Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sex nunnur
á leið til Islands
SEX mexíkóskar nunnur eru
væntanlegar hingað til lands um
miðjan júní, en þær tilheyra
Margrétarsystrum. Nunnurnar
munu hafa aðsetur í Landakoti
að sögn séra Jakobs Rolands hjá
kaþólsku kirkjunni hérlendis.
Nunnurnar eru enskumælandi
og tilheyra samfélagi sem stofnað
var 1902 af Móður Maríu Guadal-
upe Garcia Zavala, en hún lést
árið 1962. Búist er við að páfinn
taki hana í tölu hinna biessuðu
innan skamms. Regla þessi á
eignir í Mexíkó, Perú og Banda-
ríkjunum og eru um 200 systur
í henni, flestar ungar að árum.
Nýrra nunna leitað
Systur reglunnar annast m.a.
sjúklinga og aldraða, hjálpa til í
trúfræðslu og er gert ráð fyrir að
eftir að þær hafa lært íslensku
og lagað sig að landi og þjóð,
muni þær sjá um heimilishald
prestanna og biskupsins hérlendis.
Einnig er fyrirhugað að svo-
kallaðar Birgittusystur af Reglu
hins alhelga endurlausnara setjist
að hérlendis áður en Iangt um
líður og jafnvel Fransiskussystur
að sögn séra Jakobs.
„Ekki er endanlega frágengið
með aðrar reglur en Margrétar-
systur, en Jóhannes Gijsen biskup
er nú I Róm þar sem hann mun
meðal annars ræða við fulltrúa
frá höfuðstöðvum systrareglna.
Um 50 nunnur eru starfandi hér-
lendis um þessar mundir og hafa
verið undanfarin ár, og ég hugsa
að heildartalan verði alltaf nálægt
því sama,“ segir séra Jakob.
Hann segir að St. Jósefssystur
séu orðnar fáliðaðar og margar
Fransiskussystur sem unnið hafa
í Stykkishólmi séu orðnar all-
rosknar. St. Fransiskuspríorinn-
an yfír norður-Evrópu og tvær
systur úr æðstaráði reglunnar
sem staðsett er í Róm, komu til
landsins á þiiðjudag og það er
við því að búast að á næstu mán-
uðum skýrist hvert framhaldið
verði hjá reglunni,“ segir hann.
Munkaklaustur árið 2000?
í nýjasta hefti Kaþólska kirkju-
blaðsins greinir Jóhannes Gijsen
biskup frá því að hann hafi lagt
allt kapp á að Ieita uppi nýjar
systur. Þær eigi einkum að koma
í stað St. Jósefssystra og taka
um leið að sér ný hlutverk.
Hann kveðst jafnframt horfa
með bjartsýni til þess möguleika
að munkaklaustur verði stofnað
hérlendis. Hann nefnir árið 2000
í því sambandi og að um hugleið-
ingaklaustur fyrir munka yrði að
ræða. Slíkir munkar gætu hlaup-
ið undir bagga með prestþjón-
ustunni.
„Við vonum að síðasttalda
markmiðið náist með því að laða
hingað presta frá ýmsum löndum,
enda hefur páfastóllinn nú fyrir
skemmstu heitið mér hjálp og
meðalgöngu til þess,“ segir Jó-
hannes biskup.
Sala á eignum Fáfnis á Þingeyri
Tilboðið rennur út í dag
NIÐURSTAÐA fékkst ekki í gær
um sölu á eignum Fáfnis á Þing-
eyri. Fiskveiðasjóður og Landsbanki
íslands eru í viðræðum við fram-
kvæmdastjóra fisksölufyrirtækis og
fiskverkanda um sölu á eignunum
sem lánastofnanimar yfirtóku á
Þingeyri. Tilboðið rennur út á há-
degi í dag.
„Það er verið að vinna í málinu
en tilboðið rennur út á hádegi. Ég
vona að það verði komin niðurstaða
í málið fyrir þann tíma,“ sagði Hin-
rik Greipsson hjá Fiskveiðasjóði.
Morgunblaðið/Golli
Þjóðleik-
húsið fær
ádrepu
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hlaut Sjálfs-
bjargarádrepuna, „Þránd í götu“
í ár og komu félagar í Sjálfs-
björg, landssambandi fatlaðra og
félagar í Ný-ung, sem er ungliða-
hreyfing samtakanna saman fyr-
ir framan Þjóðleikhúsið og
minntu á slæmt aðgengi fyrir
fatlaða að leikhúsinu. A árunum
1990-91 var ráðist í endurbætur
á Þjóðleikhúsinu, sem kostuðu
um einn milljarð. í fram-
kvæmdaáætluninni var gert ráð
fyrir lyftu en hún hefur enn ekki
verið sett upp. Bent er á að í
aðalsýningarsal hússins sé ekki
aðstaða fyrir hjólastóla nema
með miklum tilfæringum á sæt-
um og að Litla sviðið og Smíða-
verkstæðið séu algerlega óað-
gengileg.
Andlát
EGGERT
ÓLAFSSON
EGGERT Ólafsson,
bóndi á Þorvaldseyri,
Austur- Eyj aljöllum,
lést á heimili sínu 24.
maí síðastliðinn.
Eggert var fæddur
29. júní 1913 á Þor-
valdseyri. Faðir hans
var Olafur Pálsson
bóndi á Þorvaldseyri
og móðir hans var Sig-
ríður Ólafsdóttir. Egg-
ert bjó alla sína tíð á
Þorvaldseyri.
Eggert gekk þrjá til
fjóra vetur í bamaskóla
á Raufarfelli. Hann
vann alla tíð á sínu búi. Þar hélt
hann uppi orðstír Klemens Kristj-
ánssonar frá Sámsstöðum og mega
þeir teljast vera frumkvöðlar kom-
ræktar hér á landi á seinni tímum.
Eggert tók virkan
þátt í félagsstörfum
bænda og var í yfir 40
ár í stjóm Mjólkurbús
Flóamanna og gegndi
þar einnig for-
mennsku. Hann var i
stjórn Mjólkursamsöl-
unnar í mörg ár og í
stjórn Búnaðarsam-
bands Suðurlands.
Eggert hóf kornrækt
á landi sínu árið 1960
og hefur korn verið
ræktað þar óslitið síð-
an. Hann aflaði sér
þekkingar á kornrækt
í Noregi þar sem hann kynntist eft-
irlifandi eiginkonu sinni, Ingibjörgu
Ólafsson. Þau eignuðust fjögur
böm, þijá drengi og eina stúlku.
Þau em uppkomin og öll á lífí.
)
I
Svíþjóð og Danmörk draga taum Islands og Noregs í Schengen-málefnum
Komið til móts við
norræn sjónarmið
Samningamenn á ríkjaráðstefnu ESB hafa
komið til móts við sjónarmið norrænu ríkj-
anna varðandi innlimun Schengen í sam-
bandið. Olafur Þ. Stephensen segir að dreg-
ið hafi verið úr valdi yfírþjóðlegra stofnana.
BRÉF ríkisstjórnar íslands til Evr-
ópusambandsins, þar sem því er lýst
að íslandi sé ekki kleift að taka þátt
í Schengen-vegabréfasamstarfínu
eigi að innlima það í yfirþjóðlega
fyrstu stoð sambandsins, er fremur
aðferð til að þrýsta á samningamenn
á ríkjaráðstefnu ESB að taka tillit
til íslenzkra hagsmuna en að verið
sé að útiloka þátttöku í breyttu
Schengen-samstarfi fyrirfram. Bréf
íslands hefur að mati viðmælenda
Morgunblaðsins þegar skilað árangri
og hafa samningamenn komið til
móts við þau sjónarmið, sem nor-
rænu ríkin, innan og utan ESB,
hafa lýst.
Island og Noregur hafa undirritað
samstarfssamninga við Schengen-
ríkin en þeir hafa enn ekki tekið
gildi, enda er eftir að þingfesta þá
í báðum ríkjunum. Sjái ríkin sér
ekki kleift að taka þátt í Schengen-
samstarfínu eftir innlimun þess í
ESB vegna áhrifa yfirþjóðlegra
stofnana, sem þau eiga ekki aðild
að, er norræna vegabréfasambandið,
sem lengi hefur verið talið einn mik-
ilvægasti árangur Norðurlandasam-
starfsins, jafnframt úr sögunni. ís-
lendingar yrðu þá t.d. að byija að
sýna vegabréf við komu til Dan-
merkur, Svíþjóðar og Finnlands eftir
nærri 40 ára hlé en þess þyrftu borg-
arar annarra ESB-ríkja ekki. Öllum
norrænu ríkjunum er því mikið í
mun að halda í vegabréfasambandið.
Norðmenn vildu ekki
skrifa upp á bréfið
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins leituðu íslenzk stjórnvöld
eftir því við norsku ríkisstjórnina
fyrr í mánuðinum að hún tæki þátt
í að skrifa Evrópusambandinu sam-
eiginlegt bréf, þar sem lýst yrði
þeirri afstöðu að ríkin sæju sér ekki
fært að taka þátt í Schengen-sam-
starfmu ef það yrði fært undir yfir-
þjóðlegar stofnanir ESB. Norðmenn
voru ekki reiðubúnir að skrifa upp
á jafnharðorðan texta og íslendingar
vildu senda. Niðurstaðan varð því
sú að íslenzka ríkisstjómin skrifaði
ein upp á bréfíð.
Norskir embættismenn hafa engu
að síður lýst svipuðum áherzluatrið-
um og íslendingar í samræðum við
fulltrúa Evrópusambandsins, þótt
orðalagið hafi verið varkárara. Þar
á meðal er að auðveldara verði að
leysa vandamál varðandi tengsl ís-
lands og Noregs við Schengen ef
samstarfið tilheyri milliríkjasam-
starfínu í þriðju stoð ESB, fremur
en fyrstu stoðinni. Einnig hafa Norð-
menn nefnt að æskilegt sé að Island
og Noregur hafí aðgang að ákvarð-
anatöku varðandi vegabréfasam-
starfið á öllum stigum og að ísland
og Noregur taki sjálfstæða ákvörðun
um hvort löndin gerast aðilar að
samþykktum fullgildra aðildarríkja
samstarfsins, líkt og kveðið er á um
í núverandi samstarfssamningum.
Varkárari afstaða Norðmanna
kann að helgast af því að slitni nor-
ræna vegabréfasambandið skapast
nánast óleysanlegt vandamál á hin-
um rúmlega 1.600 kílómetra löngu
landamærum Noregs og Svíþjóðar,
en þeir nema þúsundum sem eiga
daglegt erindi yfir landamærin og
þau hafa verið galopin í áratugi.
Svíar hafa líka áhyggjur af þessu
og skemmst er að minnast þess að
Göran Persson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, sagði á fundi sínum með
Davíð Oddssyni forsætisráðherra í
síðustu viku að ekki kæmi til greina
að fórna norræna vegabréfasam-
bandinu. Danir hafa gefíð svipuð
loforð, en þeirra afstaða mótast ekki
sízt af ótta við að gera nokkuð, sem
gæti litið út eins og verið færi að
útvatna undanþáguna frá dóms-
málasamstarfí ÉSB, sem samið var
um eftir að þjóðin felldi Maastricht-
sáttmálann.
Dregið úr áhrifum
yfirþjóðlegra stofnana
A fundum samningamanna á
n'kjaráðstefnunni fyrr í vikunni
reyndust Danir og Svíar norrænu
bræðraþjóðunum haukar í horni. ,
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hlutu tillögur þeirra, um að )
draga úr hlutverki yfírþjóðlegra j
stofnana ESB á vegabréfasamstarf-
ið, hljómgrunn á fundunum.
í fyrrakvöld barst íslenzkum
stjórnvöldum svo glænýtt uppkast
að bókun um innlimun Schengen-
samningsins í stofnsáttmála ESB.
Þar er, samkvæmt heimildum blaðs-
ins, gengið út frá að samstarfið fljdj-
ist að miklu Ieyti í fyrstu stoðina, .
en mjög verði dregið úr valdi Evr- *
ópudómstólsins miðað við það, sem )
áður hefur verið gert ráð fyrir. Kveð- |
ið er á um að dómstóllinn hafi enga
lögsögu varðandi „aðgerðir eða
ákvarðanir, sem tengjast almanna-
reglu eða innra öryggi".
Jafnframt hefur tenging bókunar-
innar og samstarfssamninganna við
Island og Noreg verið gerð skýrari
og ákveðnari og telja menn að þar
með skapist_ betri samningsgrun- .
dvöllur fyrir ísland og Noreg þegar I
kemur að því að semja um aðlögun |
ríkjanna að breyttu Schengen-sam- |
starfí.
Þá er dregið úr áhrifum fram-
kvæmdastjómarinnar í þeim drögum
að samningstexta, sem nú lig0a
fyrir og verður hún að taka aukið
tillit til aðildarríkjanna, þótt hún
haldi rétti sínum til að hafa frum-
kvæði að nýjum reglum.
Enn er ómögulegt að spá fyrir um
endanlega niðurstöðu málsins. Líkast |
til kemur hún ekki í ljós fyrr en á )
sjálfum leiðtogafundinum í Amsterd- i
am í næsta mánuði, þar sem reka á »
smiðshöggið á ríkjaráðstefnuna.