Morgunblaðið - 15.06.1997, Page 14
14 SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Þórhildur Þorleifsdóttir leikhússtjóri LR
Vill að tónlistarhús rísi við
hlið Borgarleikhússins
ÞÓRHILDUR Þorleifsdóttir leik-
hússtjóri Leikfélags Reykjavíkur
vill að tónlistarhús rísi austan við
Borgarleikhúsið, á horni Lista-
brautar og Kringlunnar, verði á
annað borð ráðist í framkvæmdir
af því tagi. Kveðst hún hafa reif-
að hugmyndina víða við ágætar
undirtektir.
„Því fylgja ótvíræðir kostir að
byggja tónlistarhús við hliðina á
Borgarleikhúsinu — húsin myndu
tvímælalaust styðja hvort annað.
Það er mjög vont fyrir menningar-
stofnanir að standa einangraðar,
hvort sem það er á Kringlutorgi,
niðri í Laugardal eða uppi í Öskju-
hlíð,“ segir Þórhildur.
Innangengt milli húsa
Þykir henni vel koma til greina
að innangengt verði milli hús-
anna. „Það gæti orðið mjög hag-
kvæmt, þar sem unnt yrði að
koma við margskonar samnýt-
ingu húsanna, að ekki sé nú talað
um þá aðstöðu sem skapast myndi
til ráðstefnuhalds í húsunum
tveimur."
Að áliti Þórhildar
munu stjórnvöld
missa af gullnu tæki-
færi til að gera
Kringluna að mikil-
vægri verslunar- og
menningarmiðstöð í
borginni, svo sem í
eina tíð hafi verið
stefnt að, ef þau gefa
þessari hugmynd ekki
gaum. „Það er enginn
staður í Reykjavík
sem fleira fólk sækir
heim á degi hverjum
en Kringlan og því
ekki að gera eitthvað
til að gera svæðið að-
laðandi og skemmti-
legt. Þar er að rísa tölvuháskóli,
þar er Verzlunarskóli íslands og
fyrirhugað er að byggja göngubrú
yfir Listabrautina. Það væri ekki
óglæsilegt að sú göngubrú myndi
tengjast gangi á milli tónlistarhúss
og Borgarleikhúss. Síðan gæti fólk
rölt út á Kringlutorg, þar sem allt-
af væri eitthvað fyrir alla.“
Að auki bendir Þórhildur á, að
á svæðinu sé fullt af
börum og kaffihúsum
og það yrði ólíkt
skemmtilegra fyrir
leikhús- og tónleika-
gesti að ganga beint
inn í borgarlífið í stað
þess að hverfa inn í
dimma nóttina. „Það
að fara í leikhús, á
listasöfn og á tónleika
er félagsleg athöfn og
það er engin tilviljun
að fegurstu torg í út-
löndum eru yfirleitt
torgin fyrir framan
óperumar, listasöfnin
og fleiri byggingar af
þeim toga. Að mínu
viti eigum við því að leitast við
að styrkja borgarhugmyndina —
en ekki flýja hana.“
Kveikjuna að hugmyndinni seg-
ir Þórhildur öðru fremur vera
skipulagsbreytingarnar sem gerð-
ar hafa verið á verslunarhús-
næðinu í Kringlunni. „Við það að
tengja verslunarmiðstöðvarnar
tvær, Kringluna og gömlu Borgar-
kringluna, hefur orðið gjörbreyt-
ing á lífi á Kringlutorginu. Þegar
ég hóf störf í Borgarleikhúsinu í
fyrravor var aldrei hræða á ferli
þá sjaldan maður þrammaði út í
Kringlu. Nú hefur fólk aftur á
móti uppgötvað að þarna er hið
ánægjulegasta útivistarsvæði, sól-
ríkt og skjólríkt. Þetta hefur gör-
breytt aðstæðum.“
Kringlutorgið fært
Að sögn Þórhildar, sem á sæti
í nefnd um skipulagsmál Kringl-
unnar, hefur breski arkitektinn
sem vinnur að breyttu skipulagi á
vegum Kringlunnar verið fylgjandi
aukinni menningarstarfsemi á
svæðinu. Til að mynda séu uppi
áform um að færa Kringlutorgið
nær Borgarleikhúsinu í því skyni
að skapa aðstöðu fyrir götuleik-
hús, tónleika og sitthvað fleira.
„Þá hefur arkitektinn verið að
spyijast fyrir um það hvaða menn-
ingarmannvirki vanti í Reykjavík.
Lái manni því hver sem vill að
hafa leitt hugann að tónlistarhús-
inu.“
20 íslenskir listamenn
sýna á Textílþríæringnum
Morgunblaðið/Jim Smart
PETER Maté, Martial Nardeau
og Peter Tomkins verða á Sum-
artónleikum í Stykkishólmi.
Sumartón-
leikar í
Stykkis-
hólmskirkju
Á SUMARTÓNLEIKUM í Stykkis-
hólmskirkju næstkomandi mánu-
dagskvöld verða flytjendurnir þrír.
Það eru Martial Nardeau, þver-
flautuleikari, Peter Tomkins, óbó-
leikari, og Peter Maté, píanóleikari.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Á efnisskrá er Pastorale _et
Arlequinade, op. 41 eftir Eugen
Gossens, Fantasie, op. 79 fyrir þver-
flautu og píanó eftir Gabriel Fauré,
Sónata fyrir óbó og píanó, op. 166
eftir Camille Saint-Saens, Vals fyr-
ir þverflautu og píanó eftir Benjam-
in Godard og Konsertínó í F-dúr
eftir Johann Wenzel Kalliwoda.
---------» ♦ «----
Sýningu Hildar
Waltersdóttur
að ljúka
SÝNINGU Hildar Waltersdóttur í
Gallerí Horninu lýkur 18. júní og er
þetta því síðasta sýningarhelgi. Hild-
ur sýnir málverk unnin á sl. 12
mánuðum undir áhrifum frá menn-
ingu Maasai-ættbálksins.
Sýningin er opin alla daga kl.
11-23.30, sérinngangur gallerísins
er þó eingöngu opinn milli kl. 14-18
en á öðrum tímum er innangengt
um veitingahúsið.
NORRÆNU sendiráðin í Bruxelle
fengu boð um þátttöku á Þríær-
inginn í Tournai í Belgíu sem
stendur frá 28. júní til 28. septem-
ber nk. Menntamálaráðuneytið fól
Textílfélaginu að sjá um hlut ís-
lands. Dómnefnd valdi 60 verk á
sýninguna eftir 20 listamenn og
hönnuði. Hrafnhildur Schram rit-
ar texta í sýningarskrá um textíll-
ist á íslandi og kynnir nokkra
frumkvöðla okkar á því sviði.
Á Textílþríæringnum er sýnd
textíllist og textílhönnun 10. ára-
tugarins frá öllum Norðurlöndun-
um í sex byggingum í miðborg
Tournai, sem er 100.000 manna
Ný hljómplata
• ÚT er kominn ný hljómplata með
úrvali söngsyrpna 14 fóstbræðra.
Syrpurnar voru upphaflega gefnar
út á tveimur hljómplötum. Hljóðrit-
anirnar voru annars vegar í London
árið 1975 að loknu átta ára söng-
starfi kórsins til eflingar félags-
heimilasjóði Fóstbræðra og hins
vegar eftir að félagsheimilið sjálft
var vígt árið 1972. Upptökurnar
hafa verið endurunnar með nýjustu
tækni.
í kynningu segir að 14 fóstbræð-
ur hafi orðið til er nokkrir kórfélag-
borg í frönskumælandi Belgíu.
Þetta er þriðji alþjóðlegi textílþrí-
æringurinn í Tournai, en sá fyrsti
var haldinn 1990 þegar textílverk
frá 18 frönskumælandi löndum
voru sýnd. Árið 1993 voru það
verk frá Austur-Evrópulöndunum
og nú eru það Norðurlöndin sem
eru aðalverkefni, í fyrsta sinn
sameiginlega í Mið-Evrópu með
sýningu á þessu sviði.
í kynningu segir að á öllum
þessum sýningum sé leitast við
að sýna það nýjasta og besta sem
er að gerast í textíllist og hönnun
á hveijum stað og einnig reynt
að fá lánuð gömul listvefnaðar-
ar úr Karlakór Fóstbræðra voru
fengnir til að koma fram í skemmti-
þáttum Svavars Gests í Ríkisútvarp-
inu veturinn 1963-64. Vakti söngur
þeirra þegar hrifningu útvarpshlust-
enda og hefur söngur þeirra ómað
á öldum ljósvakans æ síðan.
Á plötuumslagi segir m.a.: „14
fóstbræður vænta þess, að hljóm-
plata þessi megi falla í geð þeim
hlustendum, sem gaman hafa af því
að rifja upp vinsæl og létt lög, inn-
lend sem erlend, gömul og ný, um-
fram allt: Að taka sjálfir hressilega
undir sönginn!“
13 lögeru á þessari nýju hljóm-
plötu sem Skífan gefur út.
teppi sem unnin voru í Tournai,
Bruxelle eða Enghien á tólftu til
átjándu öld, en eru nú í eigu safna
eða einstaklinga víða um lönd.
Fyrir nokkru komu hingað til
lands dagskrárgerðarmenn frá
belgísku sjónvarpsstöðinni no télé
í Tournai til töku á efni fyrir sjón-
varpsþátt og myndband um
nokkra listamenn sem eiga verk
á sýningunni. Myndbandið verður
til sölu á Þríæringnum ásamt sýn-
ingarskrá.
Norræna ráðherranefndin,
menntamálaráðuneytið, Flugleiðir
og SAS styrkja sýninguna.
mundssonar I Eden.
Jón Ingi
Sigur-
mundsson
sýnir í Eden
JÓN Ingi Sigurmundsson opnar
málverkasýningu í Eden, Hvera-
gerði, mánudaginn 16. júní kl. 21.
Á sýningunni eru 60 olíu-, past-
el- og vatnslitamyndir. Myndefnið
er víðsvegar að af landinu þó mest
af Suðurlandi, m.a. eru nokkrar
vatnslitamyndir af kirkjum á Suður-
landi.
Þetta er 12 einkasýning Jóns
Inga og lýkur henni 29. júní.
Kvikmyndakvöld í
Norræna húsinu
SUMARDAGSKRÁ Norræna
hússins hefst á kvikmyndakvöldi
annað kvöld, mánudag, kl. 19.
Sýndar verða tvær kvikmyndir frá
Islandi: Island runt, með norsku
tali og Portrait of a Glacier, með
ensku tali.
Aðgangur að sýningunni er
ókeypis.
Fyrirlestur á Opnu húsi
Fyrirlestur í Opnu húsi verður
fimmtudaginn 19. júní kl. 20.
Kristján Jóhann Jónsson bók-
menntafræðingur flallar um ís-
lenskar bókmenntir í fortíð og
nútíð og mælir hann á norsku. Að
loknu stuttu kaffihléi verður sýnd
stutt kvikmynd, Island ett levande
land, með sænsku tali.
Kaffístofa Norræna hússins
verður með íslenska sérrétti á boð-
stólum á sunnudögum, mánudög-
um og fimmtudögum og er kaffí-
stofan opin til kl. 22 á fimmtudags-
kvöldum.
Skólakór
Kársness
til Kanada
SKÓLAKÓR Kársness heldur
tónleika í Kópavogskirkju í dag
kl. 16. Þar mun kórinn syngja
hluta af efnisskrá sinni sem flutt
verður á tónleikaferð kórsins um
Kanada, en þangað heldur kórinn
á mánudag og kemur m.a. fram
í Halifax 17. júní og 22. júní á
listahátíðinni „Northern Enco-
unters" í Toronto. Þar syngur
Skólakór Kársness á sérstökum
hátíðartónleikum ásamt finnska
Tapiola-kórnum, Danska
drengjakórnum og Barnakór
Torontoborgar. Kórarnir syngja
sameiginlega á tónleikunum,
m.a. verður frumflutt tónverk
eftir finnska tónskáldið Aulis
Sallinen, en einnig syngur hver
kór fyrir sig. Kórinn heldur líka
tónleika á listahátíð í Ottawa og
i Montreal auk tvennra skólatón-
leika.
Stjórnandi kórsins er Þórunn
Björnsdóttir og undirleikari Þór-
hildur Björnsdóttir.
Aðgangur að tónleikunum í
dag er ókeypis.
MAGNEA GERRIT
Tómasdóttir. Schuil.
Einsöngs-
tónleikar í
Gerðar-
safni
MAGNEA Tómasdóttir sópran-
söngkona verður með tónleika í
Listasafni Kópavogs, Gerðar-
safni, á morgun, mánudag kl.
20.30. Undirleikari er Gerrit
Schuil.
Magnea hefur komið víða
fram, m.a. hélt hún tónleika hér
heima í apríl 1995, söng Sieben
Friihe Lieder eftir Alban Berg
með Trinity Symphony Orchestra
1994 og einsöngshlutverkið í 2.
sinfóníu Mahlers með sömu
hljómsveit 1995. Þá hefur
Magnea sungið aðalhlutverk í
óperum eins og Four Saints In
Three Acts eftir Virgil Thomson,
II Combattimento di Trancredi e
Clorinda eftir Monteverdi og
Töfraflautu Mozarts.
Nú nýlega hefur Magnea feng-
ið tveggja ára samning við óperu-
stúdíóið í Köln í Þýskalandi þar
sem hún mun syngja Donna Eiv-
ira í Don Giovanni á næsta ári,
segir í kynningu.
Operu- og bal-
lettstjórar
funduðu í
Skaftafelli
ÞAÐ kom í hlut íslensku óper-
unnar í ár að halda árlegan fund
óperu-og ballettstjóra á Norður-
löndum. Fundurinn var haldinn í
Skaftafelli dagana 6.-9. júní og
voru þátttakendur um 30, sem
þykir mjög góð þátttaka, segir í
kynningu. Síðan segir: „Fundar-
staðurinn þykir hafa haft mikið
aðdráttarafl, en í Skaftafelli
kynntust óperu- og ballettstjórar
ýmsum gerðum íslensks veður-
fars og nutu stórbrotinnar nátt-
úrufegurðar staðarins."