Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1997 31 en þar er átt við það þegar arfur fer allur til eins sonar, yfírleitt hins elsta, í stað þess að skiptast milli allra sonanna. Hann sagði að lóðréttri ættrakningu hefði einkum verið beitt við valdaerfðir en síður þegar eignir erfðust. Hann sagðist telja að skýring mikilla gjafa höfð- ingja til staða á þessum tíma hafi ekki verið sú að þeir hafi reynt að losna undan því að greiða tíund heldur hafi ástæðan verið að yfir- ráð yfir þeim erfðust samkvæmt lóðréttri ættrakningu ólíkt per- sónulegum eignum. Þannig hafi höfðingjarnir reynt að halda arfin- um óskiptum. Sagnfræðingarnir Guðrún Harðardóttir og Þór Hjaltalín sögðu frá vörnum heimilis á þjóð- veldisöld. Þau sögðu meðal annars að mikil útbreiðsla guðshúsa gæti að hluta skýrst af því að þau voru griðastaðir og því gott skjól í ófriði þessara tíma. Einnig gátu þau sér til um að virki hafi ekki aðeins verið byggð til varnar heldur einn- ig til að auka virðingu höfðingja. Fj'öldi annarra fyrirlestra var haldinn í gær, í efnisflokkunum „Heimili á miðöldum“ og „Ein- staklingar án sögu - saga án ein- staklinga“, sem fjallar um per- sónulegar heimildir, auk ýmissa stakra fyrirlestra. Að þeim loknum var móttaka á vegum Björns Bjamasonar menntmálaráðherra á Þjóðminjasafninu. í dag verður íjallað um auð, vald og menningu 1550-1800 og rann- sóknir ungra fræðimanna. Umræð- ur fræðimanna um innreið nútím- ans á íslandi verða opnar öllum almenningi. Síðdegis munu ráð- stefnugestir heimsækja Bessastaði og um kvöldið verður mótttaka á vegum Reykjavíkurborgar. I Ráð- húsi Reykjavíkur verður leiklesið fyrsta íslenska leikritið, Sperðill. Már Jónsson Már sagði að kvennamál Arna væru ekki mikil eða merkileg. Á yngri árum hefði hann í bréfum rætt um kvonfang, en það hefði alltaf verið í sambandi við mál tengd afkomu hans. Hann hefði velt fyrir sér að giftast tiltekinni prófastsdóttur og þá jafnframt að verða biskup á Hólum eða varabisk- up í Skálholti. Þetta hefði verið algengt á þessum tíma. Gifting hefði oftar en ekki snúist um af- komu frekar en ást. Þegar Árni var fimmtugur gift- ist hann dönsku ekkjunni Mette Fisher Magnussen, sem var tutt- ugu árum eldri en hann. Danskur fræðimaður sem fjallaði um þessa konu fyrir um 30 árum ritaði í bók sína þá meinlegu athugasemd að þetta sýndi vel áhuga Árna á forn- gripum. Már sagði í fyrirlestri sín- um að ekkert benti til annars en þetta hefði verið gott hjónaband. Árni hefði verið að giftast til fjár eins og fleiri hefðu gert fyrr og síðar. Már sagði að Árni hefði verið eins konar munkur og ef hann hefði átt kost á því hefði hann án efa gengið í klaustur og sinnt áhugamálum sínum þar. Jón Sig- urðsson hefði um margt verið svip- uð manngerð, nákvæmur vinnu- sjúklingur, sem ekkert vissi skemmtilegra en að grúska í göml- um skjölum. Fólksfækkun í Búðahreppi Opið bréf til forystumanna Óháðra, Alþýðubandalags og Sjálfstæðisflokks í Búðahreppi - Fáskrúðsfirði VEGNA þeirra orða sem eftir ykkur voru höfð í Morgunblaðinu 23. maí sl. vil ég koma á framfæri eftirfar- andi: Vegna fólksfækkun- ar í Búðahreppi á liðn- um árum er það mikil einföldun á stóru og alvarlegu máli að kenna kaupfélaginu og framsóknarmönnum um það. Því miður hafa flestir staðir á lands- byggðinni þurft að þola fólksflótta á liðnum árum. Flestir í þeirra hópi fara á suð-vestur hornið, þar sem menn búa við lægri húshitunarkostnað, lægra vöruverð, betri heilsugæslu, fjölbreyttara at- vinnulíf og svona mætti lengi telja. Þessari þróun verður ekki snúið við með órökstuddum fullyrðingum eða upphlaupum í fjölmiðlum. Vilji menn virkilega snúa vörn í sókn væri ráð að líta fyrst í eigin barm í stað þess að vera sífellt að skamm- ast út í aðra. Það er rétt eftir ykkur haft að kaupfélagið og Loðnuvinnslan eru stærstu atvinnurek- endur staðarins, en í þessum fyrirtækjum starfar að jafnaði rúm- lega helmingur vinnu- færra manna á staðn- um, eða um 220 manns. Af þessum fjölda eru 28 í stjóm- unarstöðum að meðt- öldum stjórnum beggja fyrirtækjanna. Það er mikil lítils- virðing sem þessu fólki er sýnd með þeim um- mælum að fyrirtækin ráði fólk eingöngu eftir pólitískum skoðunum þess en ekki eigin verð- leikum. Þeim mönnum sem halda þessu fram hlýtur að líða illa, og hef ég grun um að orðatiltækið: „Margur heldur mig sig“ eigi full- komlega við í þessu tilfelli, því það á ekki við nokkur rök að styðjast að menn séu ráðnir út á stjórnmála- skoðanir sínar. í lok þess viðtals sem áður var vitnað til, lætur einn ykkar hafa eftir sér: „að samskiptum kaupfé- lagsins og sveitarfélagsins verði komið í eðlilegt horf, tekið verði Lars Gunnarsson Brúðhjón Allur borðbiinaöur Glæsileg gjafavara Briiðarhjóna listar ^XV\V VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Tegund: 9913011 Litur: Svartur Stæröir: 35-41 Ath.: Mikið úrval 1 r Póstsendum samdægurs () oppskórinn v/l v/lngólfstorg • v/Veltusund • S. 552 1212 ★ inm.iTio.ál t a io i a i r i l t * s • Tölvutengt timaskráningar- og aðgangskerfi. • Þægilegt og einfalt í meðförum • Fjárfesting sem borgar sig DOWS UMHVERFJ j. nsTvniDSsoN hf. Skipholti 33,105 Reykjavík, simi 533 3535 Óskalisti brúðhjónanna Gjafaþjónusta fyrir brúðkaupið SILFURBÚÐIN Kringlunni 8-12 «Sími 568 9066 _______■ Þarfœrdu {[jöfiMi - árum. Ég skora á þann sem lét hafa þetta eftir sér að skýra frá því opinberlega og með rökstuðn- ingi hafi ekki verið tekið með eðli- legum og málefnalegum hætti á erindum kaupfélagsins til sveitarfé- lagsins í þau ár sem ég hef setið í sveitarstjórn. Það er von mín að pólitíkin hér í Búðahreppi geti farið að snúast um stefnur og málefni og menn komist upp úr þessum endalausa hræðsluáróðri á framsóknarmenn og kaupfélagið og hjálpist að til að gera veg sveitarfélagsins sem mest- an. Mér finnst nóg komið af nei- kvæðri umræðu sem um síðir hittir oftast þá sem hana iðka. Höfundur er hreppsnefndar- fulltrúi Framsóknarflokksins í Búðahreppi og stjórnarformaður Kaupfélags Fáskrúðsfjarðar. Nóg er komið af neikvæðri umræðu, segir Lars Gunnars- son, og mál komið að gera veg sveitarinnar sem mestan. málefnalega á erindum kaupfélags- ins en skrúfað fyrir sjálfsafgreiðslu félagsins nú þegar það hefur ekki sömu aðstöðu til hagsmunagæslu". Ég spyr: Hvað gengur þeim mönn- um til sem halda slíku fram? Þeir hljóta að vera í mikilli sálarkreppu og málefnafátækt að bera sjálfa sig og aðra slíkum sökum, því ekki höfum við framsóknarmenn stjórn- að þessu sveitarfélagi einir á liðnum Laugardaginn 31. maí. Ekkert þátttökugjald. Ókeypis strætóferöir meö hjólin: Hjóladagur Opel og iþrótta ffyvir alla Lagt af stað frá Sævarhöfða 2a, Bílheimum kl. 13.00 Boðið upp á tvær leiðir um Elliðaárdalinn og nágrenni ca. 7 km. og ca. 15 km. Skráning í Bílheimum frá kl. 11.30. Veitingar Úrdráttarverðlaun: Philips sjónvarp og reiðhjólahjálmar frá Erninum. Spaugstofan Tamlasveitin og Sigrún Eva Tríó Björns Thoroddsen Jónas Þórir og Jónas Dagbjartsson Seltjarnarnes/Vesturbær: Frostaskjól v/KR heimilið kl. 12.00. Skerjafjörður/Þorrag. kl. 12.20. Miklabraut/Langahlíð kl. 12.30. Hafnarfj./Garðab./Kópav.: Verslunarm. Fjörðurinn. kl. 12.00. Skiptistöð í Garðabæ kl. 12.10. Skiptistöð í Kópavogi kl. 12.20. Strætóferðir til baka að hátíð lokinni. -Þýskt eöalmerki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.