Morgunblaðið - 03.06.1997, Síða 38

Morgunblaðið - 03.06.1997, Síða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN „VIÐ TÓKUM okkur saman fjórar mæður og ákváðum að hefja for- varnir gegn vímuefnum eftir öðr- um leiðum en venja er. Ég tek það skýrt fram að þetta kom ekki upp * vegna neinna vandamála,“ sagði Hjördís Bjamadóttir, ein fjögurra mæðra frá Grundarfirði sem hlutu Foreldraverðlaun Heimilis og skóla sl. fimmtudag. Hinar eru Ingibjörg Þórólfsdóttir, Hildur Sæmundsdóttir og Anna María Reynisdóttir. Verkefnið kölluðu þær Tilveru og í stað þess að vera með boð og bönn var markmiðið að byggja upp sjálfstraust og sjálfsmynd nemenda. „Við fórum þá leið að fá fyrirlesara einu sinni í viku, sem ^ fjölluðu um hin margvíslegustu málefni. Hingað kom hárgreiðslu- kona og ræddi um meðferð á hári, krakkamir fengu fræðslu um ból- ur, meðferð húðar og mataræði. Þeim var kennd hand- og fótsnyrt- ing og þá sýndu strákarnir meira að segja mikinn áhuga. Banka- starfsmaður veitti tilsögn í sam- bandi við fjármál, því i svona litlu byggðarlagi fara krakkarnir að heiman eftir 10. bekk,“ sagði Hjör- dís. Allir dönsuðu línudans Stúlka frá jafningjafræðslunni ræddi við unglingana, þjónn fræddi þá um hvernig haga ætti ^ sér á veitingahúsum og þannig mætti lengi halda áfram. „Ef sjálfstraust krakkanna er í lagi hafa þau þrek til að segja nei takk við vímuefnum og geta lært að skemmta sér án þeirra. Það sáum við einna best þegar hingað kom kennari til að kenna línudans. Þá dönsuðu allir af hjartans lyst.“ Augljóst var að nemendurnir Morgunblaðið/Ásdís FRÁ verðlaunaafhendingunni. F.v. Unnur Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, Jónína Bjartmarz formaður, verðlaunahafarnir Hjördís Bjamadóttir, Anna María Reynisdóttir, Ingibjörg Þórólfsdóttir og Hildur Sæmundsdóttir. Lengst til hægri er Axel Eiríksson formaður dómnefndar. Foreldraverðlaun veitt í annað sinn Forvamir sem féllu í kramið voru mjög ánægðir með framtak- ið því á sumum námskeiðunum var 100% mæting en Hjördís telur að að jafnaði hafi mæting verið 90%. Alls eru um 40 nemendur í 8.-10. bekk grunnskólans. Einn fyrirlestur var bæði fyrir foreldra og nemendur, en þá kom sálfræð- ingur sem ræddi fyrst við ungl- ingana og síðan við foreldrana, þar sem meðal annars var farið inn á jákvæðan aga. Aðspurð um kostnað við nám- skeiðin segir Hjördís að mæðurn- ar ásamt öllum heimamönnum hafi gefið vinnu sína. Síðan leit- uðu þær eftir fjárstyrk frá ýmsum samtökum og félögum auk sveit- arfélagsins. „Okkur var alls stað- ar tekið vel og við máttum nota öll hús á svæðinu sem við þurft- um. Þetta varð til þess að krakk- arnir þurftu ekkert að borga fyr- ir námskeiðin." Svo mikil ánægja var meðal nemenda og foreldra, að beðið hefur verið um að þessu starfi yrði haldið áfram næsta vetur. „Við erum ylvolgar, þrátt fyrir að þetta sé gífurlega mikil vinna. Við horfum til þess að hafi krakk- arnir nóg fyrir stafni - og það er ekki sama hvað það er - þá verður lífið mun jákvæðara, sem skilar sér heim til þeirra,“ sagði hún og bætti við: „Við erum eng- ir fræðingar en eigum nóg eftir af hugmyndunum. Það þarf ekki alltaf að vera það dýrasta sem verður heilladrýgst. Aðalatriðið er að fræðslan sé stutt og að þau fái svo að spreyta sig á verkefn- um.“ Aðrar tilnefningar Samtals fengu 11 einstaklingar, foreldrafélög/foreldraráð, skóla- stjórnendur, kennarar og starfs- menn skóla tilnefningar; Jón Hjartarson forstöðumaður Skóla- skrifstofu Suðurlands, Stefán Jó- hannsson ráðgjafi í Reykjavík, Vigdís Stefánsdóttir, Reylqavík, Stefanía Ingimundardóttir og Ragnheiður Ingadóttir, Hafnar- firði, foreldraráð Kópavogsskóla, foreldrafélag Æfingaskólans, for- eldrafélag og stjómendur Oldu- selsskóla, sljóm foreldra- og kenn- arafélags Grannskólans í Þorláks- höfn, Vímuvarnamefnd foreldra- félags Garðaskóla, stjómendur og starfsmenn Álftamýrarskóla og samstarf leikskóla og grannskóla í Setbergsskóla Hafnarfirði. Hönnunardeild Iðnskólans í Hafnarfirði Nám í gluggaútstill- ingum í undirbúningi Morgunblaðið/Jón Svavarsson ÚTSKRIFTARNEMARNIR Rúnar Arnarson og Helgi Elíasson. NÁM í gluggaútstillingum hefur fram tii þessa ekki verið kennt á ís- landi sem fullgilt nám en nú er það í undirbúningi í hönnunardeild Iðn- skólans í Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir að það verði tekið upp haustið 1998. Iðnskólinn í Hafnarfirði var fyrstur íslenskra skóla til að setja á stofn hönnunardeild árið 1990. Hefur hún verið í stöðugri þróun síðan og nem- endum fjölgað jafnt og þétt, að sögn Þorkels Gunnars Guðmundssonar deildarstjóra. Námið er undirbúning- ur fyrir frekara nám erlendis, t.d. í iðnhönnun og arkitektúr. Telur Þor- kell fyllilega tímabært að lengja það hér heima um tvö ár og koma því á háskólastig. Segir hann Iðnskólann í Hafnarfirði vera faglega í stakk bú- inn að sinna því; helst standi hús- næðisskortur því fyrir þrifum. „Mitt álit er að nemendur yrðu eftir sem áður að afla sér árs framhaldsmennt- unar erlendis til að víkka sjóndeildar- hringinn." ■* Glæsileg sýning í vetur voru 86 manns við nám í deildinni en 17 útskrifuðust í síðustu viku. Voru verk þeirra til sýnis í Hafnarborg í Hafnarfírði, þar sem þau vöktu verðskuldaða athygli. „Nemendur ljúka námi á mismunandi löngum tíma eftir því hvaða undir- búning þeir koma með inn í deiidina. Um helmingur nemenda hefur stúd- entspróf og þeir geta yfírleitt lokið náminu á 1 'h ári en hjá öðrum tekur námið 2—2'/2 ár. Gallinn er sá að námið er ekki lánshæft og því hafa * margir ekki séð sér fært að stunda það.“ Rúmlega þriðjungur námsins er bóklegt, s.s. tungumál, raungreinar, félagsfræði, bókfærsla o.fl. Vs náms- ins fara í ýmiss konar teikningu, lista- sögu, tölvufræði auk verklegra greina. Fræðast nemendur um og vinna með efni, tæki og aðferðir við málmsíði, trésmíði, plastvinnu, MARGT fallegra muna var á sýningunni. steinavinnu auk þess sem þeir fá þjálfun í vinnubrögðum við hönnun og smíðar, svo dæmi séu tekin. Þor- kell segir að sumir nemendanna sér- hæfí sig í ákveðnum greinum eins og t.d. húsgagnahönnun en algeng- ara sé að þeir leggi jafn mikla áherslu á allar greinar. Hluti hönnunarnámsins felst í að fara í heimsóknir 1 fyrirtæki auk þess sem atvinnurekendur flytja fyr- irlestra fyrir nemendur innan skól- ans. Þorkell segir að því miður hafí atvinnurekendur ekki sýnt skólanum nægilega mikinn áhuga með nokkr- um undantekningum, „Ég fínn þó fyrir breytingum að undanfomu í þá átt að menn eru að átta sig á að hér er um framtíðarstarfsmenn í iðnaði að ræða,“ sagði hann. Hlaut Evrópustyrk Iðnskólinn fékk í fyrra styrk frá Leonardo da Vinci starfsmenntaáætl- uninni og fór hópur hönnunarnema í þriggja vikna námsferð til Ítalíu. „Þar heimsóttum við sambærilega skóla. Það sem kom íslendingunum mest á óvart var hversu aðstaðan er góð hjá okkur. ítalimir vom verr settir með tækjabúnað og kemur þar til að við höfum aðgang að verknáms- deildum iðnskólans, en þau tæki sem ítalamir notuðust við vom meira í ætt við tæki til tómstundaiðkunar," sagði Þorsteinn G. Guðmundsson. Nemendafjöldi í grunnskólum í Reykjavík árin 1984-2001 Grunnskólar Reykjavíkur næstu 5 árin Fjölgun nemenda sam- svarar þremur skólum GERT er ráð fyrir að gmnnskólanem- endum í Reykjavík fjölgi um 1.600 á næstu fímm ámm. Er þetta mun örari fjölgun en ver- ið hefur á undanfömum áratug og samsvarar því að þrír nýir skóiar bætast við á næstu fimm ámm. 14.314 nemendur em í grunnskólum borgarinnar í ár en gert er ráð fyrir að þeir verði 15.900 skólaárið 2001- 2002. Fjölgunin er mismikil eftir skólahverfum, en unnið er að því á Fræðsluskrifstofu að skoða nem- endaíjölda og gera spá um fjölda í einstökum hverfum. Skólum ber að gefa út skýrslur um sjálfsmat í NÝÚTKOMNU riti um sjálfsmat skóla, sem menntamálaráðuneytið hefur gefið út, kemur fram að gert er ráð fyrir að hver skóli gefi út opinbera sjálfsmatsskýrslu. Slíkt sé forsenda aðhalds og að hægt sé að fylgja umbótum eftir, en einnig að skólinn fái viðurkenningu fyrir það sem vel sé gert. í lögum um gmnn- og framhaldsskóla og reglugerð um starfsemi leikskóla er kveðið á um sjálfsmat skóla. í kafla sem fjallar um tilhögun sjálfsmats segir að skólanámskrá sé grundvöllur sjálfsmats. Þar er skrif- leg lýsing á því hvað gert sé og gera eigi í skóla og útskýringar á því hvers vegna. í ritinu segir að koma þurfí fram með skýmm hætti hvernig staðið er að matinu, hver beri ábyrgð á því í heild og ólíkum þáttum þess, hvem- ig farið sé með uplýsingar og hvetj- ir séu samstarfsaðilar utan skólans, sé um þá að ræða. „Meðan á sjálfs- matinu stendur þaf að halda skrá um framgang og niðurstöður ólíkra verkþátta, þannig að staða verksins sé ljós á öllum sviðum,“ segir þar. I ritinu kemur ennfremur fram að sjálfsmat feli í sér ítarlega lýs- ingu og greiningu á markmiðum og starfí skólans. Jafnframt sé mikii- vægt að fram komi tillögur og úr- bætur og mat á þeim. Velheppnað sjálfsmat sé háð því að unnið sé að því að finna leiðir til að bæta árang- ur skólastarfsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.