Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 5 7 Samþykkt deildar- ráðs gerð með 5 sam- hljóða atkvæðum i MORGUNBLAÐINU hefur borist . eftirfarandi yfirlýsing vegna skrifa um uppsögn lektors í spænsku (frá I deildarráði heimspekideildar Há- skóla Íslands 1994-95): „í tilefni greinar Önnu Þorsteins- dóttur, Valdníðsla er þjóðarmein, í Morgunblaðinu 22. maí 1997 viljum við undirrituð, sem sátum í deildar- ráði heimspekideildar Háskóla ís- lands 1994-95, taka eftirfarandi fram: Sú ákvörðun að auglýsa lektors- > stöðu í spænsku og segja Aitor Yra- ola þar með upp störfum var engan | veginn auðveld, og því fer fjarri að deildarráð hafi tekið hana að óathug- uðu máli eða umræðulítið. Þótt engin samþykkt væri gerð í málinu fyrr en á fundi deildarráðs 3. febrúar 1995 hafði það oftar en einu sinni áður verið rætt á fundum ráðsins. Eins og fram hefur komið í grein Vésteins Olasonar, þáverandi deildarforseta, í I Morgunblaðinu 24. apríl var leitað álits lögfræðinga á þessari málsmeð- ferð áður en deildarráð tók ákvörðun sína. Samþykkt deildarráðs var því gerð í góðri trú um að öllum forms- atriðum væri fullnægt. Það er fráleitt að halda því fram að pukrast hafi verið með málið og deildarforseti knúið samþykktina fram. Samþykkt deildarráðs var gerð með 5 samhljóða atkvæðum, án mótatkvæða. Sum okkar undirrit- aðra greiddu tillögu deildarforseta atkvæði sitt, en önnur sátu hjá. Það er þó ekki aðalatriði málsins nú, heldur hitt, að lýsing Önnu Þor- steinsdóttur á málsatvikum er í veigamikium atriðum ýmist villandi eða röng. Þann misskilning viljum við leiðrétta. Um efnisatriði málsins vísum við hins vegar til orðsendingar sem háskólarektor hefur sent fjöl- miðlum.“ Ármann Jakobsson, Ástráður Ey- steinsson, Eiríkur Rögnvaldsson, Hrefna Karlsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Oddný Sverrisdóttir, Páll Skúlason, Pétur Knútsson og Torfi H. Tulinius. (Tekið skal fram að ekki náðist til þeirra Mikaels M. Karlssonar og Þórs Whitehead, sem eru erlendis.) Landsfundur Landssam- bands aldraðra hefst í dag - FJÖRÐI landsfundur Landssam- bands aldraðra verður haldinn fimmtudaginn 29. og föstudaginn 30. maí 1997 í Hafnarborg við " Strandgötu í Hafnarfirði. Fundur- inn verður settur kl. 10 í fundar- salnum á annarri hæð hússins. Við fundarsetningu ávarpa fundinn þau Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son, formður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Landsfundir eru haldnir annað • hvert ár og eru því innri mál Lands- sambandsins verulegur þáttur í starfi fundarins. Uppbyggingu fé- laga eldri borgara í einstökum byggðarlögum er nú að verða lokið og starfsaðstaða félaganna hefur batnað verulega með auknu sam- starfi við félagsmálastofnanir sveitarfélaganna á sviði félags- og tómstundastarf. Landssamband aldraðra hefur nú starfað í átta ár. Það var stofn- í -------------------;--------- Vorsýning á tréskurði TRÉSKURÐARMENN sýna hand- verk sitt um næstu helgi í Viðarm- iðluninni, húsnæði Skógræktar rík- 4 isins í Suðurhlíðum 38 í Reykjavík. Sýningin verður opnuð föstu- 1 daginn 30. maí og stendur fram á | sunnudaginn 1. júní. Sýningartími er frá kl. 13-18 alla daga utan sunnudags þegar opnað er kl. 14. Á sýningunni verða munir unnir í ýmsar tijátegundir með mismun- andi tækni. Þá verða á sýningunni verk eftir tréskurðarmenn með mismunandi reynslu og kunnáttu. Tilgangur sýningarinnar er fyrst | og fremst að kynna tréskurð og j efla áhuga fólks á þessu gamla en j þó sífellt unga handverki. Skógarganga í kvöld ÖNNUR skógarganga skóg- ræktarfélaganna, Ferðafélags Is- lands og Búnaðarbankans um „Græna trefilinn“ hefst í dag, I fimmtudaginn 29. maí, kl. 20. Gengin er raðganga um útmörk i höfuðborgarsvæðisins og hefst ' önnur gangan við gróðrarstöð Skógræktarfélags Hafnarfjarðar að á Akureyri hmn 19. júní 1989, af 9 félögum eldri borgara. Fyrstu verkefni Landssambandsins voru að beita sér fyrir stofnun nýrra félaga um allt landið og eru þau nú orðin 45 félögin, með nærri þrettán þúsund félagsmenn, sem senda fulltrúa á þennan landsfund. Vegna fjölda félagsmanna og vax- andi verkefna eru nú til meðferðar nokkrar breytingar á lögum og skipulagi landssambandsins. Um næstu mánaðamót opnar Lands- samband aldraðra skrifstofu fyrir starfsemi sína á Suðurlandsbraut 30 á 2. hæð, í sambýli með nokkr- um verkalýðsfélögum. Verður þar um verulega bætta starfsaðstöðu að ræða og aukna starfsemi. Síðari fundardaginn verður svo kosin ný forysta fyrir landssam- bandið til næstu tveggja ára. Verði lagabreytingar samþykktar þarf að kjósa formann og 20 manna sam- bandsstjóm, sem velur sér fram- kvæmdastjórn til daglegra starfa. við Kaldárselsveg og gengið verður um Fremstahöfða og Seldal að Hvaleyrarvatni. Mæting og rútu- ferð verður frá Mörkinni 6, húsi Ferðafélagsins, kl. 19.40 og við gróðrastöð Skógræktarfélags Hafnarfjarðar kl. 20. Staðkunnir leiðsögumenn frá skógræktarfé- lögunum og Ferðafélaginu verða með í för og segja frá því sem fyrir ber. Næsta ganga verður fimmtu- daginn 5. júní. Gengið verður frá Hvaleyrarvatr.i að Vífilsstaðatúni. Göngurnar eru við allra hæfi og allir velkomnir. Kynning á Kriya Yoga HALDIN verður kynning á Kriya Yoga föstudaginn 30. maí kl. 20 í Bolholti 4, 4. hæð. Dagana 31. maí til 1. júní verður svo haldið námskeið í Kriya Yoga á sama stað. Swami Prajnanananda Giri, sem var hér á landi síðasta sumar, er kominn aftur til að kynna og kenna Kriya Yoga. Á íslandi er Yogan- anda sennilega þekktastur sem höfundur bókarinnar Hvað er bak- við myrkur lokaðra augna eða Sjálfsævisaga yoga. Vs ^ i I Jk á. m 26 nýir leiðsögumenn 26 NYIR lejðsögumenn frá Leið- söguskóla íslands útskrifuðust 22. maí sl. eftir að hafa lært í vetur um eldfjöll, fugla og plönt- ur, Islandssögu, bókmenntir og helstu ferðamannastaði lands- ins. „Myndin var tekin við út- skriftina og horfa leiðsögumenn glaðir fram á veginn og bíða þess í ofvæni að miðla farþegum sínum af þeim fróðleik sem þeir hafa Iært,“ segir í fréttatilkynn- ingu frá Leiðsöguskóla íslands. Sveitarstjórn Súðavíkur hvet- ur til sátta S VEITARSTJ ÓRN Súðavíkur harmar að ekki hafi tekist að binda enda á verkfallið á Vestfjörðum sem nú hefur staðið á sjöttu viku og hvetur deiluaðila til sátta. Tjón Súðvíkinga nú þegar er tilfinning- anlegt enda atvinnulíf í kauptúninu lamað. Verkfallið hefur stöðvað starfsemi Frosta hf. og haft áhrif á fiest heimili í Súðavík, segir í ályktun frá sveitarstjórn Súðavíkur. Ennfremur segir: „Súðavíkur- hreppur er stærsti hluthafinn í Frosta með 43% hlutafjár. Þetta eru því miklir hagsmunir í húfi fyrir alla íbúa Súðavíkur að samningar náist. Byggð hefur verið upp öflug rækjuvinnsla í Súðavík. Verksmiðja Frosta hf. er ein glæsilegasta rækjuvinnsla landsins sem veitir um 90 manns atvinnu og ber uppi at- vinnulíf á staðnum. Fyrirtækið ger- ir út tvo togara, Bessa og Andey.“ Jafnframt: „Tjón vegna verk- fallsins fyrir Súðvíkinga er þegar orðið mikið. Ekki hefur tekist að standa við gerða samninga um af- hendingu á rækju. Mikið tjón er orðið á áralöngu markaðsstarfi og einstakir sölusamningar hafa þegar tapast. Byggðir á norðanverðum Vest- fjörðum standa veikt og á undan- förnum árum hefur íbúum fækkað og atvinnulíf dregist saman. Þessa þróun verður að stöðva. Deilan mun án efa hafa áhrif á allt mannlíf á Vestfjörðum til lengri tíma. Nauð- synlegt er að efla byggðir og styrkja atvinnulíf í fjórðungnum." Gigtarvika í Hjálpartækja- bankanum SÉRSTÖK gigtarvika verður haldin í Hjálpartækjabankanum, Hátúni 12, dagana 2.-6. júní nk. og er hún haldin í samvinnu við Gigtarfélag íslands. Gigt hijáir nú fimmta hvern íslending og snertir því mjög marga landsmenn á einn eða annan hátt, segir í fréttatilkynningu. Hjálpartækjabankinn hefur m.a. sérhæft sig í þjónustu við fólk með gigtarsjúkdóma og þar fást áhöld og tæki sem auðvelda fólki dagleg störf. Þessi sérhönnuðu áhöld spara krafta og minnka verki. Má þar nefna: Sérhannaða hnífa, skæri, opnara, ostaskera, mataráhöld, lyk- ilgrip, penna, sokkaífærur og grip- tangir. Einnig eru í boði ýmis þjálf- unartæki s.s. boltar, teygjur, þjálf- unarleir og margt fleira. Á meðan á gigtarvikunni stendur eru gestir og gangandi velkomnir í Hjálpartækjabankann til að skoða og prófa hin ýmsu tæki. Þar standa þeim til boða leiðbeiningar hjá iðju- þjálfa og sjúkraþjálfa um notkun tækjanna sem og leiðbeiningar um liðvernd. Opið verður frá kl. 10-17 alla dagana. Flutningur á lif- andi flatfiski SIGURÐUR Pétursson, M.Sc.-nemi í sjávarútvegsfræðum, heldur fyrir- lestur um rannsóknarverkefni sitt föstudaginn 30. maí kl. 14 á líf- fræðistofnun HÍ, Grensásvegi 12, í stofu G-6. Fyrirlesturinn er loka- verkefni til meistaraprófs í sjávar- útvegsfræðum við líffræðiskor raunvísindadeildar HÍ og er öllum opinn. Meistaraverkefnið fjallar um söfnun flatfiska úr veiði, eldi þeirra og flutning lifandi á markað. „Til- gangur þessa verkefnis er að finna leiðir til þess að auka verðmæti flat- fisks. í kjölfar bættrar heilbrigðis- og gæðavitundar neytenda hefur eftirspurn eftir lifandi sjávarafurð- um verið í miklum vexti. Dæmi eru um að neytendur séu tilbúnir til þess að greiða allt að áttfalt hærra verð fyrir lifandi sjávarfang saman- borið við ferska afurð. Að halda flatfiski lifandi frá veiðum og á markað er leið til þess að mæta kröfum neytenda og um leið auka verðmæti aflans," segir í fréttatil- kynningu. Safnað handa iangsjúkum börnum ÁKVEÐIÐ hefur verið að hefja söfnun fyrir nýstofnað félag sem kallast Éinstök börn. Um er að ræða foreldrahóp barna innan Um- hyggju með sjaldgæfa langvinna sjúkdóma. „í dag eru um 26 börn sem til- heyra félaginu. Innan þessa barna- hóps eru börn með ýmsa syndrome sjúkdóma, meltingarfærasjúkdóma, sjúkdóma í lifur og nýrum o.s.frv. Þau börn sem ekki deyja á unga aldri ná aldrei fullum bata og bera menjar sjúkdómsins alla ævi. Það er von aðstandenda félagsins að fólk taki þessari söfnun vel. Söfnun- in fer þannig fram að hringt verður í hús og geisladiskar með ýmsum titlum boðnir til kaups á sanngjörnu verði. Það er fyrirtækið Litlibær ehf., Ármúla 36, Reykjavík, sem mun annast þessa söfnun og hagnaður- inn af henni mun renna til Ein- stakra bama,“ segir í fréttatilkynn- ingu. Innritun hafin í Skólagarða Reykjavíkur SKÓLAGARÐAR Reykjavíkur starfa á sjö stöðum í borginni, við Holtaveg, í Laugardal, í Árbæ, vest- an Árbæjarsafns, í Fossvogi, við Bjarmaland, við Jaðarsel og Stekkjabakka í Breiðholti, við Þorragötu í Skerjafirði og í Folda- hverfi fyrir austan Logafold. Skólagarðarnir eru ætlaðir börn- um 8 til 12 ára, f. árin 1985 til 1989. Innritun verður dagana 29. og 30. maí og hefst kl. 8 í hveijum garði fyrir sig. Eldri borgarar geta innritað sig 5. júní í þeim görðum sem rými leyfir. Þátttökugjald er 1.000 kr. fyrir hvern gróðurreit. Fyrirlestur um fólk og sambönd FYRIRLESTUR sem nefnist Karlar, konur og sambönd verður fluttur í Norræna húsinu föstudaginn 30. maí kl. 19. Á eftir verða umræður. Fyrirlesarar eru þrír og koma frá Bretlandi. Á laugardaginn verða sömu aðilar með námskeið fyrir karla og konur í Norræna húsinu og fjalla þar um sama efni. Minningar- athöfn á Ingólfstorgi KJARKUR, félag óvirkra fíkla, gengst í kvöld fyrir minningarat- höfn um fórnarlömb vímuefna. Hópganga hefst á Hlemmi klukk- an 21 og verður gengið niður á Ingólfstorg, þar sem kveikt verður á kertum. Síðan mun sr. Halldór S. Gröndal flytja minningarorð. Að lokum spila Bubbi og KK. LEIÐRÉTT Hurðin sett í árið 1921 í frétt hér i Morgunblaðinu í gær, var haft eftir Páli Bjarnasyni arkí- tekt að hurð hafi verið sett í stað miðjugluggans á þeirri hlið Iðnó sem veit að Tjörninni, árið 1919. Hið rétta mun vera, að hurðinni var komið fyrir árið 1921. Skýrsla um nám á háskólastigi í UMFJÖLLUN um skýrslu menntamálaráðherra um nám á háskólastigi í Morgunblaðinu í gær var ranglega haft eftir Sigríði Önnu Þórðardóttur, formanni mennta- málanefndar Alþingis, að nýlega hafi verið samþykkt löggjöf um háskóla og grunnskóla. Hið rétta er að löggjöf hefur verið samþykkt um framhaldsskóla og grunnskóla. Ennfremur féll niður í greininni að frumvörp um háskóla og Kenn- ara- og uppeldisháskóia voru til umfjöllunar á Alþingi í vor og er að sögn Sigríðar samkomulag um það í menntamálanefnd að bæði frumvörpin verði afgreidd fyrir næstu áramót.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.