Morgunblaðið - 03.06.1997, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„ Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Á LEIÐ út í Viðey. Heimir gafst upp þegar hann var hálfnaður út í Viðey
og þurfti á aðhlynningu að halda á slysadeild vegna ofkælingar.
Viðeyjarsund á
sj ómannadaginn
Gafst upp
á miðri leið
SUNDMAÐURINN Heimir Arn-
ar Sveinbjörnsson, sem ætlaði að
synda úr Viðey inn í Reykjavík-
urhöfn á sjómannadaginn, gafst
upp þegar hann var um hálfnað-
ur. Að sögn Heimis hafði hann
hreinlega ekki nóga líkamsfitu
til þess að veija sig gegn kuldan-
um. Heimir var búinn að synda
í 52 og hálfa mínútu þegar hann
var tekinn upp í fylgdarbát
björgunarbátsins Henrys A.
Hálfdánarsonar. Þá var líkams-
hiti Heimis kominn niður í 29,5
gráður. Fékk Heimir strax kakó
og heitt saltvatn í æð, en var síð-
an fluttur upp á slysadeild til
frekari aðhlynningar en honum
varð ekki meint af volkinu.
Ekki nógu feitur
Heimir hefur alla tíð synt mik-
ið en það var ekki fyrr en í fyrra-
haust sem hann byrjaði að stunda
sjósund. Sjálfur segist Heimir eig-
inlega hafa verið hættur við að
reyna við Viðeyjarsundið á sjó-
mannadaginn en vegna mikiis
stuðnings, m.a. frá Eyjólfi Jóns-
syni, sem hefur synt þessa leið
mörgum sinnum, lét hann til leið-
ast. I fyrrahaust synti Heimir frá
Köllunarkletti og út í Viðey en
HANS Markús Hafsteinsson guð-
fræðingur hlaut 1.376 atkvæði í
prestskosningunum sem fram fóru
í Garðaprestakalli á sunnudag. Sr.
Örn Bárður Jónsson, fræðslustjóri
þjóðkirkjunnar, hlaut 701 atkvæði.
Auðir seðlar og ógildir voru 87. Á
kjörskrá voru 6.985 en af þeim
kusu 2.164 og var kosningaþátt-
taka um 32,3%. Kosningin er því
ekki bindandi. Álíka margir tóku
því þátt í kosningunni og þeir, sem
skrifuðu nöfn sín á lista, þar sem
kosningar var krafíst. Kjörsókn var
mest í Kálfatjamarsókn, þar voru
460 á kjörskrá og kusu 68%. í
Bessastaðasókn kusu 17% og í
Garðasókn var kjörsókn 32%.
Sesselja Sigurðardóttir formaður
sóknarnefndar Kálfatjarnarsóknar
sú leið er 1,1 kílómetri en frá
Viðey og inn í Reykjavíkurhöfn
eru 4,3 kílómetrar. Mest hafði
Heimir verið 30 minútur sam-
fleytt í köldum sjó áður en hann
tókst á við Viðeyjarsundið á
sunnudaginn en besti tími sund-
garpsins Eyjólfs Jónssonar er um
2 klst. á þessari leið. „Ég var
bara ekki tilbúinn. Það vantaði
ekki viljann, en ég var einfaldlega
ekki nógu spikaður. Ég þarf að
sagði að yfírgnæfandi sigur Hans
Markúsar kæmi á óvart. Niðurstað-
an væri afleiðing af óánægju og
öllu því erfiða ferli sem á undan
væri gengið. Sagði hún að fólk
hefði verið ósátt við þær breyting-
ar, sem gerðar voru þegar ákveðið
var að fram færu kosningar.
í valdi ráðherra
og biskups
„Okkur var borið á brýn að við
hefðum haft rangt við,“ sagði hún.
„Niðurstaðan lá ljós fyrir í kjör-
mannakosningunni en við því er
ekkert að gera, það eru lögin sem
leyfa þetta. Hins vegar fínnst mér
að þeir sem fóru af stað með þessi
viðbrögð hafí ekki sýnt að þeir
ætluðu að koma Erni Bárði að eða
bæta á mig a.m.k. 10 kílóum áður
en ég reyni aftur við þessa leið,“
segpr Heimir. Hann var á sund-
skýlunni einni saman þegar hann
þreytti sundið, enda segist hann
vilja hafa þetta sem náttúruleg-
ast.
Gefst ekki upp
Heimir, sem er 35 ára gamall,
hefur alls ekki lagt sjósundið á
hilluna, hvað þá öll áform um að
að hann hafi átt þetta fylgi. Niður-
staðan sýnir það ekki. Það kemur
svo í ljós hvað ráðherra og biskup
gera. Þetta er í þeirra valdi núna.
Kosningin var ekki bindandi þannig
að þeir geta sjálfsagt vikið út frá
þessu en ég held að það yrði ekki
til góðs. Kosningin hlýtur að sýna
hvað fólkið vill og vonandi fáum
við ró og frið í kirkjunni. Það er
kominn tími til og maður vonar að
hvetjum sem tekur við muni ganga
vel að vinna með því fólki sem
hann þarf að vinna með.“
Kosningin
aðalatriðið
Talsmenn Garðasóknar og
Bessastaðasóknar vildu ekki tjá sig
um niðurstöðuna fyrr en sóknar-
synda út í Viðey, þó svo að fyrsta
tilraunin hafi ekki gengið sem
skyldi. Heimir er ákveðinn í því
að reyna aftur við Viðeyjarsundið
þegar hann verður tilbúinn og
vill hann nota tækifærið til að
þakka öllum þeim sem styrktu
hann í sundinu að þessu sinni,
ekki síst Slysavamafélaginu Al-
bert, Björgunarbátnum Henry A.
Hálfdánarsyni og starfsfólki
slysadeildar.
nefndirnar hefðu komið saman til
fundar, sem væntanlega verður síð-
ar í vikunni.
Magni Sigurhansson var einn
þeirra, sem stóðu að söfnun undir-
skrifta um að fram færi almenn
prestskosning. „Aðalatriðið var að
fá kosningu þannig að þetta væri
örugglega það sem almenningur
vildi," sagði hann. „Kjörsókn var
svo nánast engin þannig að ég á
mjög erfitt með að átta mig á
hvað um er að vera, þar sem mik-
ill vilji var fyrir að fara út í kosn-
ingar. Okkur fannst líka vera góð-
ur stuðningur við Örn Bárð. Þann-
ig að þetta eru einhver skilaboð
sem ég veit ekki hvernig ber að
skilja. Vonandi verður sátt og allir
kátir.“
Kærður
fyrir veið-
ar á sjó-
mannadegi
SJÓMANNASAMBAND ís-
lands hefur ákveðið að leggja
fram kæru á hendur út-
gerðaraðilum línubátsins
Hrannars frá Hafnarfirði sem
var að veiðum á Reykjanes-
hrygg síðastliðinn sunnudag
á lögbundnum frídegi sjó-
manna. Farmanna- og fiski-
mannasamband íslands hefur
málið einnig til athugunar.
Kanna þarf alla
málavexti
„Það var ekkert samkomu-
lag gert við okkur og við erum
að kanna stöðu þessa máls.
Lögin eru ótvíræð, íslensk
skip með íslenskar áhafnir
skulu vera í landi í tvo sólar-
hringa í kringum sjómanna-
dagshelgina," sagði Benedikt
Valsson, framkvæmdastjóri
Farmanna- og fiskimanna-
sambandsins. Benedikt sagði
allt benda til þess að skipið
hefði brotið sjómannadags-
lögin en kanna þyrfti alla
málavexti áður en brugðist
væri við. Sjómannasambandið
hefur hins vegar ákveðið að
kæra útgerð Hrannars vegna
brota á sjómannadagslögun-
um. Sævar Gunnarsson, for-
maður Sjómannasambands-
ins, segir það ljóst að þau
skip sem landi í íslenskri höfn
hafí ekki leyfi til að gera sam-
komulag við sjómenn um að
stunda veiðar á frídegi sjó-
manna.
Útgerðarmaður annar
en eigandi
Utgerðaraðili Hrannars HF
virðist vera annar en eigandi
skipsins en það getur skipt
máli vegna mismunandi
samninga sjómanna eftir
landshlutum. Hrannar HF
hefur tilraunaleyfi frá sjávar-
útvegsráðuneytinu til karfa-
veiða á Reykjanesshrygg en
hefur ekki heimild til veiða
innan íslenskrar lögsögu.
Einhver skip voru á Flæmska
hattinum en ekki er ljóst hvort
samkomulag var gert við
áhafnir um framlenginu ann-
arra leyfa í staðinn. Sérstaða
þessara skipa er sú að veitt
er fyrir erlenda markaði og
aflanum er ekki landað á ís-
landi. Ákvæði í kjarasamning-
um segir til um að landi skip
erlendis geti þau verið undan-
þegin lögunum.
Hans Markús Hafsteinsson hlaut flest atkvæði í Garðaprestakalli
Alíka margir kusu og undir-
rituðu kröfu um kosningu
Andlát
JÓN
GUÐMUNDSSON
LÁTINN er Jón Guð-
mundsson, bóndi og
fræðimaður á Fjalli á
Skeiðum. Var hann
fæddur 3. nóvember
1919 á Fjalli, yngstur
sex systkina.
Jón Guðmundsson
tók tvítugur próf frá
Héraðsskólanum að
Laugarvatni og Sam-
vinnuskólanum tveimur
árum síðar. Stundaði
hann landbúnaðamám
í Bandaríkjunum árið
1951. Hann gerðist
bóndi á Fjalii 1944.
Jón gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir sveitarfélagið og
landeigendur, sat í
skattanefnd og skóla-
nefnd, var formaður
Félags veiðiréttareig-
enda á Suðurlandi og
sat í stjórn Veiðifélags
Árnesinga. Jón hlaut
í allmörg ár fræði-
mannastyrk frá
menntamálaráði en
hann skrifaði m.a. um
feijur og vö ð á stór-
ám á Suðurlandi og
þátt um Skeiðahrepp
í bókinni Sunnlenskar
byggðir sem Búnaðar-
samband Suðurlands
gaf út. Jón bjó alla sína tíð að Fjalli.
Hann var ókvæntur og barnlaus.
Nauðlending
á túni við Keldur
EINS hreyfils flugvél, af gerðinni Cessna 152 vélarinnar. Nauðlendingin gekk vel og tvo menn
C, nauðlenti á túni við Keldur á sunnudags- sem í henni voru sakaði ekki. Virtist flugvélin
kvöld. Talið er að eitthvað hafi brotnað í hreyfli vera lítið sem ekkert skemmd eftir lendinguna.