Morgunblaðið - 10.05.1997, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Vinningsmögn-
leikarnir runnu
út í sandinn
GARRÍ Kasparov keppir við skáktölvuna Dimmblá.
SKÁK
Nc w Y o r k
SEX SKÁKA EINVÍGI
KASPAROVSOG
DIMMBLÁRRAR
Teflt dagana 3.-11. maí. Fimmta
einvígisskákin hefst í dag kl. 19
að íslenskum tíma.
ÞRÁTT fyrir sigurstranglega
stöðu í hróksendatafli tóks heims-
meistaranum Garrí Kaparov ekki
að knýja fram sigur í fjórðu ein-
vígisskákinni við ofurtölvuna
Dimmbláa. Líkt og í þriðju einvíg-
isskákinni varðist ofurtölvan af
mikilli útsjónarsemi í erfiðri stöðu
og þrátt fyrir að jafnteflisboðið
hefði komið flatt upp á skákský-
rendur var ekki meira að hafa í
lokastöðunni. Staðan í einvíginu
er því jöfn, 2-2, og síðustu tvær
skákirnar skera úr um úrslitin en
sigurvegarinn í einvíginu fær um
50 milljónir í sinn hlut.
Eftir skákina viðurkenndi
Kasparov að skákin hefði verið
erfíð og af taflmennskunni að
dæma hefur óhagstæð þróun síð-
ustu viðureigna tekið sinn toll af
baráttuþreki hans. Dimmblá
stýrði hvítu mönnunum og hafði
frumkvæðið eftir byijunina. Ka-
sparov tefldi hraustlega og greip
til þess ráðs að fórna peði. Fram-
haldið tefldi Dimmblá afar óná-
kvæmt. Hún lék tilgangslausum
leikjum og veikti peðastöðuna á
drottningarvæng. Að lokum kom
upp hróksendatafl þar sem Ka-
sparov hafði peði meira og betri
stöðu að auki. Rannsóknir virðast
staðfesta vinningsstöðu heims-
meistarans en honum urðu á mi-
stök og Dimmblárri tókst að halda
jöfnu eftir 56 leikja taflmennsku.
„Síðustu klukkustundimar vorum
við að vonast eftir jafntefli,“ sagði
Murray Campbell, einn aðstoðar-
manna Dimmblárrar, um skákina
og var ánægður með jafnteflið.
Hvítt: Dimmblá.
Svart: Garrí Kasparov.
Óregluleg byijun.
1. e4 - c6 2. d4 - d6 3. Rf3 -
Rf6 4. Rc3 - Bg4 5. h3 - Bh5
6. Bd3 - e6 7. De2 - d5 8. Bg5
- Be7 9. e5 - Rfd7 10. Bxe7 -
Dxe7 11. g4 - Bg6 12. Bxg6 -
hxg6 13. h4 - Ra6 14. 0-0-0 -
0-0-0 15. Hdgl - Rc7 16. Kbl -
f6 17. exf6 - Dxf6 18. Hg3 -
Hde8 19. Hel - Hhf8 20. Rdl -
e5!?
Hvítur hefur rýmri stöðu og
Kasparov grípur til þess ráðs að
fóma peði til þess að létta á stöð-
unni. Stöðueinkennin breytast
nokkuð og taflmennska hvíts er
afar gagnrýniverð í framhald-
inu.
21. dxe5 - Df4 22. a3? - Re6
23. Rc3 - Rdc5 24. b4? - Rd7
25. Dd3 - Df7 26. b5 - Rdc5 27.
De3 - Df4 28. bxc6 - bxc6 29.
Hdl - Kc7 30. Kal - Dxe3 31.
fxe3 - Hf7 32. Hh3? - Hef8 33.
Rd4 - Hf2 34. Hbl - Hg2 35.
Rce2 - Hxg4 36. Rxe6 - Rxe6
37. Rd4 -Rxd4 38. exd4 - Hxd4
39. Hgl - Hc4 40. Hxg6 - Hxc2
41. Hxg7+ - Kb6 42. Hb3+ -
Kc5 43. Hxa7 - Hfl+? Eftir 43.
- Kc4! 44. Hab7 - c5 eru hótan-
ir svarts óviðráðanlegar. 44.
Hbl - Hff2 45. Hb4! - Hcl+ 46.
Hbl - Hcc2 47. Hb4 - Hcl+ 48.
Hbl - Hxbl+ 49. Kxbl - He2
50. He7 - Hh2 51. Hh7 - Kc4?
52. Hc7 - c5 53. e6 - Hxh4 54.
e7 - He4 55. a4 - Kb3 56. Kcl
(sjá stöðumynd)
Mannlegir skákmenn hefðu
flestir leikið 56. Hxc5 - Hel+ 57.
Hcl - Hxe7 58. Hdl ogjafnteflið
blasir við. Dimmblá hefur á hinn
bóginn reiknað að í lokastöðunni
þarf ekki að óttast 56. - c4 57. a5
- c3 vegna 58. Kdl. Samið um
jafntefli.
Aruna-skákmótið í
Kaupmannahöfn
Jóhann Hjartarson heldur
áfram sigurgöngunni á mótinu og
hefur tveggja vinninga forystu
eftir sex umferðir. Staða efstu
manna er þessi: eftir 6 umferðir
1. Jóhann Hjartarson 5 v.
2.-5. Margeir Pétursson 3 v.
2.-5. Danielsen 3 v.
2.-5. Sokolov 3 v.
2. -5. Kettlinghaus 3 v.
Oðlingaskákmót
Jón Torfason sigraði á skák-
móti öðlinga eldri en 40 ára. Ólaf-
ur Ásgrímsson hefur haft veg og
vanda af mótunum sem notið hafa
mikilla vinsælda og var mjög vel
skipað að þessu sinni. Hraðskák-
mót og verðlaunaafhending verða
þriðjudaginn 13. maí kl. 20 í húsa-
kynnum TR við Faxafen.
1. Jón Torfason 6 v. af 7 mögul.
2. Kristján Guðmundsson 5 v.
3. -6. Júlíus Friðjónsson 4 v.
3.-6. Bragi Halldórsson 4 v.
3.-6. Ögmundur Kristinsson 4 v.
3.-6. Áskell Ö. Kárason 4 v.
Karl Þorsteins
Jóhann Hjart-
arson langefstur
á Aruna-mótinu
SKÁK
Kaupmannahöfn
ARUNA
STÓRMEISTARAMÓTIÐ
2.-12 maí — Tíu þátttakendur.
JÓHANN Hjartarson er með
tveggja vinninga forskot á næstu
menn eftir 6 umferðir á Aruna stór-
meistaramótinu í
Kaupmannahöfn.
Hann er með 5 7* vinn-
ing og eina jafnteflið
sem hann hefur gert
var gegn Margeiri Pét-
urssyni. Margeir er
enn í 2.-5. sæti og
hefur fengið 3 7* vinn-
ing. Nú eru þrjár um-
ferðir eftir á mótinu.
Jóhann á eftir að tefla
við nokkuð erfíða and-
stæðinga, þar á meðal
tvo þeirra sem eru í
2.-5. sæti: Henrik
Danielsen og Andrei
Sokolov. Dagskráin hjá
þeim sem eru með 3 'h
vinning er hins vegar
öllu Iéttari. Það má því búast við
að eitthvað dragi saman með Jó-
hanni og næstu mönnum í síðustu
umferðunum. Staðan að loknum 6
umferðum er þessi:
1. Jóhann Hjartarson 57* v.
2. -5. Margeir Pétursson, Henrik Dani-
elsen (SM, Danmörku), Ándrei Sokolov
(AM, Lettlandi), Ludger Keitlinghaus
(AM, Þýskalandi) 3 'h v.
6.-7. Jacob Aagaard (AM, Danmörku),
Sune Berg Hansen (AM, Danmörku) 3 v.
8. Tiger Hillarp-Persson (AM, Svíþjóð)
2'A 9. Erling Mortensen (AM, Dan-
mörku) 2 v.
10. Flemming Fuglsang (Danmörku) 0
v.
í 7. umferð hefur Jóhann svart
gegn Jacob Aagaard og Margeir
hefur svart gegn Ludger Keitling-
haus.
Rúnar Sigurpálsson
skákmeistari Norðurlands
Skákþing Norðlendinga 1997 var
haldið dagana 3.-6. apríl á Dalvík.
í opnum flokki tefldu 22 skákmenn
um titilinn skákmeistari Norður-
lands 1997. Tefldar voru 7 umferð-
ir, fyrst tvær atskákir
og síðan 5 kappskákir.
Sigurvegar varð Rúnar
Sigurpálsson, hlaut 6
vinninga. Röð efstu
manna varð þessi:
1. Rúnar Sigurpálsson 6 v.
2. Rúnar Búason 5'/2 v.
3. Stefán Kristjánsson 5 v.
4. -6. Jón Björgvinsson,
Ólafur Kristjánsson og Þór
Valtýsson 4 'A v.
Það er ekki algengt
að Reykvíkingar fjöl-
menni á Skákþing
Norðlendinga, en að
þessu sinni tók skáklið
Hagaskóla þátt í
keppninni ásamt þjálf-
aranum, Arngrími
Gunnhallssyni. Einnig tók 10 ára
gamall sonur hans, Dagur, þátt í
opna flokknum og stóð sig með
prýði. Stefán Krisjánsson, senr náði
3. sæti, teflir á 1. borði fyrir Haga-
skóla.
Stefán Bergsson sigraði í ungl-
ingaflokki 13-16 ára og hlýtur þar
með titilinn unglingameistari Norð-
urlands 1997. Tefldar voru 7 um-
ferðir með 45 mínútna umhugsun-
artíma. I 2. sæti varð Halldór B.
Halldórsson með 5 '/2 vinnning og í
3. sæti varð Eggert Gunnarsson,
fékk 5 vinninga.
Anna Kr. Þórhallsdóttir varð efst
stúlkna í unglingaflokknum, fékk 3
vinninga og hlaut titilinn unglinga-
meistari Norðurlands í stúlkna-
flokki. Stella Christensen hlaut
einnig 3 vinninga; en tapaði úrslita-
skák um titilinn. I 3. sæti varð Lilja
Sigurðardóttir með 2 vinninga.
I barnaflokki, 12 ára og yngri,
var Ómar Gylfason Norðurlands-
meistari, fékk 6 vinninga af 7.
Ágúst B. Bjömsson varð í 2. sæti
með 5 '/2 vinning og Gunnar I. Valdi-
marsson þriðji með 5 vinninga.
Ester Ö. Sigurðardóttir hlaut
stúlknatitilinn í þessum flokki.
Rúnar Sigurpálsson varð einnig
hraðskákmeistari Norðurlands,
vann allar sínar skákir, 13 að tölu:
1. Rúnar Sigurpálsson 13 v. af 13
2. Amar Þorsteinsson 12 v.
3. -4. Jón Björgvinsson og Arngrímur
Gunnhallsson 8 v.
í unglingaflokki í hraðskák-
keppninni varð röð efstu manna
þessi:
1. Eggert Gunnarsson 8 v. af 9
2. Sverrir Amarson 7 v.
3. Stefán Bergsson 6 v.
Dagur Arngrímsson, sem hafði
tekið þátt í opna flokknum á skák-
þinginu tefldi í barnaflokki í hrað-
skákkeppninni og sigraði þar:
1. Dagur Amgrímsson 9 v. af 9
2. Siguróli M. Sigurðsson 7 v.
3. Gunnar I. Valdimarsson 7 v.
Aðalfundur Skáksambands
Austurlands
Aðalfundur Skáksambands Aust-
urlands var haldinn í Fellaskóla í
Fellabæ þann 27. apríl. Sú breyting
varð á stjórn, að úr henni gekk, að
eigin ósk, Sverrir Unnarsson, Breið-
dalsvík, en í staðinn kom Rúnar
ísleifsson, Egilsstöðum. Stjórn
Skáksambands Austurlands er nú
þannig skipuð: Formaður: Guð-
mundur Ingvi Jóhannsson, Egils-
stöðum; ritari: Rúnar Isleifsson,
Egilsstöðum og gjaldkeri Erlingur
Þorsteinsson, Seyðisfirði. Vara-
menn: Sigurður Amarson, Skriðdal
og Viðar Jónsson, Stöðvarfirði.
Sveitakeppni Skáksambands
Austurlands 1997
Sveitakeppnin fór fram í Fella-
skóla í Fellabæ þann 27. apríl. Að
þessu sinni var teflt í þriggja manna
sveitum. Fjórar sveitir tóku þátt.
Þær vom Seyðisfjörður, Egilsstaðir,
701 (þ.e. svæðið umhverfis Egils-
staði) og svo ungliðasveit sem skip-
uð var tveimur skákmönnum úr
Fellabæ og einum af Völlum. Leik-
ar fóru svo, að 701-sveitin sigraði:
1. 701-sveitin 6'/2 v.
2. Egilsstaðir 5'/2 v.
3. Seyðisfjörður 5 v.
4. Ungliðasveitin 1 v.
Sigursveitin var skipuð þeim
Sverri Gestssyni, Fellabæ, Gunnari
Finnssyni, Jökuldal og Sigurði Arn-
arsyni, Skriðdal. Fyrir Egilsstaði
tefldu Guðmundur Ingvi Jóhanns-
son, Rúnar ísleifsson og Sölvi Aðal-
bjamarson.
Úrslit hraðmóta hjá SA í apríl
Skákfélag Akureyrar efndi til
nokkurra hraðmóta í apríl. Úrslitin
urðu þessi:
Haki Jóhannesson sigraði á 10
mínútna móti með skylduleikjum.
Haldið var sérstakt hraðmót fyr-
ir 45 ára og eldri. Sveinbjöm Sig-
urðsson sigraði á mótinu. Umhugs-
unartími var 10 mínútur.
Ólafur Kristjánsson sigraði á 10
mínútna móti og endurtók síðan
leikinn á 15 mínútna mótinu.
Rúnar Sigurpálsson vinnur
Amarobikarinn
Hið árlega hraðskákmót Skákfé-
lags Akureyrar um Amarobikarinn
fór fram 20. apríl. Rúnar Sigurpáls-
son sigraði á vel skipuðu móti. Röð
efstu manna varð þessi:
1. Rúnar Sigurpálsson 10 'h v.
2. Þór Valtýsson 9'/2 v.
3. Ólafur Kristjánsson 8 v.
4. Gylfí Þórhallsson 7'/2 v.
Gylfi Þórhallsson efstur á
atskákmóti
Skákfélag Akureyrar hélt at-
skákmót dagana 24. og 27. april.
Tefldar vom 7 umferðir eftir
Monrad kerfi.
1. Gylfi Þórhallsson 5 '/2 v.
2. Rúnar Sigurpálsson 5 7* v.
3. Ólafur Kristjánsson 5 v.
Efstu menn fengu peningaverð-
laun. Efstir af unglingum 15 ára
og yngri:
1. Halldór B. Halldórsson 2 v.
2. Egill Öm Jónsson 1 v.
3. Stefán Bergsson 1 v.
Ný íslensk skákbók á
Esperanto!
Nú er að koma út ný íslensk skák-
bók sem er um margt sérstök. Það
sem er óvenjulegast við þessa bók
er að hún er skrifuð á esperanto,
en höfundurinn, Pétur Yngvi Gunn-
laugsson, er mikill áhugamaður um
útbreiðslu þessa einstaka tungu-
máls. Efni bókarinnar ætti að koma
lesendum Morgunblaðsins kunnug-
lega fyrir sjónir, en hún inniheldur
273 stöðumyndir úr daglegum
fléttudálkum Margeirs Péturssonar
hér í blaðinu. Fléttumar era frá
1995. Þær hafa verið flokkaðar eft-
ir löndum og í mörgum tilfellum
hefur Pétur aukið við upphaflega
umfjöllun Margeirs í tengslum við
fléttumar. Íslenskir skákmenn eiga
drjúgan hlut að máli og fléttumeist-
aramir eru í mörgum tilfellum úr
röðum yngstu kynslóðar íslenskra
skákmanna. Það gefur bókinni auk-
ið gildi, að aftast í henni er listi
yfir skákmenn með tilvísunum í
fléttumar. Samkvæmt lauslegri yfír-
ferð yfir þann lista hefur hollenski
stórmeistarinn Jeroen Piket birst
oftast allra í fléttudálkunum árið
1995, eða 10 sinnum. Af íslenskum
skákmönnum kemur Amar E. Gunn-
arsson oftast fyrir, eða sex sinnum
og í öll skipti nema eitt situr hann
réttum megin við borðið!
Bókin ber heitið Sakaj pozicioj,
en tungumálið ætti ekki að vera
mikil fyrirstaða fyrir íslenska skák-
menn, því öll afbrigði eru rakin á
því alþjóðlega táknmáli, sem skák-
menn eru vanir.
Verð bókarinnar er kr. 1.140 og
hana má panta með því að senda
tölvupóst til mustramvortex.is, eða
í síma 562-4866.
Skáksambands
Islands
Aðalfundur Skáksambands ís-
lands verður haldinn laugardaginn
24. maí klukkan 10 að Faxafeni
12, Reykjavík. Aðildarfélög Skák-
sambandsins þurfa að senda skrá
yfír fullgilda félagsmenn fyrir 10.
maí. Félagaskráin á að miðast við
1. febrúar. Árgjald til Skáksam-
bandsins þarf að vera greitt þegar
aðalfundur hefst. Taflfélögum gefst
kostur á að birta stutta skýrslu um
starfsemi sína á síðasta starfsári í
ársskýrslu Skáksambands íslands.
Hafi félögin áhuga á þessu þarf
efni að hafa borist skrifstofu S.í. í
síðasta lagi 10. maí.
Daði Örn Jónsson.
Jóhann
Hjartarson