Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 6
I V ryyo f t /. t>* oo ciT yr> A CJr VTtf'htT'l 6 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 yrn > *a’/’Tr>rrmr MORGUNBLAÐIÐ Björg-unarsveitarmenn í Fiskakletti sækja egg í Krýsuvíkurberg- á hverju ári FÉLAGAR í björgunarsveitinni Fiskakletti gerðu sér ferð að Krýsuvíkurbergi á laugardag til að sækja svartfuglsegg sem eru í miklum mæli í bjarginu, en sveitin leigir nytjaréttinn af Hafnaríjatð- arbæ. í ferðinni lenti einn sveitar- manna f hrakningum og þurfti að hanga í lausu lofti í tæpan hálftíma án þess að geta björg sér veitt, eft- ir að bilun varð í sigbúnaðinum. Dagur Jónsson, einn björgunar- sveitarmanna, segir að lauslega áætlað séu tugir þúsunda eggja í bjarginu og hafi sveitin sótt egg þangað í um tvo áratugi. Þau eru síðan seld verslunum á höfuðborg- arsvæðinu til Qáröflunar fyrir sveitina. Bjargið „tæmt“ á tíu dögum „Við erum farnir að þekkja bjargið mjög vel og tel ég raunar að fáir rati betur þar um, eins og kom í ljós þegar við sigum niður að flaki togarans Þorsteins GK, sem strandaði fyrir neðan bjargið í vet- ur,“ segir Dagur. Um tíu daga tekur að fara um bjargið og hafa sveitarmenn sótt „nokkur þúsund egg“, að sögn Dags. Sveitarmenn flokka eggin sjálfir og beita við það verk heima- smíðuðu tæki til að gegnlýsa þau, svo að mikið stropuð egg rati ekki í fyrsta eða annan flokk. Sveitarmenn binda taugarnar í bifreiðar sveitarinnar og notfæra sér vélaraflið til að síga og hífa eft- ir atvikum. Allt að fimmtán manns taka þátt í hverri ferð að bjarginu, en yfirleitt sígur aðeins einn í einu á hvern bíl, sem eru þrír. Bergið er hæst rúmlega 70 metrar, eða álíka og turn Hallgrímskirkju. „Þeir sem finna fyrir loft- hræðslu sleppa því einfaldlega en hinir hafa gaman af þessu prfli og að sækja eggin. Fuglinn er ekki að- gangsharður, fyrir utan kannski álkuna sem ræðst stundum á okkur PÁLMI kominn upp á brún, alls hugar feginn að hafa fast land undir fótum en Magnea Karls- dóttir, félagi hans í Fiskakletti, tæmir úr eggjapokanum í geymslukassann. Með þeim er áhugasamur áhorfandi sem var í ferð að bjarginu í blíðviðrinu. Bösas VÍÍM _ Morgunblaðið/Golli PÁLMI Másson, einn félaga í björgunarsveitinni Fiskakletti, þurfti að hanga í lausu lofti um fimm metra frá Krýsuvíkurbergi í tæpan hálftíma sl. laugardag og snúast um sjálfan sig meðan hann beið aðstoðar. EFTIR að hann var dreginn að syllunni hélt hann áfram að leita eggja, eins og ekkert hefði í skorist. SVEITARMENN safna mörg þúsund svartfuglseggjum á hveiju ári og hafa gert í um tvo áratugi. í kröppum dansi í Krýsuvíkurbergi niðri í fjörunni þegar við stingum hendi milli steinanna," segir Dag- ur. Ferðirnar að bjarginu hafa yfir- leitt gengið eins og í sögu, en síð- astliðinn laugardag varð undan- tekning þar á, þegar einn sveitar- manna var í sigi. I miðjum klíðum brotnaði undan svo kölluðu brúna- hjóli, sem hlífir tauginni við nún- ingi á brúninni, þannig að taugin fór út af hjólinu og festist í skoru á brúninni. Taugin skemmdist við þetta og þurfti sigmaðurinn, Pálmi Másson, að hanga í lausu lofti um fimm metra frá bjarginu og tutt- ugu metra fyrir ofan stórgrýtta fjöruna í tæpan hálftíma. Meðan beðið var eftir næsta bfl, sem var um fímm kflómetra í burtu, snerist hann ósjálfbjarga um sjálfan sig. Dró félaga sinn að „Mér tókst að losa reipið úr skorunni og sá að það var svo að segja ónýtt, þannig að ekki var talið ráðlegt að hífa manninn upp í þeirri taug,“ segir Dagur. „Við létum band síga niður til annars sigmanns, sem var á syllu í bjarg- inu, og hann kastaði því til félaga síns og dró hann inn á sylluna. Þegar bfllinn kom á vettvang seig ég niður með taug og við hífðum þá upp. Pálma varð ekki meint af þessu.“ Sala á eignum Fáfn- is á Þingeyri Niður- staða fæst í dag FISKVEIÐASJÓÐUR og Landsbanki íslands eru í við- ræðum við framkvæmdastjóra fisksölufyrirtækis og fisk- verkanda um sölu á frystihúsi og öði-um eignum sem þessar lánastofnanir hafa yfirtekið á Þingeyri. Búist er við niður- stöðu í dag. Fiskveiðasjóður, Landsbanki Islands og Byggðastofnun aug- lýstu til sölu þær eignir Fáfnis hf. sem stofnanirnar yfirtóku á Þingeyri. Nokkir aðilar sýndu áhuga. Ákveðið var aff ganga til viðræðna við Eyþór Hai'aldsson framkvæmdastjóra fisksölufyr- irtækisins Norfisk hf. í Reykja- vík og Ketil Helgason eiganda Bolfisks hf. í Bolungarvík, fyrir hönd væntanlegs hlutafélags. Eins og fram hefur komið hafa þeir hug á að hefja vinnslu Rússaþorsks á Þingeyri. Ekki tókst að fá niðurstöðu á viðræðufundi aðila síðdegis í gær og segir Hinrik Greipsson hjá Fiskveiðasjóði að eftir eigi að skýra nokkur atriði. Búist er við að til úrslita dragi í dag. „Ég er ánægður með þau við- brögð sem við fengum við aug- lýsingunni. Þau sýna að oftast eru til einhverjir sem vilja takast á við atvinnurekstur, ef þeir fá til þess tækifæri," segir Guðmundur Malmquist, for- stjóri Byggðastofnunar. Unnið að stofnun hlutafálagsins „Norðvesturbandalagiðu sem á að kaupa og reka sláturhús Ætla að sameina fjögur sláturhús UNNIÐ er að sameiningu fjögurra sláturhúsa á Norðurlandi vestra, Ströndum og í Dalasýslu undir vinnuheitinu „Norðvesturbandalag- ið“. Ef samstaða næst verður stofn- að sérstakt hlutafélag sem kaupir sláturhúsin og rekur. Núverandi eigendur sláturhúsanna verða hlut- hafar ásamt búnaðarsamböndunum og ýmsum fjárfestum. Hugmyndin að sameiningu slát- urhúsa á þessu svæði kom fyrst upp fyrir tveimur árum. Fyrst voru fleiri sláturhús á Ströndum og Vest- fjörðum með en þau duttu út eitt af öðru þar til húsin á Hvammstanga, Borðeyri, Hólmavík og Búðardal stóðu eftir. Kaupfélag Vestur-Hún- vetninga á Hvammstanga hafnaði að lokum þáttttöku í sameiningu síðastliðið haust vegna þess hvað stutt var í sláturtíð. Þráðurinn var aftur tekinn upp á þessu ári og nú er talið betra útlit fyrir jákvæðri niðurstöðu. Nokkuð góð samstaða er um málið, nema í Vestur-Húna- vatnssýslu. Samþykkt hefur verið á kaupfélagsfundi á Hvammstanga að vinna að málinu en endanlegt sam- komulag verður lagt fyrir fulltrúa- fund í byrjun júnímánaðar. Jón Álfreðsson, kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar á Hólmavík, segir að tilgangurinn með sameiningu sláturhúsanna sé að auka hagræðingu í slátrun á svæðinu. Miðað er við að einu slát- urhúsanna, væntanlega sláturhús- inu á Borðeyri, verði lokað strax í haust og þá fæst betri nýting á hin húsin. Jón telur einnig að möguleik- ar skapist til sérhæfingar. „Þá ætti einn stór sláturleyfishafi að vera sterkari en margir srnáir," segir Jón. Höfuðstöðvar félagsins verða á Hvammstanga. Þar er nýjasta og best búna sláturhús félagsins sem leyfi hefur til að slátra fyrir Evr- ópumarkað. Óeðlileg samkeppni Búnaðarsamböndin á svæðinu hafa sótt um styrk til Framleiðni- sjóðs landbúnaðarins til að leggja fram hlutafé í nýja slátursamlagið, samtals um 20 milljónir kr. Sam- kvæmt upplýsingum Tómasar Gunnars Sæmundssonar í Hrúta- tungu, formanns Búnaðarsambands Vestur-Húnavatnssýslu, verður það lagt til við stjórnir búnaðarsam- bandanna að arður sem nýja hluta- félagið kann að greiða út gangi beint til bænda. Utlit er fyrir að Búnaðarsamband Vestfjarða gerist einnig hluthafi en mikilir erfiðleikar hafa verið í rekstri sláturhúsa á Vestfjörðum. Sigfus Jónsson, eigandi slátur- hússins Ferskra afurða ehf. á Hvammstanga, segir að aldrei hafi verið við sig rætt vegna þessarar sameiningar. Hann segist ekkert sjá athugavert við sameiningu slát- urhúsanna, ef hún verði ekki styrkt með opinberu fé og vísar þar til Framleiðnisjóðs. „Það er óeðlileg samkeppni þegar sumir fá ómælt fé úr sjóðum almennings á meðan aðr- ir verða að gera út á eigin reikning. Ég trúi því ekki að löggjafinn líði það, að minnsta kosti ekki á meðan stjórnmálaflokkur sem skreytir sig með frjálsri samkeppni hefur stjórnarforystuna með höndum,“ segir Sigfus. Aukin úrvinnsla „Við bindum miklar vonir við þetta nýja félag,“ segir Tómas Gunnar Sæmundsson. Bendir hann sérstaklega á möguleikana á auk- inni úrvinnslu lambakjöts hjá félag- inu. „Ég vil sjá sláturleyfishafana vinna kjötið miklu meira, þannig að það sé tilbúið fyrir neytandann. Framtíðin í útflutningi liggur einnig í meira unnum afurðum, við sjáum það á Höfn,“ segir Gunnar. 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.