Morgunblaðið - 15.06.1997, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.06.1997, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Michael Jordan leiddi lið Chicago til fimmta meistaratitiIsins á sjö árum Reynslan skipti sköpum FIMMTI meistaratitill Chicago Bulls á sjö árum íbandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik er f höfn eftir sigur á Utah Jazz í sjötta leik lokaúrslitanna. Lokatölur urðu 90:86 f hörkuleik, eins og raunin var íflestum leikjum liðanna. Með þessum titli er Bulls komið í hóp sögufrægari liða deildarinnar. Aðeins Boston Celtics og Los Angeles Lakers hafa unnið fleiri titla en Chicago, sem sjálfsagt væri nú með níu titla f röð hefði Michael Jordan ekki tekið frf f 1 'A keppnistfmabil tii að spila hafnabolta. Liðið hefur aldrei þurft fleiri en sex leiki til að vinna titilinn. Kynsióða- skipti MAURICE Green kom fyrstur í mark í 100 m hlaupi karla á bandaríska meistaramótinu í frjálsíþróttum í Indianapolis á 9,90 sekúndum, tveimur hundr- uðustu úr sek. á undan Tim Montgomery. Mike Marsh, ólympíumeistari í 200 m hlaupi í Barcelona 1992, varð þriðji á 10,03 sek. og þessir þrír keppa því í greininni fyrir Bandaríkin á heimsmeistaramótinu í ágúst. „Frábært" „ÞETTA er frábær ti!finning,“ sagði Greene eftir hlaupið. Hann var á HM í Gautaborg 1995 en keppti ekki í fyrra vegna meiðsla. Aðeins sex hlauparar hafa farið vegalengdina á skemmri tíma en Greene og tíminn er sá tíundi besti frá upphafí. Drummond varð fjórði MIKE Marsh náði þriðja HM- sætinu eins og fram kom að ofan. Hann varð fjórum þúsund- ustu úr sekúndu á undan Jon Drummond í mark, en Drumm- ond hafði hlaupið n\jög vel í undanriðli - á 9,92 sek. Leroy Burrell, fyrrum heimsmethafi, varð sjötti á 10,09 sek. Devers hætti GAIL Devers, ólympíumeistari í 100 m hlaupi kvenna í Barcelona og Atlanta, hætti keppni á meist- aramótinu eftir að hún varð önn- ur í millriðli. Devers hætti vegna smávægilegra meiðsla, að sögn mótshaldara, en Ifklegra er talið að ástæðan séu mótmæli vegna umræðu um að heimsmeisturun- um Michael Johnson og Dan O’Brien, sem eru meiddir, verði veitt leyfí til keppni á HM í Aþenu í ágúst, þrátt fyrir að vera ekki með á mótinu nú, en það er úrtökumót Bandaríkja- manna fyrir HM. Þjálfari Devers, Bob Kersee, hafði hótað að hans fólk hætti keppni til að lýsa andúð sinni á umræðu um að áðurnefndar kempur fengu undanþágu til að keppa á HM. „Hvers vegna ætti ég að taka þá áhættu að mitt fólk meiddist hér, ef undanþágur verða veittar," sagði Kersee. Hann til- kynnti síðar að eiginkona hans, Jackie Joyner-Kersee yrði með í langstökkskeppninni, sem átti að fara fram í gær, iaugardag. Leikur liðanna var hörkuspenn- andi allan tímann. Utah byrjaði vel og það var ekki fyrr en í fjórða HHBBBBH leikhluta sem heima- Gunnar menn náðu að jafna Valgeirsson leikinn. Þegar það skrifar frá loks náðist virtist Bandaríkjunum agejns tímaspursmál hvenær leikreynsla meistaranna myndi segja til sín. Leikurinn var jafn, 86:86, þegar um 90 sekúndur voru eftir. Sama staðan var upp á teningnum þegar Shannon Ander- son, nýliði Utah, misnotaði þriðja sniðskot sitt á skömmum tíma þegar 28 sekúndur voru eftir. Chicago skipulagði sókn eftir leik- hlé. í þetta sinn ákváðu Utah-menn að umkringja Michael Jordan þegar hann fékk knöttinn, en þjálfari liðs- ins, Jerry Sloan, var gagnrýndur mikið fyrir að gera það ekki í fimmta leik liðanna þegar Jordan skoraði sigurkörfuna úr þriggja stiga skoti. Jordan var fljótur að átta sig þótt tíminn sem liðið hafði til að Ijúka sókninni væri að renna út og kom boltanum á bakvörðinn Steve Kerr. Kerr skaut umsvifalaust rétt handan vítalínu og hitti þegar rúmar fimm sekúndur voru eftir, 88:86. Utah reyndi að setja upp í sókn eftir leik- hlé, en Scottie Pippen stal knettinum og í lokin átti Toni Kukoc auðvelda troðslu, 90:86. Fimmti titill liðsins var í höfn. Jordan var kosinn „leikmaður lokaúrslitanna" í fimmta sinn, enda kom ekki annað til greina. Hann bætti enn við frábæran orðstír sinn í þessari úrslitakeppni. Án hans væri Chicago gott lið, en ekki meist- aralið. Það sást best þegar hann hætti keppni fyrir fjórum árum. Jordan gerði 39 stig í leiknum og Pippen skoraði 23. Utah Jazz getur vel við unað þrátt fyrir tapið. Liðið gerði a.m.k. lokaúr- slitin skemmtileg og spennandi. Lið- ið leikur venjulega mjög yfirvegað, en svo virtist sem pressan í lokaúr- slitunum hefði verið of mikil þegar á reyndi. Liðið tapaði jöfnum leikjum á tæknilegum mistökum í vörn. Karl Malone skoraði 21 stig fyrir Utah, en átti ekki góða leiki í heild. John Stockton skoraði 18 stig. Leikreynslan mikilvæg Leikreynsla meistaranna réð miklu í lokin, enda hefur Chicago orðið að vinna fimm mismunandi lið úr Vesturdeildinni í lokaúrslitunum. Chicago náði loks yfirburðum í sókn- arfráköstum, tóku tíu fleiri en Utah, og það hjálpaði mikið. Þessi titill Chicago er sjálfsagt sætur fyrir leikmenn liðsins. Mikil meiðsli hijáðu liðið í vetur, svo og þreyta, sérstaklega þá leikmenn sem tóku þátt í Ólympíuleikunum síðasta sumar. Fréttamenn gerðu mikið úr því eftir leikinn hvort þjálfari liðsins, Phil Jackson, og þeir Dennis Rodman og Michael Jordan myndu verða hjá liðinu næsta vetur, en þeir allir eru Reuter MICHAEL Jordan sigurreifur með styttuna sem fylgir sigri í NBA. Jordan hefur enn einu sinni sýnt hvers hann er megnug- ur með frábærri frammistöðu ■ hverjum leiknum á fætur öðrum. með lausa samninga. Michael Jordan var óvenju opinskár á blaðamanna- fundi eftir leikinn og var sá eini sem vildi láta hafa eitthvað eftir sér um þetta. „Ég held við eigum það inni að fá eitt tækifæri enn til að bæta við einum titli. Bæði leikmenn og áhangendur hafa lagt mikið á sig að byggja upp sigurhefð hér og það hefur aukið á virði liðsins fyrir Jerry Reinsdorf [eiganda Bulls]. Á meðan við höldum áfram að vinna titla eig- um við það inni að fá eitt tækifæri enn. Phil Jackson á að halda áfram sem þjálfari og Rodman á að fá framlengingu á samningi sínum. Mér er alveg sama um hvernig hann hegðar sér eða hvaða háralit hann hefur eða hvaða kjólum hann er í. Hann berst eins og Ijón allan vetur- inn.“ Talið er víst að Jordan og Jackson muni fá samning eitt ár í viðbót, en Rodman hefur sjálfsagt spilað síð- asta leik sinn með liðinu. Þess má geta að Rodman er fyrsti leikmaður- inn í sögu deildarinnar sem vinnur meistaratitilinn tvisvar í röð með tveimur mismunandi liðum. Hann lék áður með Detroit Pistons. „Sætara með hverju árinu“ „Það er sætara með hveiju árinu sem líður að vinna þennan titil. Ég er að vísu dauðþreyttur núna, en ég á allt sumarið til að slappa af,“ sagði Michael Jordan, alsæll eftir að sigur var í höfn. „Ég hafði fullt traust á að Kerr myndi skora í lokin. Við töluðum um það í leikhléinu hvað gæti gerst og sem betur fer gekk það upp,“ sagði Jordan og bætti við: „[Scottie] Pippen á alveg eins skilið að vera leikmaður úrslitakeppninnar og ég. Hann lék frábærlega og er mér sem bróðir. Ég ætla samt að taka styttuna, en ég ætla að láta hann hafa bílinn [sem fylgir nafnbót- inni].“ Pippen sagði lið Utah það erfið- asta sem Chicago hefur mætt í loka- úrslitum deildarinnar. „Þeir spila mjög agað og nýta vel tímann sem skotklukkan veitir þeim. Ég held að ef við getum stillt upp óbreyttu liði næsta vetur munum við verða enn betri en á þessu keppnistímabili." Stórkostlegt „Jordan sagði mér að vera tilbú- inn ef hann yrði umkringdur í lok- in. Ég varð að hitta; ég hef loks náð að gera það sama og John Paxon gerði [1993 gegn Phoenix] og það er stórkostleg tilfinning," sagði Steve Kerr, sem tryggði sigur Chicago í lokin. Dennis Rodman sagðist feginn að keppnistímabilið væri búið. „Undanfarnar vikur hafa verið mér erfiðar persónulega. Utah er geysi- sterkt lið og við máttum hafa okkur alla við. Ég vona að ég eigi aftur- kvæmt hingað næsta keppnistíma- bil,“_sagði þessi litríki leikmaður. „Ég er náttúrlega vonsvikinn núna, en það kemur nýr dagur á morgun. Leikmenn Chicago sýndi í leikjunum gegn okkur af hveiju þeir eru meistarar. Við gáfum allt sem við gátum, en Pippen var hreint frábær í vörninni hjá þeim í öllum leikjunum," sagði Karl Malone. Hann gerði 21 stig í leiknum, Jeff Hornacek 18 og Bryon Russel 17. Greg Ostertag tók átta fráköst fyr- ir Utan og Malone sjö en Jordan og Rodman 11 hvor fyrir Chicago. John Stockton átti fimm stoð- sendingar og Howard Eisley þijár en Jordan (4) og Rodman (3) voru efstir á blaði hjá meisturunum. Mm FOLX ■ RONALDO skoraði tvívegis þegar Brasilía sigraði Costa Rica 5:0 í fyrsta leik sínum í C-riðli Ameríkukeppninnar í knattspyrnu í Bólivíu á föstudagskvöld. Rom- ario og Djalminha gerðu eitt mark hvor og eitt var sjálfsmark. ■ LUIZ Hernandez gerði tvö mörk fyrir Mexíkó sem sigraði Kólumbíu 2:1, einnig í C-riðli keppninnar. Hamilton Ricard gerði eina mark Kólumbíu. ■ FÆST löndin í Suður-Ameríku- keppninni stilla upp sterkustu liðum sínum að þessu sinni vegna þess að keppni í undanriðlum heims- meistarakeppninnar í álfunni er í fullum gangi á sama tíma. ■ BRASILIA er með sitt sterkasta lið, enda er liðið heimsmeistari og þar með öruggt með sæti á HM í Frakklandi næsta sumar og tekur ekki þátt í undankeppninni. Costa Rica er líka með sterkasta lið sitt. ■ MARTIN Hidalgo gerði eina markið er Perú sigraði Úrúgvæ 1:0 í B-riðli keppninnar. ■ HEIMAMENN sigruðu Venezuela 1:0 í fyrsta leik sínum á fimmtudag. Milton Coimbra skoraði fyrir Bólivíu. ■ COLIN Montgomerie, sem hafði forystu eftir fyrsta dag opna bandaríska meistaramótsins í golfi, með 65 högg, lék á 76 annan dag- inn - sex yfir pari - og var þar með kominn fjórum höggum á eftir Tom Lehman, sem var fyrstur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.