Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 29.05.1997, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1997 51 GUNNAR HINRIK ÁRNASON + Gunnar Hinrik Árnason fædd- ist í Reykjavík 14. febrúar 1957. Hann lést á sjúkrahúsi í Lúxemborg 23. maí síðastliðinn. For- eldrar hans eru Helga Henrysdótt- ir, húsmóðir, f. 16.10.1931, og Árni Hinriksson, fyrr- verandi forstjóri Laugarásbíós, f. 7.3. 1930, d. 18.9. 1975. Systkini Gunnars eru Ellen Ingibjörg, f. 1951, Anna, f. 1953, Guðrún, f. 1959, Helga Dagný, f. 1964, og Árni Þór, f. 1966. Dætur Gunnars eru Eva Björk, f. 24.1.1977, móðir Guð- leif Þórðardóttir, f. 1957, og Rakel, f. 14.2. 1978, móðir Anna Guðnadóttir, f. 1958, fyrrverandi sambýliskona Gunnars. Árið 1981 kvæntist Gunnar Hennýju Her- mannsdóttur, f. 1952. Þau skildu 1989. Sonur er Árni f. 26.9. Stjúpdóttir Gunnars er Unnur Berglind Guð- mundsdóttir, f. 3.12. 1977. Utför Gunnars fer fram frá kapellu Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. Mig langar í nokkrum orðum að minnast fósturpabba míns. Síðast- liðinn föstudag setti mig hljóða er ég frétti að fósturpabbi minn til tíu ára hefði látist í Luxemborg. Hann var ávallt í reglulegu símasambandi við okkur á ferðalögum sínum og þar sem ég var nýverið í stúdents- prófum og var alltaf heima, kom það í minn hlut að taka við fréttum og kveðjum til fjölskyldunnar. Það var því orðinn vani að fá símtöl frá honum hvaðanæva úr heimi. Ferða- lög heilluðu hann mikið og tengjast margar æskuminningar því þegar við íjölskyldan ferðuðumst innan lands og utan. Árið 1982 fæddist bróðir minn, Árni Henry og var hann ævinlega augasteinn pabba síns. í mars síð- astliðnum fóru þeir feðgarnir til London að horfa á fótboltaleik en pabbi var uppgefínn eftir helgina, því Árni hafði meira þrek í búða- rápi en nokkur kvenmaður. Elsku Árni minn, amma Helga og fjölskylda, ég bið Guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Unnur Berglind. Hann Gunnar bróðir okkar er dáinn. Líf hans var ekki alltaf létt. Þótt samverustundum okkar fækk- aði er tímar liðu áttum við samt margar góðar samverustundir, sem við finnum að voru okkur dýrmæt- ar. Hann var seinni árin upptekinn af hugðarefnum sínum er tóku mestan tíma hans. Við söknum hans sem bróður og vinar. Blessuð sé minning hans. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin bjðrt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem.) Systkini. Gunnar. Mig langar að skrifa nokkur kveðjuorð til þín. Þegar hringt var til mín og sagt var: „Veist þú hver er dáinn?“ komu tvö önnur nöfn upp í huga minn, en ég átti erfitt með að trúa því að það gæti verið þú. Þú hefur dvalið erlendis mikið sl. ár og varst í einni slíkri ferð þegar kallið kom. Nú hefur þú lagt upp í ferðalagið sem við förum öll að lokum og úr því ferðalagi verður ekki aftur snúið í sömu mynd. Við ákváðum í bytjun þessa árs að gleðjast saman og halda upp á afmæli okkar. Við áttum bæði stór- afmæli framundan með nokkurra daga millibili. Þótt árin á milli okk- ar væru tíu. Við vorum góðir vinir enda þótt á ýmsu hafi gengið á milli okkar. Við gátum vel talað saman um alla hluti og treyst hvort öðru að það færi aldrei lengra. Ýmsa galla var hægt að finna í fari okkar, en við áttum líka ýmislegt sameiginlegt. Við áttum það sameiginlegt að reykja ekki né nota lyf í neinu formi og vorum við hreykin af því. Okkur þótti líka mjög vænt um börnin okkar og foreldra, svo og flesta aðra. Þú þráðir að eignast aftur fallegt heimili og hafa fjölskyldu þér við hlið. Þú minntist oft pabba þíns og varst stoltur af honum. Þér þótti afskaplega vænt um mömmu þína, son þinn og uppeldisdóttur. Þú varst fagurkeri, ávallt snyrtilegur, vel til fara og framkoman slík. Nú upp á síðkastið varstu loks ánægður með hvernig hjólin voru farin að snúast þér í hag í sam- bandi við Boney M. o.fl. varðandi viðskipti. Ákveðið hafði verið að hittast á kaffihúsi eftir að þú kæmir heim og ræða saman. Við áttum ýmis- legt eftir óuppgert. Ekki verður nú af því. Eg_ bið góðan guð um að styrkja þig Árni Henrý, Unnur Berglind og Helga. Ég votta ykkur og öllum öðrum ástvinum Gunnars mína innilegustu samúð. Hvíl þú í friði, elsku vinur. Guð geymi þig. Vinarkveðja. Guðrún Pétursdóttir. Elsku frændi. Þær eru góðar minningarnar sem við eigum um þig sem strák á öllum aldri. Hún systir okkar sá foreldrum okkar fyrir einum sex barnabörnum áður en skriðan fór af stað hjá okkur hinum. Við dáð- umst að þeim og fannst þau vera fallegri en nokkur önnur börn, eig- inlega voruð þið eins og litlu systk- in okkar hinna. Þú komst þriðji í hópinn, strax stór og sterkur, al- gjör pabbastrákur. Minningarnar eru margar um indæla tíma sem við höfum átt saman. Sérstakléga allar stundirnar í sumarbústað fjöl- skyldunnar, sem þér þótti svo vænt um, þar sem þú lékst þér við læk- inn og fékkst vænan skammt af vatninu eins og öll önnur börn í fjölskyldunni, og við pollinn þar sem þú byggðir fleka til að sigla á. Alltaf varst þú allra hugljúfi og í fararbroddi í leikjum sem pabbi þinn var svo duglegur að finna upp. Þær eru líka góðar minning- arnar um sumarið þegar þú varst lærlingur á varðskipinu Ægi og svo heppinn að hafa tvo eldri frændur með um borð. Kannski vorum við of harðir við þig á stundum, en það átti að herða litla frænda. Við höf- um líkast til verið skrautlegur hóp- ur þegar við fórum til að vera við brúðkaup Önnu systur þinnar í Silkiborg, allir sem vettlingi gátu valdið, ömmur sem ungabörn. Pabbi þinn var nýdáinn og allir í sorg, það skiptast á skin og skúrir í lífinu en brúðkaup skyldi haldið, þú leiddir Önnu upp að altarinu og varst fjölskyldunni til sóma með ræðunni þinni fínu. Ferðin skipar sess í hugum okkar enn þann dag í dag, það var mikið grátið en líka hlegið og þú áttir þinn þátt í því. Það koma líka myndir í hugann af afmælisboðum Rakelar dóttur ykk- ar Önnu í litlu íbúðinni við Rauða- læk, brúðkaupið ykkar Hennýar, mikið voruð þið falleg brúðhjón. Þú lagðir þig líka fram við að halda sambandi við okkur öll alla tíð og við vitum hvað fjölskyldan var þér mikilvæg. Það er erfítt að sjá hvenær halla fer undan fæti og sjálfsagt gerist það hægt, en það fer ekkert á milli mála að vín var þinn versti óvinur. Þú hugsaðir svo stórt og ætlaðir þér svo margt, stundum kannski einum of en það mikilvægasta í lífi þínu voru þó börnin. Elsku frændi, börnin eru okkar dýrmætustu gjaf- ir, og þeim var deilt ríkulega til þín og það vissir þú vel. Við vonum að þið, Rakel mín, Eva Björk, Árni Henry og Unnur Berglind getið horft framhjá breyskleikanum í honum pabba ykkar og séð hjarta- hreina og hlýja manninn sem vildi vera okkur öllum svo góður, en var sjálfum sér verstur. Gæfan er hverful og þú, elsku frændi, tókst það stysta strá, þetta var hörmu- legt slys sem henti þig á heimleið, en þú fékkst góða heimfylgd móður þinnar, vinkonu og systra. Elsku systir, þetta er svo undarlegt ferða- lag þetta líf, enn horfir þú á eftir ástvini. Það hafa skipst á sorgir og gleði í lífi þínu og ykkar. Við vitum að gleðin verður alltaf ofan á og þú átt ótalmargar góðar minn- ingar að ylja þér við. Við sendum ykkur öllum, sem þótti vænt um Gunnar Hinrik, okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Við kveðjum þig, frændi, með ósk um fallega heimkomu til Nangiyala, þar sem tekið verður á móti þér með mjúkum líknandi örmum. Hjördís og Þorsteinn. Erfidrykkjur HÓTEL REYKJAVÍK Sigtúni 38 Upplýsingar í síma 568 9000 Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld I úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins I bréfasíma 5691115, eða á netfang þess þess Mbl@centrum.is en nánari upp- lýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu- bil og hæfilega Ifnuleng — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn stn en ekki stuttnefni undir greinunum. 925 HöTEL föFTLEJÐIR ICELANDAI. K' .H OT'.f tr*« + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SIGURÐUR GUTTORMSSON bílstjóri, Mánagötu 25, Reyðarfirði, verður jarðsunginn frá Búðareyrarkirkju, Reyðar- firði, laugardaginn 31. maí kl. 10.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag (slands. Helga Sveinsdóttir, Guðlaugur S. Sigurðsson, Anna Þ. Sigurðardóttir, Hulda B. Sigurðardóttir, Guðmundur Ágúst Pétursson, Arndís Sigurðardóttir, Vilberg Einarsson, Guttormur Sigurðsson, Laufey Brekkan, barnabörn og barnabarnabörn. Lilja Jónsdóttir, Jónbjörn Pálsson, Þóra Guðný Gunnarsdóttir, Sæmundur Pálsson, Jóna Ingibjörg Bjarnadóttir, Sævar Pálsson, Soffía Sæunn Haraldsdóttir, Vilhelm Páll Páisson, Eybjörg Guðný Guðnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL KRISTBJÖRN SÆMUNDSSON frá Djúpuvík í Árneshreppi á Ströndum, sem lést 23. maí sl. verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 30. maí kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hjartavernd. Inga Gröndal, Jón A. Skúlason. Unnur Gröndal, Erna Jónsdóttir, Helga Gröndal, Sveinn Björnsson, Þórunn Gröndal, Júlíus Halldórsson, barnabörn, barnabarnabörn og langalangömmubarn. + Maðurinn minn, sonur og bróðir, JÚLÍUS GfSLASON frá Hóli á Langanesi, Þingholtsstræti 23, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 22. maí, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 30. maí kl. 15.00. Inga S. Þorsteinsdóttir, Sigríður Hólm Samúelsdóttir, Sara Hólm og aðrir vandamenn. + Alúðarþakkir fyrir samúð og vináttu við andlát og útför BENEDIKTS RAGNARS BENEDIKTSSONAR, Safamýri 48. Sérstakar þakkir til starfsfólks við Grensás- kirkju og Kvenfélags Grensássóknar fyrir ómetanlega aðstoð og stuðning. Brynhiidur Skeggjadóttir, Sigrún Benediktsdóttir, Gfsli Einarsson, Lilja Benediktsdóttir, Sigurður Vilbergsson, Benedikt E. Benediktsson, Þómý Alda Kristjánsdóttir og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.