Morgunblaðið - 29.05.1997, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
IMEYTENDUR
FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 19
EXEM hjá börnum getur
stafað af formaldehýð.
Fróðleikur um
algenga kvilla
VERSLUNIN Lyfja, í samvinnu við
Félag íslenskra heimlislækna, hef-
ur ráðist í útgáfu 22 smábæklinga
til dreifingar í Lyfju. Bæklingarnir
veita upplýsingar um algenga kvilla
og í þeim eru leiðbeiningar um
meðferð og viðbrögð og hvaða
lausasölulyf ber að nota í hverju
tilviki. Hver bæklingur fjallar um
eitt ákveðið efni, s.s. kvef, höfuð-
lús, tíðaverki, hósta, exem, bak-
verk, þurrk í augum og gelgjubólur
svo dæmi séu tekin.
Texti bæklinganna er yfirfarinn
af heimilislæknum og lyfjafræðing-
um. Bæklingarnir eru afhentirend-
urgjaldslaust í versluninni Lyfju.
Notkun formaldehýðs í fataframleiðslu
hjálmar
fyrstlr og fremstir
suimono
glrar • bremsur • SPD skór
G
cnirsHi
gírskiptar_.
og annar gírbúnabur
CATEYE®
Ijósabúnaður •hraðamælar
LEMOND
sporthjól.
IsérflokU
Helstu útsölustaðir: Örninn Reykjavik, Hjólið v/Eiðistorg Seltjarnarnesi, Músik og Sport Hafnarfirði, Pípul.þjónustan Akranesi,
Olíufél. útvegsmanna ísafirði, Hegri Sauðárkróki, K.S. Sauðárkróki, Sportver Akureyri, K.Þ. Húsavík, Skeljungsbúðin Vestmannaeyjum,
Hjólabær Selfossi, Birgir Oddsteinsson Hveragerði, Stapafell Keflavik.
Fatnaður kaun að
vera ofnæmisvaldur
OKLSIN
GARY FISHE-R
Reglur um nikkelinnihald
„Ég þekki ekki hversu algengt
það er að formaldehýð sé notað í
fataframleiðslu en samkvæmt þess-
ari grein í Aftenposten virðist það
vera,“ segir Sigurbjörg. Hún bendir
á að auðvelt sé að taka formalde-
hýð upp í gegnum húðina. „Efnið
getur auðveldlega valdið húðof-
næmi eða exemi komist það í snert-
ingu við húð.
„Það geta verið önnur skaðleg
efni í fatnði og á síðasta ári gáfum
við út reglugerð um nokkur efni
sem eru bönnuð í efnum sem notuð
eru í föt. Þar á meðal eru til dæm-
is eldtefjandi efni, kvikasilfursam-
bönd og pentaklórfenól. Væntan-
legar eru síðan reglur um nikkel-
innihald í tölum og öðru sem getur
komið við húð en nikkel er mikill
ofnæmisvaldur."
Þvo þrisvar straufríar skyrtur
í umræddri grein í Aftenposten
er fólk hvatt til að þvo föt allt að
þrisvar sinnum áður en farið er í
þau og sérstaklega varað við
straufríum skyrtum sem eru sagðar
innihalda formaldehýð. Efnið losnar
við svita og raka. „Ég myndi að
minnsta kosti aldrei láta lítið barn
í óþvegin föt. Það er öryggisatriði
að þvo öll föt áður en farið er í þau
og þá ekki hvað síst þann fatnað
„EFNANOTKUN í fataiðnaði er
leynt hneyksli" segir umhverfis-
fræðingurinn Kurt Oddekalv nýlega
í viðtali við norska dagblaðið Aften-
posten. í greininni kemur fram að
ofnæmi og þar með talið exem hjá
börnum kunni að stafa af efninu
formaldehýð sem er stundum notað
við framleiðslu fatnaðar.
Efnið sem Kurt Oddekalv er að
vitna til er notað til að styrkja og
gefa bómullarefni glans og til að
lita flíkur. Ennfremur hefur það
verið notað til að gera fatnað vatns-
heldan, koma í veg fyrir að ló fest-
ist í fötum og þau krumpist ekki.
- Eru íslenskar reglur til um
notkun þessa efnis í fataiðnaði eða
um innflutning á fötum með þessu
efni?
„Þetta hefur ekki komið til um-
fjöllunar hér en efnið formaldehýð
er þekktur ofnæmisvaldur", segir
Sigurbjörg Gísladóttir forstöðumað-
ur eiturefnasviðs Hollustuverndar
ríkisins. Hún segir að til séu t.d.
íslenskar reglur um formaldehýð i
spónaplöntum.
sem liggur næst húðinni", segir
Sigurbjörg.
„Þetta á við bæði um börn og
fullorðna og sérstaklega ef fólk er
með viðkvæma húð.“
- í Noregi er nú verið að kanna
hvort ástæða þyki til að merkja
fatnað sérstaklega ef formaldehýð
er notað og setja reglur um notkun
efnisins i fataiðnaði. Hefur slíkt
komið til tals hér á landi?
„Þetta hefur ekki verið uppi á
borði hjá okkur en við munum að
sjálfögðu taka þetta til athugunar
ef í ljós kemur að þetta er vaxandi
vandamál."