Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 17
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Sjdmannadagsblað
Vestmannaeyjal997
er komið út og fæst á
eflirloldum stöðum:
Reykjavík: Grandakaffi,
Grandagarði,
Umferðamiðstöðinni og
Bókabúð Árbæjar.
Grindavík: Báran.
Keflavík: Bókabúð Keflavíkur
og Ný-ung.
Sandgerði: Verslunin Aldan.
Hvolsvöllur: Björkin.
Æftfyrir
sjómanna-
dag
Flateyri - Óðum styttist í sjó-
mannadag'inn og því við hæfi
að æfa gömlu róðrartökin fyrir
keppni á langbátum. Úr höfn-
inni á Flateyri bárust hvatning-
aróp mikil þegar kvennahópur
einn reri stíft undir hvatning-
arópum formannsins. Hér voru
á ferð bæði suður-afrískar og
filippseyskar stúlkur að æfa
sig. Þær gáfu sér þó tíma til
að líta upp og brosa í linsu
fréttaritara.
Sjómanna-
dagsblað
Vest-
mannaeyja
komið út
Vestmannaeyjum - Sjó-
mannadagsblað Vestmanna-
eyja 1997 er komið út. Blað-
ið, sem gefið er út af Sjó-
mannadagsráði Vestmanna-
eyja, er 165 blaðsíður og í því
eru um 260 ljósmyndir, bæði
gamlar og nýjar. Mjög fjöl-
breytt efni er í blaðinu og
meðal greina má nefna; „Mig-
ið í saltan sjó“, Fiskifræði sjó-
manna eftir Gísla Pálsson,
mannfræðing, og Jón G. Páls-
son. Sumarúthald í Smugunni
1968, eftir Arnar Einarsson.
Söluferð til Japans, eftir
Magnús Kristinsson. Nýsköp-
unartogararnir, eftir Tryggva
Sigurðsson. í Suðursjónum
fyrir sunnan Sker, eftir Guð-
jón Ármann Eyjólfsson og Jón
í Hlíð og Kapítóla, eftir Har-
ald Guðnason. Auk hinna
ýmsu greina, viðtala og frá-
sagna eftir fjölmarga höfunda
eru nokkrir fastir liðir á sínum
stað í blaðinu eins og minning
látinna, greinar frá Stýri-
mannaskólanum og Vél-
skólanum, frásagnir frá Sjó-
mannadeginum 1996, um-
fjöllun um breytingar á Eyja-
flotanum milli ára og ýmislegt
fleira.
Sigmar Þór Sveinbjörnsson
ritstýrir Sjómannadagsblaði
Vestmannaeyja nú eins og
nokkur undanfarin ár.
Sjómannadagsblaðið verð-
ur selt af blaðsölubörnum í
hús í Vestmannaeyjum auk
þess sem það mun fást í sölu-
turnum í Eyjum. Á höfuð-
borgarsvæðinu verður blaðið
selt í Grandakaffi, á Um-
ferðarmiðstöðinni og í Bóka-
búð Árbæjar.
Stjúpur 20 stk.
kv $99«-
Blandaðir litir
Stjúpur 10 stk.
kr371
H
Hreinir litir
Fjólur 10 stk.
kr 390^
Gular og bláar
iLi.
fimmtudag til sunnudags