars eða hans fjöl- skyldu þekki ég ekki nema af sam- tölum við hann en af þeim yeit ég að hann var gæfumaðjur í einkalífi. Ýmsir af félögum okkar hafa þekkt hann mun lengur, sum- ir í áratugi og minnast hans nú með virðingu og þökk fyrir sam- veruna. Þegar kveðja á félaga sem hrif- inn er brott við svo óvægnar og óvæntar aðstæður byltast svo margar hugsanir um höfuðið að erfitt er að koma þeim á blað, en við minnumst hans sem manns sem af einlægni og áhuga sinnti starfi sínu og áhugamálum. í frítímum tók sumarbústaður- inn og dvölin þar mikinn tíma og veitti ómælda ánægju. Við eyddum síðustu stundunum hérna megin saman og sárt er að kveðjast en ég bið þann eina sem öllum siglingum ræður að styrkja konuna hans, börn, lítil barnabörn sem nú fá ekki lengur notið afa síns, tengdabörn og aðra ættingja og vini í sorginni. Þegar brotnar bylgjan þunga. Brimið heyrist yfir fjöll. Þegar hendir sorg við sjóinn, syrgir, tregar þjóðin öll. Vertu ljós og leiðarstjarna. Lægðu storm og boðaföll. Líknargjafinn þjáðra þjóða. Þegar lokast sundin öll.“ (Jón Magnússon.) Fyrir hönd skipbrotsmanna, Trausti Ingólfsson. Lífið er stutt, miklu styttra en maður heldur. Um þetta sannfærð- ist ég þegar okkur var tilkynnt um örlög Dísarfellsins og tveggja skip- veija þess sunnudaginn 9. mars sl. Elskulegur tengdafaðir minn, Óskar Svavar Guðjónsson, var annar þeirra og langar mig að minnast hans hér með nokkrum orðum. Alltof stutt er síðan við Óskar kynntumst fyrst, eða u.þ.b. þijú ár. Þá vorum við Gunnar, son- ur hans, nýbúin að kynnast og fór hann með mig í sumarbústaðinn annan í páskum til að kynna mig fyrir tilvonandi tengdaforeldrum mínum. Óskar heilsaði mér og tók fast utan um mig, þannig að allt stressið og sjálfsóöryggið hvarf, því að ég vissi strax að við áttum alltaf eftir að verða góðir vinir. Óskar var yndislegur maður og vildi allt fyrir alla gera. Hann þurfti alltaf að hafa eitthvað fyrir starfi og skildi aldrei við neitt hálfklárað eða til bráðabirgða. Barnabörnin tvö voru ofarlega í huga Óskars. Arndís litla va_r alltuf að tala um afa á skipinu. Á svona erfiðum stundum eru minn- ingarnar um Óskar margar og fæstar þeirra munu komast á blað. Áður en hann fór í þessa örlaga- ríku ferð var hann alvarlega far- inn að íhuga að hætta á sjónum, koma í land til að eiga meiri tíma með fjölskyldunni, Önnu, Óskari Halldóri og Arndísi Söru. Óskar átti líka margar ánægjulegar stundir í sumarbústaðnum Bergi að Hraunborgum í Grímsnesi. Þangað fór hann alltaf þegar tími og færð gáfu tilefni til, síðast um áramótin, en þar eyddu Anna og Óskar áramótunum, tvö ein á svæðinu. Elsku Óskar, þú sem ætlaðir að hjálpa okkur með húsið okkar í sumar og þú sem ætlaðir að gróðursetja í holurnar sem við gerðum við sumarhúsið í fyrra. Núna er þetta allt í okkar höndum og við munum gera okkar besta til að halda sumarhúsinu við. Ég þakka þér fyrir þær stundir sem við áttum saman og megi þér líða vel á þeim stað sem þú dvelur nú á. Minningin um þig mun alltaf lifa í hjarta mínu. Þín tengdadóttir, Linda Sveinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.