Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1997 49 FRÉTTIR Athugasemd I MORGUNBLAÐINU hinn 4. maí sl. birtist mynd með grein eftir einn af pistlahöfundum blaðsins, sem ekki var við hæfi að birta. Myndin, sem var af ljós- myndafyrirsætu hafði verið klippt út úr því umhverfi, sem hún var tekin í og slá með inn- kaupapokum hengd á fyrirsæt- una. Morgunblaðið biður Ragnheiði Guðnadóttur ljósmyndafyrirsætu afsökunar á þessum mistökum. Ritstj. Nám í matvæla- og næringar- fræði við HÍ Hvala- og sjófugla- skoðun frá Sandgerði ÚT ER komið lítið kynningarrit um nám í matvælafræði og nær- ingarfræði við raunvísindadeild Háskóla íslands. „Kynningin er fyrst og fremst ætluð nýstúdentum, sem fá ritið sent heim, og öðrum sem hyggja á háskólanám og hafa stúdentspróf frá náttúrufræði-, eðlisfræði- eða sambærilegum brautum fram- haldsskólanna. Það inniheldur kafla um mikilvægi matvælafræða og störf matvæla- og næringar- fræðinga að námi loknu. Þar kem- ur fram að matvælafræði og nær- ingarfræði verða að teljast til fræðigreina framtíðarinnar bæði hérlendis og erlendis. Greinarnar eru íslendingum sérstaklega mikil- vægar þar sem matvæli standa undir um 75% af útflutningstekjum þjóðarinnar. Þó er það staðreynd að stór hluti af hérlendri matvæla- framleiðslu er á frumvinnslustigi og margfalda má tekjur af matvæ- laútflutningi með góðri vinnslu vörunnar hér heima. í þeirri verð- mætasköpun er hlutverk matvæla- HELGARDAGSKRÁIN í Viðey hefst með morgungöngu á laugar- dag. Farið verður með Maríusúð úr Sundahöfn kl. 10 og gengið af Við- eyjarhlaði framhjá Klausturhól og vestur á Eiði. Þar er fallegt og íjöl- breytilegt landslag og mikið fugla- líf. Síðan verður gengið um Vestur- eyna þar sem m.a. er að sjá steina með áletrunum frá 19. öld og svo ekki síst umhverfislistaverkið Áfanga eftir R. Serra. Þar eru einn- ig forn ból lundaveiðimanna og margt fleira sem leiðsögumaður Fyrirlestur um ástarfíkn VILHELMÍNA Magnúsdóttir held- ur fyrirlestur um ástarflkn í Nor- raana húsinu laugardaginn 31. maí kl. 16. „Ástarfíkn er þegar manneskja einbeitir sér jafnmikið eða meira að ástvini sínum (sem getur verið maki, barn, foreldri, vinkona - vin- ur) heldur en að sjálfri sér. Og ást- vinurinn er ekki fyllilega til staðar, leitar meira í vinnuna, áhugamálin, aðra vini eða í áfengi, frekar en að vera til staðar,“ segir í fréttatil- kynningu. Lýst eftir stolnum bíl LÝST er eftir bíl af gerðinni Volkswagen Jetta með skrásetning- arnúmerið OY-304, en honum var stolið af bílastæðinu við Kolaportið síðastliðinn mánudagsmorgun. Bíll- inn er af árgerð 1992 og er hann dökkblár að lit. Þeir sem geta gefið fræðinga og næringarfræðinga mjög mikilvægt. í ritinu er einnig sagt frá kennurum og frá Hnallþóru, en það er heitið á félagi matvælafræði- nema við HÍ. Uppbyggingu náms- ins eru gerð góð skil en í Háskóla íslands má ljúka BS-gráðu í mat- vælafræði, með áherslu á hefð- bundna matvælafræði eða næring- arfræði, og MS-gráðu í matvæla- eða næringarfræði. Ritið er lit- skrúðugt og skreytt ljósmyndum af gömlum málverkum og af stúd- entum við nám í skólanum, auk þess sem efnaformúlur ýmissa næringarefna eru notaðar til skrauts. Háskólaútgáfan stóð að útgáfu ritsins ásamt matvælafræðiskor og var hún styrkt af kynningarnefnd HÍ og markaðsnefnd mjólkuriðnað- arins,“ segir í fréttatilkynningu frá HÍ. Allir þeir sem hafa áhuga á rit- inu geta snúið sér til Námsráðgjaf- ar Háskóla íslands. mun fræða göngumenn um. Ferðin tekur um tvo tíma. Eftir hádegi kl. 14.15, laugardag og sunnudag, verður svo staðarskoð- un heima við. Þar verða kirkjan og Stofan sýndar og næsta nágrenni húsanna en einnig það geymir mikla sögu sem fróðlegt er að kynnast. Veitingahúsið í Viðeyjarstofu er opið gestum og gangandi. Viðeyjar- feijan fer á klst. fresti frá kl. 13, á heila tímanum úr landi, en á hálfa tímanum úr eynni til kl. 17.30. Gjald er 400 kr. fyrir fullorðna og 200 kr. fyrir börn. upplýsingar um hvar bílinn er niður- kominn eru beðnir að hafa samband við lögreglu. ASÍ fordæmir tilraunir til verkfallsbrota MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun miðstjórnar Alþýðusambands íslands: „Miðstjórn Alþýðusambands ís- lands fordæmir tilraunir atvinnu- rekenda til að bijóta löglega boðað verkfall verkafólks á Vestfjörðum á bak aftur með verfallsbrotum. Þá lýsir miðstjórn ASÍ furðu sinni á því að samtök atvinnurekenda skuli vefengja rétt stéttarfélaga til að grípa til samúðaraðgerða með verkafólki sem á í vinnudeilum. Kjaradeilur verður að setja niður við samningaborðið þar sem samn- ingsaðilar freista þess að ná skyn- samlegri niðurstöðu. Að mati mið- stjórnar ASÍ eru vinnubrögð af því tagi vænlegri til friðsamlegrar lausnar en ögranir og verkfalls- brot.“ 30 ára af- mæli Meina- tæknafélags íslands MEINATÆKNAFÉLAG íslands varð 30 ára í apríl og hélt af því tilefni afmælisráðstefnu. Yfir- skrift hennar var: Fjölbreytni og nýjungar í störfum meinatækna. Þar fluttu átta meintæknar fyrir- lestra um störf sín og rannsóknir. Fyrsti alþjóðadagur meinatækna var nokkrum dögum áður, þann 15. apríl, og var yfirskrift hans: Lykiíl að lækningu berkla. Fjöl- menni var á ráðstefnunni sem var haldin í K-byggingu Landspítal- EIMSKIPAFÉLAG íslands hf. og íþróttasamband fatlaðra (ÍF) hafa gert með sér samning um stuðning Eimskips við ÍF vegna undirbúnings ogjiátttöku fatlaðs íþróttafólks fyr- ir Olympíumótið í Sydney árið 2000. „Ohætt er að fullyrða að íslenska íþróttafólkið á Ólympíumóti fatl- aðra í Atlanta 1996 hafi staðið sig frábærlega vel þar sem það kom heim með fímm gullverðlaun, fern silfurverðlaun og fímm bronsverð- laun um leið og það setti fjölmörg heims-, ólympíu- og íslandsmet. Arangur íslensku keppendanna á Olympíumóti fatlaðra í Atlanta 1996 var afrakstur marvissrar vinnu þar sem allt var gert til þess að búa þá 10 keppendur er þátt tóku sem best undir mótið. Eftir Ólympíumót fatlaðra í Barcelona 1992 var mörkuð stefna, landsliðs- þjálfarar voru ráðnir og í samráði við þá undirbúningshópur fyrir mótið í Atlanta 1996. Á sama tíma FARIN verður sjóferð til hvala- og fuglaskoðunar laugardaginn 31. maí. Mæting er við Fræðasetrið í Sandgerði kl. 13. Siglt verður um Garðssjó umhverfis Eldey ef veður leyfir og eftir því sem tími gefst verður siglt utar í átt að Reykjanes- hrygg. Þeir sem vilja geta komið á bílastæðið við Búnaðarbankann á Hlemmi en þaðan verður farið kl. 11.30. I þessari ferð má búast við að sjá margar áhugaverðar tegundir hvala. Hnýðingur sýnir sig ávallt en mögu- leiki er á leiftri, háhyrningi, hrefnu og hnúfubak. Utar, í átt að kantin- var unnið að því að afla tekna til þess að hópurinn gæti undirbúið sig sem best og náð hámarks árangri. Af framansögðu má ljóst vera að íþróttasamband fatlaðra leggur metnað sinn í að fatlaðir íslenskir íþróttamenn séu landi og þjóð til sóma. Undirbúningur vegna Ólympíu- móts fatlaðra í Sydney árið 2000 er hafinn og verður undirbúningn- um hagað líkt og áður hefur verið gert. Framundan eru mörg stór verkefni og því er stuðningur Eim- skips við Iþróttasamband fatlaðra ómentanlegur til þess að íþrótta- mennimir geti haldið áfram mark- vissum undirbúningi sínum fyrir leikana árið 2000,“ segir í fréttatil- kynningu frá íþróttasambandi fatl- aðra. Samningur Eimskipafélags ís- lands og Iþróttasambands fatlaðra gildir fram yfir Ólympíumót fatl- aðra í Sydney árið 2000. um, eru meiri líkur á sandreyði, land- reyði og stærstu dýrategund jarðar- innar, steypireyðinni. Ferðin er farin í samvinnu við Fræðasetrið í Sandgerði og Ferða- þjónustu Helgu Ingimundardóttur sem hefur langa reynslu af hvala- skoðun. Fargjald er 3.000 kr. á mann, hálft gjald fyrir börn yngri en 12 ára. Mælst er til að fólk taki með sér nesti, skjólgóðan fatnað, sjónauka og fuglabók. Sérfræðingar um hvali og fugla verða með í för. Áætlað er að siglingin taki 3-4 tíma. Tilkynna skal þátttöku í síma Fræðasetursins í Sandgerði. Vorferð Hjallasóknar í Kópavogi SAFNAÐARFÉLAG Hjallakirkju í Kópavogi stendur fyrir árlegri vor- ferð safnaðarins sunnudaginn 1. júní. Farið verður frá Hjallakirkju kl. 11 og haldið áleiðis um Grímsnesið og að Hmna í Hrunamannahreppi. Kl. 14 hefst messa í Hmna og að henni lokinni verður snætt nesti. Síðan heldur hópurinn af stað að Flúðum, byggðasafnið og fleira verður skoðað. Á heimleið verður komið við á Selfossi. Leiðsögumaður frá Leiðsögu- mannafélaginu sér um kynningu á leiðinni. Áætluð heimkoma er um kl. 18. Allir áhugasamir eru vel- komnir. Vinsamlega tilkynnið þátt- töku í kirkjuna. Kynningar- fundur um svæðisskipulag miðhálendis ALMENNUR kynningarfundur um tillögu að svæðisskipulag miðhá- lendis íslands verður haldinn á Hótel Loftleiðum föstudaginn 30. maí kl. 16. Ávarp flytur Guðmundur Bjarna- son, umhverfisráðherra, Snæbjörn Jónsson, formaður samvinnunefnd- ar um svæðisskipulag miðhálendis- ins greinir frá störfum nefndarinnar og ráðgjafar Landmótunar kynna skipulagstillöguna. Tillagan er stefnumörkun í land- notkun á miðhálendinu næstu tutt- ugu ár og þar er fjallað um þætti eins og vemdun, orkuvinnslu, hefð- bundnar nytjar, samgöngur, ferða- mál og byggingar. Tillaga þessi verður auglýst skv. skipulagslögum þann 6. júní nk. og geta allir gert skriflegar athugasemdir á kynning- artímanum sem stendur til 10. októ- ber 1997. Kynningarfundurinn er öllum opinn, aðgangur ókeypis. Viðey um helgina ans. STEINUNN Böðvarsdóttir, kynningarstjóri Eimskipafélags ís- lands hf. og Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður Iþróttasambands fatlaðra, undirrita kostunarsamninginn. Með þeim á myndinni er Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri ÍF. Eimskip styður starfsemi Iþrótta- sambands fatlaðra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.