Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 37 Lim gn- ids. Helgi Þor- Hersveinn segja ma allt frá heimilum u til mannkynbóta, mynda. Morgunblaðið/Golli láskóla island, býður forseta ís- i Guðrúnu Katrínu Þorbergsdótt- 1 söguþing. Voces Thules. ðlunin elsið blöð. Yfirleitt fylgja blöð einhverri pólitískri stefnu, taka afstöðu til ein- stakra mála og lýsa jafnvel stuðn- ingi við ákveðinn flokk en þau skilja rækilega á milli leiðaraskrifa og fréttaskrifa. Þetta var ekki gert á tímum flokksfjölmiðla á íslandi og breyttist ekki fyrr en á síðustu árum. ísland hafði því mörg einkenni van- þróaðs lands í þessum efnum, nán- ast alla þessa öld. Þessi þróun var löngu um garð gengin í nálægum löndum. í Danmörku voru flokks- fjölmiðlar ráðandi á 19. öld, en snemma á þessari öld breyttust stærri blöðin." Morgunblaðið var stofnað að danskri fyrirmynd, og átti, rétt eins og Vísir, að vera frjálst og óháð dagblað og ekki að taka afstöðu til TÁKNMYND: Franskir guðsmenn að kaupa landa sína af Tyrkjum í Algeirsborg. Fleiri sluppu úr höndum Tyrkja en talið var FJÓRÐA undirskriftin á íslenska bréfinu til konungs árið 1629. Getur einhver lesið úr henni? Tilgátan er að nafnið sé Stígur Oddsson. ALÞEKKT er að 37 íslendingar voru keyptir heim árin 1635-36 í kjölfar Tyrkjaráns, en meðal þeirra var Guð- ríður Símonardóttir. Hinsvegar er síður kunnugt að átta íslendingar voru keyptir úr ánauð í Algeirsborg í Norður-Afríku árið 1645 eða 18 árum eftir mannránið í Grindavík, Vestmannaeyjum og á Austfjörðum. Þorsteinn Helgason sagnfræðing- ur hefur unnið að doktorsritgerð, m.a. í Kaupmannahöfn, um atburðina þegar sjóræningjar höfðu nær 400 manns með sér frá íslandi til Norður- Afríku árið 1627 en það er líklega stærsta sjórán á saklausu fólki í landi sem þekkt er í Norður-Evrópu. „Ég uppgötvaði skjöl sem skráð voru undir Spán á Ríkisskjalasafninu í Kaupmannahöfn," segir Þorsteinn, „og í þeim kemur fram að Danir gerðu ekki bara eina tilraun, sem bar árangur, til að kaupa þegna sína úr þrældómi í Algeirsborg." Þorsteinn segir að eftir tap Dana í stríði við kaþólska keisaraherinn hafi þeim verið boðið að eiga við- skipti við Spánveija, eitt höfuðríki kaþólikka. Danir seldu þeim korn og keyptu salt í staðinn. Spánveijar höfðu langa reynslu af því að kaupa út þegna sína frá Tyrkjum eins og allir múslimar voru kallaðir. Kristján IV Danakonungur ákvað að nýta hana vegna viðskipta sinna við Spán- veija. Sögunni um útlausn íslendinga í Algeirsborg hefur hingað til lokið eftir fyrri tilraun Dana, sem gerð var með hjálp Hollendinga, til að bjarga þeim úr þrældómi. „I seinni tilraun- inni voru fyrirmælin, sem Ambrosio Volgersen sendimaður Dana fékk, að kaupa fyrst og fremst íslendinga og urðu það fjórir karlmenn og ein móðir með þijú börn,“ segir Þor- steinn. Karlarnir hétu Guðmundur Jóns- son, Jón Jónsson, Guðmundur Söffr- ensen og Sigurður en konan Bar- bara, börnin voru ekki nafngreind. „Þetta voru gamlir menn,“ segir Þor- steinn, „en á einum reikningnum úr ferðinni stendur að keyptir hafi verið sokkar og skór handa tveimur göml- um íslendingum.“ Þorsteinn Helgason Þorsteinn segir að mikil umhyggja hafi verið fyrir konunni með börnin og reyndar öllum einstaklingunum í ferðinni frá Spáni til Kaupmanna- hafnar en alls voru 23 útkeyptir. Hann nefnir að gamlar klisjur um að fátæklingum, konum og börnum hafi ekki verið sýnd mikil samúð fyrr á öldum, fái ekki staðist í þessu tilfelli. Ríkið keypti til dæmis síst hina ríku úr þrældómi í Algeirsborg einfaldlega vegna þess að þeir voru dýrari, en í Algeirsborg þurfti bæði að borga eigendum þrælanna og rík- inu eða borgaryfirvöldum. „Ekki fór vel fyrir sendimanni Dana í Algeirsborg eftir útkaupin á þegnum Danakonungs því hann komst í stórskuld vegna málsins og var stungið í fangelsi ásamt 11 þræl- um sem hann hafði keypt en enginn þeirra var íslendingur,“ segir Þor- steinn, „Danir gátu ekki bjargað honum því ekki fengust meiri pening- ar í þetta verkefni." Ný bænaskrá íslendinga fundin í Ríkisskjalasafninu Fjögur bréf frá íslendingum í ánauð í Algeirsborg eru þekkt hér £' landi, en Þorsteinn Helgason fann hið fimmta á Ríkisskjalasafninu. Bréfið er stílað á konungsvaldið og dagsett 1. desember 1629. Bænaskráin er send fyrir hönd 120 íslendinga en í henni kemur m.a. fram að 380 íslendingar hafi komið sem fangar til Algeirsborgar og eru það heldur fleiri en áður var talið. Innihald bréfsins er harmagrátur og bón um hjálp og undir það skrifa fjórir menn eða Brandur Einarsson, Þorsteinn Sveinsson og Halldór Guð- mundsson en erfitt hefur reynst að lesa út úr fjórðu skriftinni, sennilega er maðurinn Oddsson og ef til vill heitir hann Stígur. Þorsteinn segir að frumritið haff* Danir sent til Osló og því sé aðeins til ljósrit í Kaupmannahöfn. Þorsteinn Helgason mun í dag kl. 14.30 flytja opinn fyrirlestur um þetta efni í Hátíðarsal Háskólans á Islenska söguþinginu. neinna stjórnmála- flokka. En upp úr 1916 færist meiri harka í pólitíkina með stofnun stéttaflokkanna Al- þýðuflokks og Fram- sóknarflokks. Kaup- menn keyptu Morgun- blaðið til að mynda mótvægi við áróður þeirra. „Einkenni á tíma- bilinu var að skoðana- skipti voru milli blaða en ekki innan þeirra,“ segir Guðjón. „Menn skrifuðu til dæmis greinar í Morgunblaðið en þeim var svarað í Tímanum, Þjóðviljanum eða Alþýðu- blaðinu. Yfirleitt fengu andstæðing- ar þeirrar stefnu sem blöðin fylgdu ekki inni í þeim.“ Utanflokksframbjóðandi komst ekki að Guðjón fjallar í fyrirlestri sínum í dag einnig um áhrif flokksfjölmiðl- anna á málfrelsi. „Þeir sem höfðu skoðanir sem ekki samræmdust stefnu stjórnmálaflokka voru meira eða minna útilokaðir frá fjölmiðlum, meira að segja frá útvarpinu. Ég rakst á bréf í fórum Blaðamannafélags ís- lands frá Gísla Sveins- syni sem var einn þriggja forsetafram- bjóðenda árið 1952. Hann hafði ekki stuðn- ing neins stjórnmála- flokks, en var reyndar gamall þingmaður Sjálf- stæðisflokksins. Hann lýsti í bréfinu miklum áhyggjum af málfrelsi á íslandi því hann hafði bókstaflega verið þag- aður í hel í kosningabar- áttunni. Hann fékk ekki einu sinni að birta borgaðar auglýsingar um skrifstofu stuðningsmanna sinna.“ Guðjón segir að Ríkisútvarpið hafi lítið eða ekkert gert til að breyta fréttaflutningi. „Stjórn Alþýðuflokks og Fram- sóknarflokks stofnaði Ríkisútvarpið og ákvað að það skyldi hafa einokun á þessu sviði. Margir óttuðust um hag sinn þegar ritstjóri Tímans, Jón- as Þorbergsson, var ráðinn fyrsti útvarpsstjórinn. En það voru settar gríðarlega strangar reglur um allan fréttaflutning af stjórnmálum. Það mátti bókstaflega ekkert segja um þau fyrsta áratuginn, ekkert sem gæti komið neinum stjórnmálaflokki illa. í raun og veru var útvarpið því nánast steindautt í hlutverki sínu sem aðhald fyrir ríkisvald og stjórn- málaflokka." Flokksformaðurinn á forsíðunni Guðjón rekur upphaf endaloka flokksfjölmiðlanna til byijunar sjö- unda áratugarins. „Það má segja að um 1960 hafi blöðin byijað að losa sig undan ofurvaldi flokkanna. Matt- hías Johannessen og Eyjólfur Konráð Jónsson, sem tóku við ritstjórn Morg- unblaðsins um 1960, tóku þá ákvörð- un að skilja betur á milli blaðsins og flokksins. Sú þróun var reyndar ákaf- lega hæg. Það sem ég held að hafi meðal annars tafið hana var að rit- stjórar voru gjarnan þingmenn flokksins samtímis. Geir Hallgríms- son, formaður útgáfustjórnar, var einnig virkur í stjórnmálum. Það er í raun ekki fyrr en árið 1983, þegar Geir Hallgrímsson lét af formennsku Sjálfstæðisflokksins að þessi þróun fór á fullt skrið. Síðan gerist þetta stig af stigi. Lengi vel var Morgun- blaðið gott fréttablað nema rétt fyrir kosningar. Þá var gjarnan birt á fors- íðu mynd af formanni flokksins í ramma og með ávarpi til þjóðarinn- ar. Þetta var gert í síðasta sinn árið 1991.“ * Guðjón segir að tilkoma sjónvarps- ins hafa valdið ákveðnum þáttaskil- um. „í sjónvarpinu var hægt að kynna sig sjálfur fyrir fólkinu, án þess að dagblöðin gerðust milliliðir. Morgunblaðið hafði yfirburði í skoða- namyndun sem langöflugasti fjölm- iðillinn. Stór hluti þjóðarinnar trúði því að andstæðingar Morgunblaðsins væru verstu skrattar. Svo sáust þeir í sjónvarpinu og virtust bara eðlileg- ir menn og jafnvel viðfelldnir." Onnur þáttaskil urðu að sögn Guð- jóns með tilkomu Dagblaðsins. „1 kjallaragreinum Dagblaðsins var öll- um frjálst að tjá sig og önnur blöð opnuðust í framhaldi af því. Stofnun þess olli mikill ólgu á fjölmiðlamark- aðnum.“ Guðjón nefnir einnig Helgarpóst- inn sem áhrifavald í þessari þróun, en hann kom fyrst út árið 1979. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.