Morgunblaðið - 29.05.1997, Side 52

Morgunblaðið - 29.05.1997, Side 52
52 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR BRIDS FANNAR ÞORLÁKUR SVERRISSON + Fannar Þorlák- ur Sverrisson fæddist í Reykjavík 29. nóvember 1968. Hann lést af slysför- um 5. apríl síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Víd- alinskirkju í Garðabæ 22. apríl. Hver kannast ekki við þá tilfinningu sem grípur mann þegar vor- ið er að ganga í garð. Vetur er á enda og birt- an, hlýjan og lífið auka þrótt og lífsgleðin gagntekur mann. Þegar vorið nálgast gefur að líta undarlega menn sem annaðhvort keyra, labba eða jafnvel synda gón- andi upp í loftið, talandi við sjálfan sig um skýjafar og vindstefnu. Þetta eru svifflugmenn og Fannar var einn af þeim. Fannar var með svo mikla flug- dellu að svifflug nægði honum alls ekki, því lærði hann vélflug til að hámarka þann tíma sem hann gat verið á lofti. En Fannar var enginn venjulegur flugmaður, hann var bestur. Flugið var honum eðlislægt, svo eðlislægt að snemma eftir að hann náði fullum réttindum í svif- fluginu var haft á orði að þarna færi drengur með sér- staka hæfileika. Fyrst gaf hann þeim bestu ekkerý eftir og á síð- asta íslandsmeistara- móti í svifflugi sýndi hann og sannaði að hann var kominn í fremstu röð svifflug- manna á íslandi, að- eins 27 ára gamall. Ég fylgdist með Fannari í gegnum tíðina og gladdist mjög yfir vel- gengni hans í fluginu og kallaði hann oft Waldo Pepper eða Chuck Yeager íslendinga í höfuðið á einhverjum frægustu flughetjum sögunnar. Já, tímarnir uppi á Sandskeiði eru nú dýrmætir í minningunni. Flugið og félagsskapurinn er það sem menn sækja í uppi á Sand- skeiði og einlæg vinátta myndast sem nær langt út fyrir flugið á sumrin. Fannar varð snemma einn af mínum bestu vinum og hélst sá vinskapur þótt ég hafí dregið mikið úr fluginu undanfarin ár sökum náms og annarra áhugamála. Fann- ar var ósáttur við að ég flygi svona lítið og argaðist í mér að bæta úr þessu. Ég gerði það og fyrir þrem- ur árum tók ég prófíð mitt upp á + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA GISSURARDÓTTIR, síðast til heimilis á Sólvöllum, Eyrarbakka, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardag- inn 31. maí kl. 13.30. Bjöm Jensen, Guðrún Á. Halldórsdóttir, Gissur Jensen, Hansína Á. Stefánsdóttir, Jóhanna Jensen, Svavar Bjarnhéðinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Kæra þökk fyrir auðsýndan hlýhug við andlát móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, SÓLVEIGAR ÓLAFSDÓTTUR frá Strandseljum. Amór Hannibalsson, Ólafur Hannibalsson, Elfn Hannibalsdóttir, Guðriður Hannibalsdóttir, Jón Baldvin Hannibalsson, tengdabörn, barnabörn og barnabamabörn. + Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug viö andlát og útför SVEINS KJARTANSSONAR bónda, Seli, Grimsnesi. Sórstakar þakkir færum við starfsfólki við Sjúkrahús Suðurlands. Aðstandendur. Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró r Islensk framleiðsla Sendum myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4 - Revkjavik sími: 587 1960 -fux: 587 1986 nýtt og var þá Fannar kennarinn minn. Eftir tvö flug rak hann mig í fyrsta einflug mitt í rúm sjö ár með þeim orðum að ef ég færi var- lega þá myndi ég spjara mig vel. Þótt flugið hafí valdið því að vin- átta tókst með okkur Fannari, þá viðhélt ekki bara flugið henni, því ég og konan mín urðum vinir hans, eins og aðrir, sem sóttu í þá miklu birtu og húmor sem jafnan fylgdu Fannari. Fyrstu dagana eftir að Fannar dó hringdu margir vinir og málkunningjar í mig til að votta mér samúð sína og varð þeim öllum tíðrætt um þessa miklu birtu sem stóð af Fannari. Allir eru sammála um þessa birtu og tala um þá hlýju sem henni fylgdi og bæta jafnan við að Fannar hafi alltaf verið bros- andi. Er ég lít til baka og skoða allar þær myndir sem við hjónin eigum af Fannari þá man ég eftir þessu öllu og fínn að með brott- hvarfí hans hefur kalið í mér part sem seint eða aldrei verður þíddur. Harmur okkar vina Fannars er ólýs- anlegur og hugsunin að fá ekki að njóta hans í framtíðinni er þung- bær. Vinir Fannars eins og Gunni kokkur og Þórður sem nutu daglegs samneytis við Fannar og um margt stóluðu á vinfengi og nærveru hans bera mikla sorg sem enginn getur gert sér í hugarlund. Þeir bera harm sinn í hljóði með mikilli reisn. Vorið er komið en það er dimmur og kaldur vetur í huga og sálu minni. Ég veit hins vegar að Fann- ar vill hafa glaðværð þar sem hans verður minnst og að minningu hans verður haldið á loft með sem öflug- ustu svifflugi á Sandskeiði. Ég ætla því að hleypa vorinu, birtunni og hlýjunni inni í hjarta mitt því ein- ungis þannig getur maður minnst Fannars á réttan hátt. Sá stóri hópur fólks sem nú syrg- ir Fannar og líka Þorgeir L. Árna- son verður að styrkja fjölskyldur þeirra með ráðum og dáð og heiðra minningu þeirra með því að styrkja flugið á íslandi. Elsku Fannar vinur minn. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú gafst mér í þessu lífí. Ég veit að við eig- um eftir að hittast aftur á stað þar sem flugið er stundað af kappi. Ef það er rétt sem vitrir menn segja að englarnir hafi vængi, þá veitir mér ekki af góðum flugkennara þegar þar að kemur. Jón Kristinn Snæhólm. SIGURÐUR GUÐMUNDSSON + Sigurður Guð- mundsson fædd- ist i Litla-Saurbæ í Ölfusi 30. ágúst 1918. Hann lést á Landspítalanum 19. maí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hveragerðis- kirkju 24. maí. Lífið og dauðinn sí- fellt sækjast á, sorgin og gleðin öndótt talast við, en ofar öllu böli einn er sá, sem eins í lífí’ og dauða veitir grið, teflir sterkri huggun harmi mót, heljar sárin græðir meina bót. Já, hér hafa líf og dauði enn sóst á, og Sigurður, kær, og lang- tíma vinur horfínn af sjónarsviðinu - þessi lífsorkubrunnur og heljar- menni, sem átti fáa sína líka að lík- amsburðum - þetta kjarkmenni sem lét ekkert aftra sér, þegar mikið lá við að hjálpa öðrum, hvort heldur var um að ræða ofviðri og fannfergi eða að stilla til friðar á mannfundum þar sem óeirðaseggir vildu fara m.eð ófriði. Þeim lærðist fljótt að hafa hægt um sig þar sem hann var viðstaddur. Hér er innt að ytri kostum, sem blöstu við allra sjónum. Hliðstæðir kostir ein- kenndu einnig hans innra mann. Þar var styrkur, festa, áreiðanleiki og heiðarleiki sem ófrávíkjanlegar dyggðir, því hann mátti í engu vamm sitt vita, það þurfti hvorki undirskriftir eða stimpluð plögg til að tryggja, að loforð hans stæðust í hveiju sem vera skyldi, Töluð orð hans voru sem bezta undirskrift. Þannig var hans innri maður. En þó gustaði jafnan kröftuglega af honum; bar hann hlýjan og viðkvæ- man mann í innstu innum. Það auðnaðist mér sérstak- lega að sjá í söngnum. Allt frá ungum árum söng hann í kirkjukór Hveragerðis- og Kot- strandarsókna, enda raddmaður góður, tón- næmur og unni og naut söngs heilum hug. Við hjónin nutum þeirra forréttinda að aðstoða þetta söngfólk nokkur ár utan skyldu- starfa okkar. Þegar við létum gamminn geisa á léttum, glöðum text- um og tónum, sá ég hina næmu og tilfinningaríku sönggleði Sigurð- ar. Er við svo fengumst við alvar- legri - já sorgþrungin viðfangsefni eins og t.d. föstudaginn langa, sá ég honum blika tár á hvarmi. Þann- ig var þetta heljarmenni í innstu innum - en tilfinningar sínar bar hann ekki á torg né fyrir allra augu. Að honum er sannarlega mikill sjónarsviptir. En svona er það eigi að síður, því vér ráðum ei lögum lífs og dauða, lendum þráfalt í sorg- um nauða, því „maðurinn gamli, sem gengur með ljáinn", guðar tíð- um óvænt á skjáinn. Ekki bar and- lát hans þó með öllu óvænt að, því alllengi var hann búinn að vera veikur. Fundum okkar bar fyrst saman stuttu eftir að ég kom til Suður- lands vorið 1944. Allt frá þeim tíma höfum við þekkst, og sú langstæða kynning eftirskildi fátt, sem hvor vissi ekki um annan. Elsku Helga, ástvinir og söngfé- lagamir allir. Við hjónin sendum ykkur hlýjustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja ykkur og hefja yfír harm og trega í vissunni um endurfundina á landi lifenda. Sólveig og Jón Hjörleifur. Frágangur afmælis- og minningargreina Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tví- verknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfí (5691115) og í tölvupósti (MBL@CENTRUM.IS). Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfín Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Um hvem látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfí- legri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við éina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þijú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skímarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Umsjón Arnór G. Ragnarsson Frá Bridsfélagi Suðurnesja Aðalfundur félagsins var haldinn 26. maí. Sú breyting varð á stjóm félagsins að Amór R. Ragnarsson lætur af störfum gjaldkera. Sam- starfsmenn og félagar kunna hon- um bestu þakkir fyrir vel unnin störf. Núverandi stjóm skipa: Rand- ver Ragnarsson formaður, Guðjón S. Jensen gjaldkeri, Kristján Krist- jánsson ritari, Gunnar Guðbjörns- son og Jóhannes Sigurðsson. Laugardaginn 31. maí fer fram hin árlega bæjarkeppni milli Reykjanesbæjar og Sandgerðis og hefst kl. 14.00. Um kvöldið verður sameiginleg árshátíð með kvöld- verði og verðlaunaafhendingu. Mánudaginn 2. júní hefst sumar- spilamennska. veitt verða verðlaun fyrir stigahæstu spilara sumarsins. Sumarbrids 1997 Fyrstu viku sumarbrids lauk sunnudaginn 25. maí og Guðlaugur Sveinsson vann í bronsstigakeppn- inni fyrir vikuna og hlaut að launum mat fyrir tvo á LA Café. Aukaverð- laun vikunnar vom einnig dregin út á sunnudagskvöldið úr öllum nöfnum vikunnar og Guðni Ingvars- son fékk þau verðlaun. Föstudagskvöldið 23. maí spilaði 31 par Mitchell-tvímenning, meðal- skor 364 og lokastaðan í N/S var þessi: Geirlaug Mapúsdóttir - Torfi Axelsson 444 Áróra Jóhannsdóttir - Jórunn Fjeldsted 427 Halldór Már Sverriss. - Aron Þorfinnss. 423 Hulda Hjálmarsdóttir - Ólína Kjartansd. 409 A/V lokastaða: Gunnlaugur Sævarss. - Vilhj. Sigurðss.jr. 465 FriðrikJónsson-GuðmundurSkúlason 433 Hrafnhildur Skúlad. - Jörundur Þórðarson 424 Guðbjöm Þórðars. - Jón Viðar Jónmundss. 422 Kl. 23.00 hófst síðan hin sívin- sæla miðnætursveitakeppni með útslætti og þar tóku þátt 11 sveitir og lauk henni með sigri Liverpool, eftir harða baráttu við sveit Geir- laugar Magnúsdóttur. Fyrirliði Liv- erpool var Páll Þór Bergsson og sveitarfélagar Sveinn Þorvaldsson, Jón Stefánsson og Steinberg Rík- harðsson. Sunnudaginn 25. maí spiluðu 14 pör Monrad-barómeter. Miðlungur 168. Guðlaugur Sveinss. - Mapús Sverriss. 200 Rúnar Einarsson - Helgi Bogason 196 Hrafnhildur Skúlad. - Jömndur Þórðars. 194 Friðrik Jónss. - Jón Viðar Jónmundss. 192 Mánudaginn 26. maí spiluðu 21 par Mitcell, miðlungur 216. Þar urðu efstir í N/S: Gunnlaugur Sævarss. - Vilh. Sigurðss. jr. 281 Guðlaugur Sveinss. - Láms Hermannss. 258 Guðmundur Skúlason - Jón Viðar Jónsson 253 Aron Þorfinnsson - Snorri Kalsson 249 A/V: Halldór Már Sverriss. - Rúnar Einarss. 254 Dúa Ólafsdóttir - Jón Hákon Jónsson 242 Gróa Guðnadóttir - Lilja Halldórsdóttir 241 Murat Serdaroglu - Þórður Bjömsson 240 Spilað er öll kvöld nema laugar- dagskvöld í Þönglabakka 1, 3. hæð, húsnæði Bridssambands íslands kl. 19.00. Mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga er spilað- ur Mitcell-tvímenningur og mið- vikudaga og sunnudaga Monrad- barómeter. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Fimmtudaginn 22. maí spiluðu 17 pör Mitchell-tvímenning. N/S Elín Jónsdóttir - Gunnþómnn Erlingsdóttir 231 Ólafurlngvarsson-Guðm.Samúelsson 228 Kristinn Magnússon - Oddur Halldórsson 223 A/V LárasHermannsson-EysteinnEinarsson 243 Kristinn Gíslason - Magrét Jakobsdóttir 228 RagnarHalldórsson-HjálmarGísIason 226 Meðalskor 216 Laugardaginn 24. maí var hin árlega sveitakeppni spiluð á milli Félags eldri borgara í Kópavogi og Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Leikar fóru þannig að FEB í Reykjavík og nágrenni fór með sig- ur að þessu sinni, með 161 stig gegn 137. Viljum við Reykvíkingar þakka Kópavogsdeildinni fyrir skemmtilega keppni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.