Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997 21 ERLENT Geta Egyptar gert hlutlausa kvikmynd um Nasser? Veríð er að vinna að kvikmynd um ævi Gamals Abdul Nassers, forseta Egypta- lands. Stefnt er að því að hún verði frum- sýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes á næsta árí. Það er margra skoðun, skríf- ar Jóhanna Kristjónsdóttir, að þetta verði merkasta mynd Egypta til þessa. Gamal Abdel Nasser EGYPTAR hafa verið ötulir kvikmyndaframleiðendur mörg síðustu ár og eru raunar í hópi þeirra þjóða sem gera hvað flest- ar kvikmyndir árlega, þ.e. á eft- ir Bandaríkjamönnum og Ind- veijum. Hins vegar hafa gæði egypskra mynda ekki verið í samræmi við magnið og mjög fáar myndir hafa komist inn á evrópska og bandaríska mark- aði. Egypskar kvikmyndir eru firnavinsælar heima fyrir, í öðr- um Arabalöndum og í Indlandi og Pakistan. Nú virðist sem mikill metnaður sé varðandi gerð þessarar myndar og því er spáð að þessi mynd muni valda straumhvörfum í egypskri kvik- myndagerð. Fyrsta heildarmyndin sem gerð hefur verið um Nasser í myndinni verður rakinn stjórnmálaferill Nassers sem enn er dýrkaður og dáður í Egyptalandi þó 27 ár séu frá andláti hans. Anwar Kawadri, framleiðandi myndarinnar, hef- ur látið hafa eftir sér í viðtali við mánaðarritið The Middle East að hann telji Nasser hafa verið mesta leiðtoga Araba- heimsins og Afríku á þessari öld. Hann hafi beitt sér fyrir róttækum breytingum sem enn móti líf fólks. Nokkrar tilraunir hafi verið gerðar til að gera myndir um stórar stundir í lifí Nassers en ekki hafi fyrr verið ráðist í að búa til mynd um allt líf hans. Gamal Abdul Nasser var fæddur 1918 og óx úr grasi undir hersetu Breta. Hann gekk í herinn 19 ára gamall og varð atvinnuher- maður. Hann barðist í stríðinu við ísrael 1948 og hann var einn helsti höfuðpaurinn í bylting- unni 1952 þegar Farouk Egyptalandskonungi var steypt af stóli. Hann varð forseti tveimur árum síðar og var það til dauðadags. Opnaði stúlkum leið í háskólana og þjóðnýtti Súezskurð Meðan hann gegndi embætti beitti hann sér fyrir róttækum þjóðfélagsbreytingum, og opn- aði meðal annars háskólana stúlkum. Hann var fyrsti arabaleiðtoginn sem veitti kon- um kosningarétt. Hann til- kynnti einnig að menntun yrði ókeypis og ólæsi minnkaði í 20% úr 50% á næsta áratug. En það afrek hans sem hvað óumdeilanlegast er var ákvörð- un hans að þjóðnýta Súezskipa- skurðinn. Það leiddi til alvar- legs ágreinings við Breta og Frakka og Bandaríkin. Kawadri telur að þetta hafi gert hann að þeirri þjóðhetju sem hann var og raunar náði hrifningin á honum langt út fyrir raðir Egypta. En Nasser sætti einnig gagnrýni fyrir stjórnsemi og harðstjórn. Persónunjósnir öryggislögreglu mæltust illa fyrir, egypskir bókstafstrúarmenn voru brotnir á bak aftur á valdatíma hans, alls konar lagasetningar sem hann setti skiluðu ekki því sem hann hafði vonast eftir og samskipti hans við þáverandi Sovétríkin mæltust ekki vel fyrir á Vesturlöndum. Geta Egyptar gert hlutlausa mynd um Nasser? Kawadri, framleiðandi, segist sjálfur hafa dáð Nasser gagnrýnislaust meðan hann var við völd. En nauðsynlegt sé að gera ekki bara skil því sem honum tókst vel upp í heldur skyggnast einnig yfir það svið þar sem honum mistókst. Eftir ósigur- inn í sex daga stríðinu við ísraela 1967 tók Nasser á sig sökina. Það var með réttu en óvíst er að aðrir leiðtogar hefðu þó leikið það eftir honum. Þá bauðst hann til að segja af sér en alþýða manna í Egypta- landi brást við með því að þyrpast út á götur og hylla hann og til afsagnar kom náttúrulega ekki. Mikil spenna ríkti í samskiptum við ísra- ela á stjórnarárum Nassers. Hann átti sér drauma um voldugt Egyptaland og öðru hveiju gerði hann bandalög við aðrar Arabaþjóðir en þau runnu fljótlega út í sandinn. Ýmsir hafa efasemdir um að Egyptar séu réttu mennirnir til að gera mynd um ævi Nassers þar sem þeir muni aldrei geta gætt hlutleysis og verði einnig undir miklum þrýstingi almenningsálitsins að draga úr því sem honum fór illa úr hendi. Kawadri telur að hann og lið hans muni ekki falla í þá gryfju og hann segist trúa því að myndin muni verða stórmynd sem leiði Egypta loks fram á sjónarsviðið sem stórveldi í kvikmyndagerð. Hlutverk Nassers í myndinni leikur Ma- hmoud Hemayda sem er þekktur í heima- landi sínu en á Vesturlöndum kannast fáir við hann. Kawadri segist spá því að hann verði nýr Omar Sharif. Tökur standa nú yfir á myndinni sem hefur vinnuheitið Nasser - leiðtoginn og goðsögnin. Án efa bíða margir hennar með óþreyju bæði innan og utan Egyptalands. QrtvémversltmJandsin FULL BÚO AF HJÓLUM Á FRÁBÆRU VERÐI VIVI barnahjól meö hjálpardekkjam og fótbremsu. Létt, sterk og meöfærileg barnahjól. Frá 3 ára 12,5" kr. 9.600, stgr. 9.200 Frá 4 ára 14" kr. 10.400, stgr. 9.880 Frá 5 ára 16" kr. 10.900, stgr. 10.355 BRONCO TRACK 20" 6 gíra með Shimano gírum og Grip-Shift, átaksbremsum, álgjöröum, standara, brúsafesting, gliti, gírhlíf og tvöfaldri keðjuhlíf. Verð kr. 17.900, stgr. 17.005 DIAMOND EXPLOSIVE 26“ 21 gíra fjallahjól á ótrúlegu verði. Shimano gírar, átaksbremsur, álgjarðir, brúsi, standari, glit, gírhlff og keðjuhlíf Tilboð kr. 23.100, stgr. 21.945. Verð áður kr. 27.300. VIVI fjallahjól barna meo hjalpárdekkjum og ^jaHahjól á frábæru verði. Shimano gírar, ótrúlegu verði. Shi fótbremsu. Vönduð og endingargóð barnahjól. átaksbremsur, álgjarðir, standari, glit, álgjarðir, brúsi, st; Frá 3 ára 12,5“ kr. 9.600, stgr. 9.200. gírhlíf, keðjuhlíf og brúsafesting. jj|t)0ð kr 23100 Frá4ára 14“kr. 11.700, 11.115. 24“ Verökr.22.100,stgr.20.995. Veröáðurkr 273 Frá 5 ára 16“ kr. 11.900, stgr. 11.305. 26“ Verð kr. 22.900, stgr. 21.755. Hjólin eru afhent samsett og stillt á fullkomnu reiðhjólaverkstæði. Árs ábyrgð og frí upphersla eftir einn mánuð. Vandið valið og verslið serverslun Ármúla 40, Símar: 553 5320 568 8860 BRONDO ULTIMATE 26“ 21 gíra ál fjallahjól. Shimano Aivio gírar, Grip-Shift, V-bremsur, álgjarðir, álsætisstammi, stýri og stammi og sveifar, gírhlíf og keðjuhlíf. Otrúleg tilboðsverð kr. 39.900, stgr. 37.905. Rétt verð kr. 47.600. EUROSTAR FJALLAHJOL dömu frá V-Þýskalandi. 3 glra með fótbremsu, skítbrettum, bögglabera, Ijósi, standara, gliti, bjöllu og keðjuhlíf. 20' verð kr. 24.900, stgr. 23.655 24‘ verð kr. 25.900, stgr. 24.605 26" verð kr. 27.900, stgr. 26.505 Verslunin s/M4RKID BRONCO PR0 TRACK 24“ 21 gfra fjallahjól á ótrúlegu verði. Shimano gírar, Grip-Shift, átaksbremsur, álgjarðir, brúsafesting, standari, glit, gírhlíf og keðjuhlíf. Verðkr. 24.900, stgr. 23.655. DIAMOND OFF-ROAD 26" 21 gíra meö demparaaaffli, drauma fjallahjól strákanna meo oversize-stelli. Shimano gífar, Grip-Shift, átaksbremsur, álgjarðir, brúsi, standari, glit, gírhlíf og keðjuhlif. Tilboð kr. 29.000, stgr. 27.550. Verðáðurkr. 32.600. BR0NC0TERMINAT0R FREESTYLE BMX 20" Cr-Mo stell, rotor á stýri, styrktar- gjarðir, pinnar og annar öryggisbúnaöur. Verð kr. 24.900, stgr. 23.655 ITALTRIKE þríhjól, vönduð og endingargóð þríhjól, margar geroir með og án skúffu. Verðfrákr. 3.450, stgr. 3.278 Lucy 10" kr. 4.500, stgr. 4.275 Transporter kr. 5.100, stgr. 4.845 Touring kr. 4.700, stgr. 4.465 DIAMOND R0CKV16" og 20“ fjallahjól barna með fótbremsu, skítbrettum, standara, keðjuhlíf og glitaugum, Blátt drengja og rautt stelpu. Frá 5 ára 16“ kr. 11.900, stgr. 11.305. Frá 6 ára 20“ kr. 12.900, stgr. 12.255. DIAMOND NEVADA 24“ og 26" 18 gíra fjallahjól með skítbrettum og bögglabera á frábæru verði. Shimano gfrar, átaksbremsur, álgjarðir, brúsi, standari, glit, gírhlíf og keðjuhlíf. 24“ Verökr. 24.200, stgr. 22.990. 26“ Verö kr. 24.900, stgr. 23.655. DIAM0ND SAHARA 24“ og 26“ 18 gíra fjallahjói með skitbrettum og bögglabera á frábæru verði. Shimano gírar, átaksbremsur, álgjarðir, brúsi, standari, glit, gírhlíf og keðjuhlíf. 24“ Verðkr. 24.200, stgr. 22.990. 26“ Verðkr. 24.900, stgr. 23.655. VARAHLUHR AUKAHLUTIR Hjálmar. barnastólar, grifflur. Ijós. fatnaður. bjöllur. brúsar, töskur. hraðamælar, slöngur, hjólafestingar á bíla, plast skítbretti. bögglaberar, dekk. standarar, demparagafflar. stýrisendar og margt, margt fleira. 5% stgreiðslu afsláttur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.