Morgunblaðið - 29.05.1997, Page 33
Ný námsskipan
Verzlunarskóla íslands
fyrir haustið 1997
FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1997 33
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
Verzlunarskóli íslands stokkar upp námsbrautir og kennsluaðferðir
3. bekkur
Alþjóðabraut er ný
töluverðu um einkunn í lokin,“
sagði Helgi. Hann kveðst ekki
hafa áhyggjur af því að nemendur
fái ekki fyrirtæki til samstarfs því
hingað til hafi það gengið vei.
Mörg fyrirtækjanna séu tilbúin að
eiga samstarf við nemendur ár
eftir ár og allmörg dæmi eru þess
að nemendur hafa í kjölfarið feng-
ið vinnu.
Á viðskipta- og alþjóðabraut
verður einnig lögð sérstök áhersla
á samþættingu námsgreina, s.s.
sölu- og markaðsfræði, fjármál,
stjórnun, milliríkjaviðskipti o.fl.
NettO . < ASKO ÍCZ32>) OfMM OTURBO NILFISK EMIDE
EMIDE NILFISK OTURBO Qium
ASKO NettOÍ
Hugmyndir varðandi alþjóða-
braut eru ekki fullmótaðar enn en
aukin tungumálakennsla og al-
þjóðaverkefni munu marka braut-
inni sérstöðu. Markmiðið er að
nemendur verði færir um að tak-
ast á við fræðilegt nám í háskóla
og taka að sér störf í atvinnulífinu
þar sem reynir á sérstaka færni í
tungumálum og samskiptum. M.a.
verður lögð áhersla á málefni
tengd ESB, samstarfi Norður-
landa og að nemendur fái nokkra
þjálfun í alþjóðlegu samstarfi.
„Sem sagt samskipti í víðasta
skilningi," sagði Sólveig Friðriks-
dóttir. Hún bætti við að einnig
væri nauðsynlegt að nemendur
kynnu nokkur skil á menningu og
sögu þjóða, þ.e. svokallað menn-
ingarlæsi.
Málabrautin er nánast óbreytt
frá þvi sem verið hefur nema nem-
endur byija einu ári fyrr á fjórða
máli og latína verður skyldufag.
Líkist brautin nokkuð fornmála-
brautum annarra framhaldsskóla.
Breytt stærðfræðibraut
Þær breytingar verða helstar á
stærðfræðibraut að raungreinar á
3. og 4. ári verða auknar til muna
á kostnað viðskiptagreina. Bætist
við meiri efnafræði og líffræði auk
jarðfræði og forritunar. „Þetta er
nánast tvöföld aukning á raun-
greinum frá því sem áður var,“
sagði Ingi Ólafsson. Hann segir
að nú sé námið orðið sambærilegt
eðlisfræðibrautum annarra fram-
haldsskóla. Nemendur hafi að
námi loknu allan nauðsynlegan
grunn fyrir hvaða háskólanám sem
er.
Meðal annarra nýjunga má
nefna að áhugi er fyrir því að
bæta við kennslu í tölfræði, eink-
um úrvinnslu og túlkun tölfræði-
legra gagna. Einnig að kenna
grunnatriði í aðferðafræði félags-
vísinda í 6. bekk. „Ég tel einnig
mikilvægt að nemendur notist við
erlent námsefni, einkum á síðustu
tveimur árunum, þannig að þeir
viðhaldi til dæmis norrænum
tungumálum og auki færni sína i
öðrum." sagði Kirsten Friðriks-
dóttir.
Morgunblaðið/Golli
ÞAU HAFA komið að breytingum á námsskipan með ýmsum hætti. F.v. Kirsten Friðriksdóttir, Helgi E. Baldursson, Sólveig
Friðriksdóttir, Steinunn Stefánsdóttir sem var formaður fyrstu undirbúningsnefndar og Ingi Ólafsson.
braut eftir fjögur ár
„Eftir skiptingu verður aðallega
lögð áhersla á fyrirtækjarekstur á
viðskiptabraut og vinna nemendur
verkefni sem tengjast stofnun fyr-
irtækja og rekstri þeirra. Einnig
verður kennsla aukin í tungumál-
um,“ sagði Helgi E. Baldursson.
„Á hagfræðibraut verður megin-
áherslan á rekstur þjóðfélagsins.
Þar er markmiðið að búa nemend-
ur undir frekara nám í viðskipta-
og hagfræðigreinum."
Hluti af vinnu nemenda á við-
skiptabraut er að afla sjálfir verk-
efna hjá fyrirtækjum, gera sam-
starfssamning og vera í samskipt-
um við þau meðan á verkefnum
stendur. Er það sams konar fyrir-
komulag og tíðkaðist á núverandi
verslunarmenntabraut. „Þegar
kemur að því að meta verkefnið
er það annars vegar kennarinn
sem það gerir og hins vegar senda
fyrirtækin inn umsögn, sem ræður
Framundan eru veruleg umskipti á skipan
náms í Verzlunarskóla íslands, sem um 30
kennarar skólans hafa tekið þátt í að skipu-
leggja. Felast þær í breytingum á kennslu-
— —
háttum og framboði námsbrauta. I haust
stendur nýnemum til boða nám á fjónim
nýjum eða breyttum námsbrautum.
MEÐAL nýrra brauta
Verzlunarskóla ís-
lands er alþjóðabraut,
en einnig kemur til
nokkur breyting á verslunar-
menntabraut, sem áður lauk með
verslunarmenntaprófi en verður
nú breytt í viðskiptabraut. Öllum
brautum lýkur með stúdentsprófi.
Eftir sem áður ljúka nemendur
verslunarprófi eftir tveggja ára
nám, en ekki verður krafist ein-
kunnarinnar 6,50 til að hefja nám
í 5. bekk eins og áður.
Auknar kröfur utanfrá
Að sögn Þorvarðar Elíassonar
skólastjóra eru ástæður fyrir þess-
um breytingum margvíslegar. Ber
þar hæst breyttar kröfur háskóla-
stigsins og atvinnulífsins til nem-
enda sem lokið hafa framhalds-
skólanámi og almennt aukin sam-
keppni á framhaldsskólastiginu.
Hann segir að skólinn vilji svara
kalli tímans um alþjóðavæðingu
með því að auka þekkingu nem-
enda á því sviði. Þar fyrir utan
hefur verulega dregið úr aðsókn
nemenda í máladeild skólans og
hlutur kvenna hefur farið minnk-
andi á undanförnum árum.
Með nýja skipulaginu verða
skýr skil á milli námsbrauta, þar
sem sérkenni hverrar brautar
mótast af þvi framhaldsnámi eða
þeim starfsvettvangi sem nemend-
ur stefna að. Sérstök áhersla verð-
ur lögð á að þjálfa nemendur í
sjálfstæðum vinnubrögðum. Einn-
ig er markmiðið að þeir þekki og
kunni að nota nýjustu upplýsinga-
tækni á hveijum tíma.
í skýrslu undirbúningsnefndar
kemur fram að markviss kennsla
í tjáningu hafi að miklu leyti orðið
útundan í skólanum. Hins vegar
segir þar að vaxandi nauðsyn sé
í nútímaþjóðfélagi, að hver og einn
geti komið vel fyrir sig orði. Það
skeri oft úr um hvort fólk geti
nýtt tækifæri sem bjóðast, hvort
heldur sem er í skóla eða starfi.
Af þeim sökum verður lögð áhersla
á munnlega tjáningu öll skólaárin,
auk þess að nemendur verða þjálf-
aðir í að setja mál sitt fram skrif-
lega.
Raunhæf verkefni
í máli nokkurra kennara sem
komið hafa með ýmsum hætti að
undirbúningi framtíðarskipuiags-
ins kom fram, að lögð verður auk-
in áhersla á raunhæf verkefni
(project) á sviði atvinnulífsins á
öllum brautum, enda hafi reynsla
af verslunarmenntabraut sýnt að
slíkt gæfist vei. Þá verður lögð
áhersla á að nemendur læri að
taka meiri ábyrgð á eigin námi.
Lögð verður áhersla á sjálfstæð
vinnubrögð nemenda, m.a. með
því að flétta saman fleiri greinar
en eina til að leysa verkefnin.
„Þetta getur þýtt að þeir þurfi að
safna saman upplýsingum á mörg-
um tungumálum úr ýmsum áttum
og koma þeim frá sér á íslensku
eða öðru tungumáli eftir því hvert
verkefnið er,“ sagði Kirsten Frið-
riksdóttir og bætti við að með því
breyttist hlutverk kennara frá því
að vera fræðari yfir í að verða
verkstjóri. Hún bendir einnig á að
á þennan hátt læri nemendur að
vinna sameiginlega að upplýsinga-
öflun, leysa vandamál og koma
verkefninu frá sér á skilmerkileg-
an hátt.
Sama nám í upphafi
Framtíðarskipulag skólans ger-
ir ráð fyrir að allir fyrsta árs nem-
ar stundi sama nám utan þriðja
tungumáls, sem verður val á milli
frönsku og þýsku. Að loknu fyrsta
námsári geta nemendur valið á
milli fjögurra brauta: alþjóða-
brautar, málabrautar, stærðfræði-
brautar og viðskiptabrautar.
Á þriðja ári skiptist viðskipta-
braut i viðskiptabraut annars veg-
ar og hagfræðibraut hins vegar.
VORANNIR I FONIX
NÝJAR GLÆSILEGAR DANSKAR ELDHÚS- OG
BAÐINNRÉTTINGAR OG FLEIRI NÝJUNGAR
Við höfum allt sem þig vantar
INNRETTINGAR OG RAFTÆKI
í eldhúsið, baðherbergið og þvottahúsið. Einnig fataskápa
í svefnherbergið, barnaherbergið og anddyrið.
Við erum í sólskinsskapi og bjóðum
SANNKALLAÐ SUMARVERÐ
Velkomin í Fönix. Heitt á könnunni og ís fyrir börnin.
Þeir sem staðfesta pöntun á innréttingu fyrir 17. júní taka þátt í
úrdrætti um Nilfisk ryksugu að verðmæti kr. 31.570,- og fá þar
að auki óvæntan glaðning með nýju innréttingunni.
Virka daga 9-18 iFOnix
Laugardaga 10-14 hátúni6a reykjavík sími 552 4420
0PI0
Stúdentar af alþjóða-