Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1997 MORGUNBLAÐIÐ JMftrgtmHafrtí STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRl RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. ÖRLAGARÍK ÁKVÖRÐUN IDAG fer fram á Vestfjörðum atkvæðagreiðsla um miðlunar- tillögu sáttasemjara í þeirri hörðu vinnudeilu, sem þar hefur staðið í margar vikur. Sáttasemjara hefur verið mikill vandi á höndum við gerð þessarar tillögu. Hann hefur í fyrsta lagi orðið að taka tillit til þeirrar hörðu afstöðu, sem fram hefur komið í verkalýðshreyfingunni á Vestfjörðum gegn kjarasamningum, sem væru að langmestu leyti áþekkir þeim samningum, sem gerðir hafa verið annars staðar á landinu. í öðru lagi hefur sáttasemjari orðið að taka mið af þeim veruleika, að sjávarútvegurinn á Vestfjörðum er ver staddur og fyrirtækin mun veikari en sjávarútvegsfyrirtæki í öðrum landshlutum. Þetta eru engin ný sannindi heldur vita allir landsmenn, að sjávarútvegurinn á Vestfjörðum hefur átt við mikil og djúpstæð vandamál að stríða árum saman. í þriðja lagi hefur sáttasemjari orðið að hafa þá staðreynd í huga, að búið er að semja um nánast land allt utan Vest- fjarða. Ef tillaga hans hefði gert ráð fyrir kjarabótum langt umfram það, sem aðrir hafa samið um, hefði mátt búast við mótmælaaðgerðum verkafólks annars staðar. Svigrúm sáttasemjara var því afar takmarkað, þótt ljóst sé, að við gerð miðlunartillögunnar hefur hann gengið tölu- vert lengra en gert var í þeim samningum, sem nú þegar hafa verið gerðir. Sú örlagaríka ákvörðun, sem launþegar og vinnuveitendur standa frammi fyrir í atkvæðagreiðslunni í dag, er sú, að verði miðlunartillagan felld má búast við mjög löngu verk- falli til viðbótar þeim langa verkfallstíma, sem er að baki. Verkalýðsfélögin á Vestfjörðum hafa lagt út í víðtækar að- gerðir til þess að koma í veg fyrir, að landað verði úr vest- firzkum fiskiskipum annars staðar á landinu. Útgerðarmenn munu fljótt gefast upp á að standa í þeim átökum. Þess vegna blasir sú hætta við, að þeir leigi frá sér kvóta fiskiskipanna og atvinnustarfsemi í vestfirzkum sjávarþorpum leggist nán- ast alveg niður. Það er ekkert vit í því fyrir Vestfirðinga að stefna málum í þennan farveg. Miðlunartillagan veitir launþegum á Vest- fjörðum kjarabætur umfram aðra. Það er tímabært að þessi deila verði til lykta leidd. KÖNNUN Á ÖLLUM KOSTUM UMRÆÐUR um áhrif gildistöku Efnahags- og myntbanda- lags Evrópu, EMU, á ísland, hafa verið talsverðar und- anfarið, einkum í viðskipta- og fjármálaheiminum en síður á vettvangi stjórnmálanna. Á þeim fundum og ráðstefnum um EMU, sem haldnar hafa verið síðustu vikur og mánuði, hafa umræðurnar yfirleitt miðazt við þá forsendu, að ísland standi áfram utan Evrópusambandsins og eigi þar af leiðandi ekki kost á aðild að myntbandalaginu eða að nota hina sameigin- legu Evrópumynt. Þetta er að sumu leyti skiljanlegt. Umræður um aðild að ESB hafa verið litlar undanfarið, í ljósi þess að sjávarútvegs- stefna sambandsins hefur þótt óhagfelld fyrir íslendinga. Aðild að Evrópusambandinu er þó kostur, sem fáir hafa úti- lokað, enda er sambandið í stöðugri þróun. Á næstu vikum mun Seðlabankinn skila skýrslu um áhrif EMU á ísland. Þetta verður fyrsta meiriháttar úttektin á áhrifum myntbandalagsins, sem unnin er af færustu sérfræð- ingum. Búast má við að skýrslan verði ein helzta uppspretta upplýsinga um þetta efni á íslenzku og grundvöllur fyrir stefnumótun stjórnvalda, fjármálastofnana og fyrirtækja. Það væri slys, ef Seðlabankinn einskorðaði umfjöllun sína við núverandi stöðu íslands utan Evrópusambandsins. ESB- aðild er vissulega ekki á dagskrá ríkisstjórnar eða Alþingis. En til þess að fá heildar yfirsýn yfir stöðu málsins, er nauð- synlegt að um þann kost sé einnig fjallað í skýrslu bankans. Hugsanlegt er, að Seðlabankinn kæmist að þeirri niður- stöðu að aðild að sameiginlega gjaldmiðlinum myndi styrkja verulega stöðu íslenzks efnahagslífs. Út frá því yrðu menn að meta hvort sá ávinningur vægi þyngra en það óhagræði sem kynni að fylgja aðild að ESB. Það er líka hugsanlegt að niðurstaða Seðlabankans yrði sú að lítill ávinningur væri af aðild'að EMU og menn gætu þá dregið sínar ályktanir af því — væntanlega myndi slík niðurstaða lítið breyta afstöðu íslands. Hvernig sem á málið er litið er mikilvægt að sú sérfræði- þekking, sem Seðlabankinn býr yfir, nýtist til að auka þekk- ingu stjórnmálamanna, fyrirtækja og almennings á þeim kostum, sem standa íslandi til boða. FJÖLMENNI var á kynningarfundi í Verkalýðsfélaginu Baldri á ísafirði þegar miðlunartillaga ríki Fjölmenni á fundi Verkalýðsfélagsins Bal( Talað gegn miðli tillögu sáttasem Formaður Verkalýðsfélagsins Baldurs á ísafirði gagnrýndi margt í miðlunartillögu ríkissáttasemjara þegar hann skýrði hana á fjölmennum fundi. Sagði hann að ef hann mætti myndi hann hvetja félagsmenn til að fella tillöguna í atkvæðagreiðslunni í dag. Undir það var tekið á fundinum sem Helgi Bjarnason fýlgdist með. EG MÁ kannski ekki segja eða leggja neitt til, ef ég mætti það myndi ég segja að menn ættu að fella þetta,“ sagði Pétur Sigurðsson, for- maður Verkalýðsfélagsins Baldurs á ísafirði og forseti Alþýðusambands Vestíjarða, í lok máls síns þegar hann lýsti miðlunartillögu ríkissáttasemj- ara til lausnar kjaradeilunni á Vest- fjörðum á fundi félagsins síðdegis í gær. Fundarmenn klöppuðu vel fyrir formanninum. „Við þurfum ekki að ræða þessa tillögu, fellum hana,“ kallaði einn fundarmanna úr sæti sínu þegar opnað var fyrir umræður og fyrirspurnir og nokkrir fundarmenn tóku undir: „Fella hana, fella hana.“ Fundurinn í Baldri var haldinn í Alþýðuhúsinu á Isafírði og var vel sóttur. 143 mættu en þar með eru taldir nokkrir félagar úr Verkalýðs- og sjómannafélaginu Álftfirðingi í Súðavík. Um 350 ísfirðingar eru í verkfalli. Þrýstingur á ríkissáttasemjara „Við erum í verkfalli til þess að knýja á um betri kjör en við höfum en líka til að fá ákveðið réttlæti, fá aðra skiptingu þjóðarauðsins. Við vildum ekki sætta okkur við að láta skammta okkur skít úr hnefa, þess vegna lögðum við út í verkfall og erum tilbúin til að leggja töluvert í sölurnar til að knýja á um leiðrétt- ingu,“ sagði Pétur Sigurðsson í upp- hafi ræðu sinnar. Vakti hann athygli á því að verkfallið væri orðið eitt hið lengsta í sögunni og það væri frá- brugðið flestum öðrum að því leyti að félagsmenn hefðu þurft að fara nánast um allt land til þess að stöðva verkfallsbrot. Þakkaði hann verkfalls- vörðum fyrir frammistöðuna og fé- lagsmönnum fyrir samstöðuna í verk- fallinu. Gagnrýndi hann vinnuveitendur harðlega fyrir það hvernig þeir hefðu komið fram í samningaviðræðunum. Sagði að þeir hefðu aldrei verið tilbún- ir til að ræða við verkafólkið, sífellt dregið til baka það sem þeir áður voru búnir að lýsa sig reiðubúna að semja um. „Hrokinn er slíkur að ég veit að menn trúa því ekki,“ sagði hann. Sagði Pétur að ógnarvald Vinnuveitendasambandsins réði ferð, ekki hefði mátt semja um annað en það hefði verið búið að semja um við aðra. „Þetta endaði í pattstöðu sem rík- issáttasemjari taldi sig verða að grípa inn í,“ sagði Pétur. Fullyrti hann að sáttasemjari hafi verið beittur miklum þrýstingi, bæði frá ríkisstjórn og öðr- um stjórnvöldum og forsætisráðherra gefið honum fyrirmæli um efni miðl- unartillögu. „Miðlunartillagan ber því miður merki þess sem forsætisráð- herra sagði á tröppum stjórnarráðs- ins,“ sagði Pétur. Hann sagði að hún væri byggð á samningi Verkamanna- sambands íslands, það væri eðlilegt þar sem um væri að ræða samskonar störf en innihaldið skipti þó mestu og lýsti hann vonbrigðum sínum með það hvað lítið væri í pokanum. „Blekkingarleikur" Formaðurinn fór ítarlega yfir miðl- unartillöguna eins og ríkissáttasemj- ari lýsir henni í sérstökum útdrætti. Þar kemur fram að lágmarkstaxtar og yfirvinna hækki um 23%. Pétur gagnrýndi þessa framsetningu og sagði hana blekkingarleik, beinlínis ranga. í því sambandi benti hann á að á móti skertist bónus um 30% og ekki væri hægt að éta sama bitann tvisvar. Sömu orð notaði hann um þá framsetningu ríkissáttasemjara að tekjuáhrif breytinganna yrðu um 8% á heilu ári miðað við algengt vinnu- mynstur, sagði að útreikningar fé- lagsins á „lifandi dæmum“ sýndu að áhrifin væru mun minni. Hins vegar tók hann undir þá túlkun sáttasemj- ara að í hráefnisskorti og á sérstökum frídögum hækkuðu laun fiskvinnslu- fólks um 23%. Þetta væri ljós punktur en sagði einkennilegt að samningur- inn gæfi fólki meira þegar það væri ekki að vinna. Pétur sagði að samningamenn verkalýðsfélaganna hefðu verið til- búnir til að semja til ársins 2000, eins og miðlunartillagan gerir ráð fyrir, en það hefði verið háð því að samning- urinn gæfi meira en Verkamanna- sambandssamningurinn. Með þessu innihaldi miðlunartillög- unnar væri komið aftan að þeim. Hann vakti athygli á því að grunn- kaupshækkun væri 0,5% hærri í upp- hafi en hinir sömdu um en gagnrýndi það harðlega að 3,5% hækkun árið 2000 væri látin koma til framkvæmda 1. mars en ekki 1. janúar eins og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.