Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 72
 AS/400 er... ...mest selda fjölnotenda viðskiptatölvan í dag cO> NVHIRJI MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF6691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTR UM.IS AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGÚR 29. MAÍ 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Ríkisstjórnin skrifar ESB vegna Schengen Yfírþjóðlegt vald hindrar þátttöku RÍKISSTJÓRNIN hefur sent yfirvöldum í Evrópusambandinu bréf, þar sem sú afstaða kemur fram að verði Schengen-vega- bréfasamstarfið innlimað í svo- kallaða fyrstu stoð sambandsins og þar með sett undir yfirþjóð- legar stofnanir, sjái Island sér ekki fært að taka þátt í sam- starfinu. „Það eru settir sterkir fyrirvarar gagnvart slíku,“ segir Þorsteinn Pálsson dómsmála- ráðherra. Island og Noregur gerðu sam- starfssamning við aðildarríki Schengen-samningsins í desem- ber sl. Nú stefnir í samkomulag á ríkjaráðstefnu ESB um að samningurinn verði innlimaður í stofnsáttmála sambandsins. Hins vegar liggur enn ekki fyrir hvort vegabréfasamstarfið verð- ur hluti af hinni yfirþjóðlegu fyrstu stoð eða hluti af hefð- bundnu milliríkjasamstarfi í þriðju stoðj sem væri aðgengi- legra fyrir Island og Noreg. Dönsk og sænsk stjórnvöld hafa lýst yfir að þau muni ekki sætta sig við innlimun Schengen í Evrópusambandið nema Island og Noregur geti fellt sig við nið- urstöðuna. Verði ríkin tvö ekki aðilar að samstarfinu er Nor- ræna vegabréfasamstarfið úr sögunni. SÍF stefnir að því að styrkja stöðu félagsins í Noregi Kaupir helmingshlut í norskri saltfískvinnslu NÚ ER í burðarliðnum samningur um kaup SÍF á helmingshlut í norska fiskvinnslufyrirtækinu Loppa Fisk. Viljayfirlýsing um kaupin hef- ur verið undirrituð en stjóm SIF á eftir að samþykkja kaupin. Róbert B. Agnarsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri SÍF, segir kaupin ætl- uð til að styrkja starfsemi félagsins í Noregi og tryggja sér gæðafisk til sölu. Þekkt fyrir vandaða framleiðslu Fyrirtækið Loppa Fisk er í eigu bræðranna Arvids og Leifs Thor- björnsen og er það í Öksfjord í Finn- mörku. Þeir bræður reka einnig fyr- irtækið Nykvaag í Noregi og er uppistaða íramleiðslu þeirra saltfisk- ur. Róbert segir að á siðasta ári hafi SIF keypt saltfisk af þeim, en þessi tvö fyrirtæki séu þekkt fyrir vand- aða framleiðslu á saltfiski. Stefnt er að því að þarna verði afkastamikil saltfiskvinnsla, en greiður aðgangur er að hráefni eins og ufsa og þorski. Báðum til hagsbóta „Tilgangur okkar með kaupum á helmingshlut í Loppa Fisk er að framleiða þar enn betri fisk, sem hentar markaðskerfi okkar betur en almennt gerist í Noregi. Með þessu nálgast SÍF fisk á eigin forsendum og Loppa Fisk kemst inn í sölukerfi SIF og verður samstarfið því báðum aðilum til hagsbóta. Þetta er einnig eðlilegt framhald af starfsemi okkar í Noregi síðustu misserin. Við höfum keypt mikið af fiski þar, en átt erfitt með að fá framleiðendur til að auka gæði framleiðslunnar og flokka fiskinn betur. SIF er þekkt fyrir að bjóða staðlaðan gæðafisk á mörkuðunum erlendis, sem kaupendur geta pant- að eftir vörunúmerum og treyst á gæðaflokkun fisksins. Gæði fram- leiðslunnar í Noregi hafa almennt verið lakari en hér og fiskurinn oftar en ekki seldur úr landi óflokkaður,“ segir Róbert B. Agnarsson. Kaupverð á helmingshlut í norska fyrirtækinu fæst ekki uppgefið, enda hefur ekki endanlega verið gengið frá kaupsamningi. Dorgað við bryggjuna BLÖNDUÓSINGAR eru farnir að mæta niður á bryggju til að veiða silung. Þegar fréttaritari var á ferð á dögunum var þessi ungi áhuga- sami veiðimaður mættur ásamt móður sinni sem fylgdist vel með. Vert er að brýna fyrir börnum að nota björgunarvesti til að forðast slysin. -------------------- Hjartaskurðdeild Landspítalans fer inn á nýjar brautir við lagfæringar á kransæðum Fyrsta hjartaaðgerðin með brjóstholsspeglun Flugleiðir hætta flugi á Patreksfjörð Morgunblaðið/Jón Sigurðsson FLUGLEIÐIR hafa hætt flugi til Patreksfjarðar með tilkomu nýrrar sumaráætlunar síðastliðinn mánu- dag. Páll Halldórsson, framkvæmda- stjóri innanlandsflugs Flugleiða, sagði í samtali við Morgunblaðið að fyrirtækið hefði skrifað samgöngu- ráðuneytinu bréf og skilað inn sér- leyfi til áætlunarflugs á Patreks- fjörð. „Ástæðan er fyrst og fremst sú að frá árinu 1993 til loka síðasta árs hefur farþegum fækkað úr 4.534 í 2.731. Með tilkomu þeirrar breyting- ar sem er að verða í innanlandsflug- inu sjáum við okkur ekki fært að halda þessu áfram en munum frekar nýta vélakostinn á öðrum og arðbær- ari leiðum,“ sagði Páll. 1. júlí nk. gengur í gildi frjálsræði í innanlandsflugi með aukinni sam- keppni. HM f handbolta Lokað vegna leiksins ÍSLAND gæti komist í fjög- urra liða úrslit heimsmeistara- keppninnar í handknattleik í fýrsta skipti í dag, með sigri á Ungverjum. Þjóðirnar mætast kl. 9 árdegis að íslenskum tíma í Kumamoto í Japan. Mikill áhugi er á leiknum hérlendis, sem meðal annars má merkja af því að nokkur fyrirtæki í Reykjavík auglýstu í gær í útvarpi að þau yrðu lokuð milli kl. 9 og 10.30 í dag, þannig að starfsfólk gæti fylgst með leiknum, sem verð- ur sýndur beint í Sjónvarpinu. ■ fþróttir/C blað Miðlunartil- laga í dag RÍKISSÁTTASEMJARI ákvað í gær að leggja fram miðlunartillögu í kjaradeilu verkalýðsfélaga og vinnu- veitenda á Vestfjörðum og verður til- lagan kynnt deiluaðilum fyrir hádegi í dag. Kosið verður um miðlunartil- - löguna á morgun, föstudag. I lögum um stéttarfélög og vinnu- deilur segir að miðlunartillaga teljist felld í atkvæðagreiðslu ef meira en helmingur greiddra atkvæða er á móti henni og ef mótatkvæði eru fleiri en fjórðungur atkvæða sam- kvæmt atkvæða- eða félagaskrá. ■ Ekki bjartsýnn/10 Á HJARTASKURÐDEILD Land- spítalans var fyrir skömmu gerð laparaskópíaðgerð, en það er hjartaaðgerð með brjóstholsspegl- un. Notuð er sama tækni og við kviðsjáraðgerðir. Gert er lítið gat á brjóstholið og farið þar inn með lítið tæki sem læknirinn stjórnar. Með tækinu er gert við biluðu kransæð- ina. Þetta er í fyrsta .skipti sem slík aðgerð er gerð á íslandi. Grétar Ólafsson, yfirlæknir á hjartaskurð- deild, segir að verulegur sparnaður fylgi þessari nýju tækni og sjúkling- urinn sé fljótari að jafna sig. Bjarni Torfason hjartaskurð- læknir gerði aðgerðina á sjúklingn- um, en til aðstoðar var Hörður Al- freðsson hjartaskurðlæknir og fleira starfsfólk hjartaskurðdeildar. „Þetta er yfirleitt aðeins gert við ákveðna tegund skemmda í kransæðum, þ.e. viðgerð á kransæð á framvegg vinstri slegils. Það era reyndar dæmi um að djarfir menn í Bandaríkjunum hafi fengist við fleiri kransæðar. Það er gert lítið gat á brjóstholið og farið þar inn með speglunartæki. Síðan er tekin æð, sem liggur til hliðar við bringu- beinið upp að axlarslagæð, í gegn- um speglunartækið og saumuð með aðstoð þess við kransæðina. Þessi aðgerð er sú fyrsta þessarar teg- undar sem gerð er hér á landi og tókst mjög vel. Við eigum eftir að gera fleiri slíkar aðgerðir í framtíð- inni,“ sagði Grétar. Umtalsverður sparnaður „Það er töluvert mikill ávinningur af því að gera þetta með þessum hætti. Við þurfum ekki að nota hjarta- og lungnavél og þau einnota áhöld sem tengjast henni, en þau kosta mikla peninga, líklega yfir 200 þúsund krónur. Við þurfum hins vegar að hafa sama starfslið því það verður að vera til taks ef setja þarf sjúkling í hjarta- og lungnavél. Sparnaðurinn liggur því í efnis- kostnaði." Grétar sagði að aðgerð mef brjóstholsspeglun tæld styttri tímt en hefðbundin hjartaskurðaðgerð of sjúklingurinn væri fljótari að jafn; sig. Meðallegutími á sjúkrahúsi eftii hjartaskurðaðgerð er 7-10 dagar. Losna við stóra og erfiða aðgerð Grétar sagði að hefðbundnai hjartaskurðaðgerðir væru stórai aðgerðir sem reyndu mikið á sjúk- linginn, lækna og hjúkrunarfólk. „Það er skorið alveg frá hálsi og niður fyrir bringbeinið og það klofið eftir endilöngu. Síðan er opnað inn í gollurshúsið og hjartað eiginlega frflagt. Að því loknu er slöngusett- um komið fyrir til þess að pumpa blóði inn í líkamann og til að taka við því. Hjartað er stöðvað og sett af stað aftur þegar búið er að gera aðgerðina. Þær aðgerðir sem við gerum eru yfirleitt mjög erfiðar aðgerðir. Þeg- ar það er hægt er sjúklingurinn yf- irleitt settur í kransæðavíkkanir þannig að við fáum erfiðustu tilvik- in. Við erum oftast nær með marga æðasjúkdóma. Að meðaltali setjum við 4-5 nýjar kransæðar í hvern sjúkling," sagði Grétar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.