Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 50
50 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
í AFSA&З£*/ Boi t/nn f f sWm œ/NN/•/) !/£/-Í./NU* JéáG'A HANN NÚNA! / \
mSÉL j
í(jƧj S / / A
/CLÚ8BAZ. e&JE&4SEM\
Grettir
ÉfíðETSrAÐíP'
S\X)UAUAUE6p
Ég spyr því þig aftur, Kalli... lík- Vá! Það er þessi þáttur sem ég er Svo að það endar með því að ég sit
ar þér við mig? Auðvitað líkar mér að horfa á í sjónvarpinu, svo að ... á veröndinni með hundi. Ekkert
við þig . . . mál, ljúfan.
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Að hækka sjálfræðis-
aldurinn er hneyksli!
Frá Halldóm Ónnu Hagalín
ÞEIR SEM hafa nú þegar orðið
sjálfráða eiga á hættu að missa
það. Er einhver sanngirni í því að
taka burtu, frá unglingum sem
orðnir eru 16, það sem þeim hefur
nú þegar verið gefið, sjálfræði.
Ekki býst einhver lifandi maður
við því að 17 ára strákur/stelpa
fylgi því sem foreldrar þeirra segja
í einu og öllu. Að koma heim klukk-
an tólf á björtum sumarkvöldum, —
ekki nokkur séns —.
Þessi breyting er ekki til hins
betra. Það leiðir einungis til þess
að unglingar verða ósáttir við for-
eldra/forráðamenn sína. Sem sagt,
heimilisvandamál verða algengari.
Löggur verða enn óvinsælli (sem
þær mega alls ekki við) þegar þær
byija á því að henda 17 ára ungling-
um inn á unglingaheimili. Fyrir það
eitt að vera úti til sirka tvö um
kvöld/helgar. Eða 17 'A árs gam-
alt kærustupar í göngutúr, inn á
unglingaheimili! Er það virkilega
draumaframtíð politíkusa að vera
hataðir?! (Það efast ég um).
Hver raunsæ manneskja hlýtur
að sjá það að 16—18 ára ungt fólk
er ekki tilbúið að sitja heima um
helgar glápandi á drepleiðinlegan
imbann með fjölskyldunni.
Unglingar á íslandi eru alls ekki
tilbúnir að missa sjálfræðið. Hveij-
um datt þetta í hug? Jú, jú, ef til
vill gæti það virst góð hugmynd í
byijun, en í guðanna bænum, horf-
ið lengra.
Foreldrar, unglingar og allir ís-
lendingar með eitthvert vit í kollin-
um. Tökum saman, horfumst í augu
við raunveruleikann. Er þetta hann?
Kannski finnst politíkusum þetta
snjallt ráð við unglingum sem lenda
í vanda. Ég skil svosum alveg af
hveiju þetta kemur til.
16 ára unglingar sem gera eitt-
hvað af sér, þurfa að fara í fang-
elsi með harðsvíruðum glæpamönn-
um. Það er að sjálfsögðu ekki
nokkrum manni hollt eða bjóðandi.
Hvers vegna er ekki hægt að búa
til einhveija lausn fýrir fólk yngra
en 18 ára, annað en það að svipta
okkur sjálftæði. Það er nauðsynlegt
að líta á málið frá öllum hliðum.
Við unglingar erum ekki eitthvert
þjóðfélagsvandamál!
Við höfum líka okkar rétt, hvort
sem við eigum í vanda eða ekki!
Ég spyr, hvað myndi ’68 kynslóð-
in gera ef skyndilega yrði ákveðið
að þau væru þjóðfélagsvandamál
og það væri nauðsynlegt að svipta
þau sjálfræði með lagaboði frá Al-
þingi. Hugsið um það og ímyndið
ykkur.
HALLDÓRA ANNA HAGALÍN
Kópavogsbraut 41, Kóp.
Bréf til borgarstjóra.
Frá Ásgeiri H. Steingrímssyni:
Kæra Ingibjörg Sólrún.
Örfá orð vegna viðtals við þig í
Morgunblaðinu í gær, 27. maí, um
Miklubrautarmálið.
Mig langar til að þú útskýrir
fyrir mér afhveiju það sé ekki
hægt að leggja Miklubrautina í
stokk alla leið frá Snorrabraut að
Stakkahlíð. Þú segir, og vitnar í
ótilgreinda umferðarsérfræðinga,
að það sé nauðsynlegt að gatna-
mót Miklubrautar og Lönguhlíðar
haldi sér „til þess að koma í veg
fyrir að umferð þeirra, sem eiga
erindi inn í Hlíðahverfi að sunnan
eða norðanverðu, greinist á allar
aðrar götur í hverfinu." Ég skil
þetta ekki almennilega. Eins og
ég sé þetta yrði Lönguhlíðin áfram
á sínum stað og húsagata við Mi-
klubrautina. Eftir henni ækju þeir
sem koma að vestan og ætla inn
í Hlíðahverfið. Þeir sem koma að
austan beygja inn á Kringlumýrar-
braut í norður eða suður, nú eða
skipuleggja för sína öðruvísi og
nota Suðurlandsbraut eða Bú-
staðaveg. Þá er einnig hugsanlegt
að það yrði afrein á Miklubraut í
austur áður en hún hyrfi niður í
stokkinn sem lægi að Stakkahlíð
við Tónabæ (eins og nú er) og
næði jafnvel niður að Lönguhlíð.
Núverandi umferð þeirra sem
koma að norðan eða sunnan og
ætla ekki í Hlíðahverfi en fara þar
í gegn til þess eins að komast á
Miklubrautina hyrfi með öllu þann-
ig að heildarumferð um allar götur
í hverfinu minnkaði sennilega frek-
ar en að hún ykist.
Ég er að sönnu enginn umferðar-
sérfræðingur en ég vildi gjaman fá
útskýringar þeirra á þessum mál-
um. Betri útskýringar en borgar-
verkfræðingur kom með á hverfa-
fundinum um daginn. Þær voru nú
beinlínis hlægilegar eins og þú
manst efalaust jafnvel og ég. Það
er góðra gjalda vert að borgin skuli
vera tilbúin að skipta um gler í
gluggum hjá okkur, en það er bara
ekki nóg. Engu skiptir hversu
margfalt glerið er þegar gluggarnir
standa opnir og það verður stundum
að hafa glugga opna. Nema að sett
verði loftræstikerfi í allar íbúðir og
þá er ég hræddur um að 20 milljón-
imar þínar hrökkvi skammt til.
Ódýrast er þó að kaupa eyrnatappa
til að geta sofið við opninn glugga
og hafa sumir gripið til þess ráðs;
án þess að leita ásjár hjá borginni.
Það er óvéfengjanlegt að hávaði
og mengun við Miklubrautina er
langt yfir viðmiðunarmörkum og
ekkert nema varanleg lausn fyrir
alla íbúa hennar er ásættanlegt.
Kunningjar mínir spyija mig
afhveiju ég flytji ekki fyrst ástand-
ið sé svona slæmt en það er ekki
svo auðvelt því eftir allar þessar
umræður finnst ekki svo vitlaus
maður að hann vilji kaupa íbúðina
mína.
Niður (í stokk) með Miklubraut-
ina.
ÁGEIR H. STEINGRÍMSSON,
Miklubraut 54.
Allt efni sem birtist í Morgunbiaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.