Morgunblaðið - 29.05.1997, Síða 1
88 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
118. TBL. 85. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Chirac býður upp á „draumalið“
Reyna að snúa
vörn í sókn
París. Reuter.
MEÐ blessun Jacques Chiracs
buðu frönsku stjórnarflokkamir í
gær upp á nýtt „draumalið" til þess
að freista þess að halda velli í seinni
umferð þingkosninganna á sunnu-
dag. Vaxandi ótti á fjármagnsmark-
aði við að vinstriflokkar fari með
sigur af hólmi leiddi til verðhruns á
hluta- og verðbréfum og lækkunar
frankans.
Andstæð sjónarmið innan stjóm-
arflokkanna þóttu jöfnuð í gær er
hinn félagslega sinnaði þingforseti,
Philippe Seguin, og herskár frjáls-
hyggjumaður, Alain Madelin, tróðu
upp saman á kosningafundi í Alpa-
bænum Chambery en þeir þykja
líklegir til að skipa embætti forsæt-
is- og fjármálaráðherra í nýrri
stjórn haldi flokkarnir velli.
Skoðanakannanir hafa ítrekað
sýnt að Seguin nýtur mests trausts
til embættis forsætisráðherra haldi
mið- og hægriflokkarnir velli. Hann
er fýrrverandi andstæðingur evr-
ópumyntarinnar. Hann sagði að sú
afstaða sín að bæta bæri hag
snauðra og atvinnulausra kæmi al-
veg heim og saman við skoðanir
Madelins sem boðað hefur uppræt-
ingu allrar efnahagslegrar miðstýr-
ingar. Hann var settur af sem fjár-
málaráðherra 1995 fýrir að ráðast
gegn forréttindum opinberra
starfsmanna.
Ríkisstjóm Alains Juppe hélt
sinn síðasta fund með Chirac for-
seta í gær. Af því tilefni varaði for-
setinn þjóðina við því að söðla um
því breyttu stjórnarmynstri fylgdi
mikil áhætta; breyting yrði tákn
um veikleika og glundroða.
Lionel Jospin, leiðtogi sósíalista,
hvatti Chirac til að sýna stillingu og
búa sig heldur undir að deila völd-
um með vinstrimönnum.
Reuter
ALAIN Juppe forsætisráðherra fer fýrir ráðherraliði sínu af síðasta
fundi stjómarinnar með Jacques Chirac forseta í Elyseehöll í gær.
Reuter
BILL Clinton Bandaríkjaforseti kemur í fylgd Beatrix Hollandsdrottn-
ingar til viðhafnarfundarins í Haag í gær.
Marshall-áætlunarinnar minnst
Sameinuð Evrópa
verði að veruleika
Haag. Reuter.
BILL Chnton Bandaríkjaforseti
skoraði í gær á Vesturlönd að taka
höndum saman um að láta samein-
aða Evrópu verða að veruleika með
því að veita ríkjum sem áður til-
heyrðu áhrifasvæði Sovétríkjanna í
mið- og austurhluta álfunnar dygg-
an stuðning við uppbygginguna eft-
ir fall járntjaldsins. Clinton lét þessi
orð falla í ávarpi sem hann hélt í
Haag, þar sem leiðtogar flestra
Evrópuríkja voru saman komnir
ásamt Bandaríkjaforseta til að
minnast tilurðar Marshall-áætlun-
arinnar fýrir 50 árum, sem hjálpaði
Vestur-Evrópu að endurreisa efna-
hag sinn eftir eyðileggingu síðari
heimsstyrjaldai-.
„Við eigum að fýlgja anda Mars-
hall-áætlunarinnar næstu 50 árin og
framyfir það til þess að byggja upp
lýðræðislega, friðsamlega og
óskipta Evrópu, í fyrsta sinn í sög-
unni,“ sagði Clinton.
Wim Kok, forsætisráðherra Hol-
lands, sem var gestgjafí minningar-
fundarins, flutti Clinton þakkir
hinna 16 landa sem nutu góðs af
áætluninni, en innan ramma hennar
var flutt fé og hjálpargögn yfir Atl-
antshafið að værðmæti um 13 millj-
arða bandaríkjadala, sem að núvirði
nálgast 6.000 milljarða króna.
Við minningarathöfnina tárfelldi
Helmut Kohl Pýzkalandskanzlari er
Clinton vék máli sínu að æskuminn-
ingum kanzlarans sem tengdust þvi
hvemig aðstoðin frá Bandaríkjun-
um hjálpaði til við að reisa land
hans úr rústum stríðsins.
Fyrr um daginn hafði Clinton set-
ið sameiginlegan leiðtogafund Evr-
ópusambandsins og Bandaríkjanna,
en slíkir fundir fara fram á hálfs árs
fresti. Þar sagði Clinton að nauð-
synlegt væri að einkageirinn í hin-
um ríku löndum vestursins fjárfesti
meira í austantjaldslöndunum fyrr-
verandi til viðbótar við þá aðstoð
sem þessi lönd þiggja nú þegar.
Átökin í norðurhéruðum Afganistans
Talebanar sigraðir
í götubardögiim
Mazar-i-Sharif. Reuter
Mjólk
komist
í tísku
London. Reuter.
MJÓLK verði tískudrykkur
eru einkunnarorð herferðar
fyrir hollustu mjólkurdrykkju
sem Evrópusambandið (ESB)
hefur afráðið að ýta úr vör og
kosta til þess 8,75 milljónum
ECU eða 700 milljónum
króna.
Tilgangur herferðarinnar
er einkum að fá ungt fólk,
undir 25 ára aldri, til að hefja
mjólkurdrykkju vegna nær-
ingargildis hennar. Bent er á
að það sé að hætti nútímafólks
að neyta mjólkur. Efnt verður
til mjólkur- og heilbrigð-
isvikna hér og hvar, mjólkur-
teitis, upplýsingaherferðar og
kynningar tengdri íþróttum.
Ætlunin er að fá ungt fólk til
að snúa sér að mjólkinni af
eigin hvötum en ekki vegna
þess að móðirin sagði því að
hún væri góð fyrir það.
SVEITIR Taleban-fylkingarinnar
voru gjörsigraðar í hörðum 15
klukkustunda bardaga í borginni
Mazar-i-Sharif í norðurhluta
Afganistans í gær. Pykir það mesta
áfall Talebana frá því þeir náðu höf-
uðborginni Kabúl í september.
Bardagarnir blossuðu upp
skömmu eftir fund leiðtoga Talebana
og stríðsherrans Abduls Malik, á
þriðjudag. Malik, sem er af úzbekís-
kum uppruna og gekk nýlega til liðs
við Talebana við að koma stríðsheiT-
anum Dostum frá völdum í norður-
héruðunum, snerist gegn hinum nýju
bandamönnum sínum nú.
Talebanar höfðu komið til borgar-
innai- á sunnudag, einum degi efth-
að menn Maliks náðu henni á sitt
vald. Til átaka kom er þeir fóru inn í
hverfi shíta í norðurhluta borgarinn-
ar og hugðust afvopna þar hersveitir
shítasamtakanna Hezb-i-Wahdat.
Shítarnh- tóku á móti þeim með skot-
hríð og ekki leið á löngu uns Malik
og menn hans slógust í lið með þeim.
Eftir að bardagarnir breiddust út
um borgina urðu hermenn Talebana,
sem eru óvanir götubardögum, að
hörfa frá æ fleiri borgarhlutum og
segja sjónarvottar að allt 3.000
manna lið þeirra sé nú horfið úr
borginni. Fulltrúi Hezb-i-Wahdat
sagði að hundruð Talebana hefðu
fallið í bardögunum auk þess sem ut-
anríkisráðherra ríkisstjómar þeirra,
Mohammad Ghous, og yfirmaður
hersveita þeirra í norðurhlutanum,
Abdul Razzaq, hefðu verið hand-
teknir.
í norðausturhéraðinu Baghlan
náðu Talebanar hins vegar borginni
Pul-i-Khumri á sitt vald, en borgin
tengh' mikilvæg landsvæði andstæð-
inga þeirra.
Landamærunum við
Uzbekístan lokað
Mikið er af fólki af úzbekískum og
tadjíkískum þjóðarbrotum í norður-
héruðum Afganistans. Á miðvikudag
var landamærum Úzbekístans og
Afganistans lokað vegna ótta um að
átökin breiddust út.
Sameinuðu arabísku furstadæmin
tóku á þriðjudag upp stjórnmála-
samband við stjórn Talebana og
m'ðu þar með þriðja ríkið, á eftir
Pakistan og Saudi-Árabíu, til að við-
urkenna stjórn þeirra.
Bannað
að slá
börnin
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
MEÐ aðeins eins atkvæðis
meirihluta voru lög um bann
við að slá böm samþykkt í
danska þinginu í gær. Stjórn-
arflokkamir, Jafnaðarmanna-
flokkurinn og Róttæki vinstri-
fiokkurinn, ásamt vinstri
flokkunum, vom hlynntir
banninu, en hægri flokkamir
börðust hatrammlega á móti.
Formælandi Venstre,
flokks Uffe Ellemann-Jensens
fyrrum utanríkisráðherra, til-
kynnti, að kæmist flokkurinn í
meirihlutastjóm yrði bannið
afnumið og Pia Kjersgárd for-
maður Danska þjóðarflokks-
ins hyggst reyna að fá þjóðar-
atkvæði um málið.
Sambærileg lög um bann við
að slá börn hafa fyrir löngu
verið samþykkt í Svíþjóð og
Noregi. Jafnheitar umræður
og vora í þinginu í gær hafa
ekki heyrst þar lengi. Hægri-
flokkarnir héldu því fram að
með banninu væri foreldram
gert uppeldið erfiðara. Hinum
bar saman um að lögin væra
eðlileg vernd á réttindum
barna.
FINCH fagnar að hnattflugi
loknu í Oakland í gær.
Hnattflugi
lokið
Oakland. Reuter.
LIND A Finch lauk í gær hnatt-
flugi sínu á sextugri flugvél, en
ferðin var farin í tilefni þess að
öld er liðin frá fæðingu flugkon-
unnar Ameliu Earhart.
Finch flaug flugvél sömu teg-
undar, Electra ÍOE, og Earhart
notaði í misheppnaðri hnatt-
fiugstilraun sinni 1937. Flugvél
hennar hvarf í grennd við
Howlandeyju í Kyrrahafi 2. júli
1937.
Finch lagði upp í hnattfiugið 17.
mars og hafði viðkomu á 30 flug-
völlum í 18 löndum. Sfðasti áfang-
inn, frá Honoiulu á Hawaii til
Oakland í Kaliforníu, var sá
lengsti eða 3.840 kflómetrar og
tók hann 15 klukkustundir.