Morgunblaðið - 03.06.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1997 45
sérstakt ritvinnsluforrit fyrir stærð-
fræði til að skrifa nótur sínar og
flókin tákn. Hann vildi kenna hreina
og ómengaða stærðfræði. Þótt hann
væri hagfræðingur fannst honum
lítið til koma að flétta hagfræðileg
fyrirbrigði eins og t.d. verðteygni
inn í stærðfræðina og sagði að það
væru bara spekúlasjónir sem ættu
lítið skylt við raunverulega stærð-
fræði.
Ólafí var tíðrætt um hve heppinn
hann væri að fá að starfa sem
stundakennari við FG. Verður þó
að segja að heppnari voru skólinn
og nemendur hans. Var á honum
að skilja að honum þætti starfið
miklu merkilegra en allur sá frami
er hann hlaut við ævistarf sitt í
bankakerfínu. Voru honum þó falin
hin vandasömustu störf. Hann sagði
sjálfur að mesta ánægju hefði hann
haft af því að greiða götu hins
venjulega manns er til hans leitaði.
Síður féll honum að reyna að greiða
úr vanda þeirra sem voru að reyna
að reka fyrirtæki en kunnu ekki
fótum sínum forráð. Var það að
vonum er öil hans eigin orð stóðu
sem stafur á bók.
Síðari hluta vetrar tók heilsu
Ólafs að hraka. Afráðið var að hann
hætti störfum fyrir aldurs sakir í
lok skólaársins. Laugardaginn 24.
maí voru honum færðar þakkir við
skólaslit fyrir áralangt starf í þágu
skólans. Stundu síðar var hann all-
ur. Sigríði og börnum þeirra Ólafs
sendum við hjónin innilegar samúð-
arkveðjur. Blessuð sé minning Ólafs
Helgasonar.
Kristín Bjarnadóttir.
Sameiginleg vegferð um langa
stund bindur fólk böndum tryggðar
og vináttu. Þau bönd verða ekki slit-
in án djúps trega og mikils sakn-
aðar. Það er huggun á harmastund
að minnast orða Hallgríms Péturs-
sonar í kvæðinu Um dauðans óviss-
an tíma:
„Allrar veraldar vegur víkur að
sama punkt, fetar þann fús sem
tregur, hvort fellur létt eða þungt.“
og „.. .Sálin er svo sem að láni
samtengd við líkamann. í herrans
höndum stendur að heimta sitt af
mér. Dauðinn má segjast sendur að
sækja hvað skaparans er.“
Því er hins vegar ekki að leyna
að okkur gengur oftast erfíðlega að
sætta okkur við að því verði aftur
skilað sem skaparinn lánaði. Ólafur
Helgason lést sama dag og við
kvöddum stóran hóp nemenda við
skólaslit Fjölbrautaskólans í
Garðabæ. Skarð það, sem Ólafur
skilur eftir sig í kennaraliði skólans,
verður vandfyllt. Þessi góði vinur
okkar verður samstarfsmönnum og
nemendum lengi minnisstæður fyrir
margra hluta sakir. Hann var fjöl-
hæfur og fjölfróður menningarmað-
ur. Heimsmaður og gleðimaður.
Hann var aldursforsetinn í okkar
hópi en ævinlega ungur í andanum
og frumlegur og fijór í hugsun.
Ólafur Helgason kom til starfa í
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ árið
1988. Hann hafði þá lokið löngu og
góðu starfí í Útvegsbanka íslands.
Það starf var mjög farsælt og líkleg-
ast ekki metið nóg að verðleikum
þar sem atgangurinn gegn bankan-
um var kominn út fyrir öll skynsem-
ismörk. Það sá þjóðin síðar þótt lítið
hafí farið fyrir leiðréttingum.
Ólafur var afbragðskennari. Hann
var stærðfræðingur af guðs náð og
átti létt með að miðla til ungs fólks.
Kennslustarfið var honum jafnan
hugleikið. Hann kenndi í mörg ár
nokkra tíma ásamt bankastörfunum.
Ég minnist fyrstu kynna okkar sem
kennarar í Vogaskóla fyrir rúmum
þijátíu árum þegar hann kenndi
stærðfræði í tveim landsprófsbekkj-
um af mikilli innlifun og brennandi
áhuga. Ekki gat ég merkt að áhug-
inn hefði neitt dofnað á þessum ára-
fjölda sem liðinn er.
í minningunni lifir góður drengur
sem ævinlega bar hlýjan hug til
nemenda. Hann gladdist yfír vel-
gengni atorkusamra nemenda en
hitt var eftirtektarvert að þeir sem
minna máttu sin áttu vísa velvild
hans og leituðu gjaman til hans.
Þeir voru ófáir aukatímarnir sem
Ólafur bauð nemendum sínum án
þess að nokkuð væri rætt um borg-
un.
í hugum okkar starfsmanna skól-
ans var Ólafur einstakt ljúfmenni
sem sýndi okkur öllum lipurð og
mikið vinarþel. Við eigum margar
góðar minningar um líflegar umræð-
ur á kennarastofu, glaðværð í ferða-
lögum og á ýmsum mannamótum.
Hann var jafnan hrókur alls fagnað-
ar þar sem kímnin særði engan en
gladdi alla.
Að leiðarlokum votta ég eigin-
konu Ólafs, Sigríði Helgadóttur,
börnum þeirra og öðrum ástvinum
innilega samúð og þær kveðjur flyt
ég enn fremur í nafni Fjölbrauta-
skólans í Garðabæ.
Blessuð sé minning Ólafs Helga-
sonar.
Þorsteinn Þorsteinsson.
Á undanfömum árum hef ég oft
verið spurður hvernig standi á því
að vinskapur okkar Ólafs Helgason-
ar skuli hafa enst svo vel án þess
að nokkurntíma bæri þar skugga
á, því vel má ímynda sér samstillt-
ara dúó en blásarafífl og banka-
stjóra. Við spumingunni er aðeins
til eitt svar: Ólafur gerði mig að
kommúnista úti í Kaupmannahöfn
í nóvember 1949. Síðan hef ég stað-
ið í óborganlegri þakkarskuld við
hann. í tæplega hálfa öld sem liðin
er frá þessum tímamótum hafa
stórveldi risið og hmnið, en sú
mannkynssaga er víðsfjarri komm-
únisma okkar Ólafs. Við vomm
herbergisfélagar þarna í Kaup-
mannahöfn þangað til Ólafur flutti
búferlum til Svavars Guðnasonar á
Nörrebrogade, en síðan var ég
heimagangur þar á bænum. Vinátta
okkar beggja og frú Ástu konu
Svavars hefur haldist alla tíð síðan,
og þá heldur orðið traustari með
árunum.
Við vinirnir höfðum báðir komist
í bland við músík í bernsku, - Ólaf-
ur kominn með fíðlu í fangið en ég
með trompet. í Kaupmannahöfn var
Ólafur búinn að leggja fiðluna á
hilluna en tekinn til við hagfræði-
doðranta í staðinn, en ég hélt mitt
gamla blásarastrik á Kongelig
Dansk Musikkonservatorium. En
það breytti engu um hitt, - við
sóttum saman alla sinfóníutónleika
sem kostur gafst á og héldum áfram
í sama dúr þegar hingað heim var
komið. Að loknum konsertum héld-
um við gjarnan fundi um málið og
fylgdi oft töluverður hávaði umræð-
unum. Uppáhalds orðtak Olla um
íslenska nútímatónlist var stutt og
laggott: Þetta er ósköp „blægneb-
bet“. Af því að talið hefur borist
að músík er rétt að geta þess að
það var Ólafur Helgason sem gaf
mér nafnið Bjössi blásari og það
svo rækilega að síðan eru þeir sára-
fáir sem bera nokkur kennsl á Björn
Ásgeir Guðjónsson, en aftur á móti
þekkir fjöldi fólks Bjössa blásara.
Þegar Ólafur giftist Sigríði
Helgadóttur og þau tóku að hlaða
niður börnum varð ég sjálfskipuð
1. barnapía þeirra hjóna. Nú er það
löngu liðin tíð og litlu skinnin orðin
mesta myndarfólk, og ég vil að lok-
um þakka foreldrum þeirra óijúfan-
lega vináttu og ógleymanlegar sam-
verustundir þótt slík gæfa verði
seint fullþökkuð.
Björn Á. Guðjónsson.
Mig langar að minnast Ólafs
Helgasonar, fyrrverandi bankastjóra
Útvegsbanka íslands, nokkrum orð-
um.
Kynni okkar hófust á árinu 1964,
þegar ég hóf störf í bankanum. Ólaf-
ur var þá settur skrifstofustjóri og
réð hann mig í bankann. í nokkur
misseri vorum við nágrannar á 1.
hæð í „Pálshúsi“, hann í ábyrgða-
deild og ég í sparisjóðsdeild bankans.
Ólafur var mjög eftirminnilegur
samstarfsmaður, snöggur að af-
greiða málin og fljótur að átta sig
á aðalatriðum. Mér er minnisstætt
þegar ég eitt sinn leitaði til Ólafs.
Ég hafði þá fest kaup á íbúð og
vantaði aukavinnu til að diýgja tekj-
umar. Ég sagði honum þetta og það
stóð ekki á liðsinni hans. Tveim
dögum seinna var ég kominn í bygg-
ingavinnu austur í Búrfellsvirkjun.
Ólafur fór síðar til Vestmanna-
eyja, þar var hann útibússtjóri
bankans í mörg ár. Hann var fljót-
ur að vinna sér trausts og vinsælda
Vestmannaeyinga, þeir kunnu vel
að meta það þegar bankastjórinn
mætti í frystihúsið til vinnu, þegar
landburður var af físki og verkafólk
vantaði í aðgerð. Starfsfólkið í úti-
búinu kunni ekki síður að meta
þennan alþýðlega útibússtjóra sem
kom fram við starfsfólk sitt eins
og jafningi. Vafalaust hefur ekkert
fengið eins mikið á Ólaf í starfí
eins og þegar gos hófst á Heimaey.
Útibúinu í Eyjum var lokað og starf-
semin flutt í setustofu starfsfólks á
5. hæð við Lækjartorg. Gífurlegt
álag var á Ólafi á þessum árum og
ekki síður þegar enduruppbygging-
in hófst. Eitt er víst að Ólafur kom
ekki alltaf heim í kvöldmat á réttum
tíma eða tók samningsbundið sum-
arfrí á þessum árum.
Síðar tók Ólafur við starfí banka-
stjóra Útvegsbanka íslands í
Reykjavík. Eins og ég nefndi áður
var Ólafur mjög vinsæll meðal
starfsmanna bankans, enda leituðu
þeir til hans óspart, ef einhver
vandamál þurfti að leysa og ekki
tengdust þau öll bankamálum. í
hádeginu var stundum gripið í spil
eða tekin stutt skák og var Ólafur
þá yfirleitt með, enda sterkur skák-
maður og keppti oft fyrir hönd
bankans. Ólafur var góður starfsfé-
lagi og við minnumst hans sem
dugmikils starfsmanns sem áorkaði
miklu fyrir þann banka sem hann
valdi sér sem vinnustað lengst af
ævinnar.
Ég votta eftirlifandi konu hans
og öðrum aðstandendum samúð
mína.
Guðmundur Eiriksson, starfs-
mannastjóri íslandsbanka.
• Fleirí minningargreinar um
Ólaf Helgason bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
yCXXIXIIIIIJ^
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Erfidrykkjur
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
u Simi 562 0200 u
rxiixxiiiixxi
í stórum og rúmgóðum sýningarsal okkar
eigum við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir
legsteina og minnisvarða úr íslenskum og
erlendum steintegundum.
Verið velkomin til okkar eða hafið
samband og fáið myndalista.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GRÍMEY JÓNATANSDÓTTIR,
Garðvangi,
Garði,
lést sunnudaginn 1. júní.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jónatan Aðalsteinsson,
Ásthildur Aðalsteinsdóttir.
t
SÆUNN JÓNSDÓTTIR
frá Vesturhlíð,
Lýtingsstaðahreppi,
Skagafirði,
til heimilis f Asparfelli 2,
Reykjavík,
sem lést á Sjúkrahúsi Suðurlands að morgni
miðvikudagsins 28. maí, verður jarðsungin frá
Áskirkju miðvikudaginn 4. júní kl. 13.30.
Eyþór Gfslason,
Marfa Eyþórsdóttir, Bima Eyþórsdóttir,
Gfsli Eyþórsson, Ingibjörg Eyþórsdóttir,
Kári Eyþórsson, Jón Eyþórsson,
tengdaböm, barnabörn
og barnabamaböm.
+
Okkar ástkæri
JÓNMUNDUR EINARSSON
stýrimaður,
Engjaseli 84,
Reykjavfk,
varð bráðkvaddur laugardaginn 31. maí.
Hrafnhildur Eiríksdóttir,
Harpa Dfs, Einar Sævar,
Anna Karen,
Valdfs Pálsdóttir
og systkini hins tátna.
Innbrots-,
Öryggis- og
feruniktrfl
ELFA-GRIPO
ein mest seldu öryggiskerfin
í Evrópu.
Samþykkt af viðurkenndum
prófunarstofnunum og
fjarskiptaeftirliti ríkisins.
Mjög hagstætt verð.
Kapalkerfi frá kr. 11.610.
Þráðlaus kerfi frá kr. 22.050.
Úrval aukahluta:
Reykskynjarar, sírenur,
símhringibúnaður, fjarstiilingar.
Ódýr og örugg heimilisvernd.
Tæknileg ráðgjöf - auðvelt f
uppsetningu.
m-
Einar
Farestvett&Co.hf.
Borgartúni 28 • Sfmar 582 2901 og 562 2900
Söluumboð Akureyri: LJósgJaflnn