Morgunblaðið - 19.03.1997, Side 48
48 MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBÖND
SÍÐUSTU VIKU
Umsátriö á
Rubyhryggnum
(The Siege at Ruby Ridge)
k k
Draumur sérhverrar
konu
(Every Woman's Dream)
kk'h
Ríkhaður þriöji
(Richard III) kkk'h
Bleika húsið
(La Casa Rosa) k k
Sunset liöið
(SunsetPark) k'h
í móðurleit
(Flirting with Disaster)
kkk
Banvænar hetjur
(Deadly Heroes)
Dauður
(DeadMan) k
Frú Winterbourne
(Mrs. Winterbourne) k k'h
Frankie stjörnugiit
(Frankie Starlight) k k'h
Dagbók morðingja
(Killer: A Journai ofMurder)
'h
Klikkaði prófessorinn
(The Nutty Professor) k-kk
Eyðandinn
(Eraser) kk'h
Sporhundar
(Bloodhounds) k
Glæpur aldarinnar
(Crime ofthe Century)
k k k'h
Próteus
(Proteus) k
Svaka skvísa 2
(Red Blooded 2) k'h
Bardagakempan 2
(Shootfighter 2) k
Ást og skuggar
(OfLove and Shadows) k k
Stolt Celtic - liðsins
(Celtic Pride) kk'h
Töfrandi fegurð
(Stealing Beauty) kkk
Skjala-
skapar
Lagermal eru okkar sergrein
Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi
fyrir vélvædd vörugeymsluhús
sem minni lagera.
Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar.
Aðeins vönduð vara
úr sænsku gæðastáli.
Mjög gott verð.
Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki.
Leitið ráða við skipulagningu
og byggingu lagerrýma.
Þjonusta - þehhing - raögjöf. Áratuga reynsla.
UMBOÐS- OG HEILDVERSL UN
SMIÐJUVEGI 70, KÓP. • SlMI 564 4711 • FAX 564 4725
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/SJÓINIVARP-ÚTVARP
MYNDBÖWD
Bull og vitleysa
Eyja Dr. Moreau
(The Island of Dr. Moreau)
Vísindaspcnnumynd
★ '/2
Framleiðandi: New Line Cinema.
Leikstjóri: John Frankenheimer.
Handritshöfundar: Richard Stanley
og Ron Hutchinson eftir sögu H.
C. Wells. Kvikmyndataka: William
A. Fraker. Tónlist: Gary Chang.
Aðalhlutverk: Marlon Brando, Val
Kiimer, David Thewlis og Fairuza
Balk. 96 mín. Bandaríkin. New Line
Cinema/Myndform 1997. Útgáfu-
dagur: 18. mars. Myndin er bönnuð
börnum yngri en 16 ára.
DR. MOREAU hefur búið í 17
ár á týndri eyju þar sem hann vinn-
ur við rannsóknir
sínar. Hann reyn-
ir að skapa hina
fullkomnu mann-
veru, og til þess
blandar hann
saman eiginleik-
um dýra og
manna. Á þróun-
arbrautinni verð-
ur því óumflýjan-
lega til margur vanskapningurinn.
Ég veit ekki hvernig bókin hans
H.C. Wells er, en þessi mynd er
hvorki mikið né gott kvikmynda-
verk. Það er því ótrúlegt að tekist
hafi að fá eins góða leikara til leiks,
og raun ber vitni. Þeir eru þó ekk-
ert sérlega sterkir í þetta sinn, og
verður hinn enski og sérstaki
Thewlis að teljast skástur. Forsend-
ur þess að myndin virki er að skapn-
ingar Dr. Moreau séu trúanlegir,
en því miður eru þeir of illa gerðir
til þess. Þótt margt sé luralega
gert og fáránlegt í myndinni, þá
hafði ég húmor fýrir henni framan
af. Hún er stundum spennandi og
skrímslin eru forvitnileg í fýrstu.
Það fóru að renna á mig tvær grím-
ur þegar kerlingin hann Brando
sagði að djöfullinn væri erfðaein-
kenni, og að lokum þynntist sagan
um of út, og útkoman er bull og
vitleysa. Þetta er svolítið fyndin til-
raun.
Hildur Loftsdóttir.
í hefndarhug_________________________
(Heaven’s Prisoners)
Spennumynd
★ '/2
Framleiðandi: Rank Film. Leikstjóri: Phil Jo-
anou. Handritshöfundar: Harley Peyton og Scott
Frank eftir sögu James Lee Burke. Kvikmynda-
taka: Harry Savides. Tónlist: George Fenton.
Aðalhlutverk: Alec Baidwin, Kelly Lynch, Teri
Hatcher, Eric Roberts og Mary Stuart Master-
son. 129 min. Bandaríkin. Rank Film Dist. og
PVM Entertainment/Sam myndbönd 1997. Ut-
gáfudagur: 13. mars. Myndin er bönnuð börnum
yngri en 16 ára.
Of löng
ALEC Baldwin leikur fyrrverandi lögreglu-
þjón sem hefur komið sér þægilega fyrir úti á
landi. Líf hans breytist til fyrri horfa þegar
flugvél nauðlendir í flóanum þar sem hann
býr. Hann bjargar lítilli stúlku úr flakinu, og
kemst að ýmsu misjöfnu þegar hann fer að
rannsaka hvaðan hún kemur. Myndin byggir
mikið á hefndarverkum lögreglumannsins.
Hann hefur uppi á illmennunum og kemur
þeim fyrir kattarnef. Því miður er myndin of
löng fyrir ekki burðugra plott. Áhorfandi bíður
spenntur eftir einhveiju sem aldrei verður.
Leikurinn er ekkert sérstak-
ur, og má þar kannski kenna
um klisjukenndri persónu-
sköpun. Leikstjórinn hefði átt
að leggja meira upp úr per-
sónusköpun við leikarana.
Alec hefur verið með háls-
bólgu meðan á tökunum stóð,
og hvíslar alla myndina. Kelly
Lynch er einstaklega óspenn-
andi og Mary Stuart Master-
son er skrýtið val leikstjórans í gleðikonuna.
Aðrir leikarar eru mjög í anda persónusköpun-
arinnar. Myndin er öll of flöt og hefði meiri
sköpunargleði getað gert kraftaverk.
Hildur Loftsdóttir
Nýr maður
á mettíma!
Orðin klónun, einræktun og fjölföldun hafa
verið mikið notuð í þjóðfélaginu að undan-
fömu eftir að kindin Dolly var flölfölduð.
Þóroddur Bjamason horfði á myndina
„Multiplicitiy“, á gölfölduðu myndbandi, og
velti þessari skemmtilegu „nýjung“ fyrir sér.
MYNDIN „ Mu Itiplicity “ eftir
Harold Ramis með Michael Keaton
í fjórum aðalkarlhlutverkunum og
Andy MacDowell í hlutverki eigin-
konunnar er ekki sannsöguleg
þótt sjálfsagt væri hægt að telja
einhverjum trú um það eftir að
kindin Dolly var búin til úr ann-
arri kind. Myndin er nú að koma
út á myndbandi hér á landi og er
líklegt að nýjustu afrek erfðavís-
indanna auki áhuga manna á
henni.
„We need
a miracle“
Myndin fjallar um byggingar-
verktakann Doug sem í upphafi
myndar er mjög önnum kafinn.
Lítill tími er afgangs fyrir heimil-
ið, eiginkonu og börn og áhuga-
málið, golf. Ofan á þetta allt lang-
ar eiginkonuna að fara að vinna
úti eftir 10 ára þjónustu á heimil-
inu en Doug tekur fálega í þær
hugmyndir. „We need a miracle"
(við þörfnumst kraftaverks) segir
hún þegar hún sér að öll sund eru
lokuð. En kraftaverkið er á næsta
leiti því svo virðist sem Doug sé
allt í einu að vinna við að reisa
einhveija efnafræðirannsóknar-
stöð eða slíkt og að honum kemur
ÆRIN Dolly hefur sýnt mönn-
um að hugmyndin að baki
myndinni „Multiplicity" er
alls ekki út í hött.
skilningsríkur prófessor og sér hve
Doug er önnum kafinn.
Læknirinn: „I can help you“.(Ég
get hjálpað þér.)
Doug: „How“? (hvemig?)
Læknirinn: „To change your life“
( að breyta lífi þínu.)
Þegar Doug vill fá að vita nánar
um hvaða aðferðum verður beitt
segir læknirinn: „ We make mirac-
les“ (við gerum kraftaverk) og
svo: „ We create time“ (við búum
til tíma) og það er einmitt það sem
Doug vantar. Hann skellir sér á
bekkinn hjá lækninum, tekið er
einskonar rafrænt tölvugifsmót af
honum og eftir tvo tíma vaknar
ÞRJÁR eftirmyndir Dougs í myndinni „Multiplicity“.
MICHAEL Keaton og Andy MacDowell
í hlutverkum sínum. Hjónalifið batnar
þegar fleiri menn geta sinnt skyldum
húsbóndans á heimilinu.
hann og sér tvífara sinn. Sannköll-
uð hraðþjónusta.
Ljósrit af ljósriti
Þegar hér er komið sögu rámar
blaðamann í að Dolly hafi ekki
orðið til á einum degi hvað þá
tveimur tímum og að svona full-
komin lífræn ljósritunarvél sé ekki
í notkun ennþá. En hvað um það,
nú kemst heimilislífið og ástarlífið
í lag og hver eftirmyndin af ann-
arri lítur dagsins ljós. Urkynjunin
er þó á næsta leiti, líkt og getur
gerst þegar of skyldir einstakling-
ar eignast börn saman eða þegar
ljósrit er tekið af ljósriti. Fjórði
Doug, sem eftirmynd
upprunalega Dougs læt-
ur taka af sér, verður
fáviti.
Að fjölfalda eitthvað
er svo sem ekki nýtt af
nálinni enda lifum við í
fjöldaframleiðsluþjóðfé-
lagi þar sem lögð er
áhersla á að reyna að
steypa sem flest í sama
mót til að öll samskipti
gangi sem auðveldast
fyrir sig. Á Macdonalds
veitingastöðum um all-
an heim er til dæmis
hægt að ganga að ná-
kvæmlega eins ham-
borgurum vísum, af-
greidda af nákvæmlega
eins starfsfólki sem talar eins og
brosir eins. Verið er að staðla alla
mögulega og ómögulega hluti í
nýrri Evrópu, smokka jafnt sem
fiskistauta og nú er komið að því
að fjöldaframleiða lífið sjálft og
staðla mennina.
Að lokum er rétt að stinga upp
á því við framleiðendur myndar-
innar að þeir taki sýni úr Michael
Keaton og setji í ræktun og geri
síðan endurgerð eða framhald
myndarinnar að þijátíu árum liðn-
um með fjórum alvöruleikurum af
holdi og blóði því tölvubrellur
mega sín lítils þegar raunveruleik-
inn er annars vegar!