Morgunblaðið - 19.03.1997, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997 37
FRÉTTIR
Námskeið
og fyrirlest-
ur umjóga
JÓGAMEISTARINN Santi Desai
er nú í fyrstu heimsókn sinni hér
á landi og heldur nokkur námskeið
í Yoga Stúdíói í
Hátúni 6a
20.-25. mars,
auk þess að
bjóða upp á
einkatíma þar
sem hann mun
veita einstakl-
ingum ráðgjöf
um mataræði og
næringu, jóga-
ástundun og samskipti.
Shanti Desai hefur stundað jóga
frá blautu barnsbeini og er einn
fárra núlifandi manna sem hafa
fullkomið vald á öllum stöðum
Hatha-Yoga, að því er segir í frétt
frá Yoga Stúdíói.
Hann er höfundur nokkurra
bóka um jóga, hugleiðslu og skyld
efni og hefur kennt þúsundum
nemenda og þjálfað fjölmarga jóga-
kennara í Bandaríkjunum þar sem
hann er búsettur.
Námskeið um jóga,
hugleiðslu og næringu
Shanti Desai hefur einnig lokið
meistaraprófi í efnafræði og er
fróður um mataræði og fæðubótar-
efni.
Eftirfarandi námskeið verða
haldin með Shanti Desai:
Fimmtudaginn 20. mars klukkan
20 verður haldinn fyrirlestur og
kynning þar sem Shanti mun sýna
erfiðari stöður Hatha-Yoga og
fleira.
Föstudaginn 21. mars ogiaugar-
daginn 22. mars verður fjallað um
jógastöður, hugleiðslu og jóga-
heimspeki á helgarnámskeiði.
Föstudaginn verður námskeiðið frá
klukkan 20-22 og laugardaginn
frá kl. 9-15.
Hugleiðslunámskeið verður
haldið mánudaginn 24. mars klukk-
an 20.
Fjallað verður um hreinsun lík-
amans, mataræði, fæðubótarefni
og fleira á námskeiði sem kallast
Heilsa og næring og verður haldið
þriðjudaginn 25. mars kl. 20.
Nánari og upplýsingar eru veitt-
ar í Yoga Stúdíói í Hátúni 6a í síma
511-3100. Þar fer fram skráning
þátttakenda á námskeiðin og miða-
sala á fyrirlestur Shantis.
Fræðslufundur
um ferðabúnað
igöngu- og
fjallaferðum
BJÖRGUNARSKÓLI Landsbjarg-
ar og Slysavarnafélag íslands
stendur fyrir fræðslufundi fyrir al-
menning um ferðabúnað í göngu-
og fjallaferðum fimmtudaginn 20.
mars kl. 20. Fundurinn verður hald-
inn í húsnæði Björgunarskólans,
Stangarhyl 1, Reykjavík, og er öll-
um opinn.
Þátttökugjald er 1.000 kr. og er
fræðslurit um ferðamennsku inni-
falið í þátttökugjaldinu.
Gönguferð um
vorjafndægur
í FORNU tímatali virðist vetri sól-
ársins ljúka á voijafndægri og vor-
ið taka við. Á þetta minnir Hafna-
gönguhópurinn í síðustu kvöld-
göngu fornvetrarins (ekki vetrar-
misseris sem verður 23. apríl) í
kvöld miðvikudaginn 19. mars.
Farið verður í ljósaskiptunum frá
Hafnarhúsinu kl. 20 upp Grófina
og vestur Framnesið um Valhúsa-
hæð og út undir Gróttutanga. Það-
an til baka austur með strönd
Kollafjarðar niður á Miðbakka í
Reykjavíkurhöfn og að Hafnarhús-
inu. Hægt verður að stytta göngu-
leiðina með því að heija gönguna
á Valhúsahæð kl. 21 eða nýta
SVR. Á Snoppu við Gróttu verður
boðið upp á harðfiskbita með
smjöri.
Á morgun, fimmtudaginn 20.
mars, verður voijafndægri fagnað
í gönguferð sem farin verður frá
Hafnarhúsinu kl. 13 og voijafn-
dægursmínútunnar minnst kl.
13.55 með því að skála fyrir því í
sýrudrykk að dagsbirtan hefur náð
yfirhöndinni í náttúrunni.
Ráðstefna um
bygg á íslandi
LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
og Rannsóknastofnun landbún-
aðarins halda ráðstefnu um bygg
á íslandi föstudaginn 21. mars nk.
Tilefnið er að íslenskt bygg sem
kynbætt hefur verið á Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins og lagað
að íslensku veðurfari er komið á
markaðinn og í bænda hendur.
Gerð verður grein fyrir kynbótum
á byggi og stöðu kornræktar í land-
búnaði nú og í næstu framtíð. Ráð-
stefnan verður haldin í aðalstöðv-
um Rala á Keldnaholti í tengslum
við landsfund kornbænda og hefst
kl. 13.30.
Fyrirlesarar verða úr hópi
bænda, frá landbúnaðarráðuneyt-
inu og frá Rannsóknastofnun land-
búnaðarins. Þátttakendur skrái sig
í síma RALA í síðasta lagi á
fimmtudag.
ATVINNUAUGLÝSINGAR
Verkstæðismaður
Okkur vantar vanan verkstæðismann til starfa
strax. Mikil vinna. Upplýsingar gefur Páll
Gestsson í símum 565 3143 og 565 3140.
Klæðning ehf.,
Vesturhrauni 5, Garðabæ.
Vélaverk- eða
véltæknifræðingur
Traust og öflugt iðnfyrirtæki á
höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að
róða tæknimann til starfa við
þróunardeild fyrirtækisins.
í starfinu felst m.a. hönnun, eftirlit
með mótasmíð, umsjón með viðhaldi
véla og fyrirbyggjandi viðhaldi.
Við leitum að tæknimanni með reynslu
í ofantöldu að auki er æskilegt að við-
komandi hafi sveinspróf eða reynslu í
málmsmíði og þekkingu á AutoCad.
Kunnátta í ensku er nauðsynleg.
í boði er áhugavert og krefjandi fram-
tíðarstarf með góðri vinnuaðstöðu hjá
fyrirtæki sem er í örum vexti.
Með allar umsóknir verður farið með
sem trúnaðarmál og þeim öllum svarað.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir
til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.
merktar „Tæknimaður 123" fyrir
25. mars n.k.
Hagvangur hf
Skeifan 19
108 Reykjavík
Sími: 581 3666
Brófsími: 568 8618
Netfang:
hagvang@tir.skyrr.is
Veffang:
http://www.apple.is
/hagvangur
HAGVANGUR RAÐNINGARNÚNUSIA
Rétt þekking á réttum tima
-fyrir rétt fyrirtæki
Öflug félagasamtök óska að ráða
Framkvæmdastjóra
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Framkvæmdastjóri er ábyrgurfyrir daglegum
rekstri skrifstofu samtakanna í samráði við
framkvæmdastjórn.
Starfið felst m.a. í samskiptum við aðildarfé-
lög, undirbúningi funda, innheimtu, undirbún-
ingi landsþings sem haldið verður í haust og
öðrum verkefnum í samráði við framkvæmda-
stjórn.
Leitað er eftir drífandi og duglegum einstak-
lingi, sem tilbúinn er að takast á við fjölbreytt
og skemmtilegt starf. Áhersla er lögð á heiðar-
leika og traust í hvívetna aukfrumkvæðis, skip-
ulagshæfni og sjálfstæðis í vinnubrögðum.
Færni í mannlegum samskiptum og tungumál-
akunnátta telst einnig vera kostur. Um tíma-
bundna ráðningu er að ræða með möguleikum
á áframhaldandi starfi.
Nánari upplýsingar veittar í síma 892 1023.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
afgreiðslu Mbl. merkt: „Starf 6" fyrir 22. mars
nk.
Rafvirkjar
Óskum að ráða til okkar rafvirkja eða svein í
rafvirkjun með þekkingu á almennum lögnum,
stýrikerfum og rafbúnaði skipa. í umsókn skal
gefa upp menntun og fyrri störf;
Allar upplýsingar gefur Sævar Óskarsson.
Póllinn hf„ Aðalstræti 9,
400 ísafjörður,
sími 456 3092, fax 456 4592.
Vélstjóri
Vélstjóra vantar á frystitogara frá Hafnarfirði.
Vélarstærð yfir 2000 KW.
Umsækjandi þarf að geta byrjað innan þriggja
mánaða. Farið verður með umsóknir sem trú-
naðarmál.
Skila skal inn umsóknum á afgreiðslu Mbl.,
merktum: „S — 15395".
Röntgentæknar
Tvær stöður röntgentækna eru lausar
til umsóknar. Um er að ræða stöðu
yfirröntgentæknis og röntgentækis. Nánari
upplýsingar um stöður þessar vejtir skrifstofu-
stjóri sjúkrahússins í síma 431-2311.
Matreiðslumaður
Óskum eftir að ráða kokktil starfa á gisti- og
veitingastað um 100 km frá Reykjavík. Þarf að
geta hafið starf í byrjun apríl.
Upplýsingar í síma 437 2345, Margrét.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 18 = 1773198 = BK.
□ Glitnir 5997031919 I 1 Frl.
I.O.O.F. 7 = 17803198'/2 = 9.0
Helgafell 5997031919 IV/V 2 Frl.
I.O.O.F. 9 = 1783198V4 =
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Aðalfundur F.í. 19. mars
Aðalfundur Ferðafélags Island:
verður haldinn miðvikudags
kvöldið 19. mars í Mörkinni 6 o<
hefst stundvíslega kl. 20.00.
Venjuleg aðalfundarstörf. Árs
skírteini '96 þarf að sýna við inn
ganginn. Félagsmenn, kynnii
ykkur störf og stefnu félagsins o<
takið þátt í umræðum á aðalf
undi!
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Lofgjörð, bæn og biblíulestur
kl. 20.00 í umsjón Svans Magn
ússonar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Samkoma í kvöld kl. 20.
Jódís Konráðsdóttir predikar. Beðið
fyrir lausn á þínum vandamálum.
REGLA MUSTERISRIDDARA
RM Hekla
-19 - 3 - HRSV- MT
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund I kvöld kl. 20.00
ÉSAMBAND l’SLENZKRA
____> KRISÍNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60.
Samkoma í kvöld kl. 20.30
Kristniboðssalnum.
María Finnsdóttir segir frá
Eþíópíuferð.
Hugleiðing: Friðrik Hilmarsson.
Allir velkomnir.
ÝMISLEGT
Sumarbústaður
til leigu á Héraði. Sendum verð
tilboð. Upplýsingar í síma 471
1230 og 471-1850.
FUIMDIR/ MANIMFAGNAÐUR
Skeiðarársandur
Vlunið ferðina á Skeiðarársand laugardaginn
22. mars kl. 7.30.
Skráning í síma 533 6000.
Bíliðnafélagið,
Félag Blikksmiða,
Félag garðyrkjumanna,
Félag Járniðnaðarmanna,
Trésmíðafélag Reykjavíkur.
Málmur
Adalfundur Málmssamtaka fyrirtækja í
málm- og skipaiðnaði fer fram föstudag-
inn 21. mars á Hallveigarstíg 1 (1. hæð)
og hefst kl. 9.00.
Auk venjubundinna aðalfundarstarfa verður
fjallað umframleiðni í nútímarekstri og hlut-
verk millistjórnenda (verkstjóra) í þeim efnum.
Stjórnin.
Q O Fræðslufundur
Geðhjálpar
GEÐHJÁLP
verður fimmtudaginn 20. mars kl. 20.00 í
félagsmiðstöð Geðhjálpar, Tryggvagötu 9
(Hafnarbúðum).
Erindi: Almannatryggingar.
Fyrirlesari: Ingibjörg Stefánsdóttir, fræðslu-
fulltrúi, Tryggingastofnun ríkisins.
Geðhjálp.