Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997 47 FRÉTTIR Fjölbreytt hátíð í Hafnarfirði Morgunblaðið/Golli FRÁ afhendingu smásjárinnar: Dr. Sigfús A. Schopka, dr. Jóhann Helgason, dr. Alexander Olbrich, sendiráðunautur, sem einnig er fyrrum styrkþegi Humboldt-stofnunarinnar, og dr. Reinhart Ehni, sendiherra Þýskalands. Fékk bergfræðismásjá NÝLEGA fékk dr. Jóhann Helga- son, jarðfræðingur, forstöðu- maður Jarðfræðistofnunar Ekru, fullkomna bergfræðismásjá frá Alexander von Humboldt-stofn- uninni í Þýskalandi. Síðan Alexander von Hum- boldt-stofnunin hóf styrkveiting- ar til rannsókna- og vísindastarfa hafa hátt í 50 íslendingar hlotið styrki stofnunarinnar til fram- haldsnáms og vísindastarfa í Þýskalandi, þar af 35 eftir heim- styijöldina síðari. Stofnunin leggur mikla áherslu á ræktarsemi við fyrrum styrkþega sína með viðbótar- styrlqum síðar á starfsferlinum, t.d. til bóka- og tækjakaupa. Ennfremur er fyrrverandi styrk- þegum stundum boðið á ný til Þýskaland í kynnisferðir eða til frekari rannsóknastarfa um nokkurra mánaða skeið. Til þess að halda uppi sem bestum tengsl- um milli fyrrum styrkþega hafa verið stofnuð Humboldt-félög víða um heim. Alexander von Humboldtfélagið á íslandi var stofnað 1979. Núverandi formað- ur þess er dr. Sigfús A. Schopka, fiskifræðingur. ÞAÐ verður mikið um að vera í Hafnarfirði á laugardag, en þá verða haldnir hvort tveggja Hafnar- dagar og dagur ferðaþjónustunnar í Hafnarfirði. Það eru Höfnin og Upplýsingamiðstöð ferðamanna sem standa sameiginlega að dag- skránni. Dagskráin hefst kl. 10 með fræðslu- og skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna við Fiskmarkaðinn og þar er boðið upp á dagskrá allan daginn. Boðið verður upp á skoðun- arferðir um Hafnarfjarðarhöfn und- ir leiðsögn þar sem fjallað verður um sögu og framtíð hafnarinnar. Siglingaklúbburinn Þytur lánar báta í Flensborgarhöfn og ferða- þjónustuaðilinn Langskip býður gestum í skoðunarferðir með „nú- tíma víkingafleyjum“. Hið nýja handverkshús víkinga við Fjörukrána kynnir starfsemi sína. I Firði - kaupstað við sjó, verða ýmsar kynningar á gangi og nýtt kaffihús, Kaffi Fjörður, opnað formlega. Ölj söfnin í Hafnarfirði verða opin. Í Sjóminjasafni verða gamalreyndir sjómenn við störf og sýna vinnu við lóðir, netabætingu, hnúta og splæsingu. Byggðasafn Hafnarfjarðar efnir til nýjungar í tilefni dagsins, en það er „sagna- ganga“ en það er að þessu sinni Hestalitadagur í Laugardal í FJÖLSKYLDU- og húsdýragarð- inum verður kynning á litaafbrigð- um íslenska hestsins laugardaginn 31. maí kl. 13-18. Friðþjófur Þor- kelsson verður með fyrirlestur kl. 13.30 og aftur kl. 15.30 um hestaliti. Verslunin Hestamaðurinn verður með kynningu á ýmsum vörum tengdum hestamennsku í hesthús- inu. Börnum verður boðið á hestbak frá kl. 14-16. Létt getraun verður í gangi um hestaliti og einnig sam- keppni meðal gesta hvaða hestur sé fallegastur á litinn í garðinum þennan dag. Sunnudaginn 1. júní verður Ólaf- leiðsögn um söguslóðir verkamanna í Hafnarfirði. Lagt verður upp frá Smiðjunni, sýningarsal Byggða- safnsins við Strandgötu, en þar er nú uppi sýningin Af lífi hafnfirskrar alþýðu. Sagnagöngu lýkur við Siggubæ sem er alþýðuheimili frá fyrri hluta 20. aldar. Á Víðistaðat- úni verða skátar með tjaldbúð og vekja athygli á tjaldsvæðinu. Huliðsheimar og víkingar Frá Upplýsingamiðstöð ferða- manna, Njálsgötu 8, verður farið í hugleiðsluferðir með Erlu Stefáns- dóttur, sjáanda, kl. 11 og kl. 13.30, um huliðsheima Hafnarfjarðar. Ferðamálaefnd býður öllum leið- sögumönnum í kynnisferð um Hafn- arfjörð undir leiðsögn. í þessar ferð- ir er nauðsynlegt að bóka sig í Upp- lýsingamiðstöð. Dagskrá Víkingahá- tíðar sem haldin verður 9.-13. júlí í sumar verður kynnt í Upplýsingam- iðstöð. Víkingasveitin Rimmugýgur sýnir vopnfimi kl. 14 áTorgi Bjama riddara og leggur síðan til atlögu við Fjörukrána um kl. 15. Um kvöldið verður Hafnarfjarð- arleikhúsið Hermóður og Háðvör með sýningu á Að eilífu. Dagskrá Hafnardags og dags ferðaþjón- ustunnar lýkur með Hafnarballi á Kænunni og í Fjörukránni. ur Dýrmundsson með fyrirlestur í Kaffíhúsinu kl. 14 sem nefnist Tóm- stundabúskapur í þéttbýli. Bömum verður boðið að fara á hestbak kl. 14-16. Sprell-leiktæki verða í Fjöl- skyldugarðinum en þar em einnig öll sumarleiktæki garðsins komin í gagnið. Garðurinn er opinn alla daga frá kl. 10-16. Hjólabrettamót á Ingólfstorgi H J ÓLABRETT AÍ ÞRÓTTIN hefur verið að ryðja sér til rúms meðal unglinga. Laugardaginn 31. maí verður efnt til hjólabrettamóts á Ingólstorgi í Reykjavík og hefst keppnin kl. 14. Sumarsýning í Árnagarði STOFNUN Árna Magnússonar á íslandi opnar sumarsýningu hand- rita í Ámagarði 1. júní kl. 13. Verð- ur sýningin opin daglega frá kl. 13—17 til ágústloka. í tilefni af lokum handritaafhend- ingar frá Danmörku verða á sýning- unni í sumar ýmsir mestu dýrgripir safnsins sem sjaldan hafa verið sýndir hin síðari ár, þeirra á meðal fyrstu tvö handritin sem hingað bámst 1971, Konungsbók eddu- kvæða og Flateyjarbók. Litprentuð sýningarskrá er innifalin í aðgangs- eyri sem er 300 kr. Auk handrit- anna verður myndefni, bækur og textar, sem tengjast handritunum og sögu þeirra, sýnt í anddyri Áma- garðs og í stofu 201 andspænis inngangi í stofnunina. Ræs með Ása í Bæ í Akóges í Eyjum RÆS með Ása í Bæ heitir söng- kvöld í Akóges í Vestmannaeyjum í kvöld, föstudags- kvöld,_ 30. maí, þar sem Árni Johnsen og Gísli Helgason munu flytja gam- alkunn ljóð og lög Ása í Bæ og ýmsa sjómanansöngva í bland. Dagskráin hefst kl. 22 og stendur til kl. 1. Fjölmargir textar Ása í Bæ em landskunnir, margir við lög Odd- geirs Kristjánssonar en Ási samdi sjálfur mörg kunn lög. I Akóges er jafnframt myndlist- arsýning Viðars Breiðfjörðs. GKæsH*sgur frfstuisííSa- : fotnaður ÚTIVISTARBÚÐIN við Umferðaimiðstöðina, símar 5519800 og 5513072. Ási í Bæ R A O A U G L Ý S 1 IM G A R Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Breiðamörk 8, Hveragerði, þingl. eig. Hans Christiansen, gerðarbeið- endur Byggingarsjóður ríkisins og Lánasjóður íslenskra námsmanna, fimmtudaginn 5. júní 1997, kl. lO.OO. Eyrarvegur 1, Selfossi, þing. eig. L. Árnason ehf. og Ársæll Ársaelsson, gerðarbeiðendur Landsbanki (slands, lögfrdeild, Landsbanki íslands, Selfossi og Selfosskaupstaður, fimmtudaginn 5. júní 1997, kl. 13.00. Háengi 12, ib. 13, Selfossi, þingl. eig. Hjördís Erna Traustadóttir, Byggingarsjóður verkamanna og Húsnæðisnefnd Selfoss, gerðarbeið- andi Byggingarsjóður verkamanna, fimmtudaginn 5. júní 1997, kl. 13.30. Hrísholt. Laugarvatni, þingl. eig. Sigurður Sigurðsson, gerðarbeiðend- ur Búnaðarbanki (slands, Selfossi, Byggingarsjóður ríkisins, Heilbrigð- iseftirlit Suðurlands, íslandsbanki hf., höfuðst. 500 og sýslumaðurinn á Selfossi, miðvikudaginn 4. júni 1997, kl. lO.OO. Laufskógar 23, Hveragerði, þingl. eig. Kristjana Árnadóttir, Garðar Árnason, Jakob Þór Pétursson, Viðar Pétursson, Lilja Pétursdóttir, Rosemary E. Sveinbjörnsdóttir, Gestur Jónsson, Kristrún Jónsdóttir, Bína Jónsdóttir og Jóna Ingvars Jónsdóttir, gerðarbeiðandi Hvera- gerðisbær, fimmtudaginn 5. júní 1997, kl. 11.30. Lindarskógar 6-8, Laugavatni (eignarhl. gþ.),þingl. eig. Sigurður Sigurðsson og Ásvélar hf„ gerðarbeiðendur Laugardalshreppur, Ríkissjóður og sýslumaðurinn ó Selfossi, miðvikudaginn 4. júní 1997, kl. 10.30. Skólavellir 7, Selfossi, þingl. eig. Hótel Gullfoss ehf„ Selfossi, gerðar- beiðendur Ferðamálasjóður, Landsbanki íslapds, Selfossi og Selfoss- kaupstaður, fimmtudaginn 5. júní 1997, kl. 14.00. Strandgata 3, Stokkseyri (2/3 hl. n.b. + 1/3 hl. kj.), þingl. eig. db. Magn- úsarBjarnasonar, gerðarbeiðandi Land6banki íslands, Reykholti, fimmtudaginn S. júní 1997, kl. 15.00. Víðigerði, lóð úr Stóra Fljóti, Biskt.hr. (ehl. gþ.), þingl. eig. Ólafur Ásbjörnsson og Ásrún Björgvinsdóttlr, geröarbeiðandi Landsbartki íslands, Reykholti, miðvikudaginn 4. júní 1997, kl. 13.00 Sýslumaðurinn á Selfossi, 29. maí 1997. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 1, Isafirði, sem hér segir, á eftirfarandi eignum: Brekkugata 31, Þingeyri, þingl. eig. Páll Björnsson, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, þriðjudaginn 3. júní 1997, kl. 14.00. Fjarðarstræti 2, 0201, (safirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd (safjarðarbæj- ar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna, þriðjudaginn 3. júní 1997, kl. 14.00. Hjallavegur 1,0101, Flateyri, þingl. eig. Ólafur Rafnsson hdl. v/db. Þrastar Daníelss., gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, húsbréfa- deild, þriðjudaginn 3. júní 1997, kl. 14.00. Hjallavegur 1,0201, Flateyri, þingl. eig. Guðmundur J. Baldursson og Katrín Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, þriðjudaginn 3. júní 1997, kl. 14.00. Malargeymsl., hellus., bílav. v/Grænagarð, (safirði, þingl. eig. Eyrar- steypa ehf„ gerðarbeiðandi (safjarðarbær, þriðjudaginn 3. júní 1997. kl. 14.00. Mánagata 4, 0101, (safirði, þingl. eig. Kristján Atli Hjaltalín og Verð- bréfasjóðurinn ehf„ gerðarbeiðendur Byggingarsjóður rikisins, hús- bréfadeild og (safjarðarbær, þriðjudaginn 3. júní 1997, kl. 14.00. Múlaland 12,0202, ísafirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd Isafjarðarbæjar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna, þriðjudaginn 3. júní 1997, kl. 14.00. Ólafstún 3, Flateyri, þingl. eig. HólmfríðurH. Guðjónsdóttirog Magnús Ingi Björgvinsson, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður rikisins, husbréfa- deild, þriðjudaginn 3. júní 1997, kl. 14.00. Ólafstún 5„ Flateyri, þingl. eig. Guðbjörn Páll Sölvason og Flateyrar- hreppur, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, þriðjudaginn 3-júní 1997, kl. 14.00. Trésmíðaverks. v/Grænagarð, ísafirði, þingl. eig. Eyrarsteypa ehf„ gerðarbeiðandi (safjarðarbær, þriðjudaginn 3. júní 1997, kl. 14.00. Vallargata 7, Flateyri, þingl. eig. Flateyrarhreppur, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, þriðjudaginn 3. júní 1997, kl. 14.00. Sýslumaðurinn á (safirði, 29. maí 1997. Verðandi foreldrar ath. Fræðslunámskeið fyrir verðandi foreldra. Leiðbeinandi: Guðrún Ólöf Jónsdóttir Ijósm. Staður: Stýrimannaskólinn, v/Öldugötu 23, 101 Reykjavík. Upplýsingar og skráning í síma 566 8258 eða GSM 898 7730. FUiMOIR/ MANNFAGNAÐUR Ástarfíkn Fyrirlestur Vilhelmínu Magnúsdóttur um sam- skiptaferli ástvina verður í Norræna húsinu laugardaginn 31. maí kl. 16.00. SMÁAUGLÝSINGAR árið 1933, úr Kjós um Hátind að Hrafnahólum. Brottför frá BSÍ, austanmegin og Mörkinni 6. Verð 1.000 kr. Kl. 14.00-17.00 Opið hús í Mörkinni 6, (miðhús). Kynning á ferðum og annarri starfsemi Ferðafélagsins, árbók 1997, ferðaútbúnaði, landakortum o.fl. Þrautarbraut fyrir unga sem aldna á útisvæði. Laugardagur 31. maí. Reykjavegur 3. áfangi. Gengiö frá Dyradal um hin sérstáeða Marardal að Lamba- felli. Brottför frá BSÍ, sunnanmegin og Mörkinni 6. Nokkra sjálfboðaliða vantar í Þórsmörk um helgina. Á slóðir Eyrbyggju 7.-8. júní. Einstök söguferð á Snæfells- nes með Birgi Jónssyni jarð- fræðingi. Miðar og uppl. á skrifst. FÉLAGSLÍF FERÐAFÉLAG ® ÍSLANDS MÖRKINNI e - SÍMI568-2533 Sunnudagur 1. júní Fjölmennið á Göngu- og kynningardag, Ferðafélags- ins (F.í. 70 ára) Kl. 10.30 Fjöl8kylduganga í Esjuhlíðum. Um 1,5^2 klst. ganga. Gullleit í gilinu-, og skóg arstígar. Áning í skógarrjóbri, léttar veitingar. Heimkoma ki, 14.00. Rútuferð frá Ferðafélags- húsinu, Mörkinni 6, verð 500 kr. frítt f. börn m. futlorðnum. Haegl er að mæta á eigin vegum á bíla- stæðið hjá Mógilsá, en brottför i gönguna „r kl. 11.00. Kl. 09.00 Afmælisganga yfir Esju. Minnst fyrstu göngu F.f.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.