Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1997 25 Orðabók með staf- setningar- villum ORÐABÓK full af stafsetningarvill- um kemur út í Danmörku eftir fimm ár, hvort sem menn trúa vel eða illa. Hugmyndin, sem í fyrstu hljómar ekki vel, er þó að margra mati afar góð, en hún byggist á því að ná til þeirra sem slæmir eru í stafsetningu og vita ekki hvernig algeng orð eru stöfuð, að því er segir í Politiken. Ætlunin er að orð, sem algengt er að menn stafi vitlaust, verði birt með villunum og svo að sjálfsögðu rétt stafsett. Við vitlausu stafsetn- inguna verður vísað á rétta orðið, auk þess sem verið er að íhuga hvernig megi einkenna orðin með stafsetningarvillunum enn frekar, t.d. með sérstakri leturgerð eða merki, svo að menn sjái samstundis að um villu er að ræða. Orðabókin, „Den Danske Ordbog" kemur út í sex bindum en ritstjóri hennar er Ebba Hjorth. Hún segir að eingöngu verði birtar algengar stafsetningarvillur, orðabókahöf- undar muni ekki leggja sig fram um að tína til viliur. „Við leggjum áherslu á að þetta er ekki stafsetn- ingarorðabók, heldur orðabók um danskt tal- og ritmál, það mál sem er og hefur verið talað og ritað á seinni hluta þessarar aldar,“ segir Hjorth. „Við lyftum ekki vísifmgri til að banna en segjum fólki gjarnan til. Málið er lifandi og stafsetning ýmissa orða, sem taldist röng fyrir nokkrum árum, þykir ekki lengur athugaverð." -----♦ ♦ -■♦--- Vilja bæta Broadway HÓPUR leikhúseigenda, framleið- enda og stéttarfélagsleiðtoga í New York hyggst taka höndum saman um að alvarleg ieikrit og minni söng- leikir, sem nánast hafa horfið af Broadway, verði settir þar upp á ný og ætlar að stofna sjóð, sem veita mundi tíu milljónum dollara (700 milljónum króna) árlega til að glæða leikhúshverfi borgarinnar. Leikhúslífíð á Broadway hefur ein- kennst af yfirþyrmandi söngieikja- uppfærslum, sem ganga svo árum skiptir, og endursýningum á gömlum leikritum. Vill áðurnefndur hópur að nýir leikstjórar komist að og tryggja að á næstu fimm árum verði sett upp a.m.k. 25 leikrit, sem annars hefðu aldrei komist að á Broadway. LISTIR Morgunblaðið/Jón Svavarsson HJÁLMAR H. Ragnarsson, Roy Goodman og Hörður Áskelsson hylltir að frumflutningi orgelkon- serts þess fyrstnefnda loknum. Glæsilegur orgelkonsert TONLIST Ilallgrímskirkja SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Flutt voru verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson og Camille Saint-Saens, Einleikari: Hörður Áskelsson. Stjóm- andi: Roy Goodman. Fimmtudagur- inn 29. maí, 1997. STÓRU tíðindin varðandi þessa tónleika eru frumflutningur á orgel- konsert eftir Hjálmar H. Ragnars- son og einnig að á þessum tónleik- um er innsiglað samspil Klais org- elsins og sinfóníuhljómsveitar með tilkomu hins nýja hljómborðs, sem staðsett er niðri á sjálfu kirkjugólf- inu. Nýr orgelkonsert í safn ís- lenskrar tónlistar eru mikil tíðindi og það sem meira er, verk Hjálm- ars er glæsilegt að allri gerð. Kon- sertinn hefst á kraftmiklum inn- gangi, sem orgelið tekur þátt í, en kemur fyrst inn að fullu með ein- kennis tónhugmynd verksins, sem byggð er upp af samhljómandi fer- undum að miklu leyti. Þessi hljóm- skipan einkennir aðalþáttinn en smám saman er hún brotin upp en samhljóman og hrynskipan þessa kafla oft mjög „hijúf“. Stutt millispil sem byggt er á hljómklösum, fyrst litlum tvíundum, í upphafi sérlega hljóðlátt, leiðir síðan inn í miðþáttinn, sem er sér- lega fagur og í andstöðu við upp- hafsþáttinn. Þessi faliegi kafli end- ar á cresendo í strengjunum og þá „kemur orgelið inn“ með upphafs- stefið og lýkur verkinu á sérlega kraftmiklum lokakafla. í efnisskrá segir höfundurinn að sótt hafi að sér „að semja eitthvað hijúft en sem þó væri um leið blíð- legt, eitthvað svo ágengt og kraft- mikið, að viðkvæmnin yrði að kom- ast að...“ Þessu markmiði náði Hjálmar svo sannarlega og er kon- sertinn í senn hrikalegur og blíðieg- ur, í einu orði sagt, glæsileg tón- smíð, spunnin upp af þeim andstæð- um er einkenna íslenska náttúru, þ.e. ógnþrungnum átökum elds og ísa og undursamlegri náttúrukyrrð. Hörður Áskelsson lék mjög vel á orgelið og hljómsveit og stjórnandi fóru á kostum, svo að flutningurinn í heild var mjög áhrifamikill. Lokaverk tónleikanna var sinfón- ía í c-moll nr. 3, eftir Camille Saint- Saéns, sem hann samdi 1886 og var frumflutt 19. maí sama ár, af Royal Philharmonic í London, eða fyrir 111 árum og 10 dögum betur. Verkið tileinkaði hann Franz Liszt, líklega vegna þess að tónskáldið nýtti sér aðferðir í ummótun stefja, sem Liszt notaði fyrstur manna, eins og t.d. í Les Préludes. Þetta er gott og vei samið verk, sem var að mörgu leyti vel flutt, bæði af orgelleikara, Herði Áskelssyni og hljómsveit, undir stjóm Roy Good- mans en eins og í verki Hjálmars, var mikið hljómendursvar kirkjunn- ar oft til baga, einkum þegar leikið var sterkt og að því leyti til er Hallgrímskirkja svolítið erfið fyrir flutning stærri tónverka. Hvað svo sem segja má um yfirhljómgun Hallgrímskirkju voru þetta eftir- minnilegir tónleikar og flutningur- inn á orgelkonsert Hjálmars alveg sérstaklega glæsilegur. Jón Ásgeirsson Hamsun hent út fyrir Steinbeck í LJÓS hefur komið að í banda- rísku útgáfunni á „Veröld Soff- íu“ eftir norska heimspekinginn Jostein Garder, hafa verið gerð- ar breytingar á tilvitnunum í texta, án þess að höfundurinn væri hafður með í ráðum. Hann er að vonum lítt hrifinn. Það var dansk-tyrkneski þýð- andinn Gulay Kutai, sem bendir á þetta í grein í Samtiden, en bókin hefur verið prentuð í miiljónum eintaka í Bandaríkj- unum. Ekki er gefin sama þýð- ing á ensku út í Bretlandi og Bandaríkjunum. í bandarísku útgáfunni eru tilvitnanir í Hamsun, Bjarnson og Werge- land teknar út og í þeirra stað vitnað í verk Steinbeck, Thomas Hardy og Byron lávarð. Þá hef- ur annað tilvísanaefni verið þýtt upp á nýtt. Gaarder segist í samtali við Arbeiderbiadet telja það „ótrú- lega gróft“ að strika út allar norskar tilvitnanir. Þarna sé um mikla þjóðernisstefnu að ræða; allt verði að gera amerískt fyrir ameríkana. Hreinlætis- og blöndunartækjasýning íPerlunni! Tengi elif mun ásamt Ifö SanitarAB og Mora Armatur AB Svíþjóð kynna nýjungar í Perlunni, laugardaginn 31. maí og sunnudaginn 1. júní '97 frá kl. 13-17 báða dagana. Á sýningunni verður úrval blöndunartækja, hreinlætistækja, sturtuklefa og stálvaska. mora
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.