Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 64
MeWiiM
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTR UM.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Trygginga-
ráð fjallar
um ekkna-
bætur
TRYGGINGARÁÐ fjallar í dag um
kæru Samskipa vegna höfnunar
Tryggingastofnunar á umsókn
ekkna mannanna tveggja sem fór-
ust með Dísarfelli um dánarbætur á
þeim forsendum að skipið sigldi
undir erlendum fána. Samsldp telja
að fordæmi séu fyrir því að Trygg-
ingastofnun hafi greitt slysabætur
vegna sjómanna á skipum sem ekki
eru skráð á Islandi.
Fram kemur í yfirlýsingu frá
Samskipum að greitt hafi verið
tryggingagjald af launum sjómann-
anna og skattgreiðslum þeirra hafi
á allan hátt verið háttað eins og ef
um sjómenn á skipi undir íslenskúm
fána væri að ræða. Una Björk
Omarsdóttir, lögfræðingur hjá
Tryggingastofnun, segir að tengsl
tryggingagjalds og réttinda úr al-
mannatryggingum séu óbein, ekki
sé um eiginlegt tryggingariðgjald
að ræða og réttur til bóta ráðist af
ákvæðum almannatryggingalag-
anna.
■ Samskip áfrýja/12
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjarnarson
FUNDARMENN voru á ýmsum aldri hjá Baldri og hér er Helga
Guðrún Dal Haraldsdóttir með dóttur sína.
r n í - ;
ÉOfgjS L j Í J
$• 1 J
k ' *i -fmÉSm
Kosið vestra um
miðlunartillögu
ATKVÆÐI verða greidd í dag um
miðlunartillögu sáttasemjara í
kjaradeilunni á Vestfjörðum bæði
hjá vinnuveitendum og þeim nærri
700 félögum í þeim sjö verkalýðsfé-
lögum innan ASV sem átt hafa í
verkfalli. Samkvæmt tillögunni
hækka laun um 5,2% við undir-
skrift samninga en hækkunin var
4,7% í samningum Verkamanna-
sambandsins.
Almenn launa-
hækkun 17,37%
Ríkissáttasemjari segir í út-
drætti um tillögu sína að almennar
launahækkanir á samningstíman-
um séu 17,37% og að breytingar á
töxtum þar sem álags- og auka-
greiðslur falli inn í grunnkaup leiði
til 8% hækkunar á heilu ári miðað
við algengt vinnumynstur.
Þá er gert ráð fyrir 12 þúsund
króna eingreiðslu sem greiða skal
innan 15 daga frá gildistöku samn-
ings.
Nærri 150 manns voru á fundi
Baldurs í gær og gagnrýndi Pétur
Sigurðsson, formaður Verkalýðsfé-
lagsins Baldurs á ísafirði og forseti
Alþýðusambands Vestfjarða,
vinnuveitendur harðlega fyrir
framkomu þeirra í samningavið-
ræðunum og sagði þá sýna hroka.
Sagði hann að ógnarvald Vinnu-
veitendasambandsins réði ferðinni
og ekki hefði mátt semja um annað
en það sem VSÍ var búið að semja
um við aðra. „Eg má kannski ekki
segja eða leggja neitt til; ef ég
mætti það myndi ég segja að menn
ættu að fella þetta,“ sagði Pétur
Sigurðsson.
Vinnuveitendur skoðuðu tillög-
una á fundi sínum á Isafirði í gær
og segja þeir tillöguna fela í sér
kostnaðarauka og að hún gangi
lengra en þeir hafi verið tilbúnir til
að semja um. Hins vegar vonist
þeir til að hún verði samþykkt mið-
að við ástandið og brýnast sé að
koma atvinnulífinu í gang á ný.
Formaður Vinnuveitendafélags
Vestfjarða, Einar Jónatansson,
sagði deiluna vera í slíkum hnút að
menn hafi ekld séð aðra lausn en
samþykkja að miðlunartillaga
kæmi fram.
■ Kjaradeilan/32-33
Viðræður um innlimun Schengen-vegabréfasamstarfsins í Evrópusambandið
Kviknaði í
«■
Dregið úr valdi yfírþjóð-
legra stofnana ESB
SAMNINGAMENN á ríkjaráð-
stefnu Evrópusambandsins hafa
komið til móts við sjónarmið Nor-
egs og Islands, sem telja sér tor-
veldað að taka þátt í • Schengen-
vegabréfasamstarílnu, verði það
flutt í svokallaða fyrstu stoð sam-
bandsins og sett undir lögsögu yfir-
þjóðlegra stofnana.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins barst íslenzkum stjómvöld-
um í fyrrakvöld nýtt uppkast að
bókun um innlimun Schengen-
samningsins í stofhsáttmála ESB,
þar sem dregið er úr áhrifum stofn-
ana sambandsins.
í uppkastinu er, samkvæmt
heimildum blaðsins, gengið út frá að
vegabréfasamstarfið flytjist að
miklu leyti í fyrstu stoðina, en mjög
verði dregið úr valdi Evrópudóm-
stólsins miðað við það, sem áður
hefur verið gert ráð fyrir. Kveðið er
á um að dómstóllinn hafi enga lög-
sögu varðandi „aðgerðir eða
ákvarðanir, sem tengjast almanna-
reglu eða innra öryggi".
Jafnframt hefur tenging bókun-
arinnar og samstarfssamninganna
við Island og Noreg verið gerð
skýrari og ákveðnari og telja menn
að þar með skapist betri samnings-
grundvöllur fyrir Island og Noreg
þegar kemur að þvi að semja um að-
lögun ríkjanna að breyttu
Schengen-samstarfi.
Þá er dregið úr áhrifum fram-
kvæmdastjömarinnar í þeim drög-
um að samningstexta, sem nú liggja
fyrir og verður hún að taka aukið
tillit til aðildarríkjanna, þótt hún
haldi rétti sínum til að hafa frum-
kvæði að nýjum reglum.
Þessar breytingar eru, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins, tilkomnar vegna þess að samn-
ingamenn Svíþjóðar og Danmerkur
beittu sér í málinu. Ríkjunum er í
mun að viðhalda norræna vega-
bréfasambandinu og jafnframt eru
Danir í erfiðri stöðu í viðræðum um
aukið dómsmálasamstarf á vett-
vangi ESB vegna undanþágu sinnar
frá slíku samstarfi.
■ Komið til móts við/6
Á húðkeip-
um í flúðum
og fossum
BRÆÐURNIR Jón og Þorsteiim
Hjaltasynir frá Akureyri æfðu sig
á húðkeipum ásamt félögum sín-
um í Laxá í Aðaldal fyrir skömmu
og gekk mikið á í straumþungu
vatninu við Heiðarenda. Akureyr-
ingarnir hafa stundað kajak-
íþróttina um árabil og æfa sig
mest í Hörgá, auk þess sem æf-
ingar eru haldnar í öðrum ám,
svo sem Laxá og Skjálfandafljóti.
Á sl. ári fóru þeir niður Laxá þar
sem hún kemur úr Mývatni og
lentu í ýmsum ævintýrum á leið-
inni. Á myndinni berst Jón við
strauminn, en stundum mátti vart
vita hvor hefði betur. En allt fór
vel að lokum og segja Akureyr-
ingarnir þetta vera ólýsanlega
skemmtilega íþrótt.
Morgunblaðið/Atli Vigfuason
farmi á ferð
ELDUR kviknaði í farmi flutninga-
bifreiðar um klukkan tíu í gær-
morgun á leið um Kjalames, en á
palli hennar voru m.a. plastbretti,
rör og umbúðir úr pappír.
Bifreiðin kom frá Keflavík og var
ferðinni heitið til Hvalfjarðar þegar
bflstjórinn varð var við að úr farm-
inum rauk. Hann stöðvaði bifreiðina
og losaði aftanívagninn frá bifreið-
inni áður en hann kallaði til lögreglu
og slökkvilið.
Andrés Svavarsson slökkviliðs-
stjóri á Kjalarnesi kveðst telja lík-
legt að lengi hafi logað í farminum
áður en eldurinn uppgötvaðist. Þeg-
ar slökkviliðið kom að var mesti
eldsmaturinn brunninn og mest-
megnis glóð eftir, en eldinum hafði
þá tekist að éta sig gegnum gólf aft-
anívagnsins.
Eldsupptök eru ókunn og kveðst
Andrés eiga erfitt með að átta sig á
þeim, ekki síst fyrir þær sakir að
um opinn vagn var að ræða sem var
vel loftræstur fyrir vikið. „Bflstjór-
inn varð svo hissa að hann átti ekki
til orð, bæði miður sín og kunni
enga skýringu á þessum eldi,“ segir
Andrés. Okumaðurinn sneri aftur til
Keflavíkur með það sem eftir var af
farmi sínum, þegar slökkvistarfi var
lokið.
---------------
Sjúkraflug
frá Namibíu
EINKAFLUGVÉL forseta Namib-
íu var væntanleg til Reykjavikur í
nótt með veikan íslending. Hún
kemur frá Namibíu með millilend-
ingum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sjúkrahúsi Reykjavíkur var lítið
vitað um veikindi mannsins en þó
ljóst að þau væru alvarleg. Vélin var
væntanleg til Reykjavíkur árla
morguns. í beinni loftlínu eru um
12.000 til 13.000 kflómetrar á milli
íslands og Namibíu.