Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR A Niðurstaða rannsóknar á hópmeðferð offitusjúklinga hjá Heilsustofnun NLFI Árangiirimi betri hér en erlendis NIÐURSTÖÐUR rannsókna á hópmeðferð offitusjúklinga við Heilsustofnun Náttúrulækningafé- lags íslands í Hveragerði benda til góðs árangurs slíkra meðferða. 35% þeirra 146 einstaklinga sem tóku þátt í meðferðinni segjast enn vera að léttast og 18% segja þyngd sína standa í stað. Rannsóknir er- lendis sýna að þar léttast 5 - 15% offitusjúklinga að meðferð lokinni. Offita er vaxandi vandamál á Vest- urlöndum og benda rannsóknir til þess að 30% íbúa séu of þung. Tölur Hjartaverndar benda til svip- aðs hlutfalls hjá íslendingum. Er þetta fyrsta könnunin sem gerð er hérlendis á langtímaárangri fólks með offituvanda. Eiríkur Orri Guðmundsson, 4. árs læknanemi, hefur í samráði við Sigurbjörn Birgisson, sérfræðing í lyflækningum og meltingarsjúk- dómum, unnið að rannsóknum á skammtíma- og langtímaárangri offituhópmeðferða NLFÍ í Hvera- gerði og voru helstu niðurstöður kynntar á ráðstefnu læknadeildar HÍ á þriðjudag. Þátttaka kvenna í hópmeðferð- unum var mun meiri en karla og sýndu þær einnig betri skamm- tímaárangur. Enginn munur var á árangri kynjanna til lengri tíma litið en þá var árangur betri hjá þeim sem yngri eru. Allir þátttak- endur léttust meðan á meðferð stóð og tapaði hver einstaklingur að meðaltali 6 kg. Sjúklingar sem völdust til meðferðar áttu allir við verulegt offituvandamál að stríða en meðalþyngd þeirra var 110 kg. Meðalaldur þátttakenda var 40 ár og voru langflestir úr aldurshópn- um 30-40 ára. Hver hópmeðferð stóð yfir í 1 mánuð og þar var Kosið um prest í Garðasókn PRESTKOSNINGAR í Garðasókn verða næstkomandi laugardag. Alls eru 6.610 manns á kjörskrá og kosið verður í Flataskóía milli kl. 9-19. Tveir umsækjendur eru um embætti prests í sókninni, séra Örn Bárður Jónsson og Hans Markús Hafsteinsson guðfræðing- ur. Fjölþætt reynsla Séra Örn Bárður Jónsson sagði að kosningarnar legðust vel í sig. „Eg vænti þess að sóknarbörn meti fjölþætta reynslu mína og störf. Eg hef komið víða við í starfi kirkjunnar og hef löngun til þess að halda uppi öflugu og þróttmiklu safnaðarstarfi með áherslu á innra trúarlíf og fræðslu,“ sagði séra Örn Bárður. Sálgæsla og áfallahjálp Hans Markús Hafsteinsson kvaðst hafa einbeitt sér mjög að sálgæslu og áfallahjálp í sínu námi. „Ég vil stuðla að því að við styrkj- um börnin okkar innan frá, innan fjölskyldunnar, þannig að þau verði ungt fólk, sterkt innra með sér og sátt við Íífið og tilveruna. Þegar þau fá tilboð um hættuleg efni verði lífsstíll þeirra þannig að það henti þeim ekki að koma nálægt slíku,“ Hans Markús. Morgunblaðið/Þorkell SIGURBJÖRN Birgisson (t.v.) og Eiríkur Orri Guðmundsson. lögð áhersla á líkamsrækt og neyslu fitusnauðs fæðis. Röngu mataræði kennt um í máli Eiríks Orra Guðmunds- sonar kom fram að vænlegast til árangurs sé að meðferð sjúklinga heijist snemma, áður en fylgikvill- ar eins og slitgigt, sykursýki og hjartasjúkdómar gera vart við sig. Aðspurð sögðust 90% þátttakenda kenna röngu matarræði um offitu sína. Aðrar algengar orsakir voru hreyfingarleysi og of mikil vinna. Um 70% kvennanna tiltóku með- göngu sem stóran orsakaþátt í offituvanda sínum. Að sögn Eiríks virðist mikilvægt að hvetja fólk til að halda sam- bandi við hópinn eftir að meðferð lýkur. Meðferð þyrfti að efla og auka þyrfti eftirlit með sjúklingum að meðferð lokinni. Leggja þeir Eiríkur og Sveinbjörn ríka áherslu á að meðferðin sjálf sé einungis til þess ætluð að koma fólki af stað, offita sé iangtímasjúkdómur sem krefjist breytinga á lífsháttum til frambúðar. Ákjósanlegt væri að sjúklingur missti l‘/2 kg. á viku og í langan tíma. Til mikils væri að vinna því offitusjúklingum væri tvisvar sinn- um hættara við sjúkdómum en fólki í kjörþyngd og lífslíkur þeirra væru minni. Upplýsingaskrif- stofa húsnæðismála fyrir Reykvíkinga 7.000 stúku- sæti tilbúin LOKAFRÁGANGUR á 7.000 nýjum stúkusæt- um var í fullum gangi á Laugardalsvelli í gær. Undanfarnar vikur hefur 3.500 sætum verið komið fyrir I gömlu stúkunni á aðalleik- vanginum, en auk þess var byggð ný stúka andspænis henni sem rúmar 3.500 manns í sæti. Sætin á leikvanginum eru samskonar og eru m.a. notuð af Real Madrid á Spáni. Eru samkvæmt aþjóðlegum staðli, en ekki má lengur selja miða inn á millilanda knatt- spyrnuleiki nema á völlum með sætum af samskonar tagi. Stúkurnar tvær verða notað- ar á Smáþjóðaleikunum í næstu viku, en verða formlega vígðar á landsleik íslands og Lithá- en þann lO.júní. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson SIÐASTA hönd var lögð á stúkusæti á Laugardals- velli í gær, en búið er að setja upp 7000 stúkusæti. Forstöðumaður Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála um samræmdu prófin Skýrar reglur um próffræðilegt mat ÞÓRÓLFUR Þórlindsson, forstöðu- maður Rannsóknastofnunar upp- eldis- og menntamála, segist hafa orðið var við þá skoðun meðal dönskukennara að samræmda próf- ið í dönsku í ár hafi verið of létt og vel megi vera að það sé rétt hjá þeim en það breyti hins vegar engu um þá skoðun sína að endurbætur á kennslu og námsefni í dönsku að undanfömu séu að skila sér í betri árangri nemenda. Ennfremur segir hann að til greina komi að birta tvennskonar einkunnir fyrir sam- ræmdu prófín, niðurstöðurnar eins og þær koma úr prófunum og norm- aldreifðar niðurstöður sem eru sam- bærilegar milli ára og greina. Þá segir Þórólfur það mikinn misskilning sem fram hafi komið í umræðunni um samræmd próf á síðustu dögum að starfsmenn Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála semji samræmdu próf- in og fari yfir þau og leggi síðan sjálfír mat á niðurstöðurnar. „Þetta er misskilningur sem skýt- ur upp kollinum aftur og aftur og því er rétt að taka það skýrt fram að prófm eru samin af sérfræðingum úr hópi kennara, sem tilnefndir eru af fagsamtökum þeirra og það eru líka kennarar sem fara yfir prófín. Hins vegar erum það við sem berum ábyrgð á ferlinu og allri úrvinnslu prófanna,“ segir Þórólfur. Til greina kemur að styðjast við normaldreifingu einkunna Hann segir gagnrýni vissulega nauðsynlega og sjálfsagt að hlusta á hana og taka mark á henni. Hann bendir á að lagt sé próffræðilegt mat á áreiðanleika og réttmæti prófanna og að til séu skýrar reglur um aðferðir við slíkt mat. Því séu niðurstöður þess staðreyndir sem standa, óháð því hver reiknar. „Það má svo alltaf deila um hvort próf eru þung eða létt. Það sem sumum finnst vera þungt próf finnst öðrum auðvelt. Eina leiðin til að gera prófin sambærileg frá ári til árs eða reyna að bera saman námsárangur milli prófa í ólíkum greinum, sem er náttúrulega enn erfiðara, er að styðjast við normal- dreifíngu einkunna. Þess vegna höfum við á RUM oftar en ekki birt hvort tveggja; niðurstöðumar eins og þær koma úr prófunum og normaldreifðar niðurstöður sem eru þá sambærilegar milli ára og greina,“ segir Þórólfur og bætir við að þar á bæ sé raunar verið að íhuga þann möguleika. BORGARRÁÐ hefur samþykkt reglur fyrir upplýsingaskrifstofu húsnæðismála í borginni. Markmið skrifstofunnar er að Reykvfkingar í húsnæðisleit geti á einum stað fengið upplýsingar um helstu leiðir við útvegun á húsnæði. Gert er ráð fyrir að skrifstofan taki til starfa 1. september nk. á Suðurlandsbraut 30. Upplýsingaskrifstofan er sam- starfsverkefni milli Húsnæðis- nefndar og Félagsmálastofnunar og er eitt af tilraunaverkefnum borgar- innar sem reynslusveitarfélags. Verkefni skrifstofunnar verða að veita Reykvíkingum ítarlegar upp- lýsingar um leigu- og söluíbúðir á vegum borgarinnar, almennar upp- lýsingar um úrræði í húsnæðismál- um á vegum annarra aðila svo sem íbúðir fyrir aldraða, fyrir náms- menn og öryrkja. Jafnframt að veita almennar upplýsingar um sölu- og leigumarkað íbúða í borginni, svo sem almenn kjör og fjármögnunar- leiðir. Persónuleg ráðgjöf Auk þess á skrifstofan að veita Reykvíkingum persónulega ráðgjöf um tiltæk úrræði í húsnæðisvanda með hliðsjón af fjárhagslegum og félagslegum forsendum. Er starfs- fólki ætlað að fara yfir Ijármál viðkomandi með honum og meta hvort og hvaða rétt hann eigi og hvaða leiðir séu honum fjárhags- lega færar. Jafnframt fer fram greiðslumat vegna þeirra sem sækja um eigna- eða kaupleigu- íbúðir. Að því loknu skal umsögn vísað til söludeildar Húsnæðis- nefndar í samræmi við reglur Hús- næðisstofnunar ríkisins og endan- legrar afgreiðslu Húsnæðisnefnd- ar. Gert er ráð fyrir að á skrifstof- unni verði tekið á móti umsóknum um leiguíbúðir, sem borgin hefur til umráða og umsóknum um félags- legar eignaríbúðir og kaupleigu- íbúðir á vegum Húsnæðisnefndar. Umsóknum um leiguíbúðir á vegum borgarinnar ásamt álitsgerðum verður vísað til hverfaskrifstofu Félagsmálastofnunar í því hverfi, þar sem umsækjandi býr. Endan- legt mat á umsóknum, frekari af- greiðsla þeirra og viðskipti við um- sækjendur fer eftir það fram hjá Félagsmálastofnun. Sameining Reykjavíkur og Kjalarneshrepps Kosið á átta stöðum í Reykjavík KOSIÐ verður á átta stöðum í 33 kjördeildum í Reykjavík um sam- einingu Kjalarneshrepps og Reykjavíkur þann 21. júní næst- komandi. Kosið verður í átta lq'ördeildum í Ráðhúsinu, tíu kjördeildum í Laug- ardalshöll, sex kjördeildum í Fella- skóla, þremur kjördeildum í Árbæj- arskóla og þremur kjördeildum í Foldaskóla. Áðrar kjördeildir verða á Grund, Hrafnistu og í Hátúni. Gert er ráð fyrir að kjörfundur standi milli kl. 10 og 22. Kjörstað- ur á Grund verður opinn milli kl. 10 og 12, á Hrafnistu milli kl. 13 og 15 og í Hátúni 12 milli kl. 16 og 22.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.