Morgunblaðið - 03.06.1997, Síða 40

Morgunblaðið - 03.06.1997, Síða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR Starf Þróunarsamvinnustofn- unar á Grænhöfðaejjum TIL AÐ meta þróun- arverkefni og árangur þeirra, verðum við fyrst að líta á þau markmið sem sett voru fyrir þau í byijun og síðan að dæma árangurinn mið- að við aðstæður. Aðal- markmiðin í byijun sam- starfsins árið 1980 voru „að meta fiskveiðimögu- leika við strendur Græn- höfðaeyja og gera mögulega nýtingu þess- ara auðlinda á hag- kværnan og raunhæfan hátt“. Árið 1990 var síð- an gerður nýr sam- starfssamningur og þá var þessari þróunarsamvinnu breytt þannig að meiri áhersla var lögð á stuðning við haf- og fiskirannsóknir heimamanna. Rannsóknir Til að vinna að_ ofangreindum markmiðum var ÞSSÍ með töluverða starfsemi á eyjunum sérstaklega um 1984 til 1989. Sú starfsemi sem var í kringum íslenska rannsóknaskipið Feng, náði hámarki um 1988 til 1989, í formi rannsókna, tilrauna- veiða og þjálfunar áhafna á skipið. Þá virtist sem mjög góðum árangri hefði verið náð, en þegar tíminn leið frá brottför Fengs (1989) og þess starfsliðs sem tengdist útgerð hans var eins og sú uppbygging rynni að nokkru leyti út í sandinn. Fljótlega sannfærðust menn um að ekki væri •hægt að byggja upp rannsóknir heimamanna á eyjunum án þess að þeir hefðu aðgang að einhveiju rann- sóknaskipi. Rannsóknaskipið íslan- dia var tekið í notkun 1994 og voru þá rannsóknir á fiskimiðum teknar upp að nýju. Fengur var í raun ís- lenskt rannsóknaskip þar sem ÞSSÍ bar ábyrgð á öilum rekstri, en rs. íslandia er þarlent rannsóknaskip rekið af heimamönnum. Nokkrir fiskifræðingar Ha- frannsóknastofnunar- innar hafa tekið þátt í þessu starfi á vegum ÞSSÍ, með tímabundn- um heimsóknum. Starf þeirra fólst í rannsókna- leiðöngrum til athugana á tegundasamsetningu fisks á miðunum og út- breiðslu og magni nýt- anlegra tegunda. Rann- sóknastörf og skýrslu- gerð var fyrst nær eingöngu unnin af starfsmönnum ÞSSÍ eða Hafrann- sóknastofnunarinnar, en eftir 1990 hefur mikil áhersla verið lögð á það að heimamenn ynnu samhliða okkur í hveijum verkþætti frá gagnasöfnun að skýrslugerð. Niðurstöður Það kom fljótt í ljós að veiðisvæð- in við Grænhöfðaeyjar eru mjög tak- mörkuð. Eyjaklasinn nær yfir tölu- vert stórt svæði en yfirleitt er mikið aðdýpi við eyjarnar eða snarbrattur botn niður á 2.000 til 3.000 m dýpi. Við nokkrar eyjar er smávegis land- grunn og einnig eru sumstaðar grunn eða neðansjávar tindar milli eyja. Það þarf því ekki að undrast að niðurstöð- ur úr rannsóknum og tilraunaveiðum urðu þær að fiskistofnar og sérstak- lega botnlægir fiskistofnar við Græn- höfðaeyjar væru einnig mjög tak- markaðir. Til að gera sér grein fyrir því hversu takmarkaðar þessar auð- lindir eru þá er talið að ef allir veiði- möguleikar væru nýttir til hins ýtr- asta, bæði botnlægir stofnar og upp- Stjórnvöld á Græn- höfðaeyjum hafa sóst eftir, segir Vilhjálmur Þorsteinsson, að ná þróunarsamvinnu við okkur á ýmsum sviðum. sjávarstofnar, þá yrði sá afli samt undir 100.000 tonnum og þar af gæti botnfiskur í mesta Iagi orðið um 10.000 til 20.000 tonn. Til sam- anburðar má minna á að samsvar- andi heildarafli okkar íslendinga var um 2 millj. tonna árið 1996. Gagnsemi Þótt fiskistofnar séu svo litlir sem raun er á, eru þeir samt mjög mikil- vægir fyrir þjóðfélagið á Grænhöfða- eyjum. Fiskur er mikill hluti af nær- ingu þjóðarinnar, sérstaklega þeirra sem fátækir eru. Nýtt fiskmeti er mjög mikilvægt fyrir þann litla ferða- mannaiðnað sem er á Grænhöfðaeyj- um, nokkur möguleiki er á sjóstanga- veiði og útflutningi á tegundum sem hlutfallslega mikið verð fæst fyrir eins og t.d. humar. Þótt ekki væri hægt að heija neinar meiriháttar fisk- veiðar var þó mikilvægt að benda á leiðir til að veiða og vinna það litla sem fæst. Ekki má heldur gleyma því að þessi þekking á auðlindunum sem við höfum aðstoðað íbúa Græn- höfðaeyja við að byggja upp, hefur orðið til þess að forða þeim frá þvi slysi að ijárfesta um of í fiskiskipum. Um tíma kom til greina að keypt yrðu nokkuð mörg stór fískiskip eins konar ijölveiðiskip með lánum frá Afríku- bankanum. Upplýsingar um takmark- aða veiðimöguleika urðu til þess að ekkert varð úr þessum kaupum og lántöku. Stjóm Grænhöfðaeyja hefur oftar en einu sinni staðið frammi fyrir því að stórar fískveiðiþjóðir hafa óskað eftir að stunda tilraunaveiðar í land- helgi þeirra með stórtækum veiðiskip- um. Staðfestar upplýsingar um tak- markaða fískistofna auðvelduðu stjómvöldum að neita slíkum beiðnum en slíkar veiðar hefðu í sumum tilfell- um getað skaðað það viðkvæma lífríki sem er við eyjamar. Hafrannsóknastofnun Grænhöfðaeyja (INDP) Hafrannsóknastofnun Græn- höfðaeyja var, þegar við byijuðum samstarfið, í höfuðborginni Praia sem er á eyjunni Santiago, en var flutt þaðan 1992, til útgerðarbæjar- ins Mindelo á eyjunni Sao Vicente og fékk nýtt nafn (INDP). Þessi stofnanaflutningur hefur verið mun erfiðari en heimamenn óraði fyrir, en nú virðist vera að rofa til vegna þess að starfsfólk sem hefur verið í framhaldsnámi bæði hjá okkur og öðrum samstarfsþjóðum er að koma aftur til starfa. Hvað varðar upp- byggingu rannsóknarstarfs á stofn- uninni, þá var eftir 1990 unnið að rannsóknaverkefnum með starfsfólki þannig að yfirfærsla þekkingar og reynslu yrði sem mest, ýmis nám- skeið, t.d. í grundvallaratriðum í tölvunotkun, tölfræði, gagnasöfnun og úrvinnslu gagna hafa verið haldin og efnilegum líffræðingum verið veittur stuðningur við nám. Of langt yrði að telja upp hér alla þá heima- menn á Grænhöfðaeyjum sem hafa komið við sögu okkar samstarfs og fengið einhveija starfsmenntun af samskiptum við starfsmenn ÞSSÍ. Sá hópur er orðinn mjög stór og dreifist yfir flestar starfsstéttir tengdar sjávarútvegi í landinu, t.d. Vilhjálmur Þorsteinsson fískverkafólk, sjómenn, vísindamenn og starfsfólk í stjórnarráðum. Fyrir kemur að fólk sem notið hefur starfs- menntunar af einhveiju tagi fari í önnur störf. Það gæti virtst missir fyrir tilgang þróunarverkefna en er það ekki ef þeir nýtast þjóð sinni annars staðar í þjóðfélaginu. Viðhorf stjórnvalda á Grænhöfðaeyjum Stjómvöld á Grænhöfðaeyjum hafa yfírleitt verið mjög jákvæð í þróunars- amvinnunni með okkur. í fyrsta lagi hafa stjómvöld á Grænhöfðaeyjum sóst eftir að ná þróunarsamvinnu við okkur Islendinga á ýmsum sviðum og í öðm lagi hafa þau komið með mótframlag sem svarar því að fyrir hvern 1 USD sem íslendingar hafa lagt fram, hefur sjórn Grænhöfðaeyja lagt fram 2 USD, oft með því að veita til þess fé til þess frá öðmm samstarfsþjóðum. Þegar nýi rann- sóknabáturinn Íslandía var smíðaður lögðu þeir fram 40% af kostnaði með tilfærslu frá þróunaráðstoð Svía. Stjómvöld á Grænhöfðaeyjum hafa sem sagt lagt sig fram við að hjálpa okkur við að hjálpa þeim. Um gagnrýni Hér er ekki verið að halda fram að framkvæmd verkefna hafí verið gallalaus. Margvísleg mistök hafa eflaust verið gerð á báða bóga. í mörgum tiifellum myndum við nú standa öðmvísi að málum eftir þá reynslu sem við höfum fengið í þró- unarmálum. Gleymum því ekki að þróunarsamstarfíð með Grænhöfða- eyjum er fyrsta sjálfstæða verkefni af þessu tagi sem íslendingar tóku þátt í. Þegar það hófst vom Græn- höfðaeyjar nýfijálst einræðisríki með miðstýrða atvinnuþróun en hefur á skömmum tíma gengið í gegnum óvenju friðsama stjórnarfarsbreyt- ingu til lýðræðis, miðað við Afríku og er að þróa atvinnumál sín í átt að markaðsbúskap. Ef þróunarsam- starf okkar við önnur ríki er farið að sýna árangur þá er það reynslu okkar að þakka sem við höfum fengið t.d. með samstarfinu við Grænhöfðaeyjar. Höfundur er fiskifræðingur. Frí frá opin- berri þjónustu ÞANN þriðja júní var hátíðisdagur verkalýðsins — skatt- leysisdagurinn. Þetta er ekki opinber hátíðis- dagur. Ekki dagurinn þegar steinrunnir verkalýðsrekendur safnast saman í Aust- urstræti og eru hylltir af múgnum. Þetta er ekki einn af þeim dög- um sem íslensk alþýða lætur stjórnmálamenn, atvinnu- og verkalýðs- rekendur vaða yfir sig á skítugum skónum. Nei, þetta er fyrsti dagur ársins sem ís- lendingar eru fijálsir. Þriðji júní er fyrsti dagur ársins sem Islendingar vinna fyrir sjálfa sig — daginn áður, annan júní, var síðasti dagur ársins sem þeir unnu fyrir hið opinbera. Því má e.t.v. halda fram að Iýsing- in hér að framan sé að nokkru leyti færð í stílinn. Auðvitað er það ekki svo að vinnuframlag manna sem innt er af hendi fyrir 3. júní skili einungis ávöxtum til hins opinbera 'MXÍH'JRÍSAR -? ify Hc v 1) 3E XL Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 567 4844 og að það öfuga gildi um vinnu frá og með 3. júní (ef svo væri háttað ynnni eflaust enginn neitt fyrir 3. júní). Skattleysisdag- urinn 3. júní er tákn- rænn — táknrænn fyrir það að þá er liðið sama hlutfall ársins og skatt- heimta er sem hlutfall af þjóðarframieiðslu. Skattleysisdag fyrr En á sama tíma og skattgreiðendur fagna nýfengnu frelsi er rétt að stjórnmálamenn vakni til umhugsunar. Þeir eru ábyrgir fyrir því að steypa þjóðinni í stórkostlegar skuldir. Þeir eru ábyrgir fyrir því að skatt- heimta keyrir úr hófi fram. Þeir hafa tekið of mikið tillit til krafna ýmissa þrýstihópa sem sífellt heimta aukin útgjöld til mála sem þeim eru hjartfólgin án þess að hugsa um hinn þögla minnihluta sem innir skattgreiðslur af hendi. Það er ódýrt fyrir stjórnmálamann að hækka framlag til einhvers „göf- ugs“ málefnis um 250 milljónir. Sú hækkun skilar honum áreiðanlega mörgum atkvæðum úr ranni stuðn- ingsmanna útgjaldanna og skatta- hækkunin á hvern landsmann er einungis um þúsund krónur. Svo lítil að hann hirðir ekki um að mót- mæla. Þetta gerist aftur og aftur og þá verður skattahækkunin um- talsverð, en hvernig eiga skatt- greiðendur þá að ráðast að öllum Þorsteinn Arnalds sökudólgunum? Það gleymist að í hjarta sínu eru íslendingar tals- menn einstaklingshyggju en ekki hóphyggju. En þar sem lesendum er fæstum til setunnar boðið; þeir þurfa af öllum mætti að nýta ný- fengið frelsi vil ég ekki tefja þá um of, heldur leggja nokkrar einfaldar spurningar fyrir þá, sem þeir geta lesið og svarað við hvaða tækifæri sem er: Skattleysisdagurinn er fyrsti dagurinn sem íslendingar eru fijálsir, segir Þorsteinn Arnalds, fyrsti dagur- inn sem þeir vinna fyrir sjálfa sig. Hvers vegna er varið um 100 milljónum til að styrkja pólitíska útgáfustarfsemi sem neytendur hafa beinlínis hafnað? Er nauðsynlegt að skattgreiðend- ur séu neyddir til að greiða 250 milljónir árlega til þess að lands- menn fái að sjá glaðvær andlit veð- urfræðinga á sjónvarpsskjánum og njóta annarrar þjónustu VÍ? Eiga skattgreiðendur að standa straum af um 600 milljóna kostnaði sem hlýst af áhugamáli lítils hluta skattgreiðenda; þjóðleikhúsi, dans- fiokki og sinfóníuhljómsveit? Er það réttlætanlegt að ríkið veiji rúmum 5000 milljónum til þess að hvetja neytendur til að neyta frekar sauðakets og mjólkur í stað kjúkiinga og aldinsafa? Vonandi verður næsti skattadag- ur nær opinberum frídegi verka- lýðsins. Höfundur er verkfræðingur og ritari Heimdallar. I maí að ári? 10. JÚNÍ 1995, 7. júní 1996 og 3. júní 1997. Hvað eiga þessar dagsetningar sameig- inlegt? Þetta eru þeir dagar sem skattadag- inn hefur borið upp á frá því að Heimdallur hélt fyrst upp á hann. Hægt og sígandi færist hann framar á árið, en það þýðir að hver vinn- andi maður eyðir styttri tíma í að vinna fyrir sköttum og gjöld- um í ár en í fyrra. Fleira er skattur en tekjuskattur Við höfum stundum verið spurð að því, Heimdellingar, af hveiju við höfum svona mikinn áhuga á skatta- Því hærra hlutfall af laun- um sem fer til hins opin- bera, segir Elsa B. Vals- dóttir í grein um skatta- daginn 1997, því minna er eftir til ráðstöfunar fyrir einstaklinginn. málum, hvort það séu ekki önnur mál sem ættu að standa okkur nær, eins og til dæmis menntamál eða húsnæðismál. Þessi mál eru vissulega ofarlega á blaði hjá okkur, en þegar nánar er skoðað sést að skattar eru sérstakt hagsmunamál unga fólksins. Það er nefnilega algengur misskiln- ingur að ungt fólk, sérstaklega náms- menn, borgi litla eða enga skatta þar sem það greiðir lítinn tekjuskatt. En það er fleira skattur en tekjuskattur. Heildartekjur ríkisins eru rúmir 126 milljarðar króna og af þeirri upp- hæð er tekjuskattur ein- staklinga ekki nema um 17 milljarðar, eða rúm 13 prósent. Allir sem kaupa mat, föt eða námsbækur borga virð- isaukaskatt, líka unga fólkið. Því hærra hlut- fall af launum sem fer til hins opinbera því minna er eftir til ráð- stöfunar fyrir einstakl- inginn, líka hjá ungu fólki. Lægri skattar - allra hagur Vissulega eru það góðar fréttir að skattadagurinn skuli færast framar á árið. Það væri óskandi að sá árangur væri því að þakka að ríkisstjórnin hefði dregið úr útgjöld- um hins opinbera. Því miður er því ekki þannig farið, heldur hafa út- gjöld ríkisins þvert á móti aukist. Landsframleiðsla hefur hins vegar aukist meira en ríkisútgjöldin og það veldur þessari hagstæðu útkomu. Það má reyndar færa góð og gild rök fyrir því að ástæða þess að lands- framleiðslan hefur aukist jafn mikið og raun ber vitni sé góð stjórnun efnahagsmála. Þeim efnahagsbata væri hins vegar betur varið í draga úr ríkisútgjöldum og lækka skatta enn meira en það sem núverandi ríkisstjórn ætlar sér. Það er ekki bara hagsmunamál ungs fólks held- ur allra landsmanna, launþega sem annarra. Ég skora á ríkisstjórnina að setja sér það markmið að skatta- dagurinn verði í maí að ári. Höfundur er formaður Heimdallar. Elsa B. Valsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.