Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIMAR
Skemmdasta
land Evrópu
LOKSINS, loksins
er búið að sýna okkur,
svo ekki verður ve-
fengt að við erum búin
að eyðileggja nærri
helming af gróðri
landsins og stöndum
hér, okkur til hneisu, á
skemmdasta landi I
Evrópu og þó víða
væri leitað.
Fram á þennan dag
hefur verið reynt með
öllum ráðum að kveða
niður allar ábendingar
um þann voða sem hér
ætti sér stað, með því
að segja að þetta væru
bara öfgar og áróður.
Skaðsemi óhóflegrar lausabeitar á
landinu væri ekki teljandi og land-
græðslan hefði í fullu tré við upp-
blásturinn, en því er nú ver. Nú er •
búið að sanna að vamaðarorðin áttu
sannarlega rétt á sér. Myndir af
gróðurþekju landsins úr lofti, með
innrauðum myndum, eru mikið áfall
fyrir þá sem reyndu að loka augum
fyrir staðreyndum. Já, lokuðu aug-
unum, til að geta fleytt
vandanum á undan sér,
og blygðunarlaust kom-
ið honum á næstu kyn-
slóð og þá auðvitað enn
stærri, því gróðureyð-
ingin og uppblásturinn
gengur hraðar og hrað-
ar eftir því sem sárin
stækka.
Það eru fleiri skað-
legir þættir við upp-
blásturinn en gróðu-
reyðing og tap á gróð-
urmoldinni, þegar hún
er fokin á haf út, því
þá byijar sandfokið
sem brennir og kæfir
gróður. Þar að auki
myndast mistur í loftinu sem varn-
ar sólargeislunum að komast í gegn
svo hitagráðan lækkar. Skógleysið
stuðlar einnig að kaldara og vinda-
samara veðurfari. Þannig höfum
við sjálf stuðlað að kaldara veður-
fari á landinu.
Forsetinn okkar tók þannig til
orða í ávarpi, að það rímaði ekki
við sjálfsmynd okkar að landið
Herdís
Þorvaldsdóttir
FYRIR GARÐA
OG SUMARHÚS
Girðingarefni • Þakefni • Grasfræ
Áburður • Garðáhöld
V/ð leggjum rækt viðykkar hag
MR búðin • Laugavegi 164
Símar: 551 1125 • 552 4355 • Fax: 581 4450
nnmi
Fimmtudag og föstudag verður
snyrtifrœðingur á staðnum og
veitir persónulega
ráðgjöf,
Kynnt verður nýja
„brúnn án sólar”
kremið ásamt öðrum nýjunum.
/) £
< '>otta
Kringlunni 4-6,
sími 588 1001.
væri versta eyðimörk álfunnar, að
hann sem forseti hvetti þjóðina til
landvarnar gegn voðanum svo
ókomnar kynslóðir gætu ekki álas-
að okkur um aldur og ævi fyrir að
eyðileggja fyrir þeim landið. Ég
veit að landgræðslan vinnur að því
fyrir offjár að reyna að halda í við
landeyðingu en hefur hvergi undan.
Þó nokkrir bændur hafa viðurkennt
staðreyndir um afleiðingar skipu-
lagslausrar rányrkju og vilja leggja
eitthvað að mörkum, a.m.k. á sínum
eigin jörðum eða afréttarlöndum,
en þetta dugir ekki til að hefta
gróðureyðingu.
Allt þetta erfiði minnir svolítið á
þau vinnubrögð að verið sé að
byggja hús, án þess að byija á
grunninum. Hvar endar það?
Útbúa þarf afgirt beit-
arlönd fyrir búfé, segir
Herdís Þorvaldsdótt-
ir. Þá fyrst er hægt að
græða landið upp með
einhverjum árangri.
Grundvöllurinn í þessu máli er sá
að ef von á að vera til þess að þetta
kostnaðarsama erflði skili árangri
þá þarf auðvitað að byija á því að
stöðva lausabeit búfjár (kinda og
hesta), útbúa afgirt beitarlönd fyrir
þessar skepnur, þá fyrst er hægt
að fara að græða landið með ein-
hverjum árangri. Þetta vita allir,
en ennþá eigum við ekki til menn
sem hafa kjark eða hugsjónir til
að vinna að þessu nauðsynjamáli,
þó í óefni sé komið. Við hælum
okkur af því að vera með hreint og
ósnortið land, þvílík blinda. Stað-
reyndin er sú að við erum að verða
þekkt fyrir að vera með skemmd-
asta land í Evrópu, það þarf að leita
til Norður-Afríku til samjafnaðar.
Þvílíkur heiður.
Kæru landar, tökum öll saman
höndum við þetta næstum ofur-
mannlega átak og byijum á grunn-
inum, þá fyrst fer að sjást árangur.
Höfundur er leikkona.
HUOÐKUTAR
Eigum hljóðkúta og pústkerfi í flestar
gerðii bifreiða. Tveggja ára ábyrgð á
heilum kerfum. ísetning á staðnum.
Nánari upplýsingar fást hjá sölumönnum
okkar í síma 588 2550
BílavörubúSin
FJÖDRIN
I fararbroddi
SKEIFUNNI2,108 REYKJAVÍK SÍMI 588 2550
S3QSIS
Hvert stefnir í geð-
heilbrigðismálum
barna og unglinga?
ÖLLUM sem láta
geðheilbrigðismál sig
nokkru skipta á ís-
landi hlýtur að renna
til rifja ástand mála á
barna- og unglinga-
geðdeild Landspítal-
ans (hér eftir nefnd
barnageðdeild).
Starfsmenn barna-
geðdeildar búa yfir
mikilli reynslu og
þekkingu sem nýtist
ekki sem skyldi vegna
ofurálags, eins og
kemur fram í nýlegu
viðtali við yfirlækni
deildarinnar í Mbl. Þar
kemur margt til. Ekki
síst áralangt fjársvelti en einnig
aukin eftirspurn eftir þjónustu,
m.a. vegna óheppilegrar þróunar
við endurskipulag sálfræðiþjón-
ustu í skólum sem nú heyrir undir
sveitarfélög. Ríki og sveitarfélög
takast á um kostnað á mörgum
vígstöðvum og herkostnaðurinn er
fólk sem á rétt á þjónustu sam-
kvæmt lögum, en fær hana ekki
vegna þess að ekki fæst skorið úr
hver á að borga fyrir hana. Ástand-
ið getur vart talist einkamál barna-
geðdeildar eða geðdeildanna al-
mennt heldur hlýtur það einnig að
varða faglega stjórn Landspítal-
ans, svo ekki sé talað um neytend-
ur þjónustunnar: börn, foreldra og
fagmenn innan og utan heilbrigðis-
þjónustunnar.
í skýrslu frá Hagsýslu ríkisins,
sem gefin var út í október 1993
og fjallaði um málefni barna og
unglinga, koma fram athugasemd-
ir um skipulag barnageðdeildar
sem vert er að gefa gaum. Höfund-
ar skýrslunnar velta því fyrir sér
hvort bamageðdeild geti tekið að
sér víðtækt ráðgjafar- og aðstoðar-
hlutverk (bls. 12). í því felst að
vera öðrum stofnunum til ráðgjaf-
ar um uppbyggingu þjónustu og
til sérfræðilegrar ráðgjafar í mál-
efnum einstakra hópa eða einstakl-
inga. Ekki var efast um að á barna-
geðdeild væri til þekking og
reynsla til þess að sinna slíku hlut-
verki. Aftur á móti voru efasemdir
um að slíkt gæti orðið og tilgreind-
ar sérstaklega tvær ástæður. Báð-
ar taka til innra skipulags Landsp-
ítalans. Fyrri ástæðan er hve lítill
sveigjanleiki er í skipulagi barna-
geðdeildar þar sem hún er hluti
af stærri stofnun og hefur þ.a.l.
takmarkað sjálfsforræði til að setja
sér eigin markmið og fylgja þeim
eftir. Seinni ástæðan tekur til
sjálfrar grundvallaruppbyggingar
allrar þjónustu spítala sem er
skiptingin í lækningasvið og hjúkr-
unarsvið. Þessar athugasemdir
þarf að taka alvarlega.
Nú hefur heilbrigðisráðherra
sagt á opinberum vettvangi að nýr
barnaspítali muni rísa innan tíðar.
Þegar sú bygging
kemst í gagnið verður
væntanlega úr sögunni
sú lélega aðstaða sem
þjakað hefur sjúklinga,
aðstandendur og
starfsfólk barnadeild-
arinnar. Með byggingu
nýs barnaspítala verða
málefni bama vonandi
sett í forgang innan
heilbrigðiskerfisins,
a.m.k. tímabundið. í
því sambandi þarf að
íhuga vandlega hvort
geðlæknisfræðileg
þjónusta við börn og
unglinga sé ekki best
komin undir sama þaki
og aðrar barnalækningar á vegum
Landspítalans. Slík endurskipu-
lagning mundi styrkja starf barna-
deildar Hringsins, sem nú nýtur
takmarkaðrar geðlæknisfræðilegr-
ar og sálfræðilegrar þjónustu, um
Hvernig samrýmist það
hugmyndum um for-
varnir í heilbrigðismál-
um, spyr Evald Sæ-
mundsen, að hafa að
hornreku þá vinnu sem
snýr að málefnum barna
o g unglinga?
leið og faglegur grunnur að barna-
geðlækningum gæti styrkst. Á
hinn bóginn verður allt tal um
endurskipulagningu marklítið
nema jafnframt verði tekið á hinni
úreltu skiptingu í lækningasvið og
hjúkrunarsvið.
Það fer ekki hjá því að áhorf-
endur og þolendur þeirrar þróunar
sem lýst hefur verið velti því fyrir
sér hvort barnageðdeild mæti til-
hlýðilegum skilningi innan
Landspítalans eða hjá heilbrigðis-
ráðuneytinu (sjá t.d. dylgjur að-
stoðarmanns ráðherra um þjón-
ustu deildarinnar). Hvernig sam-
rýmist það hugmyndum um for-
varnir í heilbrigðismálum að hafa
að hornreku þá mikilvægu vinnu
sem snýr að málefnum barna og
unglinga? Hvað hindrar Landspít-
alann í að bregðast við ástandinu
á faglega yfirvegaðan hátt? Af
hverju gengur svo hægt að fram-
fylgja ábendingum hinna sænsku
sérfræðinga sem gerðu úttekt á
starfsemi deildarinnar og Þorvald-
ur V. Guðmundsson lækningafor-
stjóri gerir að umtalsefni í Mbl.
24. maí sl.? Er ekki eitthvað hæft
í vangaveltum Hagsýslu ríkisins?
Höfundur er s&lfræðingur og
starfar á Greiningar- og
ráðgjafarstöð ríkisins.
Evald
Sæmundsen
- Gœðavara
Gjdfdvai a — inaldu og kaffislell.
Allir verðflokkar. ^
(JVERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Heimsfræqir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.