Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 119. TBL. 85. ÁRG. FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter Leiðtogafrúr í leikhúsi HILLARY Clinton, kona Banda- ríkjaforseta, og Cherie Blair, kona forsætisráðherra Bretlands, eyddu deginum saman í gær á meðan eig- inmenn þeirra funduðu og fðr vel á með þeim. Þær eru báðar lögfræð- ingar og hafa átt velgengni að fagna í starfi. Þær snæddu saman hádegisverð og fóru því næst í ný- uppgert Globe-leikhúsið þar sem þær horfðu á fyrsta þáttinn af Hin- rik V eftir William Shakespeare. Þar var þessi mynd tekin og er greinilegt að vel fór á með þeim. í lok dags var haldið til kvöld- verðar ásamt eiginmönnunum og var þar meðal annars drukkið kampavín, sem kostar tíu þúsund krónur flaskan. Opinberri heim- sókn Clinton-hjónanna lauk í gær og héldu þau til Bandaríkjanna í gærkvöldi. Blair og Clinton boða bandalag „nýrrar kynslóðar“ leiðtoga Hafna „hugmynda- fræði gærdagsins“ London, Belfast. The Daily Telegraph, Reuter. BILL Clinton Bandaríkjaforseti og Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, héldu í gær blaðamannafund í garðinum við Downingstræti 10, skrifstofu Blairs í London, og sögð- ust hafa myndað bandalag „nýrrar kynslóðar" leiðtoga. Kváðust þeir engin not hafa fyrir „hugmyndafræði gærdagsins". Leiðtogamir voru sammála um að það yrði að hafa forgang að koma í veg fyrir að fjölgaði í undirstétt ungra atvinnuleysingja á bótum og kváðust ætla að efna til samstarfs beggja vegna Atlantsála um atvinnu- sköpun og félagsmálaumbætur. Áskorun til IRA Clinton, sem í þessari viku hefur farið víða um Evrópu, skoraði á írska lýðveldisherinn (IRA) að Reuter TONY Blair og Bill Clinton svara spurningum blaðamanna í London í gær. leggja niður vopn. „Þið getið ekki sagt að þið ætlið að semja og skjóta,“ sagði Clinton. ,Að þið munið semja þegar þið eruð ánægðir og skjóta þegar þið eruð það ekki.“ Gerry Ad- ams, leiðtogi Sinn Fein, hins póli- tíska arms IRA, fagnaði í gær ákalli Clintons um frið á Norður-írlandi, en hafði engin orð um vopnahlé. Clinton og Blair hefur oft verið líkt saman. Þeir hafa báðir fært flokka sína, Demókrataflokkinn og Verkamannaflokkinn, af vinstri vængnum inn á miðju stjórnmálanna og unnu sigur eftir langa eyðimerk- urgöngu í sfjórnarandstöðu. Leiðtogamir virtust ná vel saman og þótti ríkja samband milli þeirra, sem minnti á fundi Ronalds Reagans og Margaretar Thatcher á níunda áratugnum. Reuter LAURENT Kabila sver embættiseið forseta í Kinshasa, höfuðborg Kongó, sem hét áður Zaire, í gær. Kabila lofar að halda kosningar Kinshasa. Reuter. LAURENT Kabila sór í gær emb- ættiseið forseta Lýðveldisins Kongó, sem hét áður Zaire, og lof- aði að efna til þing- og forsetakosn- inga í apríl 1999 og losa landið við arfleifð Mobutu Sese Seko, einræð- isherrans sem hann steypti af stóli. Kabila notaði tækifærið til að gagnrýna vestræn stjómvöld, sem studdu Mobutu á tímum kalda stríðsins og draga nú i efa að nýi forsetinn hyggist koma á lýðræði í landinu. Hann kvaðst staðráðinn í að efna loforðið um kosningar og sagði að erlend stjómvöld gætu enki knúið hann til að flýta þeim. Forsetinn sagði að áður en kosn- ingamar fæpu fram þyrfti að setja nýja stjómarskrá. Til þess yrði skipað stjórnlagaráð, sem ætti að leggja fram drög að stjórnarskrá fyrir stjórnlagaþing og hún yrði að lokum borin undir þjóðaratkvæði í desember á næsta ári. Kabila sór embættiseiðinn á stærsta íþróttaleikvangi Kinshasa, að viðstöddum tugum þúsunda manna. Um 2.000 andstæðingar forsetans söfnuðust saman við heimili stjómarandstöðuleiðtogans Etienne Tshisekedi, kröfðust þess að Kabila segði af sér og sökuðu hann um einræðistilburði. Viðstaddir athöfnina voru forset- ar Angólu, Úganda, Rúanda, Búrúndí og Zambíu. Deilt um norskan lax Óslö. Morgunblaðið. SIR Leon Brittan, sem fer með við- skipti í framkvæmdastjóm Evrópu- sambandsins, tókst ekki að fá sam- komulag sitt við Norðmenn um laxatolla samþykkt í framkvæmda- stjórninni og verður sérstakur fundur um málið haldinn á sunnu- dagskvöld. „Eg hef komist að samkomulagi við norsku stjórnina, sem mér virð- ist hvorum tveggju hagkvæmt, og ég vil halda áfram að berjast fyrir því,“ sagði Brittan eftir næstum þriggja klukkustunda fund fram- kvæmdastjómarinnar um málið. Samkomulagið snýst um það að tryggt verði að norskur lax verði dýrari á evrópskum markaði með því að norska ríkið innheimti út- ílutningsgjald. Waigel hafnar afsagnarkröfu Bonn, London. Reuter. THEO Waigel, fjármálaráðherra Þýskalands, sagði í gær að ríkis- stjórn Þýskalands hygðist ekki nota fjármuni er hún fær greidda, vegna endurmats á gullbirgðum seðlabankans, til að draga úr fjár- lagahalla ríkissjóðs. Stjórnin ætlar að endurmeta gullbirgðirnar, þrátt fyrir andmæli seðlabankans, og hefur málið valdið miklu uppnámi í Þýskalandi. Stjómarandstaðan hefur krafist afsagnar Waigels vegna málsins en hann vísaði slíkum kröfum á bug. „Eg heyri kröfur um afsögn dag- lega. Eg hef hins vegar setið í þessu embætti í átta ár og er orð- inn vanur þeim,“ sagði Waigel, sem virtist þreytulegur á blaðamanna- fundi er hann hélt í heimahéraði sínu í Bæjaralandi í gær. Seðlabankinn hefur lýst sig and- vígan þessum áformum fyrir gildis- töku Efnahags- og myntbandalags- ins (EMU) þar sem tilhliðranir af þessu tagi geti dregið úr trúverð- ugleika hins væntanlega samevr- ópska gjaldmiðils, evrósins. Gengi Bandaríkjadollars hækk- aði í gær vegna deilu þýsku stjóm- arinnar og seðlabankans. ■ Telja endurmatið../20 Reuter Ný tegund manna fundin? VÍSINDAMENN ú Spáni sögðust í gær hafa fúndið merki um nýja tegund af mönnum eftir að hafa rannsakað 780.000 ára gamlan steingerving, sem fannst í helli á Atapuerca-íjöllunum í miðhluta landsins. Vísindamennimir telja að þessi tegund sé forveri nútíma- mannsins og Neanderdalsmanns- ins. Niðurstöður þeirra em reistar á greiningu steingerðra beina drengs, sem þeir töidu hafa „nú- tímalegt" andlitslag, og verða birtar í tímaritinu Science í dag. Á myndinni sjást steingerð bein og tennur úr drengnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.