Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1997 27
György Sebök
með tónleika og
námskeið á Islandi
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS
INNRITUN NÝNEMA VORIÐ 1997
Nýútskrifaðir grunnskólanemar
UNGVERSKI píanóleikarinn
György Sebök mun halda tónleika í
íslensku óperunni á morgun, laug-
ardag, kl. 16. Þetta er í annað sinn
sem Sebök kemur hing-
að til lands en hann
hélt hér tónleika og
námskeið árið 1991. A
tónleikunum á morgun
mun Sebök leika verk
eftir Bach, Brahms og
Franz Liszt. Hann mun
einnig halda námskeið
hér í píanóleik og kam-
mertónlist í sal FÍH
2.-6. júní.
Sebök hóf tónlist-
arnám fimm ára gamall
og hélt sína fyrstu tón-
leika þegar hann var
ellefu ára. Hann lék
skömmu síðar í píanó-
konsert Beethovens
undir stjórn ungverska hljómsveitar-
stjórans Ferenc Fricsay. Frama-
haldsnám stundaði Sebök við Franz
Liszt Tónlistarháskólann í Búdapest
og má nefna að tónsmíðakennari
hans var Zoltan Kodaly. Að námi
loknu hófst hefðbundið tónleikahald
einkum í Mið- og Austur-Evrópu.
Sebök vann fyrstu verðlaun í alþjóð-
legri keppni ungra píanóleikara í
Berlín og í Búdapest hin mjög svo
eftirsóttu Franz Liszt verðlaun.
Árið 1957 fluttist
Sebök til Parísar þar
sem ferill hans hófst
fyrir alvöru. Hann ferð-
aðist um og hélt tón-
leika austan hafs og
vestan. Hann hefur
verið eftirsóttur kenn-
ari. Hann varð prófess-
or við háskólann í Blo-
omington í Indiana í
B andaríkj unum 1962
og settist þá að vestan
hafs.
Þýski gagnrýnand-
inn, Joachim Keiser,
hefur líkt Sebök við
Rubinstein og Wilhelm
Kempf. í umsögn sinni
um leik hans segir Keiser: „Það er
ótrúlegt að listamaður á borð við
György Sebök skuli ekki teljast í
hópi þeirra allra þekktustu því hann
er vissulega í hópi þeirra allra bestu,“
og bætir við: „Ef til vill skortir hann
metnað eftir frama eða hann tekur
kennsluna fram yfir sviðsljósið."
György Sebök
Morgunblaðið/Ásdís
GUÐRÚN Birgisdóttir, Snorri Sigfús Birgisson
og Martial Nardeau.
Flaututónleikar í Norræna húsinu
Umsóknarfrestur um skólavist í Verzlunarskóla íslands
rennur út 6. júní kl. 16.00.
Verzlunarskóli Islands getur ná innritað 280 nemendur til náms í 3. bekk.
Berist fleiri umsóknir verour valið úr þeim á grundvelli einkunna í samræmdum
greinum á grunnskólaprófí. Reiknað er meðaltal samræmdra einkunna og
skólaeinkunna. Eldri umsækjendur og þeir sem hafa stundað nám í erlendum
grunnskólum eru þó metnir sérstaklega.
Námsbrautir Verzlunarskóla Islands hafa verið endurskipulagðar og geta
nemendur, sem nú innritast, valið eftirtaldar námsbrautir til stúdentsprófs:
Braut Sérkenni
Alþjóðabraut: Tjáning og samskipti á erlendum tungumálum. Alþjóðastofnanir,
samningar og viðskipti. Góður grunnur að háskólanámi í ýmsum
greinum, t.d. þjóðfélagsgreinum.
Hagfræðibraut: Viðskiptagreinar, stærðfræði og tungumál. Góður grunnur að
háskólanámi í hagfræði og öðrum þjóðfélagsgreinum.
Málabraut: Fimm erlend tungumál í kjarna. Góður grunnur að háskólanámi
í erlendum tungumálum og málvísindum.
Stærðfræðibraut: Stærðfræði, raungreinar og viðskiptagreinar. Góður grunnur að
háskólanámi í verkfræði og raunvísindum.
Viðskiptabraut: Rekstur og stjórnun fyrirtækja. Stofnun og rekstur eigin
fyrirtækis. Góður grunnur að háskólanámi í viðskiptagreinum
• Á fyrsta ári er val milli þýsku og frönsku en að öðru leyti
stunda allir sama nám.
• Að loknu íyrsta námsári er valið milli brauta.
• Allar brautir búa nemendur vel undir þátttöku í atvinnulífinu.
• Sérkenni hverrar brautar mótast af því framhaldsnámi sem
stefnt er að og þeirri þjálftxn sem nemendur fá til starfa í
atvinnulífinu.
• Verslunarpróf er tekið að loknu tveggja ára námi á öllum brautum.
Uinsóknareyðublaðfylgir grunnskólaskírteinum en það má einnigfá á skrifstofu
skólans ogþar sem sameiginleg innritun í framhaldsskóla fer fram.
Nemendur með verslunarpróf
Innritað verður á fjórar tveggja ára námsbrautir til
stúdentsprófs. Brautir eru:
Verk eftir Snorra
Sigfús frumflutt
TÓNVERK Snorra Sigfúsar Birg-
issonar, Quaternio, sem skrifað er
fyrir tvær flautur, verður frumflutt
á hádegistónleikum í Norræna hús-
inu á morgun, laugardag, kl. 12.30.
Flytjendur verða systir hans og
mágur, Guðrún Birgisdóttir og Mart-
ial Nardeau, en jafnframt verður á
efnisskránni Spil eftir Karólínu Ei-
ríksdóttur, annað verk fyrir tvær
flautur.
Quaternio samdi Snorri haustið
1995 en „lagfærði það aðeins" á
þessu vori. Var verkið „dæmt til að
heita Quaternio", svo sem tónskáldið
kemst að orði. Ekki eingöngu fyrir
Sýning að
loknu
vetrarstarfi
SÝNING á hannyrðum og list-
munum aldraðra í Furugerði 1
verður á morgun, laugardag,
milli kl. 13-17.
Sýndir verða munir frá
starfi félagsmanna í vetur. Þar
getur að líta útsaum, útskurð,
leirmuni og fl. Kaffiveitingar
verða seldar á vægu verði.
þær sakir að það er í fjórum köflum,
heldur jafnframt þar sem nóturnar
spanna sextán blaðsíður í hrein-
skrift. „Samkvæmt orðabókinni
minni nefnast fjórir fjögurra blaðs-
íðna „kálfar“ Quaternio þegar þeir
eru saumaðir saman og úr verða
sextán blaðsíður,“ upplýsir Snorri.
Quaternio er tileinkað Guðrúnu
og Martial. Kveðst Snorri hafa sam-
ið verk fyrir systur sína þegar þau
voru börn en síðan hafi hann lítið
samið fyrir flautu nema í samhengi
við annað. „Það var því tími til kom-
inn fyrst það eru tveir flautuleikarar
í fjölskyldunni."
Snorri er vanur að semja tónverk
með ákveðna flytjendur í huga. Seg-
ir hann þau vinnubrögð eiga vel við
sig enda verði verkefnið „lífrænna"
fyrir vikið. Viðurkennir tónskáldið
að það hafi ekki spillt fyrir að þessu
sinni að flytjendurnir skyldu standa
honum svo nærri.
Tónskáldið hefur vitaskuld fylgst
grannt með æfingum að undanförnu
og fullyrðir að allt hafi gengið að
óskum, jafnvel þótt verkið sé „svolít-
ið erfitt" í flutningi. „Guðrún og
Martial kunna sitt fag.“ Segist það
vel geta hugsað sér að skrifa fleiri
verk fyrir flautu, þótt ekki vilji það
lofa neinu fram í tímann.
1. Málabraut
2. Hagfræðibraut - málalína
3. Hagfræðibraut -stærðfræðilína
4. Stærðfræðibraut
Umsóknum þarfað skila á sérstöku eyðublaði sem fest á skrifstofu skólans.
Umsóknarfrestur rennur út 6. júní kl. 16.00.
Upplýsingar á heimasíðu skólans
Upplýsingar um nám er að finna á heimasíðu skólans
http://www.tvi.is
Þar er einnig hægt að leggja inn fyrirspurnir og umsókn um skólavist.
verður í Verzlunarskóla Islands mánudaginn 2. júní kl. 16-19. Þar munu kennarar
og námsráðgjafar veita upplýsingar um námið í skólanum og taka á móti
umsóknum.
Verið velkomin.
- kjarni málsins!