Morgunblaðið - 03.06.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997 11
FRÉTTIR
Styrkjum úthlutað úr Þjóðhátíðarsjóði í tuttugasta sinn
Samtals verið úthlutað
260 milljónum króna
ÚTHLUTAÐ hefui- verið styrkjum
úr Þjóðhátíðarsjóði fyrir árið 1997
og er þetta í tuttugasta skipti sem
úthlutað er úr sjóðnum. Tii úthlut-
unar í ár koma allt að 5.000.000
króna og þar af rennur helmingur
til Friðlýsingarsjóðs og Þjóðminja-
safns, en alls bárust 74 umsóknir
um styrki að fjárhæð 48,5 milljón-
ir króna og fengu 18 umsækjendur
styrki. í þau tuttugu ár sem úthlut-
að hefur verið úr sjóðnum hafa
alls verið veittir styrkir að upphæð
259.640.065 kr.
Samkvæmt ákvæðum skipu-
lagsskrár sjóðsins rennur fjórðung-
ur, 1.250.000 kr., til Friðlýsingar-
sjóðs til náttúruverndar á vegum
Náttúruverndarráðs, og fjórðung-
ur til varðveislu fornminja, gam-
alla bygginga og annarra menn-
ingarverðmæta á vegum Þjóð-
minjasafns. Allt að helmingi út-
hlutunaríjár á hverju ári er varið
til styrkja samkvæmt umsóknum
og voru því allt að 2,5 milljónir
króna til ráðstöfunar í þann þátt
að þessu sinni.
Eftirtaldir hlutu styrki sam-
kvæmt umsóknum: Mummi, félag
um varðveislu Hilmis, 100.000 kr.
til að varðveita eikarbátinn Hilmi
sem smíðaður var í Keflavík 1942,
Kaupfélag Hrútfirðinga, 150.000
kr. til að endurbyggja Riis-hús á
Borðeyri, Menningarfélag um
Brydebúð, 150.000 kr. til endur-
byggingar á verslunarhúsi J.P.T
Bryde í Vík, Minjasafnið á Akur-
eyri, 100.000 kr. til að gera eftir-
tökur eftir filmusöfnum tveggja
ljósmyndara á Akureyri, Ara Leós
Björnssonar og Gísla Ólafssonar,
Jón Kaldal, 100.000 kr. til að
greiða kostnað við að afhenda
Þjóðminjasafninu til varðveislu
sýninguna Kaldal aldarminning,
Minjasafn Austurlands, 150.000
kr. til viðgerða á merkum munum
í eigu minjasafnsins, Ljósmynda-
stofa Jóhanns Rafnssonar,
100.000 kr. til að skrásetja og
varðveita ljósmyndasafn Jóhanns
Rafnssonar í Stykkishólmi, Heim-
ilisiðnaðarfélag íslands, 150.000
kr. til tölvuskráningar muna
safnsins, Byggðasögunefnd Eski-
fjarðar, 120.000 kr. til að gera
ljósmyndir eftir plötum og filmum
úr fórum Sveins Guðnasonar ljós-
myndara, Landsbókasafn íslands
180.000 kr. til viðgerðar á um 75
innrömmuðum íslandskortum í
eigu safnsins, Stofnun Árna
Magnússonar, 180.000 kr. til við-
gerðar og umbúnaðar um Reykja-
fjarðarbók Sturlungu, Kvenna-
sögusafn íslands, 170.000 kr. til
endurbóta og útgáfu á verki dr.
Önnu Sigurðardóttur, Ártöl og
áfangar í sögu íslenskra kvenna,
Hið islenska bókmenntafélag,
200.000 til að gera mannanafna-
skrá við Annála 1400-1800, Ein-
ar E. Sæmundsen, 180.000 kr. til
uppmælingar og rannsóknar á
tveimur gömlum görðum að
Skriðu í Hörgárdal og Múlakoti í
Fljótshlíð, Fuglaverndarfélag Is-
lands, 50.000 kr. til verndunar
íslenska arnarins, Rannsókn-
arstofnun í siðfræði, 100.000 kr.
til að undirbúa og halda ráðstefnu
um tengsl íslenskrar náttúru og
íslenskrar menningar, Kvik-
myndaverstöðin ehf., 220.000 kr.
til gerðar heimildarkvikmyndar
um sjósókn á áraskipum fyrir tíma
tæknialdar og Dalabyggð,
100.000 kr. til að minnast Leifs
heppna Eiríkssonar vegna 1000
ára afmælis Vínlandsfundar með
því að kanna friðlýstar rústaleifar
á Eiríksstöðum í Haukadal í Dala-
sýslu.
I stjórn Þjóðhátíðarsjóðs eru
Hulda Valtýsdóttir, blaðamaður,
formaður, skipuð af forsætisráð-
herra, Birgir Isleifur Gunnarsson,
seðlabankastjóri, varaformaður,
tilnefndur af Seðlabanka íslands,
Björg Einarsdóttir, rithöfundur,
Björn Teitsson, skólameistari og
Ásgerður Bjarnadóttir, banka-
starfsmaður, sem kjörin voru af
Alþingi. Ritari sjóðsstjórnar er
Sveinbjörn Hafliðason, lögfræðing-
ur.
Morgunblaðið/Halldór
FULLTRÚAR á aðalfundi Landssambands aldraðra eru 103 og
koma frá 45 félögum víðs vegar um landið.
Aðalfundur Landssambands aldraðra
Ahyggjur af kjara- og
heilbrigðismálum
RÚMLEGA 100 fulltrúar frá 45
félögum víðs vegar um land sátu
föstudag og laugardag aðalfund
Landssambands aldraðra sem fram
fór í Hafnarfirði. Ólafur Jónsson
fráfarandi formaður sambandsins
segir að innan vébanda þess séu
um 13 þúsund manns og að félög
aldraðra séu starfandi í flestum
þéttbýlisstöðum landsins.
Á fundinum var kosinn nýr for-
maður, Benedikt Davíðsson, og
jafnframt voru gerðar breytingar
á lögum sambandsins.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa eru til umræðu ályktanir um
kjaramál og heilbrigðismál sem
Ólafur Jónsson segir að séu þau
sem mest brenni á félögum Lands-
sambands aldraðra.
Segir hann fólk kvarta einna
mest yfir kjaramálunum en einnig
hafi það áhyggjur af ástandi í
heilbrigðismálum, biðlistum
sjúkrahúsanna vegna ýmissa að-
gerða og biðlista eftir vistun á
hjúkrunardeildum og elliheimil-
um.
Blásið í
lúðra
LANDSMÓT skólalúðrasveita
var haldið um helgina í Reykja-
vík. Þátttakendur, sem komu
víðs vegar að af landinu, voru
um 700 auk 100 fararstjóra.
Alls tróðu 27 hljómsveitir upp
á landsmótinu, sem hófst form-
Iega síðastliðinn föstudag með
ávarpi Sigrúnar Magnúsdóttur,
borgarfulltrúa og formanns
fræðsluráðs.
Eftir setningarathöfnina voru
haldnir tónleikar. Léku hinir
ungu og upprennandi tónlistar-
menn listir sínar. Lauk deginum
svo með því að slegið var upp
dansleik.
Eftir viðburðaríka dagskrá
lauk mótinu á laugardag með
skrúðgöngu og risatónleikum
mörg hundr uð þátttakenda.
Morgunblaðið/Golli
Framsóknarflokkurinn
Fundir á
Vestfjörðum
VINNUHÓPUR þingflokks fram-
sóknarmanna um stöðu byggða-
mála heldur fundi á Vestijörðum
í vikunni. Er ráðgert að halda slíka
fundi í öllum kjördæmum.
Vinnuhópinn skipa Gunnlaugur
Sigmundsson, Magnús Stefánsson,
Stefán Guðmundsson og Valgerður
Sverrisdóttir og hefur hann starfað
í framhaldi af ráðstefnu sem var
haldin í janúar. Hafa þrír fundir
verið haldnir, á Hvolsvelli, Blöndu-
ósi og Borgarfirði.
Fundir verða á ísafirði 3. júní
og á Patreksfirði 4. júní. Þangað
fara, auk vinnuhópsins, Halldór
Ásgrímsson formaður Framsókn-
arflokksins og 1-2 þingmenn. Báð-
ir fundirnir hefjast kl. 20.30.
Fjölmenn norræn ráðstefna
Umönnun við ævilok
NORRÆN ráðstefna Umönnun við
ævilok verður haldin í Háskólabíói
dagana 5.-7. júní. Nordisk Fören-
ing - Omsorg vid livets slut stend-
ur fyrir ráðstefnunni en undirbún-
ingsnefndin er eingöngu skipuð Is-
lendingum. Þátttakendur eru tæp-
lega 700 hundruð, þar af um 600
frá hinum norrænu löndunum.
Fyrirlesarar eru fjölmargir, flest-
ir frá Norðurlöndunum, en einnig
frá Kanada og Bretlandi. Islenskir
fyrirlesarar eru um tuttugu og
vinna þeir allir á einn eða annan
hátt að umönnun og meðhöndlun
dauðvona sjúklinga hér á landi.
Helstu viðfangsefni ráðstefnunn-
ar eru dauðinn, sorgin og líknin.
Fjallað verður um þessa þætti út
frá menningarlegu, heimspekilegu,
félagslegu, trúarlegu, sálfræðilegu
og læknisfræðilegu sjónarhorni.
Einnig verður rætt um það hvernig
þessi mál snerta sjúklinga, aðstand-
endur og starfsfólk.
Markmið félagsins er að vinna
að bættri meðferð og umönnun al-
varlega veikra barna eða dauðvona
einstaklinga, svo og aðstandenda
þeirra. Jafnframt beitir félagið sér
fyrir að efla rannsóknir á þessu
sviði, auka þekkingu heilbrigðis-
stétta á málefninu og stuðla að
aukinni umræðu í samfélaginu.
Þessi ráðstefna er sú fimmta
sem félagið stendur fyrir en sú
fyrsta var haldin í Bergen í júní
1988, sú næsta í Stokkhólmi 1990,
þá í Ábo 1993 og síðast í Kaup-
mannahöfn 1995. Með ráðstefn-
unni á Islandi er lokið einni hring-
ferð um Norðurlönd og því langt
að bíða þar til önnur slík verður
haldin hér á landi.
Doktor í sameindalíffræði
•BJÖRN Lárus Örvar varði
doktorsritgerð sína í plöntusam-
eindalíffræði við háskólann í
Bresku-Kól-
umbíu, Kanada,
24. maí sl. Heiti
ritgerðarinnar
er „The effects
of wounding re-
sponse and cyto-
solic ascorbate
peroxidase le-
vels on ozone
susceptibility in
ozone-sensitive tobacco cultivar“.
Leiðbeinandi Björns var prófess-
or Brian E. Elli og andmælendur
prófessor Douglas P. Ormrod við
háskólann í Viktoríu og Mahesh
K. Upadhyaya og Anthony D.M.
Glass, prófessorar við háskólann í
Bresku Kólumbíu.
í ritgerðinni er í fyrsta lagi fjall-
að um það streituálag sem óson
loftmengun veldur í plöntum og
með aðstoð erfðatækni er sýnt
fram á hvernig plöntufruman notar
andoxunarensýmið ascorbate preo-
íðasa til að verjast slíku álagi. I
öðru lagi eru rök færð fyrir því
að sömu efnaferli kveikja á þessu
varnarkerfi og plöntufruman notar
til að veijast ásókn skordýra. Nið-
urstöður þessara rannsókna hafa
verið kynntar á ráðstefnum og í
viðurkenndum alþjóðlegum tíma-
ritum.
Björn er fæddur 30. ágúst 1959
og lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Kópavogi 1979. Að
loknu B.Sc. námi í líffræði við
Háskóla Islands 1984 kenndi Björn
við Fjölbrautaskóla Suðurnesja til
ársins 1991. Á meðan á doktors-
námi stóð hlaut Björn „University
Graduate Fellowship" styrk frá
Háskólanum í Bresku-Kólumbíu
1993-1996, styrk úr Minningar-
sjóði Helgu Jónsdóttur og Sigurliða
Kristjánssonar árið 1992 og D.G.
Laird and G. Moe Scholarship for
Bioteehnology 1993. Foreldrar
hans eru Björn K. Örvar, úrsmið-
ur og Hanna Marta Vigfúsdóttir,
skrifstofumaður. Sambýliskona
Björns er Unnur Þorsteinsdóttir
sem einnig er að ljúka doktors-
prófi við háskólann í Bresku-Kól-
umbíu og eiga þau einn son, Þor-
stein.
Björn starfar nú á rannsókna-
stofu dr. Brian Ellis við Háskólann
í Bresku-Kólumbíu við áframhald-
andi rannsóknir á efnaferlum sem
ræsa streituálagsvöi'n í plöntu-
fmmum.